Mánudagsblaðið - 02.02.1970, Blaðsíða 5
Mánudagur 2. febrúar 1970
Mánudagsblaðið
5
Valur og Rúrik ■
GJALDIÐ
Framhald af 3. síðu.
fremur en algildum reglum. Ef
hann er að leitast við að bæta heim
inn, þá finnur hann ekki „symból-
in"i,í út'köSfttm og undantekning-
um. Orða- og leikritahöfundurinn
Miller^ snillingur leikhússins, bæt-
ir hvorki veröldina né einstakling-
ana með hnitmiðuðum orðaleikj-
um um veraldleg hamingjuslit ein-
staldinga. Þetta eru áhrifamiklar
myndir, sumar jafnvel ógnþrungn-
ar, en þær sanna hvorki né benda á
heildarástand. Hvorki Walter né
Victor eru tákn almenns ástands
né hugarfars, þótt persónurnar,
sem slíkar, séu raunverulegar. Þetta
er bræðrasaga, fjölskyldutradegia,
einföld, máske sönn, en aðeins það.
Esther og Sólomon eru uppfylling,
hvorugt segir frumlega setningu né
túlkar frumlega hugsun. Þau eru
aðeins tvær lífs-„týpur" — eins al-
gengar og hversdagslegar í Ame-
ríku og Jónarnir í Reykjavík. Per-
sónusköpunin er prýðileg og sönn,
en skilur ekkert eftir. Þetta er sér-
stætt og oft áhrifamikið verk, en
það er hvorki „symbol" né boð-
skapur. Og höfundurinn grípur oft
til rökvísi barnanna — hinnar al-
gengu fullyrðingar sem börn nota
— af því bara — en hann orðar
það betur.
Leikstjórn Gísla Halldórssonar
er í senn vönduð og verkmannlega
unnin en heldur þung. Hún er eins
hefðbundin og bezt verður á kosið,
sýnir verkstjórn fremur en leik-
stjórn, ímyndunarafl er lítt fyrir
hendi, enda er verkið nálega bund-
ið öllum upprunalegum hugmynd-
um og bindandi fyrirskipunum höf
undar. Þess gætir hvergi að leik-
stjórinn hafi vogað sér út fyrir
rammann.
Val Ieikenda er gott. Valur Gísla
son er hressilegur Sólomon, nær
oft ágætum sprettum ásamt Rúrik
Haraldssyni. Leikur Vals er örugg-
ur, fágaður og heita má, að hann
nái öllu hugsanlegu úr verkefninu.
Það er ekki létt verk, að leika New
York-júða, þótt vart sé við að búast,
að hann nái talsmáta þeirra. Og
ekki er mér grunlaust að Valur
hafi seilzt til fyrirmynda í túlkun
sinni. Rúrik nær einna hæst í hlut-
verki sínu, sýnir skapskipti af kunn
áttu og leikni, sem ekki bregður
oft fyrir á sviðinu. Herdís Þor-
valdsdóttir fer mjög þokkalega
með sitt hlutverk. Róbert Arn-
finnsson nær mörgu góðu úr lækn-
inum en hann hefur oft gert mildu
betur. Eiginlega bar Róbert öll
þreytumerki mikillar vinnu, náði
hvergi nærri valdi á geðshræring-
um hlutverksins og hafði jafnvel
ekki taum á þaulþjálfaðri rödd
sinni, sem er afar sjaldgæft.
Sýning þessi er góð, mjög svo,
og ég held að áhorfandinn geti
sjálfur bezt lesið úr henni þá vizku
sem honum hentar bezt. Frá mínu
sjónarmiði er þetta aðeins gott leik
húsverk. Og það nægir mér.
A. B.
Mánaðabið
Fjármálaráðherra talar um sparn-
að, auknar kröfur almennings á
hendur hins opinbera og aukin út-
gjöld. Hann hefur að vísu sýnt
sparnaðarviðleitni, en til þessa er
mest um að ræða kák og yfir-
borðsskap, en enga lausn. Ráðin
og nefndirnar hafa engan tíma til
að koma saman, ákvarðanir og
„niðurstöður" bíða mánuðum sam-
an, jafnvel árum.
Dýrkeypt skriffinnska
Þessi vinnubrögð kosta víst mik-
ið í útgjöldum, launum ofl. En
hinn raunverulegi kostnaður er
gífurlegur. Vitið þið, að við á ís-
landi, höfum ennþá starfandi
nefndir, sem eru að rannsaka eða
athuga kosti og galla á kaupum
skuttogara!!! Þessi hneisa er birt
í blöðum fiskiþjóðar, sem hefir
fiskveiðar af öllum tegundum að
aðalstoð lifnaðar síns. Þorpsfélög
kaupstaðir og sjálf Reykjavík hafa
„starfandi" nefndir til að rann-
saka kosti og lesti á útgerð skut-
togara. Þarna er skriffinnsku-
mennskunni einna bezt lýst, enda
fer allt eftir því.
Yngri manna hlutverk
Það er tími til kominn, að
yngri menn flokkanna taki í taum-
ana af eldri fauskunum, sem ekki
viðurkenna 20. aldar vinnubrögð.
Það er tími til kominn að þjóðin
losni úr viðjum og myrkri aftur-
halds og úrelts hugsunarháttar. Ef
stjórnin vill ekki nú þegar taka
forustuna, þá er það ekki annað en
skylt verkefni heiðarlegrar og
framfarasinnaðrar stjórnarandstöðu.
Þannig liggja spilin, herrar mínir.
AuglýsiS í MánudagsblaSinu
IEE5SI
ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070
PÁSKAFERÐIRNAR VINSÆLU
travel
Mallorka — Kanaríeyjar — London
17 dagar. — Brottför 25. marz. — Verð frá kr. 16.500.—
Vinsælustu páskaferðirnar í meira en áratug.
Hægt er að velja um tveggja vikna dvöl á hótelum eða lúxusibúðum á Mallorka
— eða á Tenerife, Kanarieyjum.
Mallorka er fjölsóttasti ferðamannastaður Evrópu.
Þar er sjórinn, sólskinið og veðráttan eins og fólk vill hafa það. Eilíft sumar er á
Mallorka, þar falla appelsínur fullþroskaðar af trjánum í janúar. Sumarparadís
árið um kring. Fjölbreytt skemmtanalíf. — Kanarieyjar eru viðfrægar fyrir nátíúru-
fegurð og milda veðráttu.
Þegar er búið að panta um þriðjung af lausum sætum. Pantið strax og notið tæki-
færið til að fá ódýran sumarauka meðan páskahretið gengur yfir á islandi.
Fararstjórn: Skrifstofa SUNNU í Pálma og Jón Helgason á Kanaríeyjum.
Reglulegar Mallorkaferðir hefjast um páskana. Brottför hálfsmánaðarlega.
■ms
ferðirnar. sem folkið velur
Aukastörf
Framhald af 1. síðu
úð. Því miður virðist hér á mik-
ill misbrestur. Ymsir ráðherrar
gætu alls ekki sinnt öllum þeim
aukastörfum, sem þeim er ætlað,
jafnvel þótt þeir væru ofurmenni
til vinnu. Samt láta þeir tilleiðast,
jafnvel sækjast eftir þessum veg-
tyllum.
Bjúrókratí
Hér þarf skjótra úrbóta. Þjóðin
er að kafna í vonlausri skrif-
finnsku, nefndafargi og „athugun-
um" um mál, sem ættu að liggja
Ijóst fyrir. Þessi sífellda árátta
bjúrókratsins á íslandi, að sitja í
nefnd og „rabba" er ekki aðeins
dýr heldur dregur á langinn knýj-
andi framkvæmdir og ákvarðanir,
sem taka á skjótt án „fundarhalda"
og skriffinnsku.
4
*
A