Tíminn - 12.07.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 12.07.1977, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 12. júli 1977 11 Útgcfandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindar- götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, slmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I iausasölu kr. 70.00. Áskriftargjald kr. 1.300,00 á mánuði. Blaöaprent h.f. Launaj öfnun í hættu Það fer ekki á milli mála að meginverkefnið, sem biður stjórnvalda á næstunni, er að sporna við þvi að efnahagsbatinn brenni upp i eldi verð- bólgunnar. Rikisstjómin hefur þegar með efna- hagsstefnu sinni náð verulegum árangri i barátt- unni við verðbólguna og er það þvi sérstaklega brýnt að sá árangur verði varanlegur. Hversu þungar búsif jar sem verðbólgan kann að búa almenningi verða menn að hafa það hug- fast að Islendingum hefur tekizt að vernda at- vinnuöryggið i öllum héruðum landsins og beizl- un islenzkra orkulinda hefur haldið áfram. Þannig hefur verið óhikað haldið áfram að búa i haginn fyrir framtiðina. Á sama tima hefur geng- ið yfir harðasta árásahrina sem sagan greinir gegn stofnunum lýðveldisins. Þær öldur hafa nú lægt frammi fyrir framfaratillögum og úrbótum stjórnvalda. örðugleikarnir i efnahagsstjórn á Vesturlönd- um um þessar mundir einkennast einkum af þvi að viða um lönd er talsvert atvinnuleysi og sam- timis verðbólga. Hér á landi er ekki atvinnuleysi en þvi meiri verðbólga. Vandi stjórnvalda er fólginn i þvi að setja verðbólgunni skorður án þess að atvinnuleysi skelli yfir alþýðuna. í þessu efni er vandratað meðalhófið eins og sagan sýnir. í raun og veru er hér um að ræða einstigi þar sem er þritugur hamar á aðra hlið en hengiflug á hina. Það fer ekki á milli mála, að nú reynir mjög á innviðu efnahagskerfisins i kjölfar kjarasamn- inganna. Laun vega svo þungt i öllum verðlags- ákvörðunum, að sveiflur i launamálum geta haft afdrifarikar afleiðingar i verðlagsefnum eins og öllum er kunnugt. En þvi fremur reynir á stöðug- leika stjórnvalda við að halda áfram þetta þrönga og bratta einstigi. Oft er talað um að kjarasamningar séu orðnir svo f lóknir að almenningur eigi erfitt með að gera sér fulla grein fyrir þeim. Meðal launamanna er kvartað yfir þvi að samningar séu að verða ein- hvers konar sérfræði, sem fólkið sjálft getur tæp- lega veitt það aðhald sem þarflegt væri. Um þetta skal ekkert fullyrt, en hitt vekur meiri áhyggjur, að nú virðist sem ýmsir hátekju- hópar hafi tryggt sér meiri kjarabætur en þeim bar samkvæmt launajöfnunarstefnunni i þeim kjarasamningum, sem nýlega var lokið. Morgun- blaðið skýrir frá þvi sl. laugardag, að iðnaðar- menn hafi tryggt sér „nær undantekningarlaust” sömu kauphækkun og láglaunamenn hlutu. Sé þetta rétt er hér i senn um að ræða meiri háttar hneyksli i islenzkum kjaramálum og greinilegan brest i aðferðum við gerð kjarasamninga. Boginn var þegar það hátt spenntur, að hætta er á að slikar hækkanir þeirra sem þegar nutu góðra tekna muni koma harðast niður á láglaunamönn- um. Þessa dagana hafa staðið yfir umræður um beiðnir vinnuveitenda um hækkanir á þjónustu og útseldri vinnu. Það fer vist ekki á milli mála að þær beiðnir verður að athugagaumgæfilegaef rétt reynist að i þeim felist kauphækkanir sem ganga þvert á launajöfnunarstefnuna. Slikar hækkanir, sem samið hefur verið um undir borðið og and- stætt hagsmunum láglaunafólks, ættu ekki að ganga viðstöðulaust út i verðlagið og bitna á al- þýðunni. JS Mikil óvissa í Thailandi Herinn deilir innbyrdis meðan kommúnistar eflast TÖLURNAR SEGJA okkur, að ein bylting sé gerð i Thai- landi á ári aö meöaltali. Svo ef Thanin, núverandi forsætis- ráðherra Thailands, getur tal- izt meöalmaður, þá veröur hann viö völd i þrjá mánuöi i viöbót, en nlu mánuöir eru nú liönir siöan herinn geröi hann aö forsætisráöherra. Thanin gæti þó veriö steypt af stóli á morgun, en eins gæti hann veriö æösti ráöamaöur lands- ins næstu áratugina. Hvort veröur veit enginn, þvl slik er óvissan i stjórnmálum Thai- lands. ÞAÐ VAR í október s.l. aö Thanin Kraivichien komst aö i Thailandi þegar herinn geröi byltingu I landinu eftir miklar óeiröir i háskólanum i Bang- kok en þá létu hundruö stúd- enta llfiö. Thanin er þó ekki hershöföingi heldur hæstarétt- ardómari og sagður vera einn af þeim heiöarlegustu I land- inu, en heiöarlegir menn i em- bættiskerfinu munu vera nokkuö sjaldgæfir I Thailandi. Enda þótt herinn heföi lofaö þvl, þegar hann setti Thanin til valda, aö koma á lýöræöi i landinu, þá trúa því fáir Thai- lendingar. En Thanin hefur þó komiö mörgu góöu til leiöar Hann hefur m.a. hafiö mikla baráttu gegn eiturlyfjasmygli og fengiö þakkir Carters fyrir. Þá hefur hann einnig látiö til skarar skriöa gegn spilling- unni innan embættismanna- stéttarinnar og eins reynt aö ýta úr hlaöi nokkrum þróunar- áætlunum. Því er vitanlega haldiö fram, aö hann sé ekkert-annað en leikbrúöa i höndum hers- ins, en þessu hafnar einn gam- alreyndur diplómat I Bang- kok: Hann er ekki leikbrúöa, þá þaö sé ekki nema vegna þess, aö herinn er of flæktur I sinni eigin, innri valdabar- áttu, til aö toga i strengina. I THAILANDI eru þaö ekki endilega æöstu yfirmenn hers- ins, sem eru þeir valdamestu, þegar til byltinga kemur. Þar hafa þeir hershöföingjar, sem ráöa yfir raunverulegum her- sveitum og eru meö, gott for- skot yfir þá sem sitja i aöal- stöövunum. Þaö eru sérstaklega tveir hershöföingjar, sem koma til greina, þegar rætt er um bylt- ingu i Thailandi. Annar þeirra, Yos, aö nafni, nálgast óöum eftirlaunaaldurinn, þannig aö hann verður aö fara aö flýta sér, ef hann ætlar aö komast til valda. Hinn er Tep Kranlert, yfirmaöur bardaga- sveita hersins, og hann hefur timann meö sér. Af stuönings- mönnum sinum er honum lýst sem þvi bezta, sem Banda- rikjamenn þjálfuöu i Thai- landiá sinum tima. Andstæö- ingar hans segja, aö hann sé hins vegar sá maöur, sem Bandarikjamenn vonuðust til aö skilja eftir til áhrifa i land- inu þegar bandariski herinn varð aö yfirgefa þaö. Ekki fyr- irallslöngu geröu Tep og fylg- ismenn hans hálfgerða bylt- ingatilraun meö þvi aö leggja fram margvislegar kröfur fyrir yfirmenn hersins og flytja til hersveitir án leyfis yfirstjórnarinnar. Yfirmenn- irnir vilja nú gera sem minnst úr þessum atburöum, en Tep segist einungis hafa viljaö at- huga hvaö kerfiö þoldi mikiö. Þá ber ef tilvillaö nefna hóp hægrisinnaöra hershöföingja. Aö visu voru flestir þeirra fluttir úr áhrifastööum eftir byltinguna i október, en þeir hafa þó enn töluverö völd, og þá sérstaklega meöal auöugra manna. Yfirmaöur þessa hóps, Vithoon Yawasan, var hershöföingi þeirra sveita Thailendinga, sem böröust forðum I Laos og fengu borgaö fyrir af CIA. Taliö er, aö ein- hverjir úr þessum hóp hafi staöið bak viö misheppnaöa byltingatilraun i marz s.l. ÞAR SEM herinn er svona skiptur, og þvl ekkert raun- verulegt vald fyrir hendi, þá eru taldar nokkrar likur á þvi, aö skæruliöahersveitir komm- únista sjái sér leik á boröi og fari aö auka starfsemi slna til muna. Undanfarin 13 ár hafa þeir látiö sér nægja svæöi sin i noröurhluta Thailands, svo og I frumskógunum i suðurhlut- anum, sem liggja aö Malasíu. En slöustu misseri hafa tölur um mannfall veriö kommún- istum ihag og hefur þaö valdiö miklum ugg meöal hersins. Thailenzki herinn hefur reynt aö koma á fót heima- varnasveitum i þorpum út á landsbyggöinni, auk þess sem þeir fara reglulega i minni árásarferðir. Þeir viöurkenna þó, aö þessar aögeröir komi ekki til meö aö duga mikiö meöan svo litil eining rikir innan hersins. Eins myndi litið duga, ef kommúnistar i Thai- landi myndu fá verulegan stuöning frá hinum stærri rikjum kommúnistaheimsins. Helzt kemur til greina, aö slik hjálp komi gegnum Viet- nam. Þeir hafa þó sln vanda- mál um þessar mundir. En ef þeir ákveöa aö aöstoöa skoö- anabræöurslna I Thailandi, þá geturThanin forsætisráöherra varla búizt viö aöstoö frá Bandarikjunum. Þvi veldur mannréttindabarátta Carters, en Thanin lét fara frá sér yfir- lýsingu, sem olli ekki mikilli gleöi hjá Carter. Hún var á þá leiö, aö ef um væri aö velja ör- yggi þjóöarinnar og mannrétt- indi, þá myndi hiö fyrrnefnda vera valiö. Nýlega hélt banda- riska fulltníaþingið tvo fundi um mannréttindi 1 Thailandi, en þeim hefur fundizt heldur litiö um þau þar. Þá hefur hernaöar- og efnahagsaöstoð Bandarikjanna til Thailands stórminnkaö aö undanförnu. Aö vlsu hafa þeir fullvissað Thailendinga um, aö Banda- rikin gleymi ekki gömlum vin- um. Þaö er einungis þaö, aö gamlir vinir skipta ekki eins miklu máli, og hér áöur fyrr. GRANNT SKOÐAÐ viröist Thailand vera nokkuö heil- brigt þjóðfélag. Þaö er ekki herstjórn, sem situr viö völd. Efnahagurinn viröist ágætur, tekjur aukast stööugt og viö- skiptajöfnuöurinn viö útlönd er ekki svo slæmur. En undir niöri er hægt aö sjá annaö og verra. Her, sem hefur öll völd, en þó engin, þvi hann er of tvístraöur. Svo ekki sé minnzt á hættuna á borgarastyrjöld. (MÓL tók saman) Frá baráttunni viö skæruliða kommúnista.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.