Tíminn - 04.08.1977, Qupperneq 17

Tíminn - 04.08.1977, Qupperneq 17
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 17 Ingi Björn skorar fyrsta mark Vals. Valsmenn sigruöu Breiöablik meö þremur mörkum gegn engu I tslandsmótinu i gærkvöldi. Vals- menn eru þvi einir I efsta sæti fyrstu deildar meö 22 stig. Leik- urinn i gær var nokkuö vel og fjörlega leikinn af beggja hálfu. Leikurinn var 5 mfnútna gam- all þegar fyrsta tækifæriö kom, þá átti Einar Þórhallsson skalla ofan á þverslá Valsmarksins. Bæði liðin áttu siðan ágæt tæki- færi, en nýttu ekkert fyrr en á 19. min. Þá kom há sending innfyrir Breiðabliksvörnina, sem ómar Guðmundsson markvörður Breiðabliks virtist hafa, en Ingi Björn var á undan og ýtti knettin- um innfyrir marklfnu 1-0. Fimm mlnútum siðar komast Valsmenn i 2-0 með gullfallegu marki. Atli áttiþá sendinguá Inga Björn sem hljóp yfir boltann sem barst til Jóns Einarssonar og hann gaf boltann áfram á Albert Guð- mundsson, sem kom á fullriferð, og þrumuskot hans þandi net- möskvana. Tveimur minútum siöar komst Ölafur Friðriksson I dauðafæri við Valsmarkið en Sig- urður Dagsson varði með fætin- um. Seinni hálfleikur var daufari en sá fyrri en þó skiptust liöin á tækifærum. A 19. min. komst Ingi Björn einn innfyrir Breiðabliks- vörnina en Ómar markvörður bjargaði vel með úthlaupi. A 27. min. fá Valsmenn aukaspyrnu fimmmetra frá endalinu við vita- teiginn, Atli Eðvaldsson tók spyrnuna og spyrnti mjög falleg- um snúningsbolta rétt framhjá samskeytunum fjær. Þriðja mark Vals kom svo á 36. min. Berg- sveinn Alfonsson gaf þá sendingu á kantinn til Jóns Einarssonar, Jón gaf inn i eyðu á Guðmund Þorbjörnsson sem gaf boltann afturfyrirsig meðhælnum á Inga Björn sem skoraði. Mjög fallegt mark sem sýndi að óeigingirni, sem markaskorarar Vals sýna svo oft, borgar sig. Eftir þetta áttu bæði liöin dauðafæri sem fóru forgörðum. Valsmenn sýndu ágætan leik i fyrri hálfleik en daufan siðari hálfleik. Hörður Hilmarsson spil- aði ekki með Val að þessu sinni en i hans stað kom Jón Einarsson sem átti góðan leik. Beztur Vals- manna var Guðmundur Þor- björnsson. Breiðblikingar voru óheppnir að skora ekki i leiknum, en beztur þeirra var Þór Hreiðarsson si- vinnandi og átti skemmtilegar sendingar. Dómari var Ragnar Magnússon og dæmdi ágætlega. Valsmenn einir í efsta sæti » WttKH ■' — * PPy =» L" - _ w > ffl.; fcur w m 1 Þeir fengu viöurkenningu frá ISt, f.v. Sveinn Zoega, Guðsveinn Þorbjörnsson og Sveinn Ragnarsson. Ver Valur titilinn? tslandsmótið i handknattleik utanhúss, meistaraflokkur karla verður haldið við Austurbæjar- barnaskólann i Reykjavik dagana 6.-13. ágúst n.k. Helgina 5.-7. ágúst verður íslandsmót 2. flokks kvenna haldið á sama stað en handknattleiksdeild Vikings hef- ur umsjón með báðum mótunum. Keppni I meistaraflokki karla fer nú fram i 30. skipti, en keppt hefur verið óslitið frá árinu 1948. Að þessu sinni eru 10 lið skráð til keppni, þar á meðal núverandi Is- landsmeistarar Vals. Liðunum er skipt i riðla og eru Þróttur, HK, Fram, KR og Vikingur i A-riðli en Armann, Haukar, 1R, Valur og FH i B-riðli. Dregið var i riðla að viðstöddum fulltrúum frá HSl. FH hefur langoftast orðið Is- landsmeistari utanhúss eða 17 sinnum Valur 5 sinnum, Armann þrisvar, Fram tvisvar og Viking- ur og KR einu sinni. Islandsmótið i 2. flokki kvenna fer nú fram i 18. skipti, en þar hef- ur verið keppt óslitið frá árinu 1960. Að þessu sinni eru 9 lið skráð til keppni og eru Islands- meistararnir frá i fyrra, Völsung- ur, i þeim hópi. Valur hefur oftast orðið Islandsmeistari i þessum flokki eða 5 sinnum. Stj órn ISI HEIÐRAR ÞRJÁ MENN PRI á skak Nýlega sæmdi Iþróttasamband Islands þrjá menn viðurkenning- um fyrir mikil og heilladrjúg störf I þágu iþróttanna. Sveinn Zöega hlaut heiðursorðu l.S.I. Sveinn var alhliða iþrótta- maður á yngri árum og hefur ekki siður lagt drjúgan skerf til félags- málanna. Hann sat i stjórn Knatt- spyrnufélagsins Vals i 18 ár, þar af 9 ár sem formaður fulltrúaráðs félagsins. Auk þess átti hann sæti i stjórn KRR i 13 ár, þar af for- maður i 5 ár og i stjórn Knatt- spyrnusambands Islands sat hann i 14 ár. Guðsveinn Þorbjörnsson og Sveinn Ragnarsson voru sæmdir gullmerki l.S.t. Guðsveinn er einn áf stofnend- um Hauka I Hafnarfirði og keppti fyrirfélagið árum saman i knatt- spyr^u og handknattleik. Siðan átti nann sæti i stjórn Hauka 120 ár, þar af formaður i 17 ár. Sveinn Ragnarsson hefur verið virkur félagi i iþróttasamtökun- um frá barnæsku i Knattspyrnu- félaginu Fram og keppti fyrir félagið bæði i handknattleik og knattspyrnu. Hann hefur sinnt félagsmálum mikiö, sat m.a. i stjórn Fram i 15 ár og i stjórn H.S.l. i 7 ár. Einnig hefur Sveinn átt sæti i dómstólum og fjölda nefnda. Stjórn Frjálsiþróttasambands Islands gerir allt til að ná I pen- inga. 1 morgun kl. 5 stundvislega hélt stjórnin á sjó á vélbátnum Kára Sólmundarsyni, sem er 250 tonna bátur, sem útgerðafélagið Barðinn i Kópavogi á. FRl tók bátinn áleigu til þess að reyna að afla fiskjar og um leið fjár til rekstrar sambandsins. Skips- stjóri i ferðinni er Hákon Isaksson en með i ferðinni eru auk stjórnarinnar ýmsir áhugamenn um frjálsiþróttir og skak.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.