Tíminn - 23.09.1977, Qupperneq 13
Föstudagur 23. september 1977
13
KRAKKAR
Hjálpið okkur að velja nöfn á mjaltakonuna og kúna,
sem sjást hér að ofan.
Þcer eru tákn mjólkur og mjólkurafurða, sem hafa verið
orkulind okkar og heilsugjafi um aldir.
Verólaim
Arsnyt úr fyrsta kálfs kvígu á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi,
Amessýslu. Sigurvegara gcetu þannig áskotnast
200 - 300 þúsund krónur.
Sendíð tillögur
til Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins, Bcendahöllinni,
pósthólf 7040\ Reykjavík fyrir 31. október n.k.
mjólk og nijólkurafunðir
orkulind okkar
og heilsugjafi
Ég legg til að kýrin heiti:
og mjaltakomn:
Nafn sendanda:
Heimili:
Sími:
Kanpstaður/Sýsla:
Fagur er
himinn blár
Laugardag 24. og sunnudag 25.
september nk. kl. 16.00 verður á-
deilukvikmyndin „Dejlig er den
himmel blS” sýnd i Norræna hús-
inu.
Veturinn 1974 setti danski leik-
hópurinn „Solvognen” á svið upp-
ákomu, þar sem leikararnir fóru i
jóalsveinagervi inn i stórverzlun-
ina Magasin i Kaupmannahöfn og
tóku að deila þar út gjöfum af
mikilli rausn. Siðar gerði hópur-
inn i „þykjustunni” árás á
byggingu atvinnudómstólsins i
Kaupmannahöfn. t kvikmynd-
inni, sem John Bang Carlsen
stýrir, er ennfremur fylgzt með
leikhópnum, sem fer á rúllu-
skautum eftir „Strikinu” og hvet-
ur bankastarfsmenn til að láta
gott af sér leiða fyrir jólin með
þvi að deila úr sneisafullum fjár-
hirzlum meðal fólksins.
öll þessi mjög svo umtalaða
uppákoma, sem lauk með mála-
ferlum, var kvikmynduð, og út-
koman varð skemmtileg en jafn-
framt alvarleg frásögn um trúar-
hátiðina, sem ár hvert er gerð að
verzlunarhátfð.
Tveggja mánaða
orlofsferðin:
Ekki eins
heitt á
þessum
árstíma
og af er
látið
Kás-Reykjavfk. Vegna fréttar
sem birtist hér í blaðinu nýlega
urn {veggja mánaða orlofsferð
fyrir eftirlaunafólk til Spánar á
vegum ferðaskrifstofunnar
Sunnu, vill Adda Bára Sigfúsdótt-
ir veðurfræðingur koma eftirfar-
andiá framfæri, þar sem töluvert
hefur verið hringt á Veðurstofuna
út af umræddri grein.
Veðurfar f Palma á Mallorca:
Meðalhiti f nóvember er 14,3 stig,
og 8 stiga munur er milli dags og
nætur. Meðalúrkoma í nóvember
i Palma er 56 mm. Til saman-
burðar er meðalúrkoma í
Reykjavik I ágústmánuði 66 mm,
en var t.d. i ágúst i ár 57 mm, eöa
1 mm meiri en í nóvember i
Palma. Hins vegar er rétt að
koma fram, að meðaltals úrkoma
á dag I nóvember i Palma er ekki
nema 8 mm. Meðalfjöldi sólskins-
stunda er 5,5 á dag.
Leiðrétting
I sunnudagsblaði i viðtali við
Steinbjörn iónsson söölasmið I
Hverageröi hafa skolazt til nokk-
ur orö I visu sem höfð var eftir
honum. Rétt er hún á þessa leið:
Góðum málum lagði lið,
lengi verka hraður.
Hofteig kenndur var hann við,
virtur fræðimaður.
Steinbjörn er beðin velvirð-
ingar á þessum leiðu mistökum.
Blóma-
markaður
Ýrar
ÝR, félag aöstandenda land-
helgisgæzlumanna, heldur ný-
stárlegan blómamarkað að Hall-
veigarstöðum, laugardaginn 24.
september frá kl. 2 e.h.
bar verða til sölu pottaplöntur i
úrvali, sem félagar og velunnarar
hafa komið upp og gefa á- mark-
aöinn. Sömuleiöis verða til sölu
ýmsar blómaskreytingar, hnýt-
ingar, kerti og fleira mætti telja.
Félagið Ýr hefur nú starfað á
annað ár og staðið fyrir ýmsum
fjáröflunarleiðum, svo og haldið
fundi og skemmtanir fyrir félaga
sina.
Formaður Ýrar er Elin
Skeggjadóttir.