Tíminn - 04.08.1977, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 4. ágúst 1977
Hrukkulaus
og 87
ára gömul
Rose Kennedy, móðir Kennedyanna,
hefur nóg að gera við að halda uppi heiðri
Kennedy-fjölskyldunnar. Hún varð 87 ára
22. júli siðastliðinn, og er heldur farin að
láta á sjá, sem sennilega er ekki nema
von. Hver væri það ekki á þessum aldri. —
Mamma er enn ung i anda, lifandi og lifs-
glöð, segir sonur hennar öldungadeildar-
þingmaðurinn Ted Kennedy. Konur á
hennar aldri vilja helzt sitja inni i stofu og
láta fara vel um sig. Hún fer á fætur kl. 6 á
morgnana og lætur sig aldrei vanta við
morgunmessuna. Hún gengur eina 10 kiló-
metra dag hvern og syndir flesta daga.
Einn af gömlum vinum fjölskyldunnar,
Monseigneur Jeremiah O’Mahoney, sem
hefur þekkt Kennedy-fólkið allt frá árinu
1928 segir, að Rose hugsi aldrei um áldur.
— Hún er mjög trúuð, og tekur virkan þátt
i kirkjustarfinu, og einnig kemur hún viða
við i sambandi við störf góðgerðarstofn-
ana og félaga. M.a. mun hún hafa verið
upphafsmaður að Olympiuleikum fyrir
fötluð börn, sem haldnir eru i Palm
Beach.
Rose vill að fólk lifi vinnusömu og gagn-
legu lifi. Hún vill ekki, að fólk láti hrukk-
urnar ná yfirhöndinni á andlitinu, og hvað
haldið þið að hún geri til þess aðsvoverði
ekki. Hún limir bönd á andlit sitt, og geng-
ur með þessi limbönd i nokkra klukkutima
dag hvern. Þetta hlýtur að vera gott ráð,
að minnsta kosti vita allir, sem þekkja
Rose Kennedy, að hún er ekki með eina
einustu hrukku, — eða næstum enga. Hún
litur út i dag eins og hún hefði verið að
verða 57 en ekki 87 ára.
í spegli tímans
Hvaö finnst!
kemur nokkuð
sem þú ekki
veist!
þér svona
sniðugt'í#í
' Ef þessum ■ i
tveim gislum j
verður ekki ,
sleppt, þá ]
verður þú
hengdur i |:
íúhæsta gálga!
morgun: Hvers vegna?