Tíminn - 23.09.1977, Qupperneq 9

Tíminn - 23.09.1977, Qupperneq 9
Föstudagur 23. september 1977 IL!!i.l-!lli-!lt: 9 Háðstefna um sveitar s tj órn- ir og iðnþróun i tengslum viö iönkynningu i Reykjavik efnir Samband is- ienzkra sveitarfélaga til ráðstefnu um sveitarstjórnir og iðnþróun. Ráöstefnan veröur haldin á Hótel Sögu og stendur I tvo daga, næstkomandi mánudag og þriöjudag 26. og 27. september. Á mánudegi munu þátttakendur heimsækja iðnsýninguna I Laugardalshöll og ræöa viö sýn- endur og á miövikudaginn 28. september gefst þeim kostur á aö skoöa iðnfyrirtæki á höfuöborgar- svæöinu. Ráðstefnan er haldin i lok iön- kynningarársins og i samstarfi viö Islenzka iðnkynningu. Dregn- ar veröa saman niöurstööur um- ræöufunda á Degi iönaðarins, sem haldinn hefur verið á átta stöðum og rætt um hlutverk sveitarstjórna i iðnþróun. Gerö verður grein fyrir þeirri aðstööu sem sveitarfélög láta iðnaöi i té og reynt að marka heppilega stefnu sveitarstjórna i þeim málaflokkum, sem varða sam- skipti sveitarstjórna og iðnaðar. Má þar nefna lóðaframboð: að- stöðu iðnfyrirtækja t.d. á sviði skipasmiða við hafnir, álagningu gatnagerðargjalds og aðstöðu- gjalds á iðnfyrirtæki, frumkvæði sveitarstjórna að stofnun nýrra iðnfyrirtækja, ábyrgðir á lánum og aðra fjárhagslega fyrir- greiðslu, byggingu iðngarða og fleira. 1 umræöuhópum verður m.a. fjallað um staðarval iðn- fyrirtækja og byggðaþróun og iðnþróun i strjálbýli. Framsögumenn um þessi um- ræðuefni verða jöfnum höndum úr röðum sveitarstjórnarmanna og talsmanna iðnaðarins auk full- trúa stofnana sem fara með mál- efni iðnaðar. Auk sveitarstjórnarmanna munu fulltrúar flestra iðngreina sitja ráðstefnuna svo og forustu- menn Félags islenzkra iðnrek- enda og Landssambands iðnaðar- manna. A annað hundrað manns hafa tilkynnt þátttöku i ráðstefnunni. Ný bók frá Iðunni: Maðurinn sem félagsvera „Maðurinn sem félagsvera” nefnist ný bók, sem Iðunn hefur sent á markað. 1 bók þessari skýra fimm kunn- ir norskir mannfræðingar frá rannsóknum sinum á jafnmörg- um menningarsamfélögum sem eru harla ólik þvi, sem Vestur- landabúar þekkja. Þeir lýsa rannsóknaraðferðum sinum og sjónarhóligreinarsinnará einkar aðgengilegan hátt. — 1 bókar- auka sem nefnist „Mannfræðin og boðskapur hennar”, skilgreinir Gisli Pálsson menntaskólakenn- ari mannfélagsfræðina nánar, auk þess sem þar er fjallað um ýmsar spurningar um stöðu og hlutverk mannfræöinnar, sem gera má ráð fyrir að vakni hjá mörgum lesendum. Bók þessi hentar vel sem kennsluefni i mannfélagsfræði i framhaldsskolum landsins, en á jafnframt ótvirætt erindi til al- mennra lesenda, ekki sizt vegna þess, að höfundarnir sneiða hjá óþörfum fræðilegum málaleuging um og gera sér far um að komast i kallfæri við aðra en sjálfa sig. Bókin er i kiljuformi 125 bls. aö stærð. Þýðandi er Jakob S. Jóns- son. BókinersettiTölvusetningu, prentuð i Offsettækni og heft i Amarfelli. Heimir Þorleifsson Ný sagn- fræðibók: Frá einveldi til lýðveldis Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar hefur nýlega gefið út sagnfræðibók Heimis Þorleifs- sonar, Frá einveldi til lýðveldis.I þriðju útgáfu. Þessibók er eins og kunnugt er, Islandssaga frá 1830 oger isennætlað sem kennslubók I menntaskólum, til almenns lestrar og sem uppflettirit. Þessi nýj a útgáfa er m jög aukin frá fyrri útgáfum. Hefur sfðasti kaflinn, sem nefnist Arin eftir strið, tekið miklum stakkaskipt- um og lengzt a.m.k. fimm sinn- um. Þessi kafli rekur sögu eftir- striösáranna allt til þessa dags, lýsir stjórnmálaflokkum og rikis- stjórnum og þvi sem þær hafa lát- ið af sérleiða.Gerð er grein fyrir fjár- og atvinnumálum, varnar- málum og deilum um þau, þorskastríðum o.s.frv. Alls eru i bókinni 245 myndir og af þeim eru 78 myndir i siðasta kaflanum einum, sem er rúmar 80 bls. að stærð. Vekur athygli, að hér er ekki einungis um sögulegar ljósmyndir af mönnum, mann- virkjum og atburðum að ræða, heldur einnig skopmyndir úr Speglinum og dagblöðunum. Bókinni fylgja nákvæmar nafna- og atriðisorðaskrár, sem gera hana auðvelt uppflettirit, svo og skrá yfir sagnfræðirit, sem snerta þetta timabil. Frá einveldi til lýðveldis er 332 bls. að stærð unnin i prentsmiðj- unni Odda. Bókin er pappirskilja. NÝ ÞJÓÐ- FÉLAGSFHÆÐI Komin er út hjá Almenna bóka- félaginu bókin íslenzka rlkiðeftir Hjálmar W. Hannesson fyrrum menntaskólkennara. Bókin er ætluð sem kennslubók fyrir fram- haldsskóla og er lýst þannig aftan á kápu: „íslenzka 'ikið eftirHjálmar W. Hannesson er stuttorö lýsing á is- lenzkri stjórnskipan eins og hún nú er. Bókin er samin sem kennslubók i þjóðfélagsfræðum fyrir menntaskóla, fjölbrauta- skóla og eöa framhaldsskóla en getur einnig komiö að fullum not- um hverjum þeim, sem fræðast vill á eigin spýtur og kennara- laust um islenzka rikiskerfið. 1 bókinni er fjöldi uppdrátta og ljósmynda til skýringar á efn- inu.” lslenzk rikið er 102 bls að stærð, pappirskilja. Hún er unnin i Prentspiðju Arna Valdimars- sonar og Bókbandsstofunni örk- inni. — Veit íslenzk réttarvernd hvað hún er að segja? Ég sé i Timanum i dag að vitnað er i ritið: Islenzk réttar- vernd. Þar segir m.a.: „Það er úr þessari gróðrar- stiu nútlmafátæktar sem flest alvarlegustu vandamálin spretta i samskiptum manna á milli. Þaöan koma taugasjúkl- ingarnir, kverúlantarnir, alkó- hólistarnir, rónarnir og allir hinir, sem daglega þjást af hatri til alls og allra. Vera má að þetta megi að ein- hverju leyti til sanns vegar færa. Þó vil ég spyrja þá sem standa að „Islenskri réttar- vernd”: Hafa þeir einhverjar tölur um það úr hvaða stéttum Islenzkir alkóhólistar eru komnir? Hve mikill hluti þeirra hefur háskólapróf? Hve mikill hluti þeirra átti feður sem höfðu tekjur yfir meðallagi? Hversu margir þeirra voru komnir i virðuleg og vel launuð trúnaðarstörf? Ég held nefnilega að það séu miklu meiri brögð að þvi á ís- landi nú að drykkjuskapur sé orsök fátæktar en afleiöing. Þaö er svo algengt að sá sem er aö drekka sig frá efnum og at- vinnu, áliti og virðingu, „sér ekkert nema svartnætti og von- laysi” og þjáist af „lifsleiða og hatri til alls og allra”. Það gæti margur borgar simareikninginn sinn á réttum tima ef hann mæti það meira en að stunda barina. 17. sept. 1977 H.Kr. _______________________________/ Kynning iðngreina í Iðnskólanum m Fulltrúar iðngreinanna, og kennarar ásamt nemend- um Iðnskólans verða reiðubúnir að veita upplýsingar fyrir gesti kynningarinnar. Verkstæði skólans verða opin: Föstudaginn 23/9 kl. 13:00 — 18:00 Laugardaginn 24/9 kl. 13:00 — 18:00 Á mánudag og þriðjudag verða skipulagðar heim- sóknir grunnskólanemenda 9. bekkjar á iðnnáms- kynninguna. IÐNKYNNING í REYKJAVÍK Kynning iðngreina í Iðnskólanum I dag og á morgun verður sérstök iðnnámskynning í Iðnskólanum. Kynntar verða flestar löggiltar iðn- greinar, bæði með myn'dum og vinnudæmum á verk- stæðum skólans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.