Tíminn - 03.09.1977, Side 4
4
Laugardagur 3. september 1977
Tíminn heimsækir Eyrarbakka
Texti og myndir: Haraldur Blöndal
Kaupfélögin byggjast
ekki upp á pólitík
Hér fer á eftir síðasta viötalið
sem blaðamaður Timans átti við
Eyrbekkinga. Undirrituðum þótti
við hæfiað líta inn i kaupfélaginu
Þar er Kristján Asgeirsson úti-
bússtjóri Kaupfélags Amesinga á
Eyrarbakka. Aðurstarfaöi hann i
Bildudal en kom til Eyrarbakka
fyrirtæpum tveimur árum og tók
þá við starfi útibússtjóra.
Hefur starfað við verzl-
un i aldarfjórðung
— Hvaö ert þú búinn að starfa
lengi við verzlun, Kristján?
— Ætli þaö séu ekki um 23 ár
sem ég hef starfað við verzlun
eingöngu og um 25 ár þegar af-
skipti min af verzlunarrekstri eru
meðtalin. Ég byrjaði hjá Kaup-
félagi Arnfirðinga sem nú heitir
Kaupfélag Patreksfjarðar. Aður
en ég kom til Eyrarbakka var ég i
Bildudal um 21 ár og starfaði all-
an þann tima hjá kaupfélaginu
þar eða fram tilársins 1970, er ég
hóf að starfa við útgerð og niður-
suðu og var með Matvælaiðjuna
hf. i Bildudal. Til Eyrarbakka
kom ég svo fyrir um einu og hálfu
ári og tók við starfi útibússtjóra
Kaupfélags Arnesinga á Eyrar-
bakka um áramótin 1975-6.
— Hvernig hefur reksturinn
gengið siðan þú tókst hér við
störfum?
— Verzlunin hefur gengið ágæt-
lega. Siðasta ár skilaði hún
hagnaði i fyrsta sinn um talsvert
skeið. Söluaukning var þá 46%, og
miðað við siðastliðið ár er sölu-
aikningin rúmlega 80 prósent þaö
sem af er þessu ári. En auðvitað
eru ýmis vandamál sem við er aö
gli'ma. Húsnæðið er til dæmis allt
of litið. Kælitæki og ýmis búnaður
standastekki kröfur samtfmans.
Nálægð okkar við höfuðstöðvarn-
ar bjargar þessu þó eins og sakir
standa. Við fáum reglulega vöru-
sendingar frá Selfossi og skal ég
vikja nánar að þvi hér á eftir.
Góð þjónusta og hús-
rými tryggja aukin við-
skipti.
— Hvað vilt þú segja um hús-
næöi verzlunarinnar, aðstöðu og
framtfðarskipulag verzlunar-
mála hér á Eyrarbakka?
— Kaupfélagið á þetta hús
ásam t ibúð á næstu hæð sem leigð
er útibússtjóranum. Húsið sjálft
er um fjórtán ára. En áður var
verzlað i gamla húsinu hér við
hliðina á okkur. betta hús, sem
við erum i var byggt i anda þeirr-
ar veltu, sem þá var hjá kaup-
félaginu. En með meira vöruúr-
vali, auknum þjónustukröfum og
breyttum timum þarf mun stærra
húsnæði. Það sem hrjáir mig
mest, er skortur á nýjum og hag-
kvæmum kælitækjum og rými
fyrir þau. Hér eru gömul tæki og
dýrt að breyta þeim. Ég fullyrði
hins vegar að sé hægt að bjóða
fólki, þaö sem bezt gerist annars
staöar, þótt i minna mæli sé, þá
eykst verzlunin.
Sú söluaukning, sem hér hefur
orðið á trúlega rót að rekja til
aukins vöruúrvals. Margir telja,
að höfuöstöðvar kaupfélaganna
láti útibúin sitja á hakanum með
fyrirgreiðslu. Þetta hefi ég ekki
orðið var við. Ég hefi þvert á móti
fengið nærri allt, sem ég óska
eftir. Samvinna min við höfuð-
stöðvarnar á Selfossi er með
miklum áægtum.
Hér eru nú þrjár manneskjur i
fullu starfi auk min. Yfirleitt höf-
um við nóg að gera. 011 samskipti
við fólkið eru ákaflega skemmti-
leg. Hér er rekin staðgreiðslu-
verzlun, enda fá flestir laun sin
greidd vikulega. Auðvitað getur
hent að útborgun dragist. Þá er
sjálfsagt að lána fólki frá degi til
dags. Ennþá hefi ég ekki orðið
fyrir vonbrigðum með einn ein-
asta mann. Hér lofar fólk ekki
neinu án þess að standa við það.
einkum vegna vondra veðra, og
bátar teppast kannski vegna
veðurofsa. Ahafnir hafa kannski
farið tvisvar alla leið um Selfoss,
Hverageröi út með hálfófæru
fjalli til Þorlákshafnar til þess aö
fara á sjóinn. Ef ekki gefur verða
þeir að snúa við og eru kannski
nýkomnir heim þegar veður læg-
ir. Þeir missa þá af lestinni og eru
alltaf á eftir öðrum. Ef brú væri
komin yfir ölfusá væri þetta ekki
klukkustundarferð heldur aðeins
tlu minútna akstur.
Þá má ekki gleyma sffelldri
umræðu um góða meðferð hrá-
efnis. Menn geta gert sér i hugar-
lund, hvernig sá fiskur litur út,
sem þarf ef til vill að flytja á
vörubil hálfrar annarar stundar
veg i ófærð.
gerðí. Umferð verður hér geysi-
ieg til að byrja með. Svo má
einnig hafa i huga, að fyrr eða
siðar hlýtur að risa hér einhver
iðnrekstur, sem tengdur er fisk-
vinnslunni, t.d. niðursuða eða
annað þviumlikt. Slikt krefst auk-
ins vinnuafls og fólksfjölgun
krefst meiri og betri þjónustu.
Kaupfélögin byggjast
ekki upp á pólitík
— Margt hefur verið sagt um
Samvinnuhreyfinguna og þá
þjónustu, sem kaupfélögin. veita.
Hvað viltþú segja um þetta deilu-
mál?
— Samvinnuhreyfingin er
auðvitaö fyrst og fremst eign
fólksins og kaupfélögin sömu-
Kristján Asgeirsson afgreiðir stúlkurnar úr frystihúsinu. Hann á að baki 25 ára starf við verzlun
og verzlunarrekstur.
Eyrarbakki er gamall og rót-
gróinn staður. Fólkið er mjög
traust og jafnvel meira ai eg á að
venjast. Hér er allt annar andi en
þar, sem ég hefi verið áður. Þorp-
ið var einu sinni aðalverzlunar-
staðurinn á Suðvesturlandi og
ibúar á annað þúsund þegar flest
var. Ég held að verzlanir hafi
verið um fjórtán. begar Selfoss
byggðist hrakaði þessari byggð
vegna hafnleysu en mest vegna
uppgangs Þorlákshafnar, sem nú
er lifhöfn þessa svæðis og ekki
nema gott eitt um það að segja.
Ölfusárbrú mun bjarga
Stokkseyri og Eyrar-
bakka
— Hvað telur þú aö þurfi til að
tryggja framtíð Eyrarbakka?
— Hér hafa alltaf verið miklir
hafnarörðugleikar, en þau mál
hafa nú skipast mjög til hins
betra. Þrátt fyrir það tel ég að
það eina sem geti bjargað
þorpunum Stokkseyri og Eyrar-
bakka sé brú yfir ölfusá. Enn er
það svo, að bátar sem hér eru
gerðir út, landa mestu af afla sin-
um i Þorlákshöfn að vetrarlagi
Ég er þess fullviss, að Eyrar-
bakki á eftir að vaxa, ekki siður
en kaupfélagið, þegar brúin kem-
ur. Sá draumur er nú meira en 25
ára gamall. En þvi miður held ég,
að það séu ekki allir, sem gera sér
grein fyrir mikilvægi hennar. Sá
hópur hefur fyrst og fremst ein-
blint á hafnargerð. En skoðun
min er sú, að hvort sem það var
happa eða glappaskot að Þorláks-
höfn var byggð, þá er hún þar og
er bezta höfn á Suðvesturlandi.
Við það verðum við að sætta okk-
ur og á henni verðum við að
býggja.
Þar kemur aö fólk fer aftur að
sækja hingað í auknum mæli. Hér
er nóg graslendi,
friðsæld og ró. Nú þegar er unga
fólkið afturfarið að byggja hér og
myndi gera það I enn meira mæli
ef góð sjósóknaraðstaða væri.
Sama er að segja um Stokkseyri.
Hér hefur fjölgað um tæp 30 pró-
sent siðustu niu árin, en fjölgun
hefði orðið um 60 prósent ef brúin
hefði verið komin.
Með tilkomu brúarinnar verður
óhjákvæmilegt að auka
verzlunarhúsnæði kaupfélagsins
verulega. Þá verður hér mjög
skemmtilegur hringvegur um
Eyrarbakka, Selfoss og Hvera-
leiðis. Þó eru margir, sem lita á
kaupfélögin sem hálfgerða óvini
fólksins. En samt er það svo, að
þegar menn komast að raun um,
að hægt er að verzla i kaup-
félögunum þá beina þeir við-
skiptum sinum þangað. öðru
þakka ég ekki söluaukninguna
hér. Fólk kann vel við sig hér i
búðinni og tekur þvi lifsnauðsynj-
ar si'nar hér fremur en að leita
lengra.
Ég hefi gaman af þvi að segja
þérfrá þvi, að Ómar Ragnarsson
var hér með viðtöl fyrr I vetur við
ýmsa menn, i tilefni af afmæli
Sambandsins. Hann hitti meðal
annars Sigurjón Bjamason á
förnum vegi, riðandi á hesti, og
fór að spyrja hann um kaup-
félagið. Siurjón sagði skoðun sina
á þvi umbúðalaust. En ömar
spurði hann aldrei hvort hann
verzlaði i kaupfélaginu. En það
get ég sagt þér, að Sigurjón er
einn af okkar traustustu og bestu
viðskiptavinum. Hann er glöggt
dæmi þess, að ekki er allt pólitik
innan kaupfélaganna. Sigur jón er
góður og gegn Sjálfstæðismaður.
En hann sér hag sinn I þvi að
verzla hér og auðvitað sjáum við
okkur hag af þvi að taka honum.
vel — rétt eins og öllum öðrum.
Vitaskuld hafa menn misjafnar
skoðanir á Samvinnuhreyfing-
unni og hvernig hún hefur verið
rekin. Þó er það svo, að jafnvel
þeir sem harðast dæma hana eru
svo heilbrigðir, að þeir eiga við-
skipti við hana ef þeir sjá sér hag
af þvi.
Rógur og rigur bitna á
þjóðarheildinni
— Þá hafa menn einnig mjög
hugleitt, hvort Samvinnu-
hreyfingin eða Verkalýðs-
hreyfingin séu alþýðu manna
meira virði. Hvert er áiit þitt á
þessu máli?
— Hvort tveggja hreyfinganna
var og er þjóðinni lifsnauðsyn. Án
þeirra væri þjóðin ekki þeirrar
velmegunar aðnjótandi sem hún
nú býr við. Hitt er svo annað mál,
að eldurinn kring um þessar
hreyfingar hefur fyrst og fremst
kviknað af misskilningi. Verka-
lýðshreyfingunni er ekki stefnt til
höfuðs atvinnurekendum. Ánægt
verkafólk, sem vinnur húsbænd-
um sinum vel er ómetanlegt. Si-
felldar deilur og óánægja bitna á
þjóðarheildinni. Eins er það með
Samvinnuhreyfinguna. Ef hún
getur gegnt hlutverki sinu i
verzluninni og veitt tilætlaða
þjónustu þá erhún stórkostleg bót
öllum þeim, sem góðs vilja af
njóta.
Ég held hins vegar, að oft hafi
verið ætlast til heldur mikils af
Samvinnu- og Verkalýðs-
hreyfingunni. Þá er enn eitt sem
má itreka: hvorki Alþýðusam-
band Islands né Samvinnu-
hreyfingin eru flokkshreyfingar.
Báðar væru þær litils megnugar
ef aðeins stæðu að þeim menn úr
ákveðnum flokki. Gæfa þessara
samtaka er að vera yfir slikt haf-
in.
Hitt er svo annað mál hvernig
stjörnmálaflokkar hafa staðið að
þessum hreyfingum. Hagsmunir
ákveðinna manna innan flokk-
anna eru oft þannig að þeir sjá sér
hag i þvi að niða niður einhverja
stefnu. Við vitum lika að hljóti
stefna mikið fylgi eða ef fyrirtæki
gengur vel, þá getur einhverjum
orðið haguri að vekja tortryggni i
garð þessara aðila. Er það ekki
hið dýrslega eöli mannsins sem
einlægt rekur hann til að narta I
þann, sem næst honum stendur?
Samtalið varð ekki lengra.
Kristjáni varð litið fram i
verzlunina sem var að fyllast af
fólki:
— Heyrðu nú er komið fullt af
fólki. Ég verð vist að snara mér
fram að sinna þvi eitthvað. Mitt
starf er að afgreiða viðskipta-
vinina.
Þar með er botninn sleginn i
samræðurnar. Kristján var þegar
horfinn fram til að afgreiða.
Stúlkurnar voru mættar úr frysti-
húsinu. Sérhver minúta kaffitim-
ans er dýrmæt. Það leyndi sér
ekki, að Kristján var i essinu slnu
þar sem hann stóð bak við af-
greiðsluborðið og afgreiddi meö
bros á vör kátar stúlkurnar. Þar
meö var lokið heimsókn til
Eyrarbakka.
Bændur — Verktakar
Öflugur sturtuvagn til sölu. Tengsl við
traktor eða vörubil.
Ein hásing á tvöföldu. Burðarmagn 4-6
tonn.Góðir greiðsluskilmálar. Upplýsing-
ar á Bíla- og búvélasölunni.
Arnbergi við Selfoss. Simi (99) 1888.
JARÐ
VTAJ
Til leigu— Hentug I lóöir
Vanur maður N<.
Simar 75143 — 32101
Bifvélavirki
Óskum að ráða strax bifvélavirkja i vöru-
bilaviðgerðum.
Bifreiðaverkstæði S.i.S .
Simi 8-55-39.