Mánudagsblaðið - 22.03.1965, Page 1
17. árgangur
Mánudagur 22. marz 1965
11. tölublað
Fáránlegt, silf erðisf ris m-
varp7 fyrir þinginu
Refdngar fyrir kynlíf undir 18 ára — Fangelsi, varðhaldi og sektum hótað — Yfirhilmingar lög-
brot — Þrjár hættulegar stéttir — Furðuleg hræsni og hlálegt óraunsæi — Hvern eru þeir að plata?
Ráðherrar yfirspíónar.
Það verður gaman að sjá hvernig dó'msmálaráðherra tekst nú
til þegar hið yfirgripsmikla frumvarp, sem nú er í þinginu og
fjallar um vernd barna og ungmenna, verður að lögum. Frum-
varp þetta, þótt víða mjög sæmilegt, er svo fullt af yfirdreps-
skap, óframfylgjanlegum reglum, óraunhæfum ákvæðum, að
segja má furðu mikla, að þingmenn skuli hvergi hafa haft kjark
til að horfast í augu við staðreyndir.
SVEFNHERBERGISSPION
Nú er svo komið, að þingið,
undir stjóm dómsmálaráðherra
og með aðstoð barnaverndar-
nefndar á að verða einskonar
svefnherbergisspíon, huga að
næturgamni borgaranna allt að
18 ára, og klekkja á allskyns
ástaleikjum hinna upprennandi
borgara. Mun barnaverndar-
nefnd verða aðalframkvæmda-
stjóri ríkisnjósna um kynferðis-
hegðan, en þegar veigameiri
mál eru í bigerð fellur það í
hlut lögreglunnar að þefa uppi
hið sanna í málum rekkjuvoða-
afbrotalýðs Reykjavíkur.
dómsmAlarAðherra ?
Nú, takist ekki þessum sið-
ferðisdetektívum að koma delin-
qventum fyrir dóm, eða mistak-
ist þeim gagnaöflun, þá kemur
til kasta sjálfs dómsmálaráð-
herra að setja upp sólgleraugu
sín, og skyggnast inn í kam-
ers unglinganna í Reykjavík —
um og eftir miðnætti.
FERMINGAR A
FÆÐIN G ARDEILD
Þegar um árabil hefur tíðk-
azt, að menntaskólastúlkur 16
—18 ára hafa barnazt, fætt og
alið á brjósti börn sín milli
kennslustunda, þegar fæðingar-
deildin tekur á móti óléttum
fermingarstúlkum, og skóla-
nefndir leigja dýrustu veitinga-
hús höfuðstaðarins til nætur-
svalls, og 8—10 ára börn fjöl-
menna á bítlakonserta, sem
standa til kl. 2 á nóttunni,
liggja þingmenn oltkar undir
forustu ríkisstjómarinnar, við
þá iðju, að banna kynmök,
sekja þá sem af sér brjóta og
jafnvel þá, sem vita að „glæp-
urinn“ hafi verið framinn, og
segja ekki pólitíinu frá því.
\
FRUMVARP NO. 284
I frumvarpí til laga no 284
stendur meðal annars: „Ef
maður leiðir barn eða ung-
menni allt að 18 ára aldri á
siðferðilega glapstigu, varðar
það sektum, varðhaldi eða fang
elsi allt að 4 árum. Það varðár
sektum, varðhaldi eða fangelsi
ef maður verður áskynja um
brot smkv. 1. mgr., og lætur
ógert að afstýra því, ef honum
er það fært, eða gera hlutað-
eigandi löggæzlumanni eða
barnaverndunarnefnd viðvart.“
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Þarna hafið þið það, piltar
og stúlkur. Nú er sjansinn að
ná hefndum yfir keppinaut i
ástum. „Bara hringja svo kem-
ur það.“ — kærið keppinautinn
— eftir að hafa kíkt á glugg-
ann — og forvitið pólitíið kem-
ur til aðstoðar. Ekki óskemmti-
legt. Það er svo furðulegt hvað
mönnum, þingmönnum, í þjóð-
félagi, sem er — offisially —
27 prósent óskilgetið (sagt 40
prósent í rauninni) getur dott-
ið í hug. Jafnvel frændur okk-
ar Svíar, einhverjir sjúkustu
kynóramenn jarðarinnar eru
Framhald á 6. síðu.
Guðrún Asmundsdóttir í hlutverki vændiskonunnar í „Þjófum,
Iíkum og fölum konum“. —Sjá Ieikdóm á 4. síðu.
,Lokað fyrir íslendinga
A styrjaldarárunum, meðan Sigurður Gröndal var yfirþjónn
á Hótel Borg, sóttu brezkir og bandarískir hermenn staðinn all-
mjög, fengu sér hressingu með hádegismat og jafnan kaffi og
konjak á eftir eða whisky-sjúss.
Stöðvið innfædda
Alltaf fóru þeir prúðmann-
lega með áfengi. Hinsvegar
skipti í anað horn með „inn-
fædda“ sem þá nýlega höfðu
fengið smjörþefinn af að hafa
Óanægja vegna út-
kndra flugmanna
Fá útlendir meira kaup en íslenzkir?
Meðal flugmanna, atvinnumanna hjá Loftleiðum, eru
uppi talsverðar óánægjuraddir vegna ráðningar erlendra
flugmanna á vélar félagsins. Flugmennirnir eru ekki svo
mjög gegn því að érlendir flugmenn séu ráðnir, því bæði
er skortuir á reyndum flugmönnum hjá félaginu og svo
hitt, að ýmsir okkar menn hafa farið út í vinnu. Hitt er
svo, sem gjarnan mætti fást upplýst, hvort satt sé, að er-
lendu flugmennirnir séu á nær helmingi hærra kaupi en
þeir íslenzku, en það gengur fjöllunum hærra. Énn aðrir
vilja halda því fram, að „standard“ útlendu flugmann-
anna sé hvergi nærri eins góður og þeirra íslenzku, og
sumir telja, að einstakir þeirra séu meiri stríðsflugmenn
en áætlunarflugmenn.
Vissulega væri gott að fá úr þvi skorið hversu þessi mál
standa, og Loftleiðir hljóta að hafa orðið þess varar, að
miklar umræður hafa orðið um hina nýju flugmenn á
þessu og fleiri sviðum.
fé milli handa. Urðu þeir jafn-
an dauðadrukknir um hádegið
og uppvöðslusamir og hávaða-
samir að sama skapi. Um 2
leytið hvern eftirmiðdag, en á-
fengi er selt til 2.30, var það
siður Gröndals þjóns að stíga
upp á stól og hrópa — Lokað
fyrir Islendinga — en það
þýddi að innfæddum var mein-
aður frekari drykkur.
Vesalingarnir
Það er ekki laust við að
mönnum detti þessi orð í hug,
þegar blöðin skýra frá, að nú
eigi að fara „að loka fyrir Is-
lendinga" 1 ameríska sjónvarp'
inu vegna nöldurs komma og
vesalingsins hans Ingvars Gísla
sonar. Mikil er trú þess þings,
sem ekki þorir að láta Islend-
inga kynnast jafn „hættulegu“
sjónvarpi og 17—21 árs her-
mönnum er talið óhætt. Undan
má skilja Ingvar litla. Þetta
er kjáni — óþroskaður kjáni.
Eru fslendingar fávitar?
En að Gylfi ráðherra og aðr-
ir „ábyrgir" á þinginu skuli
vera að svara þessu í alvöru
og stjórnarblöðin að skýra frá
þessu er eins óskiljanlegt og
það er bjánalegt. Heiðarlegra
væri að Ioka alveg, heldur en
að láta fara með okkur eins
og aumingjalýð — fákunnandí
frumstæðan og fákænan, sem
varlega verður að 'kynna fyrir
20. öldinni.
Máske er það þó satt — með-
an Ingvar litli og slíkir ganga
lausir.
Bráðlega fer að vora og betra fyrir ungu stúlkurnar að rann-
saka „léttari" föt, áður en hitabylgjujrnar dynja yfir okkur.
Lúxusbygging fyrir
iBnabarstúdenta
Rrjálaður fjáraustur — Hver ábyrgur?
„Harðviður þekur öll loft — hangandi lampar á ca.
1 metra milIibUi — skápar allir klæddir harðplasti og
parketgólf eru í hverri stofu, eins og á fínustu veizlu-
stöðum. Skorsteinn úr múrsteini til augnayndis, í stað
innmúraðs skorsteins, en húsið er steinhús með tvöföldu
asbestlofti. Iílósettin alveg draumur í allskyns tíglum.“
Hvað haldið þið? lúxusliöll í Reykjavík? Ónei, og ekki
heldur svokallaður tækniskóli, námsskóli í t.d. járnsmiði
eða öðrum iðnaði fyrir unga menn. Svona vel búa yfir-
völdin — fyTÍr mUljónir — að hinum ungu mönnum,
þótt margfalt ódýrari skóli kæmi að fullum notum. Vit-
anlega er gaman að búa vel, hafa allskyns lúxus, en
meðan þingmenn rífast um styrki og hrópa um féleysi
og almenningur er að sligast undir opinberum gjöldum,
væri gaman að vita hve miklu og í hverja hið opinbera
hefur kastað þessum blóðpeningum okkar.