Tíminn - 12.07.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 12.07.1977, Blaðsíða 13
12 lÍl'lliUit!1 13 Þriöjudagur 12. júli 1977 Þriöjudagur 12. júli 1977 Júhann Briem Á sumrin, þegar listunn- endur standa á blístri eftir veturinn, finnst mörgum að það ætti að banna alla list með lögum yfir regn- tímann, en svo nef na menn gjarnan hið suðuríslenzka sumar, því þar þornar ekki lengur af steini. Allavega verða leik- húsin, sýningarsalirnir og söfnin að fitja upp á ein- hverju nýju ef áhuginn á að vakna. List fyrir ferðamenn Norræna húsið hefur undan- farin ár haldið upp á sumariö og regnið með þvi að halda sumar- sýningu. Er þetta aö sögn Erik Sönderholm forstjóra einkum gert til þess að skandinaviskir ferðamenn, sem taka á honum hús á sumrin, geti séð islenzka list, en mikili fjöldi Noröurlanda- búa leggur leið sina hingað til iands á sumrin. Heimamenn geta svo komið þarna lika, ef þeir vilja. Þetta virðist vel til fundið, þvi að i þau tvö eða þrjú skipti, er undirritaður leit þangað inn, voru þarna útlendingar, ekki aðeins fólk í listum Siima.rsýning‘ Norræna hússins Noröurlandabúar, heldur lika ttaiir og annað fólk, lengra að komiö. Þaö hlýtur að vera erfitt að hugsa fyrir slikri sýningu, hvaða myndlistarmenn risa undir þvi aö kynna islenzka myndlist? Eru allir gjaldgengir, eða er þarna einhver þungamiðja? Eru sumir málarar islenzkari en aörir, — og öfugt? Svona mætti lengi spyrja, en hvað um það, symarsýning Norræna hússins i ár viröist sér- lega vel heppnuð. Þar sýnir einn af gömlu meisturunum, Jóhann Briem, fæddur 1907, einn af striðsáramálurunum, þeir lærðu aö mála meöan siöari heims- styrjöldin geisaði, Sigurður Sigurösson, fæddur 1916, og að lokum einn abstraktmálari af yngri sortinni, Steinþór Sigurös- son, fæddur 1933. Þar fyrir utan sýna þessir menn ólikar aðferðir viö mál- verk, og sýna i raun og veru svo sjaldan myndir, að það eitt rekur menn út i Vatnsmýri. Þó má segja sem svo að Jóhann Briem hafi verið rækilega kynntur nýverið, er Listasafn tslands gekkst fyrir stórri sýningu á myndum hans, en þar koma nú svo fáir að þaö gerir ekkert til, og svo haföi sýning þessi verið planlögð og frá gengin, áður en listasafnið gekk I að sýna myndir eftir Jóhann Briem. Nóg um það. Sigurður Sigurðsson Siguröur Sigurðsson, listmálari er fæddur á Isafirði. Hann nam myndlist i Kaupmannahöfn, viö konunglega listaháskólann 1939- 1945. Hefur siðan stundað mynd- listarstörf og kennslu við Mynd lista- og handiöaskólann i Reykjavik. Það væri auövelt að setja fram kenningar um það, aö prófessorar og myndlistarkennarar séu yfir- leitt heldur slappir málarar. Sá sem velur kennsluna, velur hana oft vegna þess að verk hans hljóta litinn hljómgrunn að öðru leyti. 1 annan stað hlýtur það að hafa áhrif að vera sifellt aö troða teorium i ungt fólk og brýna fyrir þvi einhver undurstöðuatriði. Sama gildir um aðrar greinar og sjómannaskólakennarar eru yfir- leitt einkennilegir sjómenn. Það er þvi augljóst, að aöstaöa Sigurðar Sigurössonar til þess að stunda myndlist hefur verið verri en margra annarra. Samt hefur hann komizt frá þessu furðu litið lerkaður, og myndlist hans er persónuleg og vönduð. Hann hefði mátt mála meira — og kenna minna, öfugt við ýmsa aöra. Sérstaklega eru minni myndirnar sem hann sýnir þarna góöar að voru mati, en það er með Sigurð Sigurösson eins og svo marga aðra, árangurinn er ekki alltaf beztur i smiðunum, þegar hátt er reitt til höggs. Hann tjáði okkur aö sumar þessar myndir heföu legið i bunkum lengi. Þær voru gerðar á ögurstund, oft af miklum flýti. Samt bera þær i sér einhvern guðsneista, sem ekki eru i stóru myndunum, sem virðast málaðar af meira þunglyndi og aga. Þó vii ég undanskilja þar konu- myndina, sem er eitt besta port- ret sem ég hefi séö lengi. Steinþór Sigurösson Steinþór Sigurðsson hefur lika sinnt öðru meira en málverkinu hin síðari ár, sem sé leikmynda- gerð, en á þvi sviði þykir hann svo frábær, að hann má ekki um frjálst höfuð strjúka. Steinþór Sigurösson Nú hefur hann á hinn bóginn snúið sér aftur að málverkinu og segist ætla aö fækka verkefnum viö leikhúsið. Ef til vill er þetta góð lausn, þvi i raun og veru má hann i hvorugri þessari grein missa sig. Þvi er oft haldið fram, að menn hneigist til abstraktlistar til þess að fela viss atriði, eða van- kunnáttu, alveg eins og þvi er oft haldið fram aö menn verði nú- timaskáld, yrki i frjálsum formum, af þvi aö stuðiaður og rimaður kveðskapur sé þeim of- viða. Steinþór málar abstrakt og þótt myndir hans flokkist þar undir, eru þær þó með einhverjum hætti svo áþreifanlegur veruleiki, að maðir fer að leita að stað- reyndum. Hefur þú veriö á þessum stað? Hann er sem sé ekki hraknings- maður, sem finnur kufl i abstraktionum, heldur djarfur myndsmiður, sem skapar lif. Allt fer saman, formskyn- spenna og litur og ég held aö ég hafi ekki áeð betri málverk lengi. Steinþór hefur breytzt töluvert i lit, er horfinn frá „sjónvarps- litunum”, endalausum tón- brigðum i gráu, og með undar- legum hætti magnar hann upp ljósa, hægláta liti sina. Myndir hans virðast i senn verða til ósjálfrátt, en samt unnar af elju og fyrirhyggju. Þetta er þvi sannarleg óvænt afturkoma i myndlistarsalina. Jóhann Briem Jóhann Briem er með fæstar myndir þeirra þriggja á sýningunni. Myndlist hans hefur verið verð skil hér i blaöinu ný- veriö og er þvi litlu við að bæta nú. >’ Augljóst er þó aö fáar myndir fara betur en margar. Myndir Siguröur Sigurösson hans eru ekki sérlega hentugar fyrir stórar sýningar. Til þess eru þær of kröftugar og of likar hver annari. Þær vilja þvi draga hver úr annarri, fremur en aö magna samstillta heild. Heildar svipur þessarar sýn- ingar er óvenju góöur og þar munar ekki minnst um verk Jó- hanns Briem. Þau eru sumarleg, eins og fyrirsögn eða stefnuskrá hússins mælir um: „Sumarsýn- ing norræna hússins”. Það er mikiö sumar i sumum þessum myndum. Jónas Guömundsson. Ingólfur Daviðsson: Litið á blóm ekki fyrr en hanh er laufgaður, gagnstættflestum öðrum viöiteg- undum, sem bera rekla snemma, áður en tréð eða runninn laufgast að mun. Óþrif sækja litið á gljá- viöi. Hann fer vel i limgerði, en getur lika oröiö stórt tré, eins og sjá má i gamla kirkjugaröinum við Aðalstræti i Reykjavik. Þaö tré (og stóri silfurreynirinn rétt hjá) er sennilega frá dögum Schierbecks landlæknis. „Glóa þinir gulu skúfar gullregn móti sól, eins og laust um herðar hrynji hár á faldasól”. Nú á Seljumannamessu lýsir gullregnið á horni Rauöarárstlgs og Miklubrautar langar leiðir. Margur strætófarþegi á Miklu- braut horfir á þaö með velþókn- un. En aldinbelgir gullregns (og baunirnar i þeim) eru eitraðir. Er þvi öruggast aö sniöa blómskúf- ana af þegar blómin fara að visna — áðuren aldin myndast. Aldinin mega ekki lenda i munni eöa maga. Gullregn vex villt i Alpa- fjöllum og viöar: þ.e. alpagull- regn: strandgullregn er viö- kvæmara og blómgast varla hér á landi. „Og eitt gras er svo hvitt að jafnað er til Baldursbrár. Það er allra grasa hvitast”. Svo er ritað i Snorra-Eddu, þegar Baldri var lýst, fegurstum allra Asa. Falleg er baldursbrá sannarlega. Mest beráhvita litnum,hann vekur at- hygli skordýranna fyrst og fremst. En litlu gulu blómin i miðju körfunnar gera sitt gagn, þvi aö þar fer fjölgunin aöallega fram. Reynið aö telja blómin i einni baldursbrárkörfu! Þau munu reynast æöi mörg: Hvitu, flötu jarðarblómin hreyfast likt og brár, þ.e. siga á kvöldin og i dimmviðri, en lyftast og breiða úr sér þegar sólin skin. Baldursbrá Gljáviðir með reklum 4/7 fylgir byggöinni og berst raunar oftmeð fræi o.fl. varningi. Þök og veggir torfbæja voru stundum al- 1977 vaxin baldursbrá, og þannig voru lika gammar (kofar) Lappanna á Finnmörk. Stöku sinnum veröa stönglar baldursbrár flatir og jafnvel körfurnar lika. Hafið þið fundið þannig baldursbrár? A myndinni heldur Anna Kristins- dóttir á stórum fallegum baldurs- brárvendi. Vfkjum að annarri frægri jurt alkunnri. „Ilmandi brúöberg, aldanna te, áanna lyf f timans straumi. Litprúð jurt þó litil sé, lifði i Faraós draumi. Briiði feöranna bergðu þér á, bar þig inn ljósan holtinu frá. Agæta brúðberg! gróður og garðar Gráreynir 4/7 1977 Nú stendur reyniviður með stórum, hvitum ilmandi blómaklösum, höfuðskraut margra garða. Hér er mynd af gráreyni, en hann er tal- inn bastarður reyniviðar og silfurreynis, eins og blöð hans benda til, þau eru silfurgrá að neðan. Nú fyrst er gljáviðirinn að verða allaufgaöur, en hann held- ur líka gljáandi laufinu langt fram á haust. Hinir litlu gulleitu reklar hans (sjá mynd) spretta „Fálkapungur, flugnabú, friða holurt, melaprýði”. Þetta eru allt nöfn á sömu jurtinni og sýna hve alkunn hún jafnan hefur veriö. Bikarinn er uppblásinn eins og sést á myndinni og nöfnin benda til, ljósgrænn eða rauöleitur, en krónan hvft. Talsvert hunang er niðri i blóminu og dvelja flugur þar oftdögum saman í góöu yfir- læti, sbr. nafnið flugnabú. Eftir þessu taka börn fljóttog fá áhuga á blóminu. Rauöu blómin á dag- stjörnu, sem hér er algeng I görö- um, eru alveg eins i laginu, enda sömu ættar — og nellikurnar lika og lambagrasið. Holurt þrifst vel i steinhæð, enda algeng á melum og viöar i grýttri jörð. „Ég lærði fræðin við logann þinn, i lýsi brann fifukveikurinn. Ljósið kolunnar lék um Snorra lýsti sagnaheim feðra vorra”. Snjóhvit fifubreiða er næsta fögur og blööin — brokið — góð til beitar. Reynt hefur verið að vefa dúka úr fifuhárum likt og úr baðmull, en þau eru ekki nægi- lega sterk og fjaðurmögnuð, svo að fifudúkurendistilla — og borg- ar sig ekki að nota fifu i vefnaö. Læknaðu hóstann og linaöu kvef, timburmenn taktu frá mér”. Nil er mikiö sagt og þó satt. Brúðberg, (öðru nafni blóðberg) er fornfræg lækningajurt, te af henni notaö gegn kvefi o.fl. háls- og lungnakvillum. Blóðberg er i ýmsum kunnum lyfjum af þvi tagi enn i dag, oft kennd við vis- indanafn jurtarinnar — Thymus, Thymol o.s.frv. Jurtin er einnig rotverjandi: gömlu Faraóarnir i Egyptalandi vissu þetta fyrir þúsundum ára og notuðu þarlend- ar blóöbergstegundir viö smurn- ingu látinna er varðveitast skyldu. Formæður okkar létu blóðberg, eöa seyöi af þvi, i slát- urtunnur svo slátriö fengi þægi- legan keim og geymdist betur en ella. Brúðir bergöu á brúöbergs- tei, höfðu það lika i baðvatniö og ljósmæöur notuðu það til hreins- unar eftir barnsburð. Linné. sænski læknirinn og grasafræð- ingurinn frægi, ráðlagði að drekka blóðbergste eftir mikla vindrykkju. Brúðberg er algengt i þurru mólendi og holtum. Lágar ilmandi blárauöar eða rósrauðar breiðurnar eru forkunnar fagrar. Sumir rækta brúöberg i steinhæð. Breiða af brúðbergi 1/7 1977 Holurt 1/7 1977 Margir tina fifu i vendi til skrauts. Þarf þá að tína hana snemma áöur en fifuhárin losna, þá endist vöndurinn allan vetur- inn. Nýtekna fifuna skal hengja upp til þerris, áður en hún er látin i vasa. Hárin eru sviftæki aldin- anna, sem geta borizt langar leiö- ir með vindi og sáð sér. Þess vegna verða rök flög fljótt alvax- infifu.Tegundirfif.ueruhér tvær, þ.e. hrafnafifa meö einn koll og klófifameð fleiri. Báöar algengar i votlendi i byggð, klófifan einnig til fjalla og hliöa, þar sem blautt er. Myndin er af hrafnafifu, tek- inni á mýrabletti i Reykjavik 1. júli. Bæðu holurtin og blóðbergiö eru tekin á Bústaöahæö i Reykja- vik. lþættinum „Gróöur og garðar” 30. júni haföi texti brengíazt nokkuð og falliðúr. Sagtvar m.a. um mariustakkirm „Gullþyrstir á vit þin leita”. En botninn datt úr skýringu þessara orða. Málinu vikur þannig viö, að á miööldum reyndu ýmsir efnafræðingar þeirra tima að búa til gull — og reyndu margt til þess að það tæk- ist. Héldu sumir aö glitrandi droparnir á mariustakk heföu dularmátt i sér fólginn og settu dropana út I efnablöndur sinar. Aldrei tókst gullgeröin, en þekk- ing á efnafræði jókst við tilraun- irnar. Visindanafn mariustakks — Alchemilla — er kennt við gull- geröarmennina, er nefndir voru alkemistar. 1 sóleyjarblómum varpast sumt af sólargeislunum frá gljáandi gulum krónublöðunum inn á frævurnar i miöju blómsins svo að þær fá aukna orku til að þroska fræ. A Noröurlöndum og viðar er til svokölluð „betlarasóley ” Anna Kristinsdóttir með baidursbrá (tiggerranunculus), náskyld sól- eyjunni okkar, en mun eitraöri. Nafnið hlaut hún af þvi, aö betlar- ar létu blóm hennar liggja lengi við húöina.t.d. á handabökum og I andliti, til aö framkalla blöörur, sem þeir svo sýndu, svo að þeim væri gefið meira en ella! Gömul nöfn á sóleyjunni okkar eru lika brennigras og brennisóley. Allir þekkja brennisóley, en þekkið þið skriðsóley? Hún hefur öllu dökk- grænni litblæ, en er aö ööru leyti nær alveg eins.nema lágvaxnari, og hefur renglur eða stöngla sem skriða flatir viö jörö — og geta fest rætur. Skriðsóley getur þvi oröið illgresi i görðum. Hún vex allviöa um land og breiðist út við Hrafnafifa 1/7 1977 hús, garða og bæi. I Reykjavik er hún orðin algengari en venjuleg sóley. Ýms islenzk blóm fara vel i görðum, einkum i steinhæðum. Varast ber að gefa þeim áburð um of, þvi aö það þola mörg þeirra illa, t.d. flest holta- og melablóm, sem vön eru magurri jörö og blómgast þar bezt. I of frjósömum jarðvegi hleypur vöxturinn oft i blöðin, en blómgun veröur þá litil. Flestar islenzkar jurtir þurfa góöa birtu, en til eru þó skuggaþolnar tegundir, eink- um burknar. Þeir þrifast flestir bezt i skjóli og skugga. Geta burknabrúskarnir orðið vöxtuleg- ir og hinir fegurstu. Af útlendum skrautjurtum þolir postulins- blómið (skuggasteinsbrjóturinn) einna bezt skugga og vex vel und- ir trjám. Nú blómgast hver tegundin af annarri — og með þvi aö velja saman tegundir sem blómgast missnemma er hægt að hafa blómaskrúð i garðinum allt sumarið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.