Mánudagsblaðið - 03.11.1969, Page 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 3. nóvember 1969
Dagbók CIANOS greifa
Göring og málverk
Rothschilds
6. apríl: „Þegar Göring var í
Rómaborg, töluðum við uim mögu-
leika á því að fá aftur nokkur
ítölsik málverk, seim væru í Frakk-
landi, einkum þau, sem væru eign
Gyðinga og hefðu verið tekin
eignarnámi af Þjóðverjum. Með-
al þeirra nafna, sem nefnd voru,
var jafnvei Rothschild, sem átti
mörg málverk eftir Boldini. 1 dag
hefur Göring sent mér eimn Böld-
ini að gjöf, og bréf hans byrjar
þannig: „Því miður var ekkert
eftir á heimili Rothschilds" ■ ■ .
Ef menn einhvemtíma finna
þetta brélf, þá lítur það út eins
og það hefði verið ég, sem hefði
gefið hugmyndina um að ræna
heimili Gyðinganna og hann væri
leiður yfir, að hann hefði komið
of seint-“
9- apríl: „Alfieri er kominn til
Rómaborgar í ársleyfi sitt. Hann
hefur ekkert sérstaklega þýðing-
armikið frá að segja, en hann er
ekki eins bjartsýnn og venju-
lega • • ■ Hinsvegar eru þær skýr-
ingar mjög eftirtektarverðar, sem
Bismarck hefur trúað mér fyrir:
Þýzkaland verður að fá frið í
október, hvemig svo sem allt fer,
sagði hann. Herinn hvorki getur
né vill gera árás um það leyti . • •
Það er búið að brjóta í honurn
hrygginn með því að vikja beztu
hemaðarleiðtogunum frá. í
flokknum er allt á ringulreið-
Himmler sjálfur, sem var mjög
róttækur áður fyrr, vill nú fá
samkomulagsfrið. Eingland hlýtur
að vera oiðið fulsatt af stríðinu
og tilbúið til að semja, einkum
ef það fær möguleika til sam-
vinnu við Þjóðverja á móti Jap-
önum. Skyldi þetta aðeins vera
hugarburður Bismarks, eða skyldi
það í rauninni vera skoðun ráð-
andi manna í Þýzkalandi?“
10. apríl: „Host-Venturi (sam-
göngumáiaráðherra) segir, að á-
stæðan til þess, að svefmvagnar,
veitingavagnar og fynstaflokks-
vagnar hafi verið teknir af jám-
brautunum, sé sú, að Mussolini
hafi óskað þess af þjóðfélagsleg-
um ástæðum • • . Fyrir nokkrum
kvöldum síðan varð að lyifta að-
stoðarritaranum í póstmálaráðu-
neytinu upp í lestina í gegnum
gluggann . . Álit ríkisstjómar-
innar hefur ekki vaxið“.
Fjölskyldan Petacci
11. apríl: „Mussolini hefur farið
í heimsökn til félags Japansvina-
Honum fellur betur og betur að
láta kalla sig „bezta vin Japans
í heiminum" . • • De Peppo (ítalsíki
sendiherrann í Tyrklandi) segir,
16
að Tyrkir mundu helzt vilja sjá
síðasta þýzka hermanninn falla
yfir líkið aif síðasta rússneska
hermanninum“.
13. apríl: „Langt samtal við
Donnu Edvige (systur Mussolin-
is) ■ • . Hún vill létta á hjarta sínu
út af máli, sem nú er orðið að
þjóðmáli: Fjölskyldan Petacci • . .
Hún hefur ákveðið að tala við
Mussolini um málið“-
14- apríl: „Japanir hafa stung-
ið upp á þríveldayfiriýsingu um
sjálfstæði fyrir Indland og Arab-
íu. I fyrstu tóíku menn þeirri fregn
ekiki vel í Berlín. Framsókn Jap-
ar.a í áttina til Evrópu er ekki vel
séð- Mussolini mundi hins vegar
fúslega viljað styrkja Japana
21- apríl: „Bismarck segir frá
því, að þýzki aðalkonsúllinn í
Mílanó hafi fengið mjög móðgandi
bréf- Það síðasta hljóðaði á þessa
leið: „Við höfum frétt, að þér sé-
uð að litast um eftir nýjum bú-
stað. Við bjóðum yður hér með
bústað, sem er mjög snotur og
yður samboðinn, þjóð yðar og for-
ingja yðar. Utanáskriftin er þessi“-
Aðalkonsúllinn fór til staðar, sem
upp var gefinn, og sá allt í einu,
að hann stóð fyrir tframan inn-
ganiginn á — fangelsinu“-
22- apríl: „II duce hefur sagt
mér, að Kesselring marskálkur
hafi, þegar hann kom til bakafrá
Þýzkalandi, haft með sér sam-
þykki Hitlers til þess að ráðast inn
í Möltu. (Innrásin var aldrei
framkvaemd)“.
24. apríl: „Japanski hernaðar-
sérfræðingurinn fór hörðum orð-
um um afstöðu Þjóðverja og hern-
aðarrekstur þeirra. Stjórnmála-
legur hemaðarrekstur þeirra er
algjöriega rangur, álíta Japanir".
29. apríl: „Kom til Salzburg • . •
Hitler, Ribbentrop, venjuleg upp-
vakning, venjuleg viðhöfn Við er-
um gestir í Burg Kieisheim • • .
Það er mjög ríkmannlegt þar:
húsgögn, veggteppi, gluggatjöld og
teppi — allt hefur verið tekið frá
F'rakklandi. Þeir hafa sennilega
ekki borgað allt of mikið fyrir
það . .
Hitler lítur þreytulega út, en
hann er ákveðinn að sjá, og hon-
um er mikið niðri fyrir • • • Vetr-
armánuðimir í Rússlandi hafa
gengið nærri honum. í fyrsta
skipti uppgötvaði ég, að hann hef-
ur mörg grá hár í höfðiniu . • •
Hvað skyldi framtíðin bera í
skauti sínu- Ribbentrop er dulari
en áður. Árás gagnvart Rússum í
suðri til olíulindanna sem pólit-
I ísk-hernaðarlegt takmark? Þegar
Rúsar geta ekki lengur náð í olíu,
þá er mótstöðuafl þeirra brotið- Þá
koma íhaldsmenn í Englandi (og
hversvegna ekki Churchill sjálfur,
sem er hygginn maður), og verða
að beygja sig til þess að bjarga
því, sem eftir er aÆ þeirra illa
fengna heimsveldi • . • “
„Ameríka er stór sápukúla“
En hvað skeður, ef Englending-
ar, sem eru einþykkir og þráir, á-
kveða að halda stríðinu áfram?
Flugfélar og kafbátar svarar
Ribbentrop- Þá snúum við til
baka til uppskriftarinnar 1940- En
það varð enginn árangur af
henni þá, og reglunni var skotið
til hliðar- Nú hugsa þeir sér að
taka hana í notkun aftur . . .
Ameríka er stór sápukúla Það
er slagorð, sem er endurtekið alls
staðar af stórum og smáum- Ég
held, að tilhugsunin um það, sem
Ameríkumenn geti og eigi að gera,
valdi þeim öllum óróleika- Þjóð-
verjamir móka til þeas að þurfa
ekki að sjá . • .
Gagnvart Fraklandi kennir
frekar vantrausts og óvissu held-
ur en vináttu Þeir eru ekki örugg-
ir um Laval- Hin sanna afstaða
Frakklands kom greinilega og bet-
ur í Ijós hjá þeim prentara, sem
hætti lífi sínu til þesis, að blað
hans skyldi koma út með nafn-
inu Pétain breytt í Putain (orðið
þýðir: púta eða skækja) ■ . -
Annan daginn eftir hádegis-
verð, þegar búið var að segja allt,
talar Hitler óslitið í einn klt. og
fjörutíu mínútur. Hann sleppti
engu: stríð og friður, trúarbrögð
og heimspeki, list og saga. Musso-
lini leit á armbandsúrið sitt. Ég
hugsaði um miín eiginmál- Það
var bara Cavallero, sem fullyrti
að hann hlustaði í hrifningu . • •
Jodl hershöfðingi fór og lagði sig
á legubekk eftir harða baráttu við
sjálfan sig. Keitel hershöfðingi sat
og kinkaði kolli, en honum tókst
þó að halda sér vakandi-
Maður sér enga líkamlega fríska
menn á götunum í þýzkum borg-
um og bœjum. Maður sér aðeins
konur, börn og gamalmenni. Auk
þess erlenda verkamenn- Þræla
jarðarinnar. Edda, sem heimsótti
vinnustöð ítalskra verkamanna,
hitti mann, sem hafði særzt á
handlegg, þegar miskunnarlaus
varðmaður hjó hann með ljá- Hún
sagði Hitler frá þessu, en hann
leit út fyrir að verða ofsareiður og
gaf skipun um allar mögulegar
handtökur og rannsóknir. En það
breytir engu um veruleikann.
Þjóðverjar hafa misst mikið í
Rússlandi. Ribbentrop segir:
275 000 fallnir. Maras hershöfðingi
okkar (hemaðarsérfræðingur í Ber
lín) hækkar töluna upp í 700 000-
Með þeim, sem hafa misst limi,
hafa kalið og eru alvarlega veik-
ir, svo að þeir ná aldrei heilsu
sinni aftur, stígur talan upp f
þrjár miljónir.
Brezki flugherinn veitir þung
högg. Rostock og Liíbeck hafa
bókstafiega verið jafnaðar við
jörðu- Köln hefur orðið fyrir
þungum höggum- Þjóðverjarnir
reyna að berja frá sér, en kraftur
þeirra fer síþverrandi- Þetta veit-
ir almenningi í landinu litla
raunabót, þar sem fólkið er vant
því að berja aðra ög fá aldrei nein
1ALLRA FERflA
Dag- viku- og
mánaöargjald
é-im-mLJk BO, .
22-0*22
WjI liíIALIJIGAX
MjATÆH"
RAOÐARÁRSTI'G 31
högg í staðinn. Það verður til
þess, að margir þeirra, sem hafa
eyðilagt hálfa Evrópu, fara að
gráta og kvarta yfir „miskunnar-
leysi Englendinga, sem gerir sak-
lausar, þýzkar fjölskyldur heimil-
islausar“- Það alvarlega í málinu
er það, að þeim er full alvara-
Ferðalag okkar vakti ekki mik-
inn áhu-ga á Italíu . • Allir bjugg-
ust við, að Hitler mundi tilkynma
nýja sókn á móti Rússum- En í
staðinn fyrir það hóf hann sókn á
móti þýzku þjóðinni (svo kallaða
allsherjar-hervæðingu)“
4. maí: „Te-k á móti Bose, for-
ingja þjóðernissinnaðra Indverja.
Honum féll illa, þegar hann fékk
að vita, að yfiriýsingin, sem
stungið hafði verið upp á, í sam-
bandi við sjálfstæði Indlanils,
hefði verið söltuð í bili (vegna
mótstöðu Þjóðverja). Hann hefur
fengið það í höfuðið, að við látum
Japana nota okku-r, og að þeir
hafi frjálsar hendur án þess að
kæra sig um, hvað sé möndul-
veldunum fyrir beztu“.
5- maí: „Englendingar hafa her-
tekið Madagaskar- Þessu gat mað-
ur búizt við, síðan Laval hrópaði
út um alla veröld, að hann von-
aðist til að Japanar roum-du verða
á undan Engilsöxum.
Mér hefu.r tekizt að tala um
fyrir hinum heilaga stól að hverfa
frá málaleitunum (til að undir-
búa samikomula-gsfrið), sem mundi
áreiðanlega mistakast“-
11. maí: „Öróinn í Ungverja-
landi kemur fram í smásögu, sem
er nú sögð manna á milli í Búda-
pest- Ungverski utanríkisráðherr-
ann afhendir stríðsyfirlýsingu til
Bandaríkjanna, en ameríski full-
trúinn, sem tekur á móti tilkynn-
ingunni, er ekki sérstakjjgga vel
að sér í Evrópumálum- Hann
spyr:
Er Ungverjala-nd lýðveldi?
Nei, það er konungsríki.
Þá háfið þið sem sagt konun-g?
Nei, við höfum aðmírál-
Þá hafið þið sem sagt flota?
Nei, við hafum ekki neitt vatn.
Þá hafið þið víst eimbverjar
kröfur friam að færa?
Já-
Móti Amerí'ku?
Nei.
Móti En-glandi?
Nei.
Móti Rússlandi?
Nei.
Hver er það þá, sem þið berið
fram krö-fur ykkar gegn?
Rúmenía.
Þá ætlið þið sem sagt að segja
Rúmenum stríð á hendur?
Nei, við eru bandamenn".
Hin nýja sókn Rommels
12- maí: „Rommel ætlar að
hefja árás í Libíu í lok mánaðar-
ins með það fyrir augum að sigra
brezka herinn- (Árúsin byrjar 26.
maí). Hann ætlar sér að taka Tó-
brúk, ef han-n getur, og halda síð-
an áfram allt að gömlu landamær-
unuim. Ef honum tekst þetta ekki,
þá verður hann að láta sér nægja
að hindra fjandsamlega árás með
þvf að verða fyrstur til- Ef svo fer,
verður öllum hers-tyrknum síðan
beitt í einu lagi gegn Möltu-
Þjóðverjarnir ætla sér að senda
niður fallhlífarhersveitir".
16- maí: „Mussolini kemur til
baka (frá Sardíníu) Heimsókn
hans hef-ur haft vissa þýðingu i
sambandi við varnir eyjarinnar-
Það eru góðar hersveitir þar og
nægileg vopn, og köldusóttin á
innrásarsvæðinu mun fella brezk-
ar hersveitir eins og flugur á fá-
einum dögum“.