Tíminn - 06.01.1978, Side 8
8
Föstudagur 6. janúar 1978
Landbúnaðurinn 1977
Framleiðsla landbúnaðaraf urða hefur
verið með allra mesta moti árið 1977, veðr
átta verið fremur hagstæð, þótt óþurrka-
kafli hafi verið um mitt sumar á Suður-
landi. Hey hafa sennilega aldrei verið eins
mikil að vöxtum og gæði með besta móti.
Þrátt fyrir þetta eru blikur á lofti í land-
búnaði eins og hjá öðrum undirstöðu-at-
vinnuvegum landsmanna.
Markaðsmálin hafa verið bændum erfið,
samdráttur i sölu innanlands og lítil verð-
hækkun á búvörum i útflutningi. Gera má
ráð fyrir að munur á tekjum bænda og við-
miðunarstettanna verða svipaður í ár og í
fyrra, en þá vantaði um 30% á tekjur
bænda.
Veðráttan: Veturinn var fremur góður, vor
ið kom þó seint, en kom vel þegar það kom.
Sumarið var mjög hagstætt bændum á aust-
anverðu Norðurlandi og austur á Héraði, en
áfallasamt i öðrum landshlutum, einkum á
Suður- og Vesturlandi. Þar rættist úr þegar
kom fram i ágúst. Þrátt fyrir erfiða hey-
skapartið í sumum landshlutum, þá var
spretta með allra mesta móti og hey mjög
góð. Á haustnóttum hafa hey sennilega
verið meiri en nokkru sinni fyrr i sögu
landsins. Haustið var ágætt og, það sem af
er vetri hef ur tíð verið góð um mikinn hluta
landsins. Þó gerði um hálfsmánaðar ill-
viðrishrotu um Norður- og Austurland í
nóvember.
Jarðrækt: Samkvæmt bráðabirgða upp-
gjöri Búnaðarfélagsins hafa jarðræktar-
f ramkvæmdir verið svipaðar í ár og í f yrra.
Nýrækt var 3193 ha árið 1976 en í ár 3078 ha.
Grænfóðurrækt hefur aukist verulega eða
um 26% frá fyrra ári.
Garðrækt: Uppskera gróðurhúsaaf urða var
góð á árinu, bæði af tómötum og gúrkum.
Hinsvegar gekk erfiðlega með sölu, sér-
staklega á tómötum, þar sem mikið magn
barst á markaðinn á tiltölulega skömmum
tíma. Ræktun grænmetis úti gekk mjög vel,
þó urðu einstaka garðyrkjubændur í upp-
sveitum Árnessýslu fyrir verulegu tjóni af
völdum veðra, sem skemmdu nokkuð
skömmu eftir gróðursetningu. Uppskera á
grænmeti á Norðurlandi var f rábær. Víðast
hvar spruttu gulróf ur vel, en nokkru minna
var sáð en í f yrra. Ekki er gert ráð fyrir að
nægilegt framboð verði á gulrófum seinni
part vetrar, eða þegar kemur f ram á vorið.
Afkoma garðyrkjubænda er talin vera
sæmileg, þó mun hún vera öllu skárri hjá
biómaframleiðendum en framleiðendum
grænmetis. Samtals eru 14 ha undir gleri í
landinu.
Heildaruppskera kartaflna hefur verið
áætluð 8400 lestir, sem er svipað og í f yrra.
Gert er ráð f yrir að til sölumeðferðar komi
af innlendri uppskeru um 4000 lestir. Heild-
arneysla á kartöflum á ári er um 11000 lest-
ir.
Fjárfesting: Ekki liggja fyrir tölur um
heildarf járfestingu til sveita, en reiknað er
með að hun haf i verið litið eitt meiri i ár en í
fyrra. Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur
lánaðtil bænda á árinu 2100 milljónir króna,
en í fyrra var upphæð lána 1537 milljónir
króna. Byggingakostnaður er áætlaður
25% hærri á þessu ári en árið 1976.
Búfj áraf urðir
Mjólk: Fyrstu 11 mánuði ársins var innveg-
in mjólk í mjólkursamlögin 111,4 milljón
kg., en það var 6,1% meira en á sama tíma-
bili og í fyrra.Gera má ráð fyrir að heildar
magn innveginnar mjólkur á þessu ári verði
tæplegall9 milljón kg., en á öllu árinu í
fyrra tóku mjólkursamlögin á móti 112
millj. kg. Nokkur samdráttur hefur orðið á
sölu mjólkur eða um tæp 4% frá fyrra ári,
sala á undanrennu hef ur aftur á móti aukist
um 130%. Birgðir af smjöri voru 81% meiri
1. desember í ár, en í fyrra, þær verða um
1100 lestir i lok ársins. Smjörsala hefur
minnkað um tæp 20% á árinu.
Ánægjuleg þróun hef ur aftur á móti verið
i sölu og neyslu osta, aukning á þessu ári er
rétt um 10% miðað við síðastliðið ár. Mán-
aðarsala á ostum er nú um 120 lestir. í ár
haf a verið f luttar út 827 lestir af ostum en í
fyrra nam útflutningurinn 314 lestum.
Kindakjöt: Slátrað var 873.051 dilk síðast-
liðið haust og 70.510 fullorðnu fé. Dilkakjöt
varð 12.439 lestir, en það er 0.73% aukning
frá í fyrra. Meðalfallþungi dilka reyndist
vera 0,1 kg minni í ár en i fyrra. Birgðir af
kindakjöti voru 1376 lestir 1. sept. s.L, en 1.
des. voru þær 11.667 lestir. Á síðasta verð-
lagsári (1. sept.—31. ágúst) voru fluttar út
5133 lestir af kindakjöti, þar af voru 353
lestir ærkjöt. Frá 1. september í ár hafa
verið fluttar út 1402 lestir af kindakjöti.
Gert er ráð fyrir að sala innanlands á
kindakjöti verði 9000 lestir á þessu ári, en í
fyrra var hún 9.111 lestir.
Nautakjöt: Minna framboð hefur veið á
nautakjöti í ár, en undanfarin ár oa birgðir
oftveriðí lágmarki. i upphafi ársins voru i
landinu 1100 lestir af nautgripakjöti. Salan
hefur verið um 200 lestir á mánuði. í upp-
hafi þessa mánaðar voru birgðir í landinu
af nautgripakjöti 540 lestir, en gera má ráð
fyrir, að þær minnki í mánuðinum. Líklegt
má telja, að eftirspurn geti orðið nokkuð
meiri en framboðið, sérstaklega á ung-
nautakjöti.
Hross: Hrossum hefur fjölgað verulega á
undanförnum árum, nú munu þau vera um
50.000 í landinu. Á þessu ári hafa verið f lutt
út 450 hross fyrir 120 millj. krónur. Flest
hafa verið seld til Þýskalands, en á árinu
voru seld 30 hross til Bandaríkjanna. Horf-
ur eru á, að þar sé verulegur markaður
fyrir íslenska hesta. Bændur fengu að
meðaltali 170 þúsund krónur fyrir útflutn-
ingshrossin.
Minkur: Árið 1976 voru starfrækt 7 minka-
bú í landinu, en nú eru aðeins 4 eftir. Á þess-
um búum voru7350 líflæður í haust, og þær
fæddu af sér 23.000 hvolpa. Áætlað sölu-
verðmæti minkaskinna er 130-140 milljón
kr. Hvert minkabú gef ur af sér um 30 millj-
ón kr. í erlendum gjaldeyri , en það gerir til
jafnaðar um 10 milljón kr. á hvern starfs-
manna búanna. Nokkur áhugi er nú fyrir
stofnun nýrra minkabúa, og Búnaðarfélag
íslands vill beita sér fyrir að minkarækt
verði tekin uppsem aukabúgrein hjá bænd-
um, þar sem aðstæður henta.
Frá veiðistjóra: Gert er ráð fyrir að svip-
aður f jöldi refa verði unninn i ár og undan
farin ár eða um 1400 dýr. Ötullega hefur
verið unnið að eyðingu villiminka á árinu,
sérstaklega á varplöndum og á heiðum
uppi. Áætlað er, að f jöldi veiddra minka á
árinu verði um 4000 dýr, en það er hliðstætt
og undanfarin ár. Á vegum veiðistjóra hafa
verið gerðar tilraunir til að fækka vargf ugli
með lyfjum, og lofa þær tilraunir góðu.
Drepnir hafa verið um 3000 f uglar á þessum
tilraunaveiðum.
Hvað er framundan
Sjaldan eða aldrei hafa bændur þessa
lands rætt meira um verðlags- og markaðs-
mál en á þessu ári.
Söluvandamál landbúnaðarins stafa
fyrst og f remst af verðbólgunni, sem hef ur
komið harðast við þann atvinnuveg. Þar
sem allar rekstrarvörur og vinnslukostn-
aður hafa hækkað að sama skapi og verð-
bólgan hefur aukist, þá hefur bilið milli
innanlandsverðsins og þess verðs, sem fæst
fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir breikk-
að.
Þótt verð á búvöru innanlands hafi ekki
hækkað að sama skapi og kaupgjald í land-
inu, þá hef ur sala dregist saman og skapað
erf iðleika hjá sölusamtökum bænda að gera
upp við þá.
Helstu kröf ur bænda hafa verið, og eru að
þeir fái að semja beint við ríkisvaldið um
sin kjara- og verðlagsmál, söluskattur verði
afnuminn af kjöti, hliðstætt og hefur verið
gert með aðrar þýðingarmiklar neysluvör-
ur og að innfluttar landbúnaðarvélar og
verkfæri verði ekki skattlagðar meira en
vélar og verkfæri til iðnaðar og sjávarút-
vegs.
Bændur gera sér Ijóst, að nauðsynlegt er
að draga úr framleiðslunni og að beita öll-
um ráðum til að lækka framleiðslukostnað-
inn, en þeir geta ekki sætt sig við að taka á
sjg kjaraskerðingu þegar allar aðrar stéttir
fá verulegar kjarabætur.
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins.
(Heimildir: Framleiðsluráð landbúnað-
arins, Búnaðarfélag íslands, Stofnlána-
d^ild landbúnaðarins, Samband ísl. Sam-
vinnufélaga—BúvörudeiId, Grænmetis-
verslun landbúnaðarins, Osta- og Smjörsal-
an).
NÝ SPENDÝRATEG
UND í SVÍPJÓÐ
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
a*
íi&SEE
Auglýsingadeild Tímans
Það hljóp á sneeriö hjá Svium i
sumur. Þá fannst I landi þeirra
ný spendýrategund, sem talift
er, aft þar hafi lifaft frá þvl isöld
lauk, þótt ekki hafi hennar fyrr
orftift vart. Þetta var snjáldur-
mús þess afbrigftis, sem kennt
er vift sléttulönd. Þar meft eru
vilit spendýr, sem á landi lifa i
Sviþjóft, komin upp i sextiu og
eitt.
Snjáldurmúsin fannst á
Jamtalandi suftaustan veröu
slftustu dagana I júlimánuöi, er
visindamaöur frá erföafræöi-
stofnuninni I Lundi var þar viö
rannsóknir á venjulegum
snjáldurmúsum.
Stúdent frá Oxford handsam-
aöi fyrsta dýriö á moldarhaug,
þar sem ýmis úrgangsefni höföu
veriö sett til rotnunar, áöur en
þau væru notuö til áburöar.
Daginn eftir veiddist ógotiö
kvendýr i búr, er þar haföi ver-
iö sett.
Ekki er á annarra færi en wér-
fræöinga aö þekkja þetta af-
brigöi frá venjulegum snjáldur-
músum. Er þáö helzt frábrugöiö
aö þvl leyti, aö þaö er heldur
dekkra á lit, öllu þróttmeira,
lyktar ööru vísi og er meö frá-
brugöna gerö tanna og fleiri
erföalitninga.
Báöar tegundirnar hafa þaö
sameiginlegt, aö þær sjást
sjaldan. Þær halda sig mest i
holum og göngum undir gras-
sveröinum og lifa á skordýrum
og möökum.
Sléttusnjáldurmúsin er aust-
rænnar ættar og lifir á viö og
dreif um meginlandiö austan
frá Kyrrahafi og vestur aö
Eystrasalti. Aöur hefur hún
fundizt nokkrum sinnum i Finn-
landi og Noregi, og þess vegna
kemur ekki á óvart, þótt henni
brygöi einnig fyrir I Svfþjóö.
Séu undan skilin sauönaut,
sem eru innflutt, eru tiu ár sföan
siöast fannst ný dýrategund I
Sviþjóö. Þá fannst þar ein
dvergsnjáldurmús.