Tíminn - 23.09.1977, Side 3

Tíminn - 23.09.1977, Side 3
Föstudagur 23. september 1977 3 Sýning í „Höllinni” opnar i dag Vantar enn 20% hækkun — segir hagfræöingur BSRB KEJ-Reykjavik — Akveðið hefur verið að vinnustaður ráði kjör- stað en ekki heimilisfang, og jafn- framt er við það miðað að ekki sé lengra á kjörstað fyrir hvern ein- stakan en 40-50 km, kom fram á fundi stjórnar BSRB með blaða- mönnum i gær. Kosningar um sáttatillöguna fara fram 2. og 3. október nk. Verða kjörstaðir 46 og eru á kjörskrá einir 9000 rikis- starfsmenn og 3000 bæjarstarfs- menn. Lögð verður áherzla á að safna atkvæðum saman sem allra fyrst eftir kosningar til að úrslit kosninganna liggi sem fyrst ljós fyrir. Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB sagði á fundinum i gær um tilboð sáttanefndarinnar, að fimm til sex hundruð manns i fjórum lægstu flokkum BSRB sé slátrað og ekki gert ráð fyrir neinum launahækkunum hjá þeim i sáttatilboðinu. Þetta á sinn þátt i að tillögunni var alfarið hafnað, sagði Björn. Ennfremur minnti hann á, að um miðjan launastigann þurfi til að koma frekari launahækkanir. Sem dæmi nefndi hann að iðnaðar- maður i B9 þarf að hækka frá sáttatillögu um A) 54% til að ná ISALsamningum, B) 27,36% til að ná rfkisverksmiöjunum, C) 22,49% til að ná meðallaunum iðnaðarmanna fyrsta ársfjórðung 1977 að viðbættum 27%, og D) 34,25% til að brúa bilið milli greiðslna rikisins til iðnaðar- manna utan BSRB, að viðbættum 27%. Þá sagði Björn að með slik- um dæmum væru þeir að leggja áherzlu á að það vanti 15-20% lág- mark i aukahækkun. Kás-Reykjavik. í dag byrjar Iðn- kynningin i Laugardalshöll og verður hún opnuð formlega klukkan 15. A myndinni má sjá Eínar Þ. Asgeirsson, arkitekt, I sýningardeild Kassagerðarinnar en þar er þetta kúlu-hús sem byggt er úr pappa. Einnig verða þarna svokallaðar ,,Kassa-kúI- ur”, en þeim er ekki svo auðlýst, betra að skoða þær sjálfur. Timamynd Róbert. „Oss er nauðsyn að iðnvæðast” Forseti tslands, Kristján Eldjárn, opnar Iðnminjasýninguna I Ár- bæ í gær. Tlmamynd Róbert Kristján Eldjárn ræðir viö þá ólaf Sveinsson og Stefán Jónsson, en þeir eru að smlða fjögurra manna far sem er I laginu eins og Sand ferja, en hún er með svokölluðu Najada-lagi. Timamynd Róbert Kás-Reykjavik. t gærdag opn- aði Kristján Eldjárn, forseti, Iðnminjasýningu í Arbæjar- safni, en hún er haldin i tengsl- um við Iðnkynningu I Reykja- vik. Auk Kristjáns fluttu stutt ávörp Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, og Sigurður Kristinsson, forseti Landssam- bands iðnaðarmanna, en Guð- mundur Guðni Guðmundsson stjórnaði athöfninni. I ræðu sinni minntist Kristján Eldjárn á framkvæmdir við iðn- kynningarárið, sem senn fer að ljúka, og sérstaklega það fram- tak sem verið væri að sýna hér i Reykjavik. Sér hefði þótt vel til þess fallið að halda iðnminja- sýningu samhliða þessari iðn- kynningu, þvi hafa bæri hugfast að af fortiðinni byggðist fram- tiðin. Þá ræddi Kristján um Ar- bæjarsafnið og litillega um sögu þess,en þaðer 20 ára um þessar mundir. Að lokum kvaðst hann vona að þeim göfuga tilgangi, sem Iðnkynning i Reykjavik stefndi að, yrði náð. Að setningarathöfninni lok- inni, leiðbeindi Nanna Her- mannsson forstöðumaður safns- ins gestum um sýninguna. Sýn- ingunni er ekki ætlað að sýna þróun islenzks iðnaðar, heldur eru þar kynntar nokkrar iðn- greinar sem sumar hafa verið stundaðar hér frá öndverðu. A Iðnminjasýningunni i Arbæ má m.a. sjá skósmfði, vefnaö, húsgagnasmiði, bátasmiði og úrsmiði. Sýningin verður opin sem hér segir: A virkum dögum frá klukkan 16 til 22, en um helgar frá klukkan 14 til 22. Islenzka merkimiða á innflutt matvæli áþ-ReykjavIk. Fyrir sjö mánuð- um tók gildi reglugerð um tilbún- ing og dreifingu matvæla. Með þeirri reglugerð fylgdi listi yfir þau aukaefni, sem nota má I mat- vælaiönaðinum. Framleiðendur fengu niu mánaða aölögunar- tima, en þegar reglugerðin tók gildi, var enginn tilbúinn meö fullkomnar merkingar. Þvi varð heilbrigðiseftirlit rlkisins að gefa undanþágur I samræmi við reglu- gerðina, en gert er ráð fyrir, að allir verði tilbúnir með merking- ar um næstu áramót, þvi ekki er ætlunin að endurnýja undan- þágurnar. Ekki er hægt að skilja reglugerðina öðruvisi en svo, aö hún nái einnig til innfluttra mat- væla, en m.a. vegna fjárskorts og vöntunar á mannafla hefur heil- brigðiseftirlitið ekki séð sér fært að rannsaka þau ennþá. — Við höfum gert þvi skóna, að allir framleiðendur geti fram- fylgt reglugerðinni um næstu ára- mót, þvi ekki er hugmyndin að gefa meiri frest, sagði Hrafn Friðriksson, yfirlæknir og for- Framhald á bls. 20 Hjalteyri: Nokkur tími mun líða áður en niðurstaða fæst áþ. Reykjavik — Landsbankinn hefur enn til athugunar tilboð þau sem bárust I Hjaiteyrareignirnar. Það er ekki aðeins að bankastjórn Landsbankans þurfi að fjalla um tiboðin, heldur þarf einnig að ræða þau i bankaráði. I gær, er blaðið hafði samband við Helga Bergs bankastjóra kom i ijós að bankaráðið hafði ekki haldið fund i september og ekki var vitað hvenær næsti fundur yrði.Helgi sagði að tilboöin yrðu eflaust rædd á þeim fundi, en ekki væri óliklegt að þyrfti að taka málið upp á öðrum fundi. Þvi þurfa Hjalteyringar að biða enn um sinn, þar til ljóst veröur hver hreppir eignirnar. Gengið nærri kaupgetu fólks segir miðstjórn A.S.I. Miðstjórn Alþýðusam- bands Islands gerði í gær samþykkt, þar sem varað var „mjög alvarlega við þeirri þróun, sem nú er að markast í verðlagsmál- um landbúnaðarins." Er síðan skírskotað til þess, að verð á kjöti haf i nú ný- lega verið hækkað um yf- ir 30%, en mjókurverð skömmu áður um 20%. Valdi þetta 3,7% hækkun á framfærslukostnaði. „Miðstjórnin álítur, að með slíkri verðlagsþróun sé svo nærri gengið kaup- getu alls almennings, að ekki verði við unað, og að jafnframtséu hagsmunir þorra bændastéttarinnar lagðir í stórfellda hættu. Hinar óhæfilegu og snöggu verðhækkanir hljóta þegar í stað að leiða til minnkandi sölu landbúnaðaraf urða og þá sérstaklega á kjöti oq smjöri."

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.