Mánudagsblaðið - 10.05.1971, Side 1
Blaéfyrir alla
23. árgangur
Mánudagur 10. maí 1971
16. töiublað
Rukka Svíar fyrir forseta-
heimsóknina?
Dagens Nyheter kvartar um kosnað
Stundum hefur það verið haft á orði, að blaðið leggi áherzlu
á allt það sem miður fer hjá Svíum og setji sig aldrei úr færi
að niðra þjóðina. Þetta er út í bláinn, en hins vegar má benda
á mörg dæmi þess, að Svíar gera allt sem í þeirra valdi er til
að hnekkja á okkur og ófrægja á hvern hátt sem býðst. En
látum vera, þó þeir gagnrýni eða vilji taka yfir flugið, eyði-
leggja Loftleiðir, og spotti framkvæmdir okkar.
Engin takmörk
Það sem er óskiljanlegt er
að engin takmörk eru fyrir
hendi hjá þessum rumpulýð,
snobbum heimafyrir, annáluð-
um drykkju og svolamennum
þegar þeir komast út úr land-
helginni. Gagnvart okkur
sýndi eitt af stærstu blöðum
Svía einstæða og lítilmann-
lega framkomu. Það faldi frétt-
ina um heimsókn forsetahjón-
anna á 13. síðu, smáfrétt og
hvatti síðan Stokkhólmsbúa,
að skoða forsetann og frúna,
því tilstandið allt væri tekið úr
vasa sænskra borgara. Styrk-
þegarnir við Dagens Nyheter
þykjast eflaust vera stórþjóð,
eins og þeir raunar eru í sam-
anburði við okkur. En meðal
alvöru þjóða eru þeir kotríki,
full af innanlandsvandræðum,
klámsölu, flóttahæli fyrir
glæpamenn, en þó er sagt, að
bezta fólkið þar í landi sé und-
Eiturlyf:
Hví þegja yfírvöld?
Það má heita undantekning ef menn skilja í starfsaðferðum
iögregluyfirvaldanna. I á þriðja ár hefur hér og í sumum dag-
blaðanna verið hamrað á því, að eiturlyfjanautn væri meiri
en marga grunaði. Lögreglan hefur eytt þessu að mestu, talið
hana jafnvel sér óviðkomandi þótt skólablöð lýstu yfir að stórt
prósent nemenda hefðu fiktað við hana. Þá hafa eiturlyfja-
greni verið fundin og gerð razzia á sum þeirra, einstaklingar
verið handteknir o. s. frv. Þó er engra frétta að leita til þess-
ara háu aðila. Þá voru gerðir út til mennta tollarar í þessum
efnum.
Nú kemur skyndilega í Ijós, að um 40 mál eru á döfinni og
að jafnvei fleiri verði rannsökuð bráðlega. Hví þessi feluleik-
ur? Heldur löggæzlan, að það þjóni einhverjum tilgangi að
þegja rannsóknar- og handtökuefni sitt í hel og leika leyni-
lögregiumenn bófakvikmynda Ameriku? Þessir hasshvolpar
hér á íslandi eru sko hvorki þess virði né svo merkilegir að
íslenzk yfirvöld noti gömlu, haldgóðu rússnesku aðferðina —
að steinþegja.
Samkeppni sendiráðanna
Það lítur nú út fyrir að ekki líði langt þang-
að til að erlendu sendiráðin í Reykjavík komizt
í dálítið skrítna samkeppni sín á milli. Keppn-
isvöllurinn virðist ætla að verða fjaiir Þjóð-
leikhússins, því þar efndi ameríska sendiráðiö
til maraþon át- og drykkjusamkvæmis að lok-
inni frumsýningu Zorba. — (Sjá leikgagnrýni).
Ekki fyrir alls löngu hélt annað sendiráð upp
með samskonar veizlu með bjór og aliskyns mat-
artegundum í tilefni frumsýningar. Ekki væri
ólíkiegt að héðan í frá væru verkefni stofnun-
arinnar valin eftir því hvaða veizlumöguleikar
væru hjá því sendiráöi frá hvers heimalandi
verkið væri. Þetta yrði nokkuð skemmtilieg þró-
un í leiklistarlífinu, einkum ef ráðherrar og
aðrir virðingarmenn fá að vera með eins og síð-
ast varð.
I
i
an þýzkum sendiráðsmönnum
og „túristum" frá stríðsárun-
um, en þau ár komst ekki hníf-
urinn milli þýzkra og sænskra.
Nú er þjóðin viðurkennd sem
hlandfor ættjarðarsvikara og
annarra af álíka kaliber.
Sjálfsagt að borga
íslendingum munar víst ef-
laust ekki um nú, þegar vel
gengur, að greiða sænsku rík-
isstjórninni aftur eitthvað af
kostnaðinum við heimsóknina.
Það er ekki nema sjálfsagt að
hjálpa þessum höfðingjum
fyrst þeir þurfa að kvarta i
stærsta blaði sinu um útgjöld-
in í sambandi við forsetaheim-
sóknina. Okkar pund rýrnar
ekki við það, en spyrja má:
Er það satt, að ein af stærri
vonum kratanna í kosningun-
um sé, að Alþýðublaðið haldi
áfram að vera ólæsilegt vegna
lélegrar prentunar út júní?
hvað sækjum við eða höfum
sótt til Svía, nema skömm,
leiðindi og útgjöld. Ekki er
það menntun, sem ekki fæst
annars staðar. Engin veit til
þess, að við höfum ekki getað
lifað þokkalega án Svía. Hins
vegar hafa þeir gert okkur
marga skráveifu, sem við höf-
um að mestu látið afskipta-
lausa.
Hætta viðskiptum
Auðvitað ætti þjóðin, ef hún
hefði snefil af sjálfsvirðingu,
að svara svívirðingum og
dylgjum frá Svíum með því að
hætta að kaupa sænskar vör-
ur í hverri mynd sem er. Einu
viðskiptin sem við höfum átt
við Svía var síldin, sem þeir
fullunnu vegna ræflaskapar-
ins og þekkingarleysisins hjá
okkur. Nú eru það gærur, en
þar virðast þeir græða, því
iðnaðurinn þeirra er merkari
en okkar. Hvort tveggja þessi
viðskipti mættu vel leggjast
niður að skaðlausu, og græða
myndum við á að fá ekki vörur
þeirra hingað. Svo skelkaðir
urðu þessir herrar þegar
Bandaríkin minntust á kaup-
bann á sænskum vörum að
forustuliðið kom þangað
skríðandi og sleikti ,,gullið“ úr
lófa Nixons.
Og svo rífa þessar alþjóða-
gleðikonur, jafnvel í karl-
mannsmynd kjaft og þykjast
vera veldi. Svei, þeim. G.R.
Gunnar
Ey/ólfs og
heimsmálin
Það er ekki oft, að hægt I
sé að hlæja sérstaklega að l
framboðsbrölti flokka en þó
er ekki laust við að mönn-
Frambjóðandinn.
um stökki bros við örvænt-
ingarfulla tilraun Alþýðu-
flokksins að skreyta fram-
boðslista sinn hérna.
Skrautfjöðurinn að þessu
sinni er vinsæil leikari,
Gunnar Eyjólfsson. í tilefni
sætis Gunnars á listanum
(no 5) birtir blaðið af hon-
um fimm eða sex myndir
Framhald á bls. 6.
ALLT f VOÐA f HAUST
Stjórnlausair hækkamir —
Ótti við gengislækkun
Farið er að gæta nokkurs ótta um að mikil hætta sé á
gengislækkun nú í haust og hefur hin mikla ókyrrð á erlendum
peningamarkaði og svo styrkur þýzka marksins valdið þar
miklu um. Telja má, að ekki sé svo mjög ástæða að ætla, að
gengislækkun á (slandi sé í beinu s.ambandi við markið en
hins vegar er vissa fyrir, að með haustinu verður mikil ef ekki
algjör upplausn í íslenzku fjármálalífi.
Lúalag
Strax og sleppt verður
taumnum af öllum hömlum
verða almennar hækkanir á
öllum opinberum markaði,
hækkanir og kröfur langt fram
um raunverulega getu þjóðar-
innar. Ríkisstjórnin hefur legið
á því lúalagi, að taka frest
fram yfir kosningar í þeim
eina tilgangi að missa ekki
völdin. Er þessi ráðstöfun því
svívirðilegri, að í rauninni er
svo um pottinn búið, að a. m.
k. Sjálfstæðisflokkurinn þarf
lítið að óttast fylgistap vegna
ósamlynd's í herbúðum hinna.
Hækkana-skriSa
Það breytirengu um það, að
verði almennar hækkanir með
haustinu allt að 30—40%
bæði á neyzluvörum og öðrum
almennum varningi.auk hækk-
unar á þjónustu, þá er hleypt
af stað þeirri skriðu, sem ríð-
ur sumum að fullu og rennir
stoðum undir þá almennu
skoðun, að krónan á Islandi
sé óábyggilegasti gjaldeyrir
Evrópu.
Að fá, eða ekki fá
Þó er talið víst, að við fáum
ekki með nokkru móti að ráða
gengi krónunnar sjálfir, því
erlend bankayfirvöld munu
meta og skipa okkur, fyrir um
skráningu hennar. en við að-
eins tillöguhæfir í þeim efnum.
Ríkissjóður, er ,keyrður á
falskri og hættulegri braut og
með algjöru ábyrgðarleysi
gegn því, sem er fyrirsjáanlegt
um leið og núverandi verð-
stöðvun hættir. Ýms mestu
fyrirtæki landsins bíða eins og
Ijón í leyni eftir að loforð ríkis-
stjórnar um að „gefa allt
laust" verður efnt og verður
ekki að sökum að spyrja.
Þögn ráðherra
Takið eftir því, að Magnús
Jónsson hefur ekki látið til sín
heyra um þessi mál eitt ein-
asta orð né heldur reynt að
skýra fyrir þjóðinni þær hætt-
ur sem framundan eru. Hér er
leikinn einn svívirðilegasti
loddaraleikur sem enn hefur
verið sviðsettur fyrir kosning-
ar.