Tíminn - 14.10.1977, Qupperneq 13

Tíminn - 14.10.1977, Qupperneq 13
Föstudagur 14. oktöber 1977 13 Fram haldsstofn fundur sAA Á framhaldsstofnfundi Sam- taka áhugafólks um áfengis- vandamáliö SAA, sem haldinn var aö Hótel Sögu sunnudaginn 9. október, var Hilmar Helgason verslunarmaöur kosinn formaöur samtakanna. Á fundinum var kosin 36 manna aöalstjórn, sem siöan kaus fimm manna fram- kvæmdastjórn. A fundinum voru lög samtakanna samþykkt og ákveöið var aö halda áfram söfn- unfélaga og þeir sem gerast meb- limirfyrir 1. nóvember skulu telj- ast stofnfélagar. Félagsgjald var ákveðið eitt þúsund krónur lág- mark á fyrsta starfsári. Sem fyrr segir var Hilmar Helgason kjörinn formaöur og meö honum eiga sæti i fram- kvæmdastjórn þeir Hendrik Berndsen, verslunarmaöur, Ein- ar Sverrisson, verslunarmaöur, John Aikman, sölumaöur og Björgölfur Guðmundsson, for- stjóri. Til vara Ingibjörg Björns- dóttir, félagsfræöingur, Eyjólfur Jónsson, skrifstofust jóri og Sveinsina Tryggvadóttir, hús- móðir. Endurskoöendur voru kosnir þeir Þorsteinn Guölaugs- son, endurskoðandi og Gunnar Jónsson, framkvæmdastjóri. Til vara Emil Agústsson borgardöm- ari og Ogmundur Haukur Guö- mundsson skrifstofumaöur. 136 manna aöalstjórn SAA voru kosnir eftirtaldir: Hilmar Helgason verslunarm., Haraldur Sigmundsson, bókari, SigurðurÞ.Guðmundsson læknir, Hendrik Berndsen, verslunar- maöur, Ingibjörg Björnsdóttir, félagsfr., Einar Sverrisson, verslunarm., Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri, Ewald Berndsen, forstööum., Sveinsina Tryggvadóttir, hús- móðir, John Aikman, sölum., Björgólfur Guömundsson, for- stjóri, Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaöur, Martin Petersen, framkvæmdastj., Pétur Sigurös- son, alþingism., sr. Halldór Grön- dal, Gunnlaugur Ragnarsson, framreiöslum., Stefán Hilmars- son, bankastjóri, Valur JUliusson, læknir, Albert Guðmunds- son, borgarfulltrúi, Eyjólfur Jónsson, skrifstofustj., Pjetur Maack, forstöðum., Höröur Viktorsson, verkam., Bjarni Pálsson, skólastj. Núpi, Baldur Guölaugsson, framvkæmdastj., Bjarki Eliasson yfirlögregluþj., Þórhallur Einarsson, bilasali Akureyri, Guðmundur J. Guð- mundsson, form. Verkamanna- samb., Árni Isleifsson, tónlistar- kennari Egilsstööum, Kristján Benediktsson, borgarf ulltrui, Sverrir Garöarsson, form. FIH, Aöalheiöur Bjarnfreðsdóttir, form. Sóknar, Páll Stefánsson, auglýsingastj., Jón Pétursson, lögregluvarðstj., Jón Kjartans- son, form. verklýösfél. Vest- mannaeyjum, Vilhjálmur Páls- son, verslumarmaöur og Ingi- björg Þorsteinsdóttir skrifstofu- stúlka. Varamenn: Birgir Indriöason, verkam., sr. Siguröur Haukur Guðjónsson, Þórunn Felixdóttir, kennari, Sævar Proppé, fram- leiðslum. og Þórir Danielsson, framkvæmdastjóri. David Graham Phillips: SUSANNA LENOX laufið og mynduðu geislakögur um laufbeðjurnar frá fyrra ári. Fuglarnir kvökuðu og sungu, lækurinn niðaði þýtt og svæfandi. Hún var hræðilega þreytt og nagandi svöng. Spölkorn neðar lokuðu tvö stærðarbjörg* sem hrunið höfðu úr brekkukambinum, farvegi læksins, svo að myndaðist lítið lón, sem mjög lítið bar á. Henni datt strax í hug, hve hressandi það myndi vera að baða sig i köldu vatninu. Hún litaðist um og læddist niður á milli steinanna. Hún gægðist niður í hylinn, hún hlustaði. Hún var örugg hér. Það var lítil, þurr grastó við annað bjargið, þar afklæddi húnsig í skyndi. Hún stóð ofurlitla sund í unaðslegri sólarhlýjunni og óð svo út í pollinn. Hana hefði langað til þess að busla þar og özla, en hún var smeyk við að gera mikinn hávaða. Sem betur fór beljaði lækurinn fram með þungum niði, er hann slapp úr kreppunni, sem björgin settu hann í. Hér sást ekki heldur eitt einasta spor, ekkert, sem minnt gæti á mennina, sem höfðu rekið hana á dyr, lagt hana í einelti og kvalið hana á líkama og sál. Hér í auðninni óx henni kjarkur, og hún gat aftur litið ungum vonaraugum til framtíðarinnar. Henni fundust ógnir tveggja siðustu daga og hinar hræðilegu lyktir þeirra eins og vondur draumur, sem sólin hefði hrakið á brott. En eitt egg var aðeins til þess að æra upp í henni sult. Hún teygði höndina aftur inn í hreiðrið. Hún vildi ekki ganga nærri rétti þessarar góðu hænu, sem þarna átti sér bú, svo að hún brá egginu upp í loftið milli fingra sinna og skyggndi það, eins og hún hafði svo oft séð eldhús- stúlkuna heima gera. Henni virtist þetta egg grunsam- legt, en var þó ekki viss i sinni sök. Hún lagði það samt til hliðar og tók annað. Það var heiðara, og hún gerði sér gott af því á sama hátt og hinu fyrra. Hið þriðja, f jórða og fimmta lagði húntil hliðar. Þaðsjötta virtistgott — en var það ekki. Sem betur fór hafði hún ekki stungið því upp í sig í heilu lagi, áður en hún bragðaði það. Keimur- inn, sem var af þessu eggi, vakti hjá henni þá hugsun, að tvöegg myndu kannski nægjanlegur morgunmatur, sér- staklega þgar þess var gætt, að hér varð hún líka að minnsta kosti að borða hádegisverð og kvöldverð. Til þess að komast hjá þvi að klifra aftur niður í tóna, þar sem eggin voru, tók hún til að aðgreina þau. Hún fann f jögur, sem voru eða virtust vera góð. Þau þrettán, sem eitthvað voru grunsamleg eða sýnilega skemmd, lét hún aftur í hreiðrið og reyndi að ganga eins f rá öllu og það hafði verið. Þessi f jögur egg lét hún undir blússuna sína og klif raði siðan aftur upp. Skyndilega færðist á hana þetta dásam- lega magnleysi, sem er viðvörun náttúrunnar um það, að nú sé svefninn á næsta leiti, hvort sem hann nú kemur boðinn eða óboðinn. Hún var ekki lengur neitt smeyk og svipaðist um eftir góðu fylgsni. Hún f ann brátt hentugan stað, þar sem grasið var óvenjujiátt og runnarnir þéttir. Hún tók eggin undan biússu sinni og stakk þeim undir gamla rótarhnyðju og breiddi yfir þau stór laufblöð, svo að þau hitnuðu síður. Síðan reytti hún gras og lét undir höfuðið á sér, tók af sér flibbann og lagðist til svefns. Sólin sá víst ekki fegurri sjón þennan dag en þessa sof- andi stúlku. Þegar hún vaknaði, hress og endurnærð, var sólin tek- in að hníga til vesturs. Hún settist upp og brosti. Það var svo unaðslegt að vera frjáls. Andstreymið hafði ekki dregið neitt úr bjartsýni hennar — dýrlegustu og jafn- framt hættulegustu eigind æskunnar. Hún skreið gegn- um biómstóðið fram á brúnina og gægðist út á milli þéttra runnanna. Nú liðaðist ekki neinn reykur upp úr strompi hússins. Konan sat á dyraþrepinu með prjóna sina. Hún var í bláum léreftskjól. Úti á ekrunum sá hún einnig fáeina menn við vinnu — þó ekki f leiri en svo sem tíu. Frá hlöðu, sem hún sá langt vestur f rá, bárust dauf ir skellir gufu-þreskivélar, og henni virtist hún eygja tólk við vinnu í grennd við þessa byggingu. En þó gat það ver- ið ímyndun. Þetta var sviphýrt og sumarfagurt land, sem við henni blasti. Og loks varð henni litið til f Ijótsins, sem glampaði á i fjarska. Hún skoðaði allan stapann, en það tók ekki nema orðin skráþurr, og greiddi sér rækilega. Svo fór hún að hugsa um, hvernig hún ætti að eyða tímanum. Húnskoðaði allan stapann, en það tók ekki nema stundarf jórðung, því að gnípan var lítil um sig. Samt fann hún þarna mikið af villiblómum og tíndi sér stóran vönd. Þessu næst varði hún góðri stund til þess að skoða grösin, sem uxu á milli runnanna — í stuttu máli sagt: hún reyndi að binda hugann við það, sem fyrir augun bar, til þess að halda hinum Ijóta draumi frá sér. En brátt þraut sérhvert rannsóknarefni, sem gnípan hafði að bjóða. Henni varð litið norður yfir lægðina, sem hún hafði komið eftir. Hún gat auðvitað farið þangað og rölt þar um sér til afþreyingar. Hún var svo ung og óþolin- móð, að henni fannst hún varla geta eirt lengur þarna uppi í þessari sjálfheldu. Hún var að því komin að borða síðustu eggin tvö og yfirgefa bólstaðinn, er henni datt í hug, að vissara væri kannski að svipast um einu sinni enn. Hún fór aftur f ram á brúnina fyrir ofan bæinn. Konan var hætt að prjóna og starði vestur í dalverpið, þar sem vegurinn norðan að lá inn gegnum byggðina. Sú- sönnu varð litið í sömu átt. Þar voru tveir riðandi menn á ferð, stef ndu suður eftir og fóru geyst. Hún var í tryggu f ylgsni, en samt sem áður færði hún sig ósjálf rátt lengra inn á milli runnanna — þó ekki svo langt, að hún missti sjónar á þessum tveim reiðgörpum, sem höfðu svo hrað- an á. Vegurinn lá niður i laut, og mennirnir hurfu um stund. Súsanna hvessti augun á brekkubrúnina, þar sem vegurinn kom aftur í augsýn. Hver taug líkamans skalf. Þegar þeir kæmu aftur í Ijós, myndi hún komast að raun um hið sanna. Allt í einu komu þeir í augsýn á brekkubrúninni, og enn riðu þeir harðastökk. Þetta voru Jeppi og Zeke. Snöggvast hafði allt runnið í móðu fyrir augum hennar, en nú skýrðist það aftur. Þeir linntu ekki á sprettinum f yrr en þeir voru komnir heim að hliðinu. Konan stóð upp, lagði frá sér prjónana og gekk út að girðingunni. Það var logn, en samt gat Sú- sanna ekki greint, hvað sagt var, enda þótt hún legði við hlustirnar. Hún hrökk saman, er þeim varð öllum þrem- ur litið upptil gnípunnar. Var fylgsni hennar jafn öruggt og hún hafði haldið? Höfðu þau kannski séð henni bregða fyrir — kannski séð i kjólinn hennar? Hún fékk ofsalegan hjartslátt, er Jeppi snaraðist af baki — og gaf sig á tal við konuna, sískimandi upp að klettinum. Zeke Warham sneri hesti sínum við og reið hægt af stað. Hann var kominn út á brekkubrúnina, er Jeppi, sem enn stóð við hliðið, kallaði til hans: „ Bíddu, Warham. Þetta er sjálf sagt rétt, sem þú sagð- ir". Warham stöðvaði hest sinn, og Jeppi snaraðist á bak og reið á eftir honum. Konan settist aftur á dyraþrepið, en mennirnir riðu samsiða niður í lægðina. Þegar þeir komu aftur í augsýn, héldu þeir sömu leið og þeir höfðu komið. Og nú vissi Súsanna, að eftirleit í þessa átt — réttu áttina — myndi lokið. Henni var áþekkt innan brjósts og f ugli, sem sleppt er úr búri. Hún nötraði öll f rá hvirf li til ilja og hneig niður. Svo brutust tárin fram. Án þess að vita, hvers vegna hún gerði það, reif hún af sér „Ég ætla að fá mér brauð með sultu. Kalliði á mig þegar þau eru búin að jafna sig”. DENNI ■ rDÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.