Tíminn - 16.12.1977, Page 21
Föstudagurinn 16. desember 1977
21
Skíðafa tnaður
Póstsendum samdægurs
SPORTVAL Hlemmtorgi
Simar (91) 1-43-90 & 2-66-90
A börn og ungtinga:
SKÍÐAGALLAR Settið frá kr. 7.610 -
Stærðir frá 116-176
SKÍÐAJAKKAR
frá kr. 3.940 - Stærðir 116-176
á fuiiorðna:
SKÍÐAGALLAR Settið frá kr. 14.900
STAKIR JAKKAR frá kr. 5.705
DÚN-SKÍÐAJAKKAR
Síðir kr. 23.750 - Mittis kr. 18.950
SKÍÐAHANSKAR frá kr. 2.385
íþróttir
ÁSGEIR SIGURVINSSON....metinn á yfir 150 milljónir. Hann er kominn i hóp dýrustu knatt-
spyrnumanna heims.
geir í hópi dýr-
ustu knattspyrnu-
manna heims....
Ajax frá Hollandi vill greiða Standard
Liege allt að 150 millj. isl. kr. fyrir
Ásgeir Sigurvinsson
— </Ég hefði gjarnan viljað
fara til Ajax — reyna eitt-
hvað nýtt og vikka sjón-
deildarhringinn< en
Standard Liege vildi ekki
láta mig lausan fyrir ára-
mót"/ sagði knattspyrnu-
kappinn Ásgeir Sigurvins-
son, sem fékk freistandi
tilboð frá hollenzka liðinu
Ajax frá Amsterdam fyrir
stuttu.
Ajax lagöi hart aö Standard
Liege, aö gefa Asgeir lausan, og
er talið að hollenzka liöið heföi
viljaö borga allt aö 150 milljón-
um isl. kr. (yfir 300 þús. pund)
fyrir Asgeir, eða svipaða upphæö
og Ajax ætlaði að kaupa Joe
Jordan frá Leeds á, en Leeds
neitaöi eins og Standard Liege.
— „Aöalástæöan fyrir þvi að
Standard Liege vildi ekki láta
mig fara, er að markaöurinn i
Belgiu er nú lokaöur, þannig aö
félagiðgetur ekki keypt nýja leik-
menn”, sagöi Ásgeir.
Asgeir sagöi að V-Þjóðverjinn
Nichel hafði einnig fengiö tilboö
frá Braunschweig i V-Þýzkalandi
og ef Standard hefði selt þá báöa
á sama tima, hefði þaö komiö niö-
ur á liöinu. — Ég hef leikiö hjá
Standard i 5 ár og Nichel er einn
mesti markaskorari liösins, svo
aö þaö heföi tekiö tima aö æfa upp
nýja leikmenn.
— Ég skil afstööu Standard
Liege mjög vel, þvi aö þaö tekur
tima aö byggja upp nýja leik-
menn og skipuleggja leik liösins
aö nýju. Þaö er ekki nóg aö kaupa
Pétur eöa Pál — það gæti veriö aö
þeir myndu ekki falla inn I liöið,
sagöi Ásgeir.
Freistandi tilboð
— Nú rennur samningur þinn
viö Standard Liege út f vor — hef-
uröu þá hugsaö þer tii hreyfings?
— Þaö getur fariö svo, aö ég
fari þá frá félaginu. Ég hef fengiö
nokkur freistandi tilboö frá
þekktum félögum, og hef ég hug á
aö breyta til, svo framarlega að
Standard Liege setji ekki upp
svimandi háar upphæðir, þannig
að önnur félög vilji ekki kaupa
mig.
— Ég blö rólegur þar til
keppnistimabilinu lýkur hér I
Belgiu. Þegar samningur minn
rennur út, mun ég fara til þess,
félags, sem bezta tilboöiö býöur,
sagöi Asgeir.
Það er vel skiljanlegt aö Stand-
ard Liege vilji ekki láta Asgeir
fara — hann er aðeins 22 ára og
lykilmaöur liösins, og þegar aö er
gáö, þá er Ásgeir aö nálgast þann
aldur (24-27 ára), þegar knatt-
spyrnumenn ná hátindinum.
Ungir leikmenn á borö viö Asgeir
eru ekki lausir á hverju strái,
þannig aö Standard Liege heldur I
hann, eins lengi og félagiö getur,
en spurningin er bara, hvað getur
félagiö lengi haldiö i hann?
-SOS
Axel, Einar
og Gunnar
- koma til landsins á sunnudaginn
og hefja þá æfingar með
landsliðinu fyrir landsleikina
Ungverjum —HM-keppnin i handknattleik i
,,V-Þjóöverarnir” islenzku, þeir
Axel Axelsson, Einar Magnús-
son og Gunnar Einarsson, sem
leika allir meö v-þýzkum fé-
lagsliðum I handknattleik eru
væntanlegir til lslands á sunnu-
daginn, og byrja þeir þá aö æfa
meö landsíiöinu af fullum
krafti.
Landsliðið hefur æft stift sið-
an Januz Czerwinski kom til
Danmörku.
Ungverjar eru væntanlegir til
landsins i næstu viku og leika
þeir tvo landsleiki I Laugardals-
höllinni — 20. og 21. desember.
Þeir Axel, Einar og Gunnar fá
þá allir að spreyta sig og veröur
fróölegt að sjá til þeirra, en nú
er langt siöan þessir snjöllu
leikmenn léku hér á landi.
Norðmenn koma hingaö á
milli jóla og nýárs og leika hér
landsins og tók við þjálfun þess, tvo landsleiki I Laugardalshöll-
enda stór verkefni framundan Inni.