Tíminn - 20.12.1977, Síða 1
r
v
Fyrir
vörubíla
Sturtu-
grindur
Sturtu
dælur
Sturtu- —
dri
Úrskurður Sakadóms Reykjavíkur í Geirfinns- og Guðmundarmálinu:
Sævar og Kristján dæmdir
í ævilanga fangavist
— Tryggvi dæmdur i 16 ár, Guðjón i 12 ár, Erla í 3 ár og Albert í 15 mánuði
SJ — í gær 19. desem-
ber, var kveðinn upp i
Sakadómi Reykjavikur
dómur i svokölluðu
Guðmundar- og Geir-
finnsmáli. Kristján
Viðar Viðarsson og Sæ-
var Marinó Ciesielski
voru dæmdir til að sæta
ævilangri fangavist.
Enginn hefur áður
verið dæmdur til að
sitja i fangelsi ævilangt
hér á landi samkvæmt
núgildandi hegningar-
lögum, sem eru frá
1940, og mjög langt
mun siðan slíkur dóm-
ur hefur verið felldur
hér á landi.
Að vísu hefur einu sinni verið
kveðinn upp dauðadómur hér á
landi á þessari öld, en honum
var ekki framfylgt. Dómarnir
yfir þeim Kristjáni Viðari og
Sævari eru þeir þyngstu hér á
landi um langan tima.
Tryggvi Rúnar Leifsson var
dæmdur til aö sæta fangelsi I 16
ár og Guðjón Skarphéðinsson i
12ár.Til frádráttar komi gæzlu-
varðhald þeirra.
Albert Klahn Skaftason var
dæmdur i 15 mánaða fangavist
aö frádreginni gæzluvarðhalds-
vist.
Erla Bolladóttir var dæmd til
að sæta fangelsi i 3 ár. Til frá-
dráttar refsingu komi gæzlu-
varðhald hennar frá 13. til 20.
des 1975 og frá 4. mai til 22. des.
1976.
Samkvæmt lögum fara dóm-
arniryfir þeim Kristjáni Viðari,
Sævari Marinó, Tryggva Rúnari
og Guðjóni Skarphéðinssyni
fyrir hæstarétt. Lögmenn Erlu
Bolladóttur og Alberts Klahn
báðu um frest til að taka
ákvörðun um áfrýjun og er hann
samkvæmt lögum tvær vikur.
Gæzluvarðhaldsúrskurður
var kveðinn upp yfir fjórmenn-
ingunum, sem þyngsta dóma
hlutu, og gildir hann þangað til
úrskurður hefur verið kveöinn
upp i hæstarétti eða allt að eitt
ár ella.
Sjá nánar um dóm Sakadóms
Reykjavikur i Geirfinns- og
Guðmundarmáli á bls. 4.
Atvinnu-
vandamál
Þórshafn-
arbúa
leyst
ÁÞ —Atvinnuástand hefur veriö
mjög slæmtá Þórshöfnað undan-
förnu, en togari heimamanna,
Fontur ÞH 255, hefur veriö frá
veiöum i tæpa fjóra mánuöi. Nú
hefur fengizt trygging fyrir þvi aö
viögerö á togaranum geti hafizt á
nýjan leik. Búizt er viö aö henni
veröi lokið i byrjun janúar. SIÖ-
ustu vikurnarhafa 50 til 60 manns
veriö atvinnulaus vegna bilunar-
innar. i gær var hins vegar næg
vinna i frystihúsinu á Þórshöfn,
þar sem Ljósafell SU 70 landaöi
þar 80 tonnum i gærmorgun.
— Viö höfum ekki fengið niöur-
stöður fundar sem stjórn Síldar-
verksmiöjanna hélt s.l. laugar-
dag en þar kom fram mikill vel-
vilji i okkar garð. Niöurstaða
fundarins var send til rlkisstjór-
arinnar, sem hefur hlutazt til um
að viögerö geti hafizt á morgun,
sagöi Bjarni Aðalgeirsson
sveitarstjóri á Þórshöfn.
— Aðalviögeröin er á vél togar-
ans og á fiskmóttökunni. Einnig
er búiö aö fara yfir girinn og end-
urskipuleggja fiskmóttökuna, en
hún hefur alla tlö háö afkasta-
getu togarans. Ekkert haföi veriö
átt viö viögeröir i um hálfan mán-
Framhald á bls. 23
Tíu til fimmtán þús-
und tonn af grjóti
hrynja úr Heimakletti
Bana-
slys
— í Sundahöfn
Aþ — i gærmorgun varö banaslys
I Sundahöfn. Fertugur starfsmaö-
ur hjá Eimskip iézt er hann var
við vinnu i Kakkafossi. Tiidrög
slyssins eru enn óijós, en málið er
i höndum Rannsóknarlögreglu
rikisins.
Nánari tildrög slýssihs éru þau,
aö verið var að taka lúgur af lest
númer þrjú. Þarna er um að ræða
„harmoniku” lúgur sem ganga
inn I sérstakt hólf. Einhyerra
hluta vegna var maðurinn i hólf-
inu er lúgunum var rennt I þaö.
| Slysiö uppgötvaöist ekki fyrr en
' eftir nokkra stund en maðurinn
mun hafa látist samstundis.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarlögreglunni er ekki
vitað hvað maðurinn var að gera i
hólfinu á þessum tima.
AÞ — Um kiukkan ellefu I gær-‘
morgun hrundi um eitt hundraö
metra iöng fylla úr sunnanverö-
um Heimakletti. Fylgdi þessu mik-
ill dynkur og titruöu smáhlutir i
húsum langt upp 1 bænum, eins og
sprengingu væriaö ræöa. Taliö er
aö allt aö 10 til 15 þúsund tonn af
mold og grjóti hafi steypzt niöur I
innsiglinguna. Frost var aö fara
úr berginu og mun þaö vera á-
stæöan fyrir þessu hruni.
Aö sögn Sigurgeirs Kristjáns-
sonar fréttaritara blaðsins I Vest-
mannaeyjum, kom hruniö niöur
austan viö Dönsku Tó, og
myndaöiststór flóöalda sem gekk
yfirnyröri hafnargaröinn. Engan
sakaöi en lóösbáturinn var nýfar-
inn framhjá þegar atburöurinn
átti sér staö.
Engar skemmdir uröu á mann-
virkjum og ekki sakaöi rafstreng-
inn eöa vatnsleiösluna. En kraft-
ur bylgjunnar var slikur aö sjór
gekk langt upp á nýja hrauniö.
Almennt þorskveiði-
bann á íslandsmiðum
JS — Almennt þorskveiöibann á
Islandsmiðum tekur gildi i dag og
stendur til áramóta. Skal þorskur
upptækur gerður ef hann er meiri
en 10% af afla úr veiðiferð. Minni
þorskafli en því nemur úr hverri
veiðiferð verður álitinn leyfilegur
aukaafli.
Stjórnarfrumvarp á alþingi
Valdsvið loðnu-
nefndar aukið
— til þess að stuðla að betri
nýtingu verksmiðjanna
MÓ — Valdsviö loönunefndar
veröur aukiö, ef frumvarp til
laga, sem sjávarútvegsráö-
herra mælti I gær fyrir á al-
þingi, veröur samþykkt sem
lög. Frumvarpið felur þá meg-
inbreytingu I sér, aö loönunefnd
veröur heimilt aö stööva löndun
I loðnuverksmiöjur, sem næstar
eru veiðisvæði flotans, enda þótt
þróarrými sé fyrir hendi hjá
þeim, en láta skipin i þess staö
sigla með afiann til annarra
verksmiöja, sem annars væru
verkefnalausar.
1 máli ráðherra I gær kom
fram, að frumvarp þetta er flutt
til þess að stuðla að því aö
vinnslugeta verksmiðjanna I
landi verði nýtt betur en verið
hefur undanfarin ár og auka
þannig aflamöguleika loðnuflot-
ans i heild yfir vertfðina. Ráð-
herra sagði, að reynsla undan-
farinna ára hefði sýnt, að þær
verksmiðjur, sem næst eru
veiðisvæðinu yfirfyllast, á með-
an aðrar verksmiðjur blða
verkefnalausar.