Tíminn - 06.01.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.01.1978, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. janúar 1978 iiia'ítíití 7 Hvernig gekk rekstur kaup- félaganna almennt siðasta ár og hvernig var afkoma þeirra? Eru horfur á að rekstur þeirra gangi betur á nýbyrjuöu ári en þvi siðasta? Þessar spurningar ásamt nokkrum öðr- um lögöum við fyrir einn kaup- félagsstjóranna úti á lands- byggðinni, Helga R. Traustason á Sauðárkróki. Þaö kom fram hjá Helga að margt fór miður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eins og vafalaust mörgum öðr- um kaupfélögum á landinu, og leggst þar margt á eitt til að gera reksturinn erfiöan, m.a. hækkandi rekstrarkostnaöur, vaxtaokur, ranglátur söluskatt- ur og margt fl. Helgi var fyrst spurður hvernig reksturinn á siðasta ári hefði gengið eftir þvi sem vitað væri nú, og svaraði Helgi: Arið 1977 var erfitt rekstrar- ár. Rekstrarkostnaöur hefur hækkað um 50% en almenn vörusala hefur ekki aukizt nema um 30% Má þvi búast við veru- legum halla á verzluninni á siö- asta ári. Það vaxtaokur sem viö búum nú við er til þess eins að auka enn meira á erfiðleikana. Mjög erfitt er að fjármagna allan rekstur og vaxtaþátturinn hefur oröið æ stærri og erfiðari i heildarrekstrarkostnaði fyrir tækja. Vandséð er hverju þetta vaxtaokur þjónar, þvi þessi kostnaður hlýtur að lenda með einum eða öðrum hætti i verö- laginu og auka enn meira á verðbólguna og er ekki þar á bætandi sem kunnugt er. Verð- lagsþróun undanfarinna ára kallar á stóraukið fjármagn til alls verzlunarreksturs, þar sem vörur eru I sumum tilfellum dýrari frá heildverzluninni, þegar þarf að endurnýja þær, heldur en þær voru út úr búð ef umsetningin er ekki nægilega hröð. Landbúnaðurinn Um landþúnaðinn sagði Helgi: Verzlunarfyrirtæki, sem hafa mikil viðskipti og umsýslu við og fyrir bændur hafa ekki Hvernig gekk rekstur kaupfélaganna síöasta ár? Töluverður samdráttur í starfsemi KS síðastliðið ár og vart betri horfur á þessu — sagði Helgi R. Traustason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki siöur orðið fyrir þeim erfiðleik- um sem landbúnaðurinn hefur orðið fyrir og kunnar eru af um- ræöum sem fram hafa farið að undanförnu. Mikil birgðasöfnun landbúnaðarvara hefur skapað stóran vanda og gert mörgum fyrirtækjum sem reka vinnslu- stöövar landbúnaðarins, erfitt fyrir. Orðiö hefur að draga verulega úr allri fyrirgreiðslu og beita sérstöku aðhaldi I út- lánum. Vandséð er um þessi áramót hvernig þau mjólkur- samlög, sem eru með gifurlegar vörubirgöir fara að þvi aö greiða til bænda uppbætur á innlegg siðasta árs nema með sérstakri aðstoð og fyrir- greiðslu lánastofnana. A siðasta ári hefur orðið verulegur drátt- ur á skilum á útflutningsbótum frá rikinu og rýrir það vegna vaxtakostnaðar, þar sem rikis- sjóður hefur ekki greitt vexti af greiðsludrætti, greiðslugetu til bænda og lokaverð á afurðum á viðkomandi útflutningsvörum. Það er þvi fagnaðarefni, að um þessi áramót, hafa verið gefin af hálfu rikisstjórnarinnar fyr- irheitum það, að þessar greiðsl- ur verði inntar af hendi jafnóð- um og þær verða gjaldkræfar á þessu nýbyrjaða ári og hefur nú á fyrstu dögum þessa árs verið gerð skil á verulegum upphæð- um af vangoldnum greiðslum fyrra árs. Söluskattur Söluskattsmál bar næst á góma og um þau sagði Helgi: Miklar umræöur hafa orðið um sölu- skatt af kjöti og kjötvörum og it rekaðar óskir hafa komið fram hjá bændum um allt land, að söluskattur yrði afnuminn af þessum nauðsynjavörum. Það er undarlegt að rikissjóður skuli greiða niöur kjöt og verja til þess miklum fjármunum, bæði Helgi R. Traustason kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Skagfirð- inga. vegna kaupgjalds visitölunnar og til þess að halda verölagi þessara vara innan hæfilegra marka, en setja siðan söluskatt á þessar sömu vörur, sem I sumum tilfellum eru hærri en niðurgreiöslan. Hvaöa tilgangi þjónar slik vitleysa? Ef sölu- skatturinn yröi afnuminn, mætti búast við aukinni sölu á þessum þýðingarmiklu neyzluvörum innanlands og þar með létta á útflutningnum og þeirri greiðslubyröi sem kvartaö er undan hjá útflutningsbótasjóöi. Margar þýðingarmiklar neyzlu- vörur eru undanþegnar sölu- skatti s.s. mjólk, mjólkurvörur og fiskmeti fyrir nú utan útgerö- arvörur og tóbak. Su viðbára fjármálaráðuneytisins, að ef söluskatturinn væri afnuminn af kjöti og kjötvörum, þá gæfi það lausan tauminn til hvers konar söluskattssvika, fær ekki staö- izt. Einfalt mál er fyrir ráöu- neytið að gefa út hvaða verö má reikna á heilskrokka hjá verzl- uninni pr. kg. sem frádráttarlið á söluskattsskýrslu. Eins ber þegar að fella niður söluskatt af flutningskostnaði á söluvörum. Hvaða réttlæti er I þvi aö þeir sem búa utan Reykjavikur- svæðisins og verða aö flytja þaðan vörur meö ærnum til- kostnaði, verða að greiða mun hærri söluskatt til rikisins af sömu vörum heldur en ef þær væru seldar á Reykjavikur- svæðinu þar sem söluskattur er reiknaður á flutningskostnað- inn. Það er mjög einfalt fyrir rikisvaldið að leiðrétta þennan mismun meö þvi að gera flutn- ingskostnaöinn frádráttarbær- an frá söluskatti. Fjárfestingar Að lokum ræddi Helgi litillega um þá óvissu sem rikja myndi I fjárfestingarmálum á nýbyrj- uðu ári og sagöi: Vegna þeirrar óvissu sem rikti i upph. siðasta árs ^ai ákveðið hjá Kaupfélagi Skagfiröinga aö fjárfestingar yrðu I algeru lágmarki og það svo.að ýmsar mjög brýnar fjár- festingar uröu að biöa. Hvaö framundan er I þessum efnum á nýbyrjuöu ári er mjög óljóst, þar sem verzlunin er ekki flokk- uö undir atvinnurekstur og eng- ir lánasjóöir til fjárfestingar á vegum verzlana. Styrkumsóknir til Vísindasjóðs Styrkir Vlsindasjóðs árið 1978 hafa verið auglýstir lausir til um- sóknar og er umsóknarfrestur til 1. marz. Sjóðurinn skiptist i tvær deildir: Raunvisindadeild og Hugvisindadeild. Raunvisinda- deild annast styrkveitingar á sviöi náttúruvisinda, þ.e. I eölis- fræði og kjarnorkuvisindum, efnafræði, stæröfræði, læknis- fræði, liffræði, lifeðlisfræði, jarð- fræði, jarðeðlisfræði, dýrafræði, grasafræði, erfðafræði, búvisind- um, fiskifræði, verkfræði og tæknifræði. Hugvisindadeild annast styrk- veitingar á sviði sagnfræði, bók- menntafræði, málvfsinda, félags- fræði, lögfræði, hagfræði, heim- speki, guðfræði, sálfræði og upp- eldisfræði. Hlutverk Visindasjóðs er að efla Islenzkar vfsindarannsóknir, og I þeim tilgangi styrkir hann I fyrsta lagi einstaklinga og vis- indastofnana vegna tiltekinna rannsóknarverkefna, i öðru lagi kandidata til visindalegs sérnáms og þjálfunar en kandidat verður að vinna að tilteknum sérfræði- legum rannsóknum til þess að koma til greina með styrkveit- ingu, og i þriðja lagi rannsókna- stofnanir til kaupa á tækjum, rit- um eða til greiðslu á öðrum kostnaði við starfsemi er sjóður- inn styrkir. Umsóknareyðublöð, ásamt upplýsingum, fást hjá deildarrit- urum, I skrifstofu Háskóla ís- lands og hjá sendiráöum Islands erlendis. Umóknir skal senda deildarriturum, en þeir eru Guð- mundur Arnlaugsson rektor, Menntaskólanum við Hamrahlfð, fyrir Raunvisindadeild, og Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavöröur, Þjóðskjalasafni tslands fyrir Hugvisindadeild. Blaðaútgáfa APN á íslandi: ÚTGÁFUAÐILI ÞARF AÐ VERA ÍSLENZKUR GV —Skömmu eftir áramót kom út fyrsta tölublað Frétta frá So- vétrikjunum, en þær eiga að koma út aðra hvora viku. Frétta- stofa APN á Islandi stendur að út- gáfu blaðsins, sem er 16 siöur. Ritstjórar eru Maria Þorsteins- dóttir sem er jafnframt ábyrgð- armaöur, og Evgéni P. Bar- bukho. Dómsmálaráðuneytið hefur að beiðni utanrikisráðu- neytisins tekið málið tilumsagn- ar þar sem ýmsu mun vera áfátt varðandi lagalegan rétt útgáf- unnar. — Niðurstaða utanrikis- ráðuneytisins mun vera sú, að út- gáfa blaðsins fullnægi ekki skil- málum laga um prentrétt, að út- gáfunni þarf að standa innlennd- ur aðili, sagði Baldur Möller ráðuneytisstjóri i dómsmála- ráðuneytinu i samtali við blaðið i gær. — Mér vitanlega erþetta það eina sem þarna er áfátt sagði Baldur. — Utanrikisráöuneytið hefur spurzt fyrir um okkar afstööu og hvernig við viljum standa að mál- inu, og er okkar niðurstöðu að vænta innan fárra daga, sagði Baldur. Að sögn Baldurs hóf Frétta- stofa APN útgáfu mánaðartima- rits áriö 1970, og var þaö I fullu samráði við utanríkisráöuneytið. Staða lögreglumanns við rannsóknarlögregludeild embættisins er laus til umsóknar. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 5. febrúar nk. Lögreglustjórinn i Keflavik, Njarðvík, Grindavik og Gullbringusýslu 2. janúar 1978. Skákæfingar fyrir unglinga eru á laugardögum kl. 13.30 að Pósthús- stræti 13. Skákfélagið Mjölnir. Húsaviðgerðir Tökum að okkur viöhald og viðgerðir á húseignum stórum og smáum svo sem: Sprunguviðgerðir, ál, járn stálklæðning- ar, glerisetningar og gluggaviðgerðir, uppsetningar á eldhúsinnréttingum, milli- veggjum, hurðum, parketi o. fl. Húsprýði h.f. Simar: 7-29-87 og 5-05-13 eftir kl. 7.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.