Tíminn - 04.08.1977, Page 11

Tíminn - 04.08.1977, Page 11
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 11 staðarins. Agætt er og til túnrækt- ar viða á hjallanum við kaupstað- inn. Húsin eru flest smá timbur- hús og göturnar einkennilega mjóar. Aðalgatan er við sjóinn. Nú hfir risið þar veglegur barna- skóli úr steini. Upp af Norðfirði er fritt undir- lendi: sameinast smáir fjalldalir að grösugri sléttu við fjarðar- botninn og eru þar margir bæir á sléttunni. Þarna er prestssetriö Skor-rastaður. Við Hellisfjörö og Viðfjörð er og byggð. Höfðu Norðmenn um tima hval veiðastöð við Hellisfjörð. Víkur eru enn inn i skagann sunnan við Viðfjörð Þær heita Sandvik og Barðsvikog er þar útræði nokkurt ogsmdþorp. A skaganum er aust- asti höfði landsins sem Gerpir nefnist: þar er standberg i sjó og burst á bergi. Allar þessar vikur og byggðir sem nú eru nefndar eru i sveit saman og heitir Norð- fjarðarhreppur. Eru leiðir viða illar bæja á milli, um háfjöll eða skriður með sjónum. Ekki er langur né erfiður fjallvegur frá undirlendinu við Noríf jörð suður til Eskifjarðar og mætti gera bil- veg og væri þá Neskaupstaður kominn i sambandi við vegakerfi Austurlands. Norðfjörður núna Við ókum grösugan dal. Iðgræn tún i Norðfirði, þvi þar er sveit i fjarðarbotninum. Sagt var hér aö framan að Norðfjörður væri sérstakt riki. Það má rétt vera. Hér er fram- leidd mjólk handa bænum sem byggir afkomu sina annars „sjávarabla”, eins og það heitir hér. Inni i bænum er mjólkurstöð sem kaupfélagið rekur, en hún er orðin dálitið lasin og bráðum verður keypt ný, þvi hún er farin aö haga sér undarlega. Ef til vill hafa draugarnir i Viðfiröi lagt þangað leið sina, sagði kona við okkur, þvi allt i einu tók stöðin upp á þvi að afgreiöa súrmjólk i nýmjókurhyrnum, undanrennu I súrmjdkurhyrnum, en ég man ekki lengur I hverju nýmjólkin kom. Svo varð draugurinn þreyttur og nú lætur hann sér nægja aö segja að hyrnunar eigi að opnast hér, — en raunverulega ber að opna þær hinum megin á hinum limda kanti! Þetta voru einu sinni kallaðar skráveifur og þótti ekki fremur en nú vera tilefni til eftirmála. A Norðfirði er eitt öflugasta kaupfélag landsins, og þrátt fyrir annarleg sjónarmið I ýmsum greinum þjóðmála hafa Norð- firðingarmætur á kaupfélagi slnu og standa um það sterkan vörð. Nýverið hefur verið lokið við stór- hýsi sem hýsir járnvörur og byggingavörur. Við það hefur rými aukizt i sjálfri kaupfélags- búðinni sem er með þeim betri. Guðröður Jónsson hefur stjórnað þessu kaupfélagi I 30 ár og hann nýtur mikillar virðingar sem samvinnufrömuður. í kaupfélaginu vinna menn gjarnan lengi. Sumt af starfs- liöinu hefur unnið við kaupfélagið áratugum saman. Okkur var sagt að brátt myndi Guðröður láta af embætti kaup- félagsstjóra fyrir aldurssakir og þá væntanlega hefja búskap I Miðbæ i Norðfiríi en þaðan er hann ættaður. Vonandi fæst þá annar farsæll maður aö kaup- félaginu I hans stað. Hafa menn gleymt snjó- flóðahættunni? Aðkomumönnum sem koma til Norðfjarðar, kannski eftir mörg ár, verður tiðhugsað um snjoflóð- ið mikla sem kostaði mannslif og geröi mikinn usla I Neskaupstað. Þeir sem alla daga búa á út- nesjum, þar sem enginn f jöll eru nærri, verða að venjast því að dveljast undir þungu fjalli. Snjó hleður niður. Kannski dag efti'rdag, en loks þolir fjallið ekki meiri snjó og þúsundir lesta af snjó hrynja úr fjallinu. Þá á maðurinn engin ráð. Engin mannvirki þola snjóflóð. Þetta var fingerð mjöll, sagði Böðvar Bragason. Mjög laus i' sér og það snjóaði ofan á frosið hjarn. Enginn skyldi samt halda að þetta hafi verið skriöa af mjöll. Þegar niður I byggð var komið og menn stóðu innan um mölbrotin Þótt Norðfirðingar geri út mikla skuttogara og aflaskip sem veiða I nætur, þá er trillubáturinn sálarskipið sjálft, enn við lýöi. Hér sést hluti flotans á Neskaupstaö. Síldarvinnslan er sko ekkert slor. Minnir fremur á menningar lega toppstöð en fiskimjölsverksmiöju. Silda vinnslan á Nes kaupstað er meðai stórfyrirtækja landsins I sjávarútvegi. ÍTfffFIIIfl ilS ■m Aflaskipið BöRKUR leggst að bryggju I Neskaupstað hús, þá var mjöllin orðin hörð og þung eins og steinsteypa og það þurfti járnkarla til þess að marka þar för. Hraði snjóflóða er líka um- hugsunarefni. Sjónarvottar sáu efsta húsið sem flóðið tók hverfa i mökkinn — og nær samstundis virtist það taka verksmiðjuna stóru sem þó var nokkrum hundruðum metra neðar. Fögur mannvirki i nýrri höfn NU er ekki annað að sjá en stór- an ketil, einhverja kjallara og einhver innyfli úr sildarfabrikk- unni, sem þarna stóö og malaði gull. Þarna kemur eyða I bæjar- stæðið — og verður áfram eyða. Innar I firðinum er búið aö gera höfn og reisa nýjar fiskvinnslu- stöðvar, sem eru líklega einhver fegursta mannvirki I þeirri starfsgrein, sem þekkjast á land- inu. Sildarvinnslan minnir meira á nýjan fjölbrautarskóla en gúanó- fabrikku, eins og þær hétu þegar hún amma var ung. Það er vont að koma af stað samtölum um snjóflóð við Norð- firðinga. Það er skiljanlegt. Annað skilur maður ekki, hvað fólkið er rólegt næstum þvi and- varalaust. Venjulegur ferðamaður sem skoðar ummerkin sem án efa hafa verið einhverjar hrikal- egustu náttúruhamfarir sem hér hafa orðið ef frá eru talin eldgos, undrast alla þessa rósemi. Manniskildist þó að um 80% af bænum gæti verið i samskonar hættu. Eina örugga svæðið að mati sérfróðra manna mun vera krikinn þar sem er Kaupfélagið Fram, Félagsheimilið Egilsbúö, Slippurinn apótekið og hafskipa- bryggjan sem svo er nefnd af sjó- mönnum. Utar meö firðinum eru lika örugg svæði, að þvi er talið er. Þar er sjúkrahúsiö og þar er nú veriö að byggja nýjan bæ. Samt er ég ekki of trúaður á hættuleysið þarna, þvi skemmst er að minnast þess, þegar aur- skriða skall á krikann sem áöur var talað um. Fyllti sundlaugina afaur og garöinn hjá sýslumann- inum lika, ef ég man rétt. Ef lausamjöll I þúsundum tonna geturfariðaf staö i fjallinu, þegar snjóar á hjarn, þá virðist manni það geta gerzt aftur, nema ef eitthvað væri hægt að gera. Rækta skóg, byggja snjótroll eins og Einar Asgeirsson arkitekt hef- ur lagt til. Gera eitthvað annað en sofa. Jónas Guðmundsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.