Tíminn - 23.09.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.09.1977, Blaðsíða 1
f V. hyrir vörubíla Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- & Báðir dreng- irnir látnir GV-Reykjavik — Báðir drengirnir, sem legið hafa meðvitundarlausir á Borgalspitalanum sið- ustu dag£} vegna slysa, — eru látnir. Þeir létuzt báðir i gær, annar slas- aðist i sprengingunni á Akranesi og hinn varð undir bil í Reykjavik. Drengurinn, sem var6 undir bll leikvallaeftirlitsmanna borgar- innar, á þriðjudagsmorgun, lézt i gær á gjörgæzludeild Borgarspit- alans. Hann var 9 ára aö aldri. Hann haföi legið meövitundar- laus siöan á þriöjudag eftir höfuö- högg, sem hann fékk, er hann varö fyrir afturhjóli bllsins. Mennirnir voru þarna á keyrslu um völlinn til aö hafa eftirlit meö leiktækjum. Vegna þessa hörmu- lega slyss, tók blaöamaöur Tim- ans tali Guömund Sigfússon, yfir- verkstjóra hjá leikvöllum Reykjavikurborgar. — Þaö ætti auövitaö aö setja um þaö reglur, að það yröi stranglega bannaö aö fara á bilum inn á leik- vellina I eftirliti, nema aö vendi- lega sé fylgzt meö þessum bllum, sagöi Guömundur — en þaö er eins og fyrri daginn, þaöer ekkert gert fyrr en hlutimir hafa gerzt, eins og i þessu tilfelli. En viö skiljum ekki hvernig þetta vildi til. — Mér er ekki kunnugt um aö slíkar reglur hafi veriö settar, en hér áöur fyrr, er ég var I þvl að keyra á vörubilum inn á leikvell- ina, fórum viö aldrei inn á þá öðruvisi en aö þaö væru menn I kringum bilinn til aö gæta fyllsta öryggis. Þaö er I verkahring lög- reglustjóra eöa öryggiseftirlitsins aö setja slikar reglur, en þaö er ekki nóg aö setja þær, þaö veröur aöfaraeftir þeim. Nú keyra eftir- litsmenn á fólksbllum borgarlnnar, og yfirleitt er þaö vaninn aö þeir skilji bilinn eftir á götunni og ganga um svæöiö. En stundum fara þeir á bilunum inn á leikvel-ina. — Eftirlitsmennirnir hafa veriö i yfirheyrslum I dag. Eftir þvi sem bilstjórinn hefur sagt mér, þá keyröi hann hægt I kringum völlinn, sá barn á vegasalti og annað I gagnstæöri átt. Er hann leit svo til baka hafði þetta gerzt. barniö lá á vellinum eftir aö hafa rekizt i afturhjól bllsins. Litli drengurinn, sem slasaöist I sprengingunni i Flugeldastööinni á Akranesi, lézt siödegis I gær á gjörgæzludeild Landspltalans, af völdum brunasára. Drengurinn hét Magnús Baldvin, sonur hjón- anna Sigriöur Guðmundsdóttur og Helga Guömundssonar. Hann var fæddur 24. október 1973. — segir BSRB KEJ-Reykjavik — A sameigin- legum fundi stjórnar og samninganefndar BSRB 21. þ.m. var samþykkt eftirfarandi ályktun meö 64 samhljóöa at- kvæöum: ,,Sam eiginlegur fundur stjórnar og samninga- nefndar B.S.R.B. telur aö til- laga sáttanefndar sé óviöunandi og hvetur félagsmenn i banda- laginu aö fjölmenna á kjörstaö I allsherjaratkvæöagreiöslunni 2. og 3. október n.k. og fella sátta- tillöguna.” A blaöamannafundi sem boö- að var til I gær af stjórn BSRB, var þessi afstaða skýrö nánar og borin fram mótmæli varö- andi upplýsingar um kostnaöar- auka sem sáttatillögunni muni fylgja fyrir rlkissjóöog gefnar hafa verið af starfsmönnum fjármálaráöuneytis. Sagöi Kristján Thorlacius aö þaö væri vegna tilboðs sáttanefndar væri 7,5milljaröar,í fyrsta lagi vegna þess aö inni I þessa tölu væri reiknaöur kostnaöur vegna samninga sem BSRB gerði viö rlkið á sl. ári, þ.e.a.s. 11% hækkunin og síöan visitala ofan á hana. Þá er hér gert ráö fyrir samsvarandi hækkun hjá BHM sagöi Kristján en fyrir þá erum viö ekki að semja. Þá benti Haraldur Steinþórsson á, aö ef fjölda rikisstarfsmanna væri deilt upp i þessa tölu kæmi svo sannarlega út sæmileg launa- hækkun á ársgrundvelli fyrir rikisstarfsmenn og engin hætta væri á að þeir mundu slá hend- inni á móti henni. Kristján Thorlacius sagðist einnig hafa þaö eftir Höskuldi Jónssyni, formanni samninga- nefndar rikisins, að áætlaður kostnaöarauki fyrir rlkiö af fyrra tilboði þess sem sáttatil- lagan bætir lltið viö, hafi veriö um 2,8 milljarðar og sé þar þó gert ráö fyrir samsvarandi launahækkun hjá BHM. Þá var ennfremur á það bent, aö I öll- um sllkum kostnaöartölum sem rikiö sendir frá sér, sé aldrei gert ráð fyrir aö stóran hluta kauphækkana fær rikiö aftur til baka I gegnum gjaldheimtuna og aðra neyzluskatta. Við erum ekki aö segja aö þaö kosti ekkert fyrir rfkiö aö láta starfsmenn sína hafa sómasam- leg laun, sagði Kristján Thor- lacius. Við viljum aöeins benda á hvillk blekking hér er á ferö- inni og þaö ætti ekki aö eiga sér stað að ríkisvaldið gangi þannig fram fyrir þegna slna meö reginblekkingum. Ef einhverj- um ber að gefa réttar upp- lýsingar þá er þaö ekki sizt rikisstjórnin. Raunhæfar tölur um kostnaðarauka — segir Höskuldur Jónsson KEJ-Reykjavik — Þessi háa kostnaöaraukatala á rætur aö rekja til rikisstarfsmanna I BHM, sem væntanlega fara I fótspor BSRB manna, og auk þess höfum viö lögbundnar greiöslur, sem alveg fylgja kjarasamningum BSRB, og er þar um aö ræöa rikisstarfsmenn á eftirlaunum, sagöi Höskuldur Jónsson ráöuneytisstjóri I fjár- málaráöuneytinu, þegar Timinn bar undir hann mótmæli stjórn- ar BSRB varöandi þessa út- reikninga I gær. Ég trúi þvl ekki, sagöi Höskuldur ennfrem- ur, aö BSRB ætlist til aö viö skiljum eftirlaunamennina eft- ir, og þvi eru þetta raunhæfar tölur um kostnaöarauka rikis- sjóös, veröi sáttatillagan sam- þykkt. Þegar Tfminn spuröi Höskuld um réttmæti þess aö taka ekki tillit til þeirra upphæöa sem ^rynnu strax aftur I rikiskass- ann, svaraöi hann þvi til aö meö slikum rökum ætti þaö lfka aö vera stefna rikisins aö stuöla aö launahækkunum á öllum sviö- um þjóöfélagsins. Slikt væri óraunhæft, sagöi Höskuldur. Þá sagöi hann aö hann geröi ekki ráö fyrir neinum samningaviöræöum á næstunni, a.m.k.ekkiáöur en kosiö veröur um sáttatillöguna. Yröi hún felld af öörum hvorum aöilan- um, sagöi hann, eru allar likur á aö til verkfalls komi, og mun þá máliö allt falla I sama farveg og gengur og gerist um almennar vinnudeilur þegar verkfall er yfirvofandi eöa stendur yfir. Fullyröingum um aö rikis- starfsmenn væru almennt verr launaöir en aörar starfsstéttir sagöi Höskuldur aö svara mætti meö ýmsum hætti. Sumir hópar eru ekki of sælir af launum sin- um, en hann benti jafnframt á aö ekki væru teljandi öröugleik- ar fyrir rlkiö aö fá til sin starfs- fólk, og þó heföi hvergi I þjóö- félaginu oröiö jafn mikil fjölgun starfsmanna og einmitt I opin- berri þjónustu. Ef rikið borgar laun, sem ekki erlifandi af, ættu aðrar starfsgreinar aö veita okkur meiri samkeppni en raun ber vitni, sagöi Höskuldur Jóns- són. Þá sagöi hann, aö vissulega heföi verkfall rikisstarfsmanna mjög vlötæk áhrif I þjóöfélag- inu, en minnti jafnframt á, aö hjá rikinu væru starfandi einir 1700 starfsmenn I BHM, sem ekki mundu leggja niöur vinnu, auk þess sem nauðsynlegri heilsu- og öryggisvörzlu mundi veröa haldiö uppi. Þó, sagöi Höskuldur, munu þeir aöeins aö óverulegu leyti draga úr þunga verkfallsins sem nú gæti hafizt hjá rlkisstarfsmönnum 11. okt. næstkomandi. Björn Arnórsson, hagfræöingur BSRB, aö útlista fyrir blaöamönnum tilboö sáttanefndar. Tfmamynd: Róbert. Kostnaðarauk- inn blekking Geirfinnsmáliö: Hæstiréttur staðfestir úrskurð sakadóms áþ-Reykjavík. Þann sextánda þessa mánaöar barst hæstarétti bréf frá Hilmari Ingimundarsyni hrl., verjanda Tryggva Rúnars Leifssonar, þar sem þess var krafizt aö Gunnlaugur Briem dómsforseti viki úr sæti I Geir- finnsmálinu. Aöur haföi saka- dómur komizt aö þeirri niöur- stööu, aö Gunnlaugi væri setan fyllilega heimil. Og I gær kvaö hæstiréttur upp þann úrskurö, aö Gunnlaugur Briem, skuli ekki víkja. Verjandinn, Hilmar Ingi- mundarson, taldi aö Gunnlaugur gæti ekki talizt hlutlaus, þar sem hann haföi neitað Hilmari um aö ræöa viö Tryggva I marz sl., en þá sat Tryggvi í Siöu'niílafangelsinu Það var mat dómsformanns sakadóms hinn 3. marz, aö full- nægt væri lagaskilyröum sam- kvæmt 86. gr. laga nr. 74/1974 til aö synja mætti verjanda varnar- aöila um aö ræöa viö hann eins- lega aö svo stöddu. 1 dómi hæsta- réttar segir, aö engin frambæri- leg rök séu komin fram fyrir þvl, aö framangreind ákvöröun dóms- formanns eöa aörar aögeröir hans, beri vott um aö Gunnlaugur muni veröa vilhallur. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Magnús Þ. Torfason, Ar- mann Snævarr og Benedikt Sigurjónsson. Gylfi dregur * í hlé JH-Reykjavik. — A sameigin- legum fundi allra stjórnarmanna I Alþýöuflokksfélög unum I Reykjavik, sem haldinn var I gær, lýsti Gylfi Þ. Gislason yfir þvl, aö hann yröi ekki i framboöi I næstu þingkosningum. Gylfi var fyrst kosinn á þing áriö 1946 og hefur átt þar sæti siöan, samtals 31 ár.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.