Tíminn - 19.08.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 19.08.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 19. ágúst 1977 11 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Heigason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Verð i lausasölu kr. 70.00. Áskriftargjald kr. 1.300 á mánuði. Blaðaprent h.f. Lýðræðisleg f jölda- hreyfing í gegndarlausum áróðri sinum gegn samvinnu- hreyfingunni hamra blöð Sjálfstæðismanna á nokkrum atriðum ár eftir ár. í almennum rök- ræðum hafa þessi atriði verið marghrakin, en eigi að siður ganga þau aftur á siðum blaðanna hvað eftir annað. Kenningin um hinn hættulega auðhring er gamalkunn. Hún er enn við lýði þrátt fyrir að al- kunnugt er, að kaupfélögin er fjöldahreyfiing, sem er lýðræðisleg og opin hverjum sem gerast vill meðlimur. Félagsmenn Sambandskaupfélaganna voru rúmlega 41 þúsund um seinustu áramót. Það mun ekki fjarri lagi að ætla að liðlega 100 þúsund manns séu i beinum og óbeinum tengslum við kaupfélögin og njóti starfsemi þeirra á einn eða annan hátt. Það mun reynast harla örðugt verk, að sann- færa þennan mikla fjölda félagsmanna um að þeir hafi gerzt meðlimir eða stuðningsmenn þjóð- hættulegs fyrirtækis með aðild sinni að kaupfé- lagi. Skriffinnum Sjálfstæðismanna finnst það miður, að samvinnumenn skuli hafa fjölbreyttan rekstur með höndum. Þeir sjá ofsjónum yfir vel- gengni Samvinnubankans. Þeir vildu sjálfsagt að Samvinnutryggingar væru minni og einhver „óskabörn” þeirra á tryggingarsviði þeim mun stærri. Þröngsýnustu menn i röðum Sjálfstæðis- manna telja sókn samvinnufélaganna i sjávarút- vegi og vinnslu- og sölu sjávarafurða i velflestum byggðarlögum landsins óþarflega mikla. Og þeir finnast jafnvel i þessum hópi, sem vilja ekki við- urkenna, að iðnaður samvinnumanna sé til fyrir- myndar og stuðli að traustari og fjölbreyttari at- vinnuuppbyggingu. Fólkið, sem tekur þátt i og nýtur hinnar fjölbreyttu starfsemi, sem kaupfé- lögin og Sambandið standa fyrir, veit, að að baki stendur traust félagskennd, sem treysta má að ekki bili við fyrsta mótbyr. Þvi er ljóst að stjórn og forysta hvilir á mörgum aðilum, og að hin nýja kenning um að völd og ákvarðanataka innan samvinnuhreyfingarinnar sé i höndum örfárra aðila er röng. Allt um fámennisstjórn innan sam- vinnuhreyfingarinnar er út i hött. Sambandskaupfélögin voru 49 um seinustu ára- mót. Stjórnir þeirra skipa alls 246 menn. Auk þess koma svo deildarstjórar i félagsdeildum hinna stærri félaga. Allir þessir trúnaðar- og stjórnar- menn eru valdir i beinum kosningum. Samkvæmt upplýsingum, sem Timinn hefir aflað sér, munu stjórnir félaganna hafa haldið yfir 300 fundi á ár- inu 1976. Á þessum fundum eru f jölmörg málefni tekin til meðferðar, bæði félagslegs- og efnahags- legs eðlis. Það munu hafa verið bókuð og afgreidd um 1500 mál á þessum stjórnarfundum á árinu sem leið. ' Af þessum upplýsingum er ljóst, að allt tal um fámennisstjórn i samvinnufélögunum er fjar- stæða ein. Hins vegar er ekki þvi að leyna, að fámennis- stjórn er alþekkt fyrirbæri i fjölmörgum áhrifa- miklum hlutafélögum einkarekstursmanna. Þar ráða fjölskyldufundir og jafnvel stiórnarfundir i svefnherbergjum öllu um ákvarðanir og þá er oftast litið á þröng einkasjónarmið. Þessu þarf ekki að lýsa fyrir skriffinnum Sjálfstæðismanna. Þeir þekkja þetta form mæta vel og trúa á ágæti þess. Samvinnumenn telja það hins vegar ekki til fyrirmyndar. Þ.Þ. Charles W. Yost, The Christian Seience Monitor: Leiötogarnir veröa aö hugsa meir um áriö 2000 og minna um næstu kosningar. Rlöur C'arter á vaðiö? Hagfræöingar sem stjórnmálamenn nota gjarnan hugtökin þjóöarframleiösla og þjóöartekjur sem mælikvaröa á velsæld og hag þjóö- félagsþegnanna. Þaö er þó viöurkennd staðreynd, aö þessi hugtök segja ekkert til um almenna velferö lands- manna, heldur eru þau ein- ungis ákveöin tölfræðileg aö- ferö, sem er notuö til aö taka saman heildarverömæti fram- leiðslunnar á hverjum tima. Hugtökin segja hins vegar ekkert til um, hvernig fólkinu liður eöa hvernig verömætin skiptast milli þess. Um þessi málefni fjallar C.W.Yost i eftirfarandi grein, en hann sat nýlega á ráö- stefnu, sem ræddi um þessi hugtök og velferö i almennum skilningi. Fólk, sem lætur framtiö þjóðfélagsins og barnabarna sig einhverju máli skipta, er oröið meir og meir sannfært um að hagvöxtur, i þeim skiln- ingi aö þjóðarframleiöslan aukizt, sé hvorki möguiegur né fullnægjandi fyrir flesta einstaklinga. Baráttan fyrir auknum hagvexti leiöir af sér sóun á hinum takmörkuöu auölindum jaröarinnar, legg- ur óþolandi byröi á heröar umhverfisins, og samt hefur mistekizt aö uppfylla kröfur um mannlegar þarfir og aö þróa og bæta gæöi lifsins sem ætti að vera meginmarkmiö hagvaxtarins. Hagvöxtur, verömæti og gæöi lifsins var kjörorö at- hyglisverörar ráöstefnu, sem lauk i byrjun agústmánöar i Aspen i Colorado i Bandarikj- unum. Meöal þátttakenda var yfirmaöur eins virtasta háskóla Bandarikjanna, stúdentaleiötogi annars, fyrir- maöur fjölþjóöa oliufyrir- tækis, fyrrverandi fjármála- ráöherra frá Kólombiu, franskur fulltrúi i Alþjóða- bankanum, aöstoöar- mennta- málaráöherra trans, sagn- fræðingur frá Oxford, fram- kvæmdastjóri hjá efnahags- málanefnd bandariska þings- ins, fyrrverandi fyrirmaður hjá umhverfismálaáætlun SÞ., ung svört kona hjá sjón varpsiðnaöinum og nokkrir aörir. Eftir tveggja vikna frjálsar umræður um þetta kjörorö, komst þessi óliki hópur aö ótrúlega sameinaðri niöur- stööu. I stuttu máli, þá voru niöur- stööurnar svohljóöandi: I fyrsta lagi þarf heimurinn nýja reglu sem getur komiö i Valdaslofnanir þjóöfélagsins veröur aö gera sveigjanlegri, opnari og valdinu veröur aö dreifa, segir greinahöfundur. Skyldi bandariska þingiö vera reiðubúiö til aö framkvæma slikar breytingar? staðinn fyrir hinar úreltu regl- ur, sem hugtakið þjóöarfram- leiðsla byggist á. t ööru lagi, þá þarf þessi nýja regla að leggja áherzlu á grundvalla- þarfir fólksins, eins og t.d. fæði, heilsu, þekkingu, atvinnu og gæði lifsins. t þriöja lagi þarf aö endurskipuleggja allt kerfiö til aö ná fram þessum takmörkum. Þaö varviöurkennt, aö ákveö- in skilyröi veröur aö uppfylla, áöur en hætt sé aö fara fram á annað. Meöal þessara skilyrða er aö losna við striöshættuna, sérstaklega kjarnorkuvopna striö, losna við ofbeldi o.s.frv. Umræðuhópurinn tók sér- staklega fram nokkur atriöi, þar sem aögeröa væri þörf og benli á leiðir til úrbóta. Meöal þeirra voru eftirfarandi: Varöandi fæöisöflun, þá ætti að leggja meiri áherzlu á byggðastefnuna i þróunar- löndunum og efla þannig land- búnaöinn, svo aö þessi riki geti oröiö sjálfum sér nóg i matvælaframleiöslu. t þróuöu löndunum ætti hins vegar aö koma upp matvælabirgöum til aö geta átt betur viö hungurs- neyöir i hinum fátækari lönd- um. Varöandi atvinnuleysi, þá ættu rikisstjórnir aö útvega öllum möguleika til aö fá sér vinnu, þ.a.m. konum, og væri það takmark, sem hægt væri aö ná á einum áratug, ef vilji væri fyrir hendi. Þessu tak- marki gætu þróunarlöndin náö meö þvi aö skipta á réttlátari hátt vaxandi þjóðartekjum sinum. Varðandi menntun, þá ætti aö leggja meiri áherzlu á hin mikilvægu fyrstu fimm ár barnanna og á barnaskólana. 1 gagnfræðaskólum ætti aö leggja áherzlu á, aö mennta nemendurnar til aö veröa borgarar og i æöri skólum ætti aö draga úr sérhæfingunni. Varðandi heilbrigöiskerfið, þá ætti aö gera þaö einfaldara og ódýrara i sniðum og leggja áherzlu á barnahjálp og fjöl- skylduáætlanir. I hinum „þróaðri” þjóöfélögum, á aö draga úr menningasjúkdóm- um eins og taugastressi. Hvað varöar umhverfiö og náttúruauölindirnar, þá ætti aö vernda betur þá þætti lifs- ins, sem likamleg heilsa og geöheilsa er háö og vernda auðlindir, sem allt lif er meira eöa minna komiö undir. Hvernig á eiginlega aö ná fram öllum þessum markmiö- um i þjóöfélagi, þar sem hvert þessara atriöa mvndi leiöa til hagsmunaárekstra? Aöeins — eöa svo virðist — með þvi aö gjörbreyta öllum valdastofn- unum þjóðfélagsins i þá átt, aö gera það sveigjanlegra , opn- ara, fá almennari þátttöku, með þvi að dreifa valdinu og gera það áhrifameira. Með þvi aö nota fjölmiölana viturlegar til að upplýsa fólk, meö þvi aö koma á fót ábyrgari viöræðum milli þi óunarrikjanna og þró- uðu rikjanna. Og ekki hvað minnst meö þvi, aö láta leiö- togana hugsa meir um árið 2000 i staö þess að vera ævin- lega með hugann bundinn viö næstu kosningar. Þýtt og endursagt: MÖL 1?j óðarf ramleiðsla — úrelt hugtak -takaverður tillit til mannlegra þátta lifsins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.