Tíminn - 03.09.1977, Qupperneq 15

Tíminn - 03.09.1977, Qupperneq 15
Laugardagur 3. september 1977 15 Málfríður Björnsdóttir Málfriður var fædd 29. sept. 1893 i Innstavogi á Akranesi og var þvf tæpra 84 ára þegar hún andaðist 29. ág. sl. Foreldrar hennar voru Björn Jóhannsson bóndi og Sesselja ólafsdóttir kona hans, ættuð úr Borgarfirði og af Mýrum, en ekki kann eg að rekja ættir þeirra. Málfrfður lauk gagnfræðaprófi úr Flensborg 1917, var svo smábarnakennari á Akranesi 1918-21,hélt sfðan i Kennaraskól- ann og lauk kennaraprófi 1923, en i Reykjavik var hún heimilis- kennari 1923-26. Þá um vorið gift- ist hún eftirlifandi manni sinum, Frfmanni Jónassyni kennara frá Fremrikotum i Skagafirði og eftir það stundaði hún ekki kennslu nema i viðlögum. Þau hjón sett- ust að á Akranesi, þar sem Fri- mann var kennari til 1933 að þau fluttust austur að Strönd á Rangárvöllum og tóku þar við ný- reistum barnaskóla með heima- vist. Þar voru þau til 1949 að þau fluttust til Reykjavikur og siðan i Kópavog, en Frímann tók við stjórn barnaskólans þar það ár og gegndi þvi starfi uns hann lét af störfum fyrir aldurssakir. 1 Kópavogi reistu þau sér hús við Digranesveginn. Þau eignuðust þrjú born: Ragnheiður hjúkrunarkona gift dönskum verkfræðingi, Ove Krebs, búa i Philadelphiu i Bandarikjunum og eiga tvöbörn. Bima kennari gift Trúmanni Kristiansen skólastjóra, eiga fjögur börn og tvö barnabörn, Jónas verkfræðingur kvæntur Margréti Loftsdóttur, eiga þrjú börn. Vitanlega væri unnt að bæta ýmsum yfirborðsatriðum við,svo sem um störf Málfriðar að féiags- málum i góðtemplarareglunni og viðar en það verður ekki gert hér j til þess skortir mig kunnugleika. Þau hjón munu hafa talið árin á Strönd að ýmsu leyti blómatima ævi sinnar. En það er enginn leik- ur að stjórna barnaskóla sem jafnframt á að vera heimili barn- anna dag og nótt vikum saman. Svo varð að vera á Strönd sökum dreifbýlis og samgönguörðug- leika þessi ár sem þau hjón voru þar. Það var dagleið á hesti frá .sumum bæjum i skólann^aldurs- flokkar tveir lQ-ll og 12-13 ára.óg skiptust á um skólavistina sinn mánuðinn hvor. Hóparnir (kallaðir yngri og eldri deild) voru misstórir, oft þetta 6-12 börn. Þetta var litil samfélag, lokað og nokkuð einangrað. Sambýlisvandamál eru gjörn á að koma upp i slikum hópi og veltur þá mikið á lagni þeirra fullorðnu sem fyrir hópnum standa að leysa þau þann veg að ekki sitji eftir sár i barnshuga. Reyndin varð lika fljótlega sú að aðkomubörninj sem fæst höfðu nokkurn tima áður farið til lang- dvalar utan foreldrahúsa, fundu að i skólanum var þeirra annað heimili, mörgum þeirra fyrsti forsmekkurinn af umheiminum utan gamaldags sveitabæjar. Ekki munu aðrir fúsari en Fri- mann til að fallast á að þar átti Málfriður sinn rika og giftu- drjúga þátt. Sumum mikinum er lagnara en öðrum að styrkja umhverfi sittog bæta með góðvild og hlýlegri framkomu. Það var einmitt eitt helzta einkenni Strandarheimilis- ins. Þess vegna er mikils vert að hafa kynnzt þvi og að leiðarlokum veit ég að ég mæli fyrir munn margra þögulla auk sjálfs min þegar ég þakka Málfrfði hennar þátt. Arni Böðvarsson t Kvénfélag Kópavogs kveður nú ‘eina al sinum elztu og beztu fé- lagskonum, frú Málfriði Björns- dóttur. Hún var ein al' stofnendum félagsins, var kosin i fyrstú stjórn þess og starfaði i stjórninni rúm- an áratug. Hún var mæt og mik- ilsvirt félagskona. sem ævinlega vakti eftirtekt með málflutningi sinum og störfum i þágu télags- ins. Gáfur. glaölyndi og góðvild voru áberandi i öllu hennar dag- lari. Málfriður var pvenju glæsdeg kona og prúðmennskan var henni meðfædd. A fyrstu árum félags- ins. þegar erfitt var um húsnæði fyrir starfsemina, nutum við oft gestrisni þeirra hjóna. sem var einstök. Eftirlit'andi maður Málfriðar er Frimann Jónasson fyrrverandi skólastjóri Kópavogsskóla. Kvenfélag Kópavogs minnist þess hve velviljaður hann var fé- laginu, þegar það hafði starfsemi sina i skólanum hans. Það var mikið lán fyrir Kópavog að fá slikt úrvalsfólk til starfa við skól- ann. Mállriður var l'ædd 29. septem- ber 1893 i Innsta-Vogi við Akra- nes. Foréldrar hennar voru Björn Jóhannsson og kona hans Sesselja olafsdóttir. Þau voru mikil dugn- aðar- og myndarhjðn. Mállriður fór á unga aldri i Flensborgarskólann i Hafnarfirði og tók þaðan gagnfræðapróf. Smábarnakennslu stundaði hún á Akranesi i þrjá vetur. Siðan fór hún i Kennaraskólann og tók kennarapróí árið 1923. Eftir-það stundaði hún kennslu af og til. Alla tið tók hún mikinn þátt i fé- lagsstörfum bæði i ungmennafé- lagi, G.T. reglunni og kvenfélög- um. Hún hafði þvi mikla reynslu i félagsstörfum þegar hún flutti i Kópavog. Við kvenfélagskonur i Kópavogi nutum oft leiðsagnar hennar i störfum okkar, enda var hún ljúfur og góður leiðbeinandi. Þetta kunnu félagskonur vel að meta og voru þvi sammála um að gera hana að heiðursfélaga á tutt- ugu ára afmæli Kvenfélags Kópa- vogs árið 1970. Nú þegar okkar eini heiðursfé- lagi er látinn, er margs að minn- ast, meira en upp verður talið. Þakklætið er okkur efsl i huga fyrir samfylgdina á liðnum árum . Óskir okkar uin eiiifa blessun fylgja henni yfir landamærin. Að endingu sendum víð Fri- manni, börnuín þeirra, tengda- börnum og öðrum ástvinum inni- legar samúðarkveðjur. Konur i Kvenl'élagi Kópavogs. Friðrik Friðriksson Ég er einn þeirra, sem viða hef dvalizt og mörgum kynnzt á lifsleiðinni. Að meiri hluta góðu fólki. Hinu þarf maður að gleyma sem fyrst. Til Vestfjarða lá leið min fyrir skömmu er ég var skólastjóri barna- og unglingaskólans i Súðavik við Alftafjörð i eitt ár. Ég er nú einu sinni þannig gerð- ur að eiga auðvelt með að blanda geði við fólk af hinum ýmsu gerðum. Og á ekki stærri stað en Súðavik er, komst ég i kynni við flesta þorpsbúa. Hvort mér hefur orðið það til ávinn- ings i starfi, skal ósagt látið, en tel mig þó hafa auðgazt á þvi manniega séð. Einn þeirra sem ég komst talsvert i kynni við, er nú nýlátinn: Friðrik Friðriks- son.póst- og simstjóri á staðn- um. Hann fæddist 14. febrúar 1911 i Súðavik. Voru foreldrar hans Friðrik Guðjónsson kenn- ari þar um langa hrið og sim- stjóri til æviloka, 1932, og Dað- ina Hjaltadóttir kona hans. Friðrik Friðriksson lauk ungur prófi úr Samvinnuskólanum 1 Reykjavik, en stjórnandi skól- ans var hinn þjóðkunni hug- sjóna- og gáfumaður Jónas Jónsson frá Hriflu. Dáði Friðrik hann sökum mannkosta hans og hæfileika. Að prófi loknu tók Friðrik við simstöðinni af föður sinum, sem þá var nýlega lát- inn. Oft komum við hjón i litlu simstöðina i Súðavík, þar sem Friðrik og kona hans, Kristin Samúelsdóttir, bjuggu alla sina samverutið. Kristin sat við simaborðið og ’sinnti sinu oft- þreytandi starfi af dugnaði og samvizkusemi, en Friðrik sat við skrifborð sitt i sama her- bergi önnum kafinn störfum i þágu embættisins. Á honum var enginn asi, en allt gekk sem gera þurfti. Hann var hægfara maður og tranaði sér hvergi fram. Mátti segja um hann, að hann væri einn hinna hljóðlátu i landinu, sem vinna sin störf i kyrrþey og gera sifellt skyldu sina og meira en það. Ég heyrði hann aldreileggja neinum ill til; , Hann leitaði fyrst og fremst að þvi góða i hverjum manni. Þau hjón voru afar samhent i starfi og nutu almennra vinsælda fólks, sem við þau áttu skipti. S.l. vor gekkst Friðrik undir læknisaðgerð á Landakotsspit- ala og lá þar um hrið. Við hjónin heimsóttum hann þar. Ég hela að honum hafi þótt vænt um þá heimsókn. Á sama tima lá Kristin kona hans á Landspital- anum. Friðrik brosti til .okkar sinu góðiátlega hljóða brosi. Það gleymist ekki. Nokkrum dögum siðar útskrifaðist hann af sjúkrahúsinu og hélt vestur til sinna kæru átthaga við Djúp. Þá var Kristin enn ekki komin að sunnan af sjúkrahúsinu. Tveimurdögum fyrir andlátið var Friðrik fluttur út á Isaf jarð- arsjúkrahús. Þar varð hann bráðkvaddur. Betri dauðdaga hefði hann ékki getað hugsað sér. Það er gleðiefni. að hann þurfti ekki að liða langvarandi þjáningar áður en yfir lauk. Friðrik lézt 5. ágúst s.l. og var jarðsettur i Súðavikurkirkju- garði hinn 13. águst. Farsælu ævistarfi er lokið. Nú er Súðavík einum ágætismanninum fátæk- ari. Kristinu sendum við samúð- arkveðjur svo og öðrum að- standendum Friðrikssál. Friðr- ikssonar. Auðunn Bragi Sveinsson Góð bújörð i Suður-Þingeyjarsýslu til sölu ef viðun- andi tiiboð fæst. Jörðin er i miðri sveit við þjóðveg, á staðnum er simi og rafmagn. Land er mikið afgirt og framræst að nokkru. Hagstæð til búrekstrar hvort heldur kúa eða sauðfjárbús. Upplýsingar veittar til 30. sept. n.k. i sima (91)53009. Kennara vantar að Iléraðsskólanum að Reykjum. Upplýsingar gefur skólastjóri i sima (95)1000 og (95)1001. Frá Tónlistarskóla Kópavogs Tónlistarskóli Kópavogs tekur til starfa 17. september. Umsóknarfrestur uin skólavist er frá og nieð 5. til 1». september. I’ekið verður á móti unisóknuni og greiðslu skólagjalda á skrif- stolu skólans að llamraborg 11.3. bæð kl. 10-12 og 17-18. Auk venjulegra aðalnámsgreina verður tekin upp kennsla á liorn, kornet og básúnu. Kennsla i l'orskóladeildum hefst i Ibyrjun október og vcrð- ur nánar auglýst siðar. Athygli skal vakin á þvi að nemendur verða ekki innritað- ir i skólann á miðju starfsári. Vinsamlega látið stundaskrá frá almennu skóiununi l'ylgja umsóknum. Skólastjóri TÓNLISL4RSKÓLI KÓPfcJOGS Bíla- og búvélasalan Árnbergi við Selfoss Simi (99) 1888. Nú er réttur timi til að athuga kartöflu- uppskeruna. Höfum nokkrar kartöfluupptökuvélar á söluskrá. Höfum einnig kaupendur að stórum dráttarvélum. Bílo- og búvélasalan Gullsmiðurinn s.f. Þjónusta fyrir landshyggðina Sendið okkur (i ábyrgð) þá skartgripi sem þér þurfið að láta gera við/ ásamt smálýsingu á þvi sem gera þarf, heimilisfangi og simanúmeri. Að af- lokinni viðgerð, sem verður innan 5 daga frá sendingu,sendum við ykkur viðgerðina í póstkröfu. Allar viðgerðir eru verðlagðar eftir viðgerðaskrá Félags isl. Gullsmiða. Stækkum og minkum hringi (sendum málspjöld), gerum við armbönd, næl- ur, hálsmen, þræðum perlufestar. Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir skartgripa. Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið og leitið upplýsinga. Gullsmiðurinn s.f. Frakkastig 7 101 Reykjavík Simi (91) 1-50-07.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.