Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 24.05.1971, Síða 2

Mánudagsblaðið - 24.05.1971, Síða 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 24. maí 1971 UR SOGU LANDS OG LYÐS Frá marbendli Mér er í minni stundin, þá marbendill hló; blíð var baugahrundin, (er bóndinn koma af sjó); kyssti hún laufalundinh, : lymskan undir bjó; sinn saldausan hundinn sverðabaldur sló Á Suðurnesjum er bæjarþorp nokkurt, sem heitir í Vogum, en raunar heitir þorpið Kvíguvogar, og svo er það nefnt í Landnámu. Snemma bjo bondi einn í Vogum, er sótti mjög sjó, enda er þar enn í dag eitthvert bezta útræði á Suð- urlandi Einhvern dag reri bóndinn sem oftar, og er ekki í það sinn neitt sérlegt að segja af fiskifangi hans En frá því er sagt, að hann kom í drátt þungan, og er hann hafði dregið hann undir borð, sá hann þar mannslíki og innbyrti það. Það fann bóndi, að maður þessi var með lífi, og spurði hann, hvernig á honum stæði en. hann kvaðst vera marbendill af sjávar- botni. Bóndi spurði, hvað hann hefði verið að gjöra, þegar hann hefði ágoggazt. Marbendill svaraði: „Eg var að laga andskjólin fyrir eldhússtromþnum hennar móður minnar. En hleyptu mér nú niður aftnr." Bóndi kvað þess engan kost að sinni, „og skalni með mér vera." Ekki töluðust þeir fleira við, enda varði9t--matbendill viðtals. Þegar bónda þótti tími til, fór hann í land og hafði marbendil með sér, og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en bóndi hafði búið um skip sitt, að hundur hans kom í móti honum og flaðraði upp á hann. Bóndi brást illa við því og sló hundinn. Þá hló marbendill hið fyrsta sinn. Hélt bóndi þá áfram lengra upp á túnið og hrasaði þar um þúfu eina og blótaði henni; þá hló marbendill í annað sinn. Bóndi hélt svo heim að bænum; kom þá kona hans út í móti honum og fagn aði bónda blíðlega, og tók bóndinn Atkugasemd frá F.Í.B. Með tilvísun til þess fyrirvara sem tryggingarfélögin hafa haft samstöðu um og látið skrá á kvitt- anir fyrir ábyrgðartryggingum bif- reiða, þar sem þau áskilja sér rétt til hækkunar eftir 1. sept. n.k., þá vill stjórn F.Í.B. taka fram að hún telur þennan fyrirvara ólögmætan. Stjórn F.Í.B. hefur fullan skihv ing á því að eðlilegur reksturs- grundvöllur tryggingarfélaganna er hagsmunamál bifreiðaeigenda. Með bréfi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytis dags. 5. maí s.L, hefur F.Í.B. verið boðið að taka þát: í 7 manna nefnd til að endur- skoða „skipulag og framkvæmd á- byrgðarkerfis bifreiða". MeS tilvís- un til þessa mun fulltrúi F.Í.B. taka sæti í þesari nefnd. Stjórn Félags ísl. bifreiðaeigenda. vel blíðskap hennar. Þá hló mar- bendill hið þriðja sinn. Bóndi sagði þá við marbendil: „Nú hefur þú hlegið þrisvar sinnum, og er mér forvitni á að vita, af hverju þú hlóst." „Ekki gjöri ég þess nokk- urn kost," sagði marbendill, „nema þú Iofir að flytja mig aftur á sama mið, er þú dróst mig á." Bóndi hét honum því. Marbendill sagði: „Þá hló ég fyrst, er þú slóst hund þinn, er kom og fagnaði þér af einlægni. En þá hló ég hið annað sinn, er þú hrasaðir um þúfuna og bölvaðir henni, því þúfa sú er féþúfa full af gullpeningum. Og enn hló ég hið þriðja sinn, er þú tókst blíð- lega fagurgala konu þinnar, því hún er þér fláráð og ótrú; munm nú efna öll orð bín við mig og flytja mig á mið það, er þú dróst mig á." Bóndi mælti: „Tvo af þeim hlutum,' er þú sagðir mér, má ég að vísu ekki reyna að sinni, hvort sannir eru, tryggð hundsins og trú- leik konu minnar; en gjöra skal ég raun á sannsögli þinni, hvort fé er fólgið í þúfunni, og ef svo reyn- ist, er meiri von, að hitt sé satt hvort tveggja, enda mun ég þá efna Ioforð mitt".,. Bóndi fór síðan til og gróf upp þúfuna og fann þar fé mikið, eins og marbendill hafði sagt. Að því búnu setti hann skip til sjávar og flutti marbendil á sama mið, sem hann hafði dregið hann á; en áður en bóndi Iéti hann fyrir borð síga, mælti marbendill: „Vel hefur þú nú gjört, bóndi, er þú skilar mér móður minni heim aftur, og skal ég að vísu endurgjalda það, ef þú kant að gæta og nota þér. Vertu nú heill og sæll, bóndi," Síðan lét bóndi hann niður síga, og er mar- bendill nú úr sögunni. Það bar til litlu eftir þetta, að bónda var sagt, að sjö kýr sægráar að lit væru komnar þar í túnjaðar- inn við fjöruna. Bóndi brá við skjótt og þreif spýtukorn í hönd sér, gekk svo þangað, sem kýrnar voru; en þær rásuðu mjög og voru óværar. — Eftir því tók hann, að þær höfðu allar blöðru fyrir grön- um. Það þóttist hann og skilja, að hann mundi af kúnum míssa, nema hann fengi sprengt blöðrur þessar. Slær hann þá með kefli því, er hann hafði í hendi sér, framan á granirnar á einni kúnni og gat náð henni síðan. En hinna missti hann, og stukku þær þegar í sjóinn. Þótt- ist hann þá skilja, að kýr þessar hefði marbendill sent sér í þakkar- skyni fyrir lausn sína Þessi kýr hef- ur verið hinn mesti dánumannsgrip- ur, sem á ísland hefur komið; æxl- aðist af henni mikið kúakyn, sem víða hefur dreifzt um land og er allt grátt á lit og kallað sækúakyn. En það er frá bónda að segja, að hann varð mesti auðnumaður alla ævi. Hann lengdi nafn byggðar sinnar og kallaði af kúm þessum, er á land hans gengu, Kvíguvoga, er áður voru kallaðir Vogar. Deild bók- m enntaþ ekkin gar Vísis „Að sögn Þrándar er leikur- urinn (Sivartfugl) sipunnin úr hinu fræga mjorðmáli á' Sjöundá, þar sem Steinun Bjamadóttir og Bjami á Sjöumdá drápu maka sína. Þrándur sagöi að sér virt- ist að innihald veríksins væri það hvar réttleetið vaeri. — Þetta mun vera eitt fnægasta verk Gunnars Gunnarssonar og slkrif- aði hann það í Danmörku. (Vís- ir 17. miaí). Þar sem hann sennilega fann réttlætið. Einnar mínútu getraun: Hve slyngur rannsóknarí ertu? Mjög slæm yfirsjón Það brakaði í stólnum hans Tom Bronsons þegar hallaði sér aftur á bak, og spennti greipar aftur fyrir hnakkann. Professor Fordney kveikti sér í vindli. Klukkan á lögreglustöðinni sló ellefu. „Haltu áfram“ sagði Bronson. „Wally Gregg og ég voru einir niður við bátahúsið hans Hobsons í eftirmiðdaginn — um það bil klukk- an 2.30“ sagði Frank Dane um leið og hann hélt áfram, vætandi á sér varirnar. „Við lentum í rifrildi út af kven- manni og hann sló mig svo ég féll í fljótið. Eg synti út að flotholtinu — Gregg kann ekki að synda — og þegar hann fór þá synti ég til baka, náði í bátinn minn, reri upp fljótið til að veiða.“ „í þessum fötum"? „Já, það var dimmt þegar ég kom til baka. Á leið- inni að bátahúsinu þá var ég næstum dottinn um líkið af Gregg, svo að ég ... „Augnablik" greip Bronson framm í, „ef það var dimmt hvernig gatstu þá vitað að þetta var líkið af Gregg?" „Ég kveikti á einni af þessum“ sagði Dane um leið og hann rétti fram stokk af öryggiseldspýtum. „Varstu með þennan stokk þegar Gregg henti þér í ána?“ spurði Bronson. „Já“. „Þetta er nóg“ hvæsti Bronson, „þessar eldspýtur hefðu enn verið blautar, og það er útilokað að kveikja á blautum eldspýtum." „En þær voru alls ekki blautar, lögreglustjóri. Ég þurrkaði þær í sólinni ásamt fötunum mínum" svar- aði Dane hreykinn. „Við fundum engar útbrunnar eldspýtur nálægt lík- irvu“ sagði Fordney. - ——~ „Ég vildi ekki hætta á að ég yrði borinn Ijúgvitnum eðg reynt að koma glæpnum á mig, svo ég stakk brenndu eldspýtuhum í vasa minn. Hérna eru þær.1'"' Prófessorinn leit upp í loftið, en Bronson hnykklaði brýrnar. „Læstu hann inn í klefa, lögreglustjóri. Bragða- refur er venjulega kjáni“. Hvaða augljós lýgi orsakaði handtöku Danes? Svar á 7. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.