Tíminn - 12.07.1977, Blaðsíða 21
Þriöjudagur 12. júli 1977
21
Þrumufleygur
frá Ásgeiri
Ásgeir Sigurvinsson opnaði markareikning Standard
Liege i „TOTO//-bikarkeppninni, þegar hann skoraði
glæsilegt mark gegn ísraelska liðinu Maccabi í Israel.
Ásgeir opnaði leikinn með þrumuskoti af 20 m færi —
knötturinn hafnaði uppi undir þverslá marks Maccabi,
algjörlega óverjandi fyrir ísraelska markvörðinn.
—Viö náöum mjög goöum leik i
Tel Aviv og tryggðum okkur sigur
2:0, sagöi Asgeir Sigurvinsson i
stuttu spjalli viö Timann.
Asgeir sagði að Standard Liege
hefði leikið um helgina gegn v-
þýzka liðinu Duisburg og gert
jafntefli (0:0) i Liege. — Ég er
mjög bjartsýnn á að Standard
Liege verði gott i vetur — liðiö
hefur náð mjög góðum leikjum
gegn Maccabi og Duisburg, sem
lofa góðu. Það leika nú tveir nýir
menn með liðinu, og falla þeir vel
inn i spilið. Það er Ungverjinn
Visneyid, sem Standard keypti
frá Lieres, og V-Þjóðverjinn
Mickhall.
Ásgeir leikur ekki með
gegn Svíum
— Sg get ekki komizt heim til
að leika landsleikinn gegn Svium,
þar sem við tökum þátt I hrað-
keppni i Lille i Frakklandi 18.-21.
júli. Þar keppum við i móti með
Eindhoven frá Hollandi og
frönsku liðunum Nantes og Kens.
— Alagið er mikið hjá okkur, en
það er gaman aö þessu og ég hef
trú a þvi að við náum upp sterku
liði fvrir næsta keppnistimabil.
Standard Liege fer i keppnis-
feröalag til Júgóslaviu i byrjun
ágúst, þar sem viö leikum gegn
Hadjuk Split og Zagreb.
„Mætum Tékkum í
UEFA"
— Nú takiö þiö þátt i UEFA-
bikarkeppninni?
— Já, við mætum tékkneska lið-
inu Slavia Prag og leikum heima-
leikinn á undan. Við erum bjart-
sýnir á að komast áfram i keppn-
inni, en við gerum okkur þó grein
kom
Standard
Liege á
bragðið i
„TOTO”
-bikarkeppn
inni
fyrir, að Tékkarnir veröa erfiöir
andstæðingar, sagði Asgeir að
lokum.
—SOS
'Ásgeir — leikur ekki með
gegn Svium á Laugardals-
vellinum.
Brian
Clough
— áfram hjá
Forest
— Ég hef mikla trú a Forest,
þess vegna held ég áfram hjá
félaginu, sagöi Brian Clough,
framkvæmdastjóri Notting-
ham Forest, sem hefur skrifaö
undir 5 ára samning hjá
félaginu.
TOMMY DOCHERTY,
fyrrum framkvæmdastjóri
Manchester United, mun ekki
taka viö Derby-liöinu. For-
ráöamenn Derby gáfu þessa
yfirlýsingu út um helgina.
Arsenal hefur selt Wilf
Rostron til Sunderland á 30
þús. pund.
Tveir reknir
af leikvelli
— þegar Þróttur frá Reykjavík vann góðan
sigur(2:l) yfir KA á Akureyri
Þróttarar frá Reykjavlk báru
KA-inga ofurliöi, þegar þeir
leiddu saman hesta sína á Akur-
eyri— viöureign þeirra lauk meö
öruggum sigri Reykjavikurliös-
ins, sem hefur tekiö stefnuna á 1.
deildina. Þróttarar, sem voru
mjög llflegir á Akureyri, réöu
gangi leiksins frá upphafi — og
var sigur þeirra aldrei I hættu
gegn slöku KA-liöi.
Þróttarar fengu óskabyrjun,
þegar Halldór Arasonskoraðiá 6.
min. eftir að Guöbergur Ellerts-
son hafði varið mjög vel — hann
missti knöttinn frá sér, þar sem
Halldór var og átti hann ekki i
vandræðum meö að senda knött-
inn i netið. Þróttarar bættu siöan
öðru marki við á 70. min. og var
það Þorgeir Þorgeirsson.sem var
þar að verki með góðu skoti.
KA liöið minnkaði muninn á 88.
min., þegar óskar Ingimundar-
son, náöi að koma knettinum i
netið hjá Þrótturum eftir auka-
spyrnu frá Guðjóni Haröarsyni.
Guðjón fékk stuttu siöar að sjá
rauða spjaldið hjá góöum dómara
leiksins, Arnþóri Óskarssyni, sem
visaði honum og Þróttaranum
ÞorgeiriÞorgeirssyni af leikvelli,
eftir aö þeim haföi lent saman.
Guðjón byrjaöi átökin — lét skap-
ið hlaupa með sig i gönur.
5 leikir voru leiknir i 2. deildar-
keppninni um helgina og urðu úr-
slit þeirra þessi:
KA — Þróttur...............1:2
Armann —Reynir A...........4:1
Haukar — Iteynir S ...1:1
Þróttur N. — ísafjörður ... ...1:3
Völsungur — Selfoss ... 1:1
■
** í'
EGILL STEINÞóRSSON...sést hér brjótast I gegnum Reynisvörnina og siöan skoraöi hann örugglega
2:0. Egill skoraöi „Hat-trick” — þrjú mörk I leiknum. (Tlmamynd Gunnar)
Egill Steinþórsson, handknatt-
leiksmarkvöröur úr Armanni,
var hetja Armannsliðsins, sem
vann stórsigur á Árskógs-
strandarliðinu. Egill skoraði
„Hat-trick” — þrjú mörk, en
Smári Jósepsson skoraði fjóröa
mark Armanns. Magnús Jóna-
tansson skoraöi mark Reynis —
úr vitaspyrnu.
Haukar töpuðu dýrmætu stigi
til Reynis frá Sandgerði á Kapla-
krikavellinum. ólafur Jóhannes-
son skoraði jöfnunarmark (1:1)
Hauka úr umdeildri vitaspyrnu
rétt fyrir leikslok, en Ari Arason
skoraði mark Reynis.
Völsungar frá Húsavik máttu
sjá á eftir öðru stiginu til Selfyss-
inga, þegar þeir mættust á HUsa-
vlk. Hermann Jónasson skoraði
mark Völsunga á fyrstu min.
leiksins, en Selfyssingar jöfnuðu
(1:1) á 15. min. og var það óskar
Marelsson, sem skoraði mark
þeirra.
Isfiröingar tryggðu sér góöan
sigur (3:1) I Neskaupstað, þar
sem þeirléku gegnÞrótturum i 25
stiga hita. Bræöurnir Jónog örn-
ólfur Oddsson skoruöu hvor sitt
markið fyrir ísfirðinga, en þriöja
mark þeirra var sjálfsmark —■
B j arni Jóhannsson. tsfirðinga
skoruöu einnig sjálfsmark —
Siguröur Friöjónsson. Isfirðingar
léku oft mjög góða knaftspyrnu i
Neskaupstaö og er greinilegt að
þeir eru aö koma uppmeð mjög
skemmtilegt liö. — SOS
2. deild
Staöan er nú þessi i 2. deildar-
keppninni i knattspyrnu:
Þróttur R.......9 7 1 1 19:9 15
Ármann..........9 6 1 2 18:6 13
Haukar..........9 4 5 0 14:5 13
K.A.............9 6 1 2 19:12 13
ísafjörður......9 4 2 3 11:11 10
ReynirS.........9 3 2 4 13:7 8
Selfoss.........9 2 2 5 7:13 6
Völsungur.......9 2 2 5 8:12 6
Þróttur N ......9 1 3 5 8:17 5
Reynir A........9 0 1 8 6:21 1
sveinn
leikur
sinn
300 leik
- með Valsliðinu,
gegn Þór
Bergsveinn Alfonsson, hinn
kunni knattspyrnumaður Ur Val
mun leika sinn 300. leik meö
Valsliöinu I kvöid á Laugardais-
vellinum, þegar Valsmenn
mæta Þór i 16-liöa úrslitum
bikarkeppninnar. Bergsveinn
sem hefur veriö einn litrikasti
ieikmaöur Vals undanfarin ár,
hóf aö leika meö Valsliðinu aö-
eins 16 ára gamali — 1963.
Bergsveinn lék sinn fyrsta
leik gegnKR-ingum á Melavell-
inum I Reykjavikurmótinu 24.
april 1963, og lauk þeim leik með
sigri Vals, 1:0. Bergsveinn vakti
mikla athygli strax þegar hann
hóf að leika. Hann opnaði
markareikning hjá Val, þegar
hann skoraði mark með skalla
gegn Þrótti i Reykjavikurmót-
inu, og þegar Valsmenn léku
aftur gegn KR-ingum I mótinu,
skoraöi Bergsveinn, sem lék þá
sem útherji, 2 mörk og Valur
vann þann leik, 3:1.
Sitt fyrsta mark i 1. deildar-
keppninni skoraði Bergsveinn
gegn KR-ingum á Laugardals-
vellinum 1963, þegar Valsmenn
unnu góöan sigur (3:0) gegn
Vesturbæjarliðinu.
Bergsveinn Alfonsson mun
vera fyrsti Islenzki knatt-
spyrnumaöurinn, sem nær þvi
aðleika 300 leiki fyrir félag sitt.
Annar leikur verður leikinn i
16-liða úrslitunum I kvöld og
mætast þá Reynir frá Arskógs-
strönd og Eyjamenn fyrir norö-
an.
—SOS