Tíminn - 03.09.1977, Qupperneq 7

Tíminn - 03.09.1977, Qupperneq 7
Laugardagur 3. september 1977 7 Menn í skóhug- leiðingum Allir þurfa skó á fæturna og stærð skós- • ns, sem sést hcr á mvndinni á aö undir- strika mikilvægi skóbúnaöar fyrir mann- kyniö. Liklega iná deila um mikilvægi lians f samræmi viö þróunaiiega stööu landa. Kn á Vestuiiöndum eru börn ekki talin nieö mannkyiii l'yrr en þau hafa eignast sina fyrstu skó. Skyldi einhver ef- ast um gildi þess, má minna á, aö nú á dögum þykja fyrstu skór barnsins ein- liverjir mestu dýrgripir. t varðveizlu- skyni eru þeir gjarnan sprautaðir aö utan meö gull- eöa silfurhúð, þeim stillt upp I hillu og teknir fram til sýnis við minnsta tilefni. Fyrrnefndur risaskór var hannað- ur til þess aö vera til sýnis á mikilli skó- sýningu í Vestur-Þýzkalandi, sem sett var upp i minningu þýzks skóara. HOLLYWOOD-stjörnur aka um á druslum! Þessa stundina vilja stjörnur Hollywood ekkert annað en gamla skrjóða, — en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta byrjaði allt með þvi að Ali MacGraw, stjarnan úr ,,Love Story” heimsótti bilasala einn i Los Angeles, sem verzlaði með gamla bila og bað hann að gera ser greiða. Greiðinn var fólginn i þvi, að útvega henni bil, sem skyldi vera sæmilega áreiðanlegur á sviði vélarafls, en ryðgaður og tötralegur að utan. Bak við þessa skritnu hugmynd hennar var sú heita von, að slikt drægi siður athygli að henni. Bilasalinn var ekki seinn á sér að finna bil handa Ali, ömurlegan útlits en með ,,hjarta úr gulli”, eins og hann sjálfur komst að orði. Upp frá þessu hefur hann ekki haft frið fyrir öðrum Hollywood-stjörnum, sem ólmar vilja feta i fót- spor Ali. Eftirspurnin er svo mikil, að hann hefur séð sér leik á borði, — og nú kemur hann splunkunýjum vélum fyrir i eld- gömlum bila „boddium” og minn maður selur svo nýtt-gamalt sem splunkunýtt væri i alla staði. Menn telja það ekki eftir sér að borga hátt verð fyrir hluti, sem eru ómissandi að þeirra mati. spurningin Ertu sátt(-ur) við sjónvarpsdagskrána? Ilalldoi Oskar lialldórsson, 7 ára: Þaö er ekkert gaman i sjónvarpinu nema prúðuleikar- arnir, þeir eru svo vitlausir, og lika bleiki pardusinn, hann er skemmlilegastur. (íuöbjörg Jónsdóttir, vinnur hjá SS: Ég horli ákaflega litiö á sjónvarpiö vegna vinnu minnar Steinunn llákonardóttir, húsmóö- ir:Já, mér finnst hún alveg ágæt. Samt horfi ég litið á sjónvarp. Kinnbjörg II á kon a rd ót t ir, húsmóöir: Já ég er það nokkuö svo. Annars horfi ég bara á það, sem ég hef áhuga á og sleppi hinu. Lovisa Þorvaldsdóttir, húsmóöir: Já, svona öðrum þræöi. Húsbændur og hjú, fréttir og ýmsa fræðsluþætti horfi ég helzt á. Dagskráin er yfirleitt ágæt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.