Mánudagsblaðið - 22.12.1969, Síða 6
6
Mánudagsblaðið
Mánudagur 22. desefber 1969
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason.
Síini rltstjómar: 13496- — Auglýsingasimi: 13496.
Verð í lausasölu kr. 20.00 — Áskriftir ekki teknar.
Prentsmíðja Þjóðviljans.
Jólin — indælasta blekk-
ingahátíð mannsins
Þá er komið að jólum enn einu sinni. Borgin hefur skipt um
svip, búðir eru fullar, björt Ijós í hverjum glugga, skreytt tré,
vaxin í erlendri grund, brosandi forvitin börn mæna á glæstar
jólagjafir stórverzlananna, almenningi léttir í skapi, enda löng
hvíld framundan.
Reykvískir kaupmenn, eins og kollegar þeirra um heim all-
an, brosa sínu þreytta brosi, jafnframt því sem þeir undirbúa
lokalotuna, tvo og hálfan dag af milljónaviðskiptum. Tómu
búðirnar þeirra fyllast, vörur rifnar út og klingið í blessuðum
peningakössunum hljómar sem fegursta sinfónía í eyrum
þeirra.
önnur stétt, grafalvarleg, gengur um götur hugsi. Þetta eru
prestarnir okkar blesaðir, uppfullir af guðdómi. Þetta er líka
þeirra útgerð, öll net skulu í sjó, Beitan er að vísu hin sama.
Gamlar ræður eru dustaðar, nokkru sleppt, öðru bætt við,
fátt frumlegt, en allt þó, að bezt verður spáð, þolanlegt. Annað
augað mænir til himins, hitt á söfnuðinn, bæði, þegar tími
vinnst til, í pyngjuna.
Sumir fárast út í það, að jólin séu hátíð kaupmanna .Vera
má að svo sé, en þau eru ekki síður hátið prestanna, gullvægt
tækifæri til að guða á sálarglugga samborgaranna, biðjast
skjóls I guðs nafni. Biskupinn okkar, yfirmaður safnaðarins á
íslandi, tekur undir englakvak prestanna, þótt hann í raun
vilji, að eigin sögn, hætta eða fresta jólunum í núverandi formi.
Hann hefur margt til síns máls, þótt efa megi, að enn takist
að fresta þesari hátið nú fr'emur eh fyrr.
Jólin og guðspjallalestur eru, sem slík, góð hátíð og sjálf-
sögð. Þau gleðja og hvíla allan almenning, rétta aðra úr kútn-
um, eru tilefni fyrirgefningar og góðvildar í garð nágrannans.
Stríðandi þjóðir fella niður þardaga einn eða tvo daga, aðrir
fella niður vinnu.
Islendingar ganga þó öllum framar. Jólin hjá okkur eru ein
löng hátíð, með 1., 2. jafnvel 3. í jólum, alla hátíðlega og helga.
Kirkjan vælir yfir mönnum alla daga, helgislepjan heldurvelli,
jafnvel 2. daga jóla, þótt öll alþýða líti á daginn, sem dag
skemmtana, dansleíkja og anars mannfagnaðar. Þjóðin slepp-
ur úr leiðinlegri hvíld, hlakkar til mannfunda og gleði. Það eitt,
að losna við útvarpið, yfirsönginn, prédikanir, andlausu hrópin
úr kirkjustólum til guðs, er sú hvíld, sem allir þarfnast. Við
höfum gert jólahátíðina að einhverri „þreyttustu" og útnýtt-
ustu“ hátíð ársins. Húsmæðurnar eru uppgefnar, feðurnir
langþreyttir, jafnvel börnin eru að missa áhugann á gullum
sínum.
En þrátt fyrír öll þau óþægindi, sem jólin skapa, eru þau sí-
endurtekið tilhlökkunarefni. Ár eftir ár leggja menn á sig vök-
ur, erfiði, útgjöld og mikla vinnu til þess að njóta þessarar
hátíðar. Þannig er maðurinn gerður. Þótt hann viti fyrirfram
hvað það kostar þá skal það samt endurtekið. Við skiptum
ekki um eðli á einni nóttu þrátt fyrir aðrar framfarir. Við viljum
blekkinguna, þó við vitum til hennar og finnum tilgangsleysi
hennar. Jafnvel hörðustu efnishyggjumenn virða og meta jólin.
Þau eru nú, eins og þau hafa verið um aldaraðir, enn rík-
asti og bezt undirbúini þátturinn í eilífðarblekkingu og feluleik
mannsins við msnninn sjálfan.
H E RRAD EI LD
Bækur frá Leiftri
Pétur Most III:
Pétur konungur.
Sögurnar um dansk drenginn
Pétur Most eru viöburðaríkar og
skemmtilegar. Hann fer ungur að
heiman, fátækur og vinalaus. En
hann er hraustur og góður drengur
og þess vegna ryður hann sér braut
og kemst heill á sál og líkama gegn
um margar þær hættur, sem öðrum
hafa orðið að fjörtjóni. í þessari þeirra.
sögu kynnist Pétur indverskum
höfðingja, fer með honum á tígris-
dýraveiðar og lendir eins og vant er
í margvíslegum ævintýrum. Þaðan
heldur hann til hafs, lendir í felli-
byl og verður aðskila við skip sitt
á ævintýralegan hátt. Hann ber að
landi á ókunnri eyju og eftir smnd
ardvöl þar kemst hann í kynni við
sjálfa prinsessu eyjarinnar, og
greinir sagan nánar frá kynnum
Kr. 175.00.
Drengurinn frá Andesföllum.
Hann er lágvaxinn en hnellinn
strákur og elst upp hjá afa sínum.
Afi býr einsamall í kofa uppi í
Andesfjöllum og mannaferðir eru
ekki tíðar þangað upp eftir. Múl-
dýrarekinn Ernesto kemur þó öðru
hvoru. Þeir emn aldavinir, gömlu
mennirnir. Drengurinn á engan að,
nema afa sinn. Og þó er mikil saga
að baki hans- En henni kynnumst
við, þegar við lesum söguna um
Drenginn frá Andesfjöllum.
Kr. 175.00.
ROME/BEIRUT
RI0DEJANEIR0
MANILA
Hin nýja Chestetfield filter
fer sigurför um allan heim
NýttChesterfield Filters
WMÍ*
'
;-ÍÍ;:í:Í:í::0Í;Í0:i
|f.Clgerðiw ecill
^PIHEGILLSKAU^
llÍÁ
I
i
l