Tíminn - 14.10.1977, Page 17

Tíminn - 14.10.1977, Page 17
Föstudagur 14. október 1977 17 íþróttir Verkfallsnefnd BSRB hefur slegið Valsmenn og FH-inga út úr Evrópukeppninni í handknattleik: Beiðni Vals og FH um undan- þágu til að komast til Fær- eyja og Finnlands var hafnað Valur átti að leika í Færeyjum í gærkvöldi SOS-Re/kjavík — Verk- fallsnefnd BSRB hefur ó- beint slegiö Islandsmeist- ara Vals og bikarmeistara FH í handknattleik út úr Evrópukeppninni í hand- knattleik/ þar sem þeir hafa synjað beiðni félag- anna um undanþágu, til að komast til Færeyja og Finnlands. Verkfalls- nefndin neitaði Valsmönn- um fjórum sinnum um undanþágu. Þessi stífni verkfallsnefndar BSRB veröur dýrkeypt fyrir is- lenzkan handknattleik, þvi aö Valur og FH veröa aö öllum llk- indum dæmd úr keppninni, fyrir aö mæta ekki til leiks — Vals- Framhald á bls. 16 Telex- sambandið rofnaði... þegar framkvæmdastjóri HSÍ var að ræða við forystumenn Alþjóða handknattleikssambandsins SOS-Reykjavik. — Ég náöi aö hafa samband viö Alþjóöa- handknattleikssambandiö, áöur en talsambandinu viö út- lönd var lokaö, og skýröi frá þvlaö verkfall væriaö skella á hér á tslandi, þannig aö óvist væri hvort Valur og FH kæm- ust til Færeyja og Finnlands I tæka tiö, sagöi Kjartan Stein- bach, framkvæmdastjóri H.S.Í., þegar Timinn haföi samband viö hann I gær. Kjartan sagöi aö Alþj’óöa- handknattleikssambandið heföi beöiö um, aö Færeying- ar og Finnar yröu látnir vita strax um aöstæöur hér, upp á frestun á leikdögum. — Viö gátum þvi miöur ekki haft samband viö Finnana, þar sem slmasambandslaust var viö útlönd. — Við höföum þvl samband viö Alþjóðahandknattleiks- sambandið I gegnum telex, en telex-sambandiö rofnaöi, áöur en viö vorum búnir að ræöa viö forystumenn sambands- ins, sagði Kjartan. Kjartan sagöi, aö þegar hann haföi talaö viö forystu- menn sambandsins i sima þá hefur þeir gefiö Islenzku liö- unum 8 daga frest, til aö koma leikjum þeirra á hreint f Fær- eyjum ogFinnlandi. — Við vit- um þvi miður ekki, hvenær sá frestur átti aö hefjast og þvl ekki heldur hvenær honum lik- ur, sagöi Kjartan. Kjartan sagöi aö lokum, aö hann hefðiekki trú á, aö Vals- menn og FH-ingar kæmust til Finnlands og Færeyjar I tæka tiö — þvi miöur. SSSifc FLUGVÉL... frá Flugfélagi islands stóö tilbúin I gær á Reykjavlkurflugvelli, til aö flytja leikmenn Vals til Færeyja, en sú ferö var aldrei farin — og veröur eflaust aldrei farin. (Timamynd Gunnar) Flugvél frá F.í. var tilbúin til að fara með Valsmenn —- og þá buðust Færeyingar að senda tvær 8-manna flugvélar eftir þeim. En verkfallsnefnd BSRB sagði NEI! — Þetta er mikið áfall fyrir okkur — beiðnir okkar um undanþágu til að komast til Færeyja, var hafnað, sagði Gunn- steinn Skúlason, þjálfari íslandsmeistara Vals i handknattleik, sem komust ekki til Færeyj- a i gær, en þeir áttu að leika fyrri leik sinn gegn Kyndli i Evrópukeppni meistaraliða i hand- knattleik, en siðari leik- ur liðanna átti að fara fram á morgun. — Ég sé ekki, hvaö þaö hafi komiö verkfallinu viö, þtítt aö viö heföum fengið aö fara til Fær- eyjar — þaö er óskiljanlegt, aö beiöni okkar um undanþágu skuli hafa verið hafnaö, sagöi Gunn- steinn. Gunnsteinn sagöi, aö Flugfélag tslands heföi veriö tilbúiö f gær, til aö senda flugvél meö Valsliöiö til Færeyja — f lugvél frá F.t. beiö klár, þegar viö fengum nei frá B.S.R.B. Þá buðust Færeyingar aö senda tvær 8-manna flugvélar eftir okkur, en þaö fékkst ekki leyfi fyrir þvi. — Viö höfum reynt allar leiöir, til aö komast til Færeyja, án ár- Framhald á bls. 16 „K.omum að lokuðum dyrum — sagði Sigurðnr Jónsson, formaður HSÍ, en stjórn HSÍ reyndi að veita Valsmönnum aðstoð í baráttu þeirra gegn verkfallsnefnd BSRB SOS-Reykjavík — Við höfum orðið fyr- ir afskaplega mikl- um vonbrigðum með verkfallsnefnd BSRB. fyrir að hún skyldi ekki veita undanþágu, til að Valurog FH kæmust til Færeyja og Finn- lands, til að leika Evrópuleiki sína. Ég sé ekki, að undan- þágan hafi haft nein áhrif, sagði Sigurð- ur Jónsson, formað- ur H.S.I., þegar Tíminn hafði sam- band við hann. — Valsmenn hafa reynt mikiö að fá undanþágu til aö komast til Færeyja, og viö höfum reynt að veita þeim aðstoö. Viö höfum komiö algjörlega aö lokuöum dyrum — þaö er vonlaust að tala við þessa menn, þeir verða aö reyna aö sýna vald sitt, þessir aumingja menn. — Þaö var auösótt fyrir okkur aö fá undanþágu hjá verkalýösfélögunum, i þau tvö skipti, sem viö höfum leitaö til þeirra, þegar þau voru i verkföll- um. Þá hafa þau sagt, elskurnar minar, viö er- um ekki i verkfalli viö ykkur og þaö er sjálfsagt aö veita ykkur undan- þágu, ef hægt er aö koma þvi viö. En hjá BSRB var undanþágu okkar algjör- lega hafnaö. — Hvað bar nefndin fyrir sig I sambandi viö að hafa hafnað Vals- mönnum um undan- þágu? — Þetta eru ekki menn, sém þurfa að bera neitt fyrir sig. Þetta eru mennirnir, sem ráöa landinu i dag. Þetta er nú ekkert smáræöi, ef þú kæmir þarna og horfðir á þessa nefnd — u.þ.b. 25 manns, sem situr þarna og dæmir. Það var svo mikill alvörusvipur á blessuðum mönnunum, aö maöur fylltist ábyrgö- artilfinningu, þegar við komum þarna i salinn, sem þeir hafa lagt undir sig. — Það stefnir allt I þá átt að bæði Valur og FH- verði dæmd úr Evrópu- keppninni? — Við eigum alveg eins von á þvi, og ekki nóg með þaö, spurningin er, hvort islenzk liö eru ekki einnig úr leik á næsta ári. Þá munu félögin þurfa aö borga háar sektir, fyrir aö mæta ekki til leiks. — Viö skýröum þetta fyrir verkfallsnefnd BSRB, en þaö var ekki tekiö til greina.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.