Tíminn - 04.08.1977, Qupperneq 9

Tíminn - 04.08.1977, Qupperneq 9
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 9 WlÍíÉMÍI (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur í Edduhúsinu við Lindar- götu, slmar 18300 — 18306. Skrifstofur í Sfðumúia 15 sími 86300. Verð i lausasölu kl. 70.00. Askriftargjald kr. 1.300.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Glistrup Um næstu mánaðamót er væntanlegur dómur i máli þvi, sem dönsk skattayfirvöld hafa höfðað gegn Mogens Glistrup, sem er stofnandi og aðal- foringi annars stærsta stjórnmálaflokksins i Danmörku. Það, sem Mogens Glistrup er ákærð- ur fyrir er einkum það, að hann hafi stofnað ekki færri en 2716 hlutafélög i þeim tilgangi einum að sniðganga skattalögin og hafi honum með þessu tekizt að hafa samanlagt 6 millj. danskra króna af rikinu i skatttekjum. Félög þessi voru aldrei til nema á pappirnum, en þau voru látin skulda og lána hvert öðru á vixl og mynduðust þannig skuldir og vaxtagreiðslur, sem féll undir frádráttarliði skattalaganna. Mogens Glistrup hafði áður sýnt fram á, að þessi undanþágu- ákvæði laganna væru röng og ósanngjörn,en þeg- ar ekki var hlustað á hann, fór hann inn á þá braut, að sanna það i verki. Hann telur sig ekki hafa brotið lögin með framangreindum hætti, heldur hafi hann aðeins verið að sanna hversu fjarstæðukennd þau eru. Rannsóknin i máli Glistrups hefur staðið mörg ár, enda verið mjög umfangsmikil, eins og vel má ráða af áðurgreindri tölu hlutafélaga, sem hann hefur stofnað i umræddum tilgangi. Til hans leit- aði lika slikur fjöldi skattgreiðenda, að lögfræði- skrifstofa hans var hin stærsta i Danmörku. Þvi er spáð, að það muni sennilega engin áhrif hafa á gengi flokksins, þótt Glistrup fái þungan dóm. Jafnvel geti það hjálpað honum, þvi að foringinn verði þá gerður að pislarvætti. Margir undrast yfir þvi, að fyrirbæri eins og Glistrup og flokkur hans skuli geta þrifizt hjá menntaðri og þroskaðri lýðræðisþjóð eins og Danir vissulega eru. Til þess að átta sig á þessu fyrirbæri, er ef til Vill ekki úr-vegi að rifja upp hið fornkveðna að með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða. Glistrup hefur hlotið hið mikla fylgi sitt sökum þess, að mörgum hefur fundizt hann vera uppreisnarmaður gegn hreinum ólög- um, þar sem voru m.a. hin ýmsu undanþágu- ákvæði skattalaganna, sem hafa orðið þess vald- andi, að skattborgarar með svipaðar tekjur og aðstöðu hafa greitt mjög mismunandi skatta. Með þessum ranglátu skattaákvæðum var búið að skapa jarðveg fyrir ævintýramann eins og Glistrup. Skattalögin Skattarnir, sem lagðir hafa verið á hérlendis i ár, hafa ekki vakið svipaða gagnrýni og i fyrra. Það stafar af þvi, að rikisstjórnin og verkalýðs- hreyfingin urðu sammála um lækkun skattstig- ans á þann hátt að bæta við nýju skattþrepi. En óréttlætið helzt samt áfram. Enn sleppa menn með háar tekjur að mestu eða öllu við tekjuskatt, meðan menn með sambærilega aðstöðu greiða hundruð þúsunda króna. Alþingi gafst upp við að leiðrétta þetta i ár. Það er eitt af mikilvægustu verkefnum, sem biður þess, að skattamálunum verði komið i það horf, að þau skapi ekki jarðveg fyrir Glistrupisma. Góð skattalög þurfa i senn að vera einföld og réttlát. Annars er hætta á, að menn fari að lita á þau sem ólög. Það sýnir reynslan ótvirætt i Dan- mörku. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Nýjar ágúst-tillögur frá Anker Jörgensen Hann veröur i Grænlandi meðan flokkarnir ræða þær Anker Jörgensen ANKER Jörgensen, for- sætisráðherra Danmerkur, dvelst nú i Grænlandi en þangað fór hann flugleiðis siðastl. mánudag. Aður en hann fór að heiman, afhenti hann þingflokkunum efna- hagstilíögur rikisstjórnarinn- ar, sem eiga að stuðla að þvi jöfnum höndum, að draga úr atvinnuleysinu og viðskiptahallanum við útlönd. Seint i þessum mánuði eða skömmu eftir að Anker Jörgensen kemur heim frá Grænlandi, verður danska þingið hvatt saman til auka- fundar, þar sem þessar tillög- ur verða lagðar fyrir það til samþykktar eða synjunar. Flokkarnir fá tima til að fjalla um þær meðan forsætis- ráðherrann er i Grænlandi. Frekar eru taldar horfur á, að tillögurnar verði samþykktar, þar sem þær muni hljóta stuðning hinna svonefndu ágústflokka, en svo eru þeir flokkar nefndir, sem stóðu að efnahagsráöstöfunum þeim, sem gerðar voru i ágúst I fyrra. Þessir flokkar voru, auk stjórnarflokksins, Radi- kali flokkurinn, Kristilegi flokkurinn og Miðdemókrata- flokkurinn. Þeir höfðu þá ekki meiri hluta á þingi, og fengu til viðbótar stuðning Ihalds- flokksins. Nú þurfa þessir flokkar ekki á stuðningi hans að halda, þvi að í þingkosning- unum, sem fóru fram i febrú- armánuði siðastl. fengu ágúst- flokkarnir meirihluta á þingi. Bæði sósialdemókratar og miðdemókratar bættu fylgi sitt og kom þvi ekki að sök, þótt radikalir og kristilegir töpuðu. Eftir kosningarnar sat minni- hlutastjórn sósialdemókrata áfram. Það sýndi sig i kosn- ingunum, að Anker Jörgensen er nú vinsælastur allra danskra stjórnmálamanna og mun enginn danskur stjórn- málamaður hafa notið meiri vinsælda siðan Stauning var uppi. TILLÖGUR þær, sem Anker Jörgensen afhenti flokkunum áður en hann hóf Grænlands- förina, hafa enn ekki verið birtar, nema að takmörkuðu ley ti. Þó er vitað, að þær f jalla um nýjar skattaálögur, sem eiga að nema um átta milljörðum danskra króna. Tæpum þriðjungi þessara nýju álaga, eða 2.5 milljarða, verður aflað með skatti á alla þá, sem hafa yfir 60 þús. kr. árstekjur, og verður hann lagður á aðeins' einu sinni, en greiðist á þremur árum. Aðrar fyrirhugaðar álögur hafa ekki verið nákvæmlega tilgreindar, svo að þær valdi ekki hamstri, en sennilega munu þær leggjast þyngst á ýmsar innflutningsvörur. Stjórnin hyggst þannig draga úr innflutningi. Þessum nýju álögum verður varið til ráðstafana, sem eiga að auka atvinnu næstu þrjú árin. Aætlað er að hið opin- bera leggi fram 8 milljarða i þvi skyni, en einkafyrirtæki muni leggja fram um 13 milljarða vegna þessara ráð- stafana, svo að alls verði varið um 21 milljaröi danskra króna til þessara aðgerða næstu þrjú árin. Talið er, að þessar ráð- stafanir muni tryggja um 20 þús. mönnum atvinnu á um- ræddum þremur árum. Að nokkru leyti mun þessu fé varib til að styrkja ýmsar at- vinnugreinar, t.d. skipa- smiðar. Þá verða styrktar ýmsar framkvæmdir, sem stuðla að sparnaði i orkunotk- un, eins og t.d. viðgerðir á húsum, sem draga úr upphit- unarþörfum. Þá verður komið ástrangara eftirlitimeð bilum i þeim tilgangi, að þeir verði nýttir betur, og þannig verði dregið úr bilainnflutningi. Reiknað er með að þetta aukna eftirlit skapi 1500 manns atvinnu, m.a. vegna aukinnarvinnuá verkstæðum. Þá verður heilbrigðiseftirlitið mjög aukið og fá nokkur hundruð manna atvinnu við það. Póstþjónusta veröur bætt i sama tilgangi. Þá verður aukin svokölluð heimilishjálp og sérstakar starfsstúlkur þjálfaðar i þeim tilgangi. Siðast en ekki sizt verður svo fjölgað námskeiðum eða ann- arri kennslu fyrir atvinnuleys- ingja, sem vilja nota timann til að afla sér frekari mennt- unar.Þá leggur stjórnin til, að sett verði löggjöf um að draga úr eftirvinnu og verði fleiri mönnum tryggð atvinna á þann hátt. ÞAÐ, sem hér hefur verið rakið, gefur nokkra hugmynd um efni tillagnanna, en þær eru margþættar og hafa enn ekki verið birtar opinberlega, nema að takmörkuðu leyti. Anker Jörgensen gerir sér vonir um, eins og áður segir, að ágúst-flokkarnir fallist á þærog það, sem þeir hafa látið uppi um þær til þessa, hefur verið heldur jákvætt. íhalds- flokkurinn eða Vinstri flokk- urinn hafa enn ekki látið neitt uppi. Hins vegar hefur Glistrup-flokkurinn tekið ákveðna afstöðu gegn þeim. Sama hafa kommúnistar og vinstri sósialistar gert. Hins vegar hafa undirtektir Sósial- iska þjóðarflokksins verið fremur jákvæðar, Það hefur hlerazt, að Anker Jörgensen geti hugsað sér að efna til kosninga, ef tillögur stjórnarinnar verða felldar. Slíkt er þó ekki sennilegt. Að visu benda skoðanakannanir til, að sósialdemókratar myndu bæta við sig, en hins vegar gætu þeir flokkar, sem nú standa einna næst þeim, þurrkast út, en það eru Kristi- legi flokkurinn, Radikali flokkurinn og Sósialiski þjóðarflokkurinn. Staðan á þingi gæti þvi orðið sósial- demókrötum óhagstæðari, þrátt fyrir einhvern vinning. Liklegast virðist þvi, að ágúst- flokkarnir standi saman um hinar nýju tillögur. Þ.Þ. i

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.