Tíminn - 17.08.1977, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 17. ágúst 1977
sMÍjJi
itm
5
f
á víðavangi
Tvær
meginástæður
verðbólgunnar
Dr. Þráinn Eggertsson há-
skólakennari ritaði stutta
grein I Visi sl. mánudag og
fjalla þar um verðbólguna á
Islandi. Hann minnist þar á
ýmsar þær skýringar sem fólk
hefur reynt að veita á þessu
þjóðlifsfyrirbæri, en telur
fæstar þeirra á rökum reistar.
Siðan segir hann:
„Tvær ástæður liggja til
þess að verðbólga á Islandi er
yfirleitt meiri en i öðrum
Evrópulöndum. t fyrsta lagi á
tsland það sammerkt við þró-
unarlöndin að vera „einvör-
ungur” eða einnar-vöru-land.
Atvinnulif hinna Evrópuþjóð-
anna er ekki af þessum toga
spunnið, en algengt er i Asiu,
Afriku og Rómönsku Ameriku
að afkoma heillar þjóðar
byggist á einni vörutegund eða
örfáum. Þessi einhæfi varning
ur er seldur á heimsmarkaði,
en fyrir hann kaupa þjóðirnar
flest lifsins gæði. Algengt er að
varan, sem slikar þjóðir
byggja á afkomu sina sé háð
mjög miklum verðsveiflum Uti
ilöndum, og gefur auga leið að
miklar verðhækkanir eða
verðlækkanir hafa stórfelld
áhrif á lifskjör þeirra. Verð-
sveiflur á heimsmarkaði geta
haft mikil áhrif á verðlag inn-
an lands hjá ,,einnar-vöru-
þjóðum”, en bæði til hækkun-
ar og lækkunar.Verðsveiflur á
útflutningsvörunni koma að-
eins af stað langvinnri verð-
bólgu, ef skrúfa er fyrir hendi.
Og er þá komið að siðara hluta
skýringarinnar.”
Um þessa skrúfu segir dr.
Þráinn Eggertsson siðan:
„Skrúfan er afleiðing af
starfsemi öflugra hagsmuna-
samtaka launþega, atvinnu-
rekenda og atvinnugreina.
Samtökunum er falið að gæta
hagsmuna umbjóðenda sinna,
en ein afleiðing þeirrar starf-
semi er, að verð og laun i
krónum talið hækka aðeins, en
lækka aldrei. Flestir kannast
t.d. við þá undarlegu stað-
reynd að veraklýösfélög taka
þvi með nokkrum skilningi,
þegar illar árar hjá útflutn-
ingsgreininni, ef kaupmáttur
launa rýrnart.d. um fjóröung
vegna óbættrar verðlags-
hækkunar. Hins vegar mundi
koma til blóðugra götubar-
daga ef reynt væri að lækka
kauptaxta um nokkrar krón-
ur. En þáttur skrúfunnar er
meiri. Verðfall útflutnings-
vörunnar erlendis stuðlar að
þvi að þjóðartekjur lækka og
kjör þjóðarinnar rýrna. Hags-
munasamtökin reyna þá að
halda lifskjörum umbjóðenda
sinna óskertum og standa
gegn lækkun verðs og launa,
en byrðinni er endanlega jafn-
að á þjóðina með gengisfell-
ingu og verðlagshækkun. önn-
ur leið er ekki fær.”
ísland klár
verðbólgu-
kóngur
Til nánari skýringar bætir
dr. Þráinn við:
„Sveiflur þjóðartekna eru
oft gífurlega miklar hjá „ein-
vörungum” og tæplega verður
hjá þvi komizt i evrópsku
lýðræðisriki eins og Islandi, aö
öflug hagsmunasamtök hleypi
öllu i bál og brand við slikar
aðstæður. Efnahagsvandi hins
dæmigerða Evrópurikis er all-
ur annar og minni. Þar hefur
yfirleitt verið deilt um hvernig
skipta beri ávextinum af hæg-
um hagvexti milli hagsmuna-
hópanna. Meðan atvinnulif er
einhæftog óvarið gegn erlend-
um verðsveiflum og meðan
hagsmunasamtök eru öflug,
verður Island klár verðbólgu-
kóngur Evrópu.”
Leiðin út úr
vandanum
Dr. Þráinn tekur það að vfsu
fram, að hann einfaldi mynd-
ina nokkuð með þessum orð-
um sinum, en allt um það ger-
ir hann i stuttu máli mjög
skýra grein fyrir megin-
vandamálunum. Allir áhuga-
menn um stjórnmál og fram-
farir i landinu ættu að huga
sérstaklega að þessum efnum.
Það kann vel að vera að dr.
Þráinn sé óþarflega dómharð-
ur um hagsmunasamtökin,
þvi að vel ætti að vera unnt að
hugsa sér öflug hagsmuna-
samtök þar sem forystan
hefur gert sér grein fyrir
nauösyn hagsveiflustjórnunar
og efnahagshorfum til lengri
tima en tveggja eða þriggja
mánaða i senn! Það er a.m.k.
kosti harla erfitt að sætta sig
við það, að hagsmunasamtök-
um sé fyrir eitthvert náttúru-
lögmál fyrirmunað að sjá
veruleikann umhverfis sig og
sjá hvernig umbjóðendum
þeirra verður bezt borgið til
lengri tima. En hér er einmitt
komið að miklu framfaramáli,
sem sé þvi, að hagsmunasam-
tökin — og ekki sizt þá verka-
lýðshreyfingin — efli með sér
almennar umræður um hags-
muni fólksins andspænis þess-
um skyndilegu og óvæntu
sveiflum á erlendum markaði
islenzkra útflutningsafuröa.
Það er alveg ljóst, og hefur
oftsinnis verið rakið i almenn-
um umræðum, að leiðin út úr
þessum vanda ereinkum sú að
auka fjölbreytni útflutningsat-
vinnuveganna, byggja upp
nýjar útflutningsgreinar, ekki
sizt þær sem ekki eru háðar
tiðum verðsveiflum. I öðru
lagi er leiðin sú, að styrkja
mjög verulega verðjöfnunar-
sjóði útflutningsgreinanna,
þannig að hagkerfið verði var-
ið fyrir sveiflunum, en tekju-
auka verði miðlað út um þjóð-
félagið jafnt og þétt en ekki i
gusum, eins og verið hefur
hérlendis um langt skeið. Með
sliku sjóðakerfi væri og lagt til
hliðar til mögru áranna, og
þyrfti þá ekki að koma til
þeirrar almennu kjara-
skerðingar sem oftast hefur
orðið. Loks er leiðin sú, að
hagsmunasamtökin og stjórn-
völd átti sig á því að þessi leið
er fær, meira að segja vel fær,
ef vilji og samstaða er fyrir
hendi og þolimæðin brestur
ekki við fyrstu örðugleikana.
En þetta siðasta er frumskil-
yrði ef lýðræðisþjóðfélag á að
komast þessa leið.
JS
Gullsmiðurinn s.f.
Þjónusta
fyrir landsbyggðina
Sendið okkur (í ábyrgð) þá skartgripi
sem þér þurf ið að láta gera við, ásamt
smálýsingu á því sem gera þarf,
heimilisfangi og simanúmeri. Að af-
lokinni viðgerð, sem verður innan 5
daga frá sendingu, sendum við ykkur
viðgerðina í póstkröf u. Allar viðgerðir
eru verðlagðar eftir viðgerðaskrá
Félags (sl. Gullsmiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum
málspjöld), gerum við armbönd,
nælur, hálsmen, þræðum perlufestar.
Sendum einnig í póstkröf u allar gerðir
skartgripa.
Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið
og leitið upplýsinga.
Gullsmiðurinn s.f.
Frakkastíg 7 101
Reykjavík
Sími (91) 1-50-07.
Gott hey
Gott vélbundið hey til
sölu að Stóra-Kroppi,
Borgarf irði.
Hvolpur
tveggja og hálfs
mánaða, til sölu. Sími
8-43-45 eftir kl. 7 á
kvöldin.
&
SKIPAUTGCR9 RIKISINS
M/s Esja
fer frá Reykjavík mánudag-
inn 22. þ.m. Vesturland
hringferð.
Vörumóttaka:
miðvikudag, fimmtudag og
til hádegis á föstudag. Til
Vestfjarðahafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar, ólafs-
fjarðar, Akureyrar, Húsa-
vfkur, Raufarhafnar, Þórs-
hafnar og Vopnafjarðar.
Intematlonal
Scoutll
AUGLYSINGADEILDIN
Eigum til sölu og afgreiðslu strax
sýningarbifreið sem ekin hefur verið
7000 km. Mjög hagstætt verð og
greiðslukjör. Verð kr. 3.15o.-þús.
HVéladeild
m Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
Skrifstofustarf
Alþýðusamband íslands óskar eftir
starfsmanni til að annast vélritun og
simavörzlu.
Kunnátta i ensku og einhverju norður-
landamáli nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 25.
ágúst merkt Skrifstofustarf 1252.
Hveragerði
UTSALA
10-50% AFSLÁTTUR
MKIAUÁI
Austurmörk 4 — 2. hæð
Hveragerði — Sim/ (99)4330