Mánudagsblaðið - 07.07.1969, Blaðsíða 7
Mámnxíagur 7. júh' 1969.
Mánudagsblaðið
7
Þúsundir Reykvíkinga
Framhald af 1. síðu.
varpinu syðra. Þeir gleymdu að
geta þess, að þótt þeirra eigin
sjónvarp sé bæði stutt og eitt hið
lélegasta þá auiglýsa dönsk dag-
blöð dag hvern þætti úr sænska,
austur og vestur-þýzka sjónvarp-
inu, sem þeir vel ná á tæki sín
auk ýmissra annarra-
Neyðarleg- ráðstöfun
I þann mund hljóp íslenzka
sjónvarpið af stokkunum, og það
lilálega og neyðarlega er, að síð-
an hefur þetta íslenzka kríli,
bláfátækt og vanræklt á öllum
sviðum, orðið að kaupa suma
þætti, sem birtast í vallarsjón-
varpinu dýrum dómum og ætlar,
þegar það enn skríður á fætur
að bæta við sig vinsælum dýrum
þáttum, sem sýndir hafa verið
syðra. Sjálf situr þjóðin eftir í
einangrun sinni og fáiíæk með
sárt ennið og skilur ekki hvers
vegna hún er svona grátt Ieikin.
Gefa í skyn
Nú er sá tími kominn, að yfir-
gnæfandi meirihluti Islendinga
krefst þess, að við látusm sjónvarp
varnaliðsins . afskiptalaust. Að
vísu er illfært ' fyrir hið opin-
bera þ-e. etjórnina, að óska eiftir
því, að útsendingarstraumurinn
syðra sé aukinn, a.m.k. opinber-
lega. En hins vegar væri ekki úr
vegi, að vissir aðilar gæfu varnar-
liðsyfirvöldunum í skyn, að það
yrði gert sér að átölulausu. Þeir
hafa kyngt öðru eins kinnroða-
laust, en nú myndu þeir upp-
skera þakkir alls almennings,
sem gjarna myndi muna þeim
greiðann þegar næst þarf á at-
kvæðum að halda-
Rembingur
Þessi afkáralegi þjóðarrembing-
ur, sem ,hugsuðimir‘ sýndu í sex-
tíumannasamþykktinni, er í senn
úreltur og hættulegur. Ef þjóðin
ætlar að útiloka sig frá þessum
,,straumum erlendra áhrifa‘‘ þá
getur hún eins vel horfið aflur
í moldarkofana aína og grafið sig
upp og niður úr jörðinni kvölds
og morgna. Það verður eitthvað
annað þjóðerninnu og menning-
unni á lslandi að falli en áhrifin
af vallarsjónvarpinu. Þjóðin hef-
ur staðizt aðra eins raun og út-
sendingar þaðan.
Einangrun og fátækt
Það væri því ráð nú, að ein-
hverjir aðilar á vegum stjórnar-
innar gæfu það góðlátlega í skyn
við varnarlið.syfirvöldin, að ekki
yrði litið illum augum þótt
„straumurinn að sunnan“ yrði
aukinn. Varnaryfirvöldin sjálf og
hinn nýskipaði ambassador
myndu og ekki minnka vinsæld-
ir sínar ef þau yrðu við þessurn
óskum alþýðu hér á landi- Við
getum ekki, fátæktar vegna notið
sjónvarps á borð við meginlands-
þjóðirnar, höfum fárra og smárra
kosta völ.
En í millitíðinni eru þúsundir
á þúsundir ofan að reyna, með
öllum tæknilegum brögðum að
sniðganga þetta heimskuiega og
fáranlega „bann“ sem Gylfi lét
ginna sig til að samþykkja, öll-
um til bölvunar og ógagns og
honum sjálfum, vamaliðinu og
bandaríska sendiráðinu til hneysu
og vanvirðu.
Blökkumenn hafa undanfarin ár verið all-mjög í fréttum bæði
í Ameríku og svo í Afríku. Framfarir hafa orðið í skiptum
hvítra og svartra, og hafa nú svartir fengið aukinn hlut í öllu
menningarlífi, bæði kvikmyndum og öðrum greinum listanna.
Aldrei fór það svo, að þeir tækju ekki upp þá hætti, að sýna
það af kvenþjóðinni, sem sýnandi væri, og sýnir myndin að
ofan þeldökka þokkadís, sem blámenn kunna eflaust að meta,
enda er stúlkan læramikil og broshýr, en slík er oft lyndis-
einkunn frumstæðra þjóða. í hinum ýmsu „lýðræðisríkjum“
Afríku, eru slíkar stúlkur metnar til fjár, en meðalverð slíkra
kvenna er um það bil þrír mjólkandi nautgripir og nokkrar
geitur. Sýnir það, að karlmenn kynflokka þessara hafa tals-
vert verðmætamat.
Það borgar sig að auglýsa í
MÁNUDAGSBLAÐINU
V'»S.
Flogið er á
mánudögum
og þriðjudögum
Beint
þotuflug
til Kaup-
mannahafnar
FRÁ KAUPMANNAHÖFN ERU AFBRAGÐS FLUGSAM-
GÖNGUR UM ALLAN HEIM
ÞRJÁR FERÐIR Á VIKU TIL GRÆNLANDS í SUMAR
UPPLÝSINGAR OG FARSEÐLAR HJÁ
FERÐASKRIFSTOFUNUM OG Á SKRIF-
STOFU OKKAR AÐ LAUGAVEGI 3
SAS