Tíminn - 01.02.1978, Side 2

Tíminn - 01.02.1978, Side 2
2 l 'l 'l 11{ >1 1 't I1, Mi&vikudagur 1. febrúar 1978 Skotland: Kairó/Reuter Fri&arumleitanir i Miöausturlöndum hófust aö nýju i gær er ísraelsmenn sendu Egypt- um nýjar hugmyndir varðandi stjórnmálaviðræöurnar sem fóru útum þúfur, og fulltrúatil að taka þátt i hermálaviðræðunum sem legið hafa niðri. Egypzki utan- rikisráðherrann Mohammed Ibrahim Kamel, sagði frétta- mönnum að aðstoðarutanrikis- ráðherra Bandarikjanna, Alfred Atherton, hefði komið með nýjar tillögur frá israelsku stjórninni. Egypzkir leiðtogar hafa tillög- urnar nú til athugunar. Kamel bætti við að enn væru mörg mál sem ,,við, Egyptar og Israels- Sænskir hermdar- verkamenn daemdir Stokkhólmi/Reuter I gær féll dómur i máli fimm forsprakka sænskra „borgarskæruliða”, og voru þeir dæmdir tii fangelsis- vistar, frá mánuði til fjögurra ára, fundnir sekir um skemmd- arverk og samsæri um að ræna frú Önnu-Gretu Leijon fyrrver- andi innflytjendamálaráðherra Sviþjóðar. Nokkrir aðrir Sviar hlutu sekt- ardóma við réttarhöldin fyrir að- ild að samsærinu, eða tilraunir til að sprengja upp opinberar bygg- ingar. Enn aörir i hópnum hlutu skilorðsbundna dóma, en tveir voru sýknaðir. Allir hinir ákærðu voru hand- teknir i umfangsmiklum lög- regluaðgerðum i Stokkhólmi og nágrenni i aprilmánuði á siðast- liðnu ári, en þá náðust einnig Þjoðverjarnir Norbert Kröcher, sem talinn er vera félagi i sam- tökum Baader-Meinhofliða, og Manfred Adomeit. Þjóðverjarnir voru báðir fram- seldir i hendur vestur-þýzkra yfirvalda,en i heimalandi sinu eru þeir einnig sekir um aðra glæpi. Réttarhöldin i Stokkhólmi stóðu i sjö mánuði og krafðist saksókn- arinn dóms vegna tilrauna og samsæris til að ræna frú önnu-Gretu Leijon fyrrverandi ráðherra. Hefðu hermdarverka- mennirnir haft i hyggju aö halda henni i gislingu til að fá félaga úr Baader-Meinhof hópnum látna lausa úr vestur-þýzkum fang- elsum. Lögregluyfirvöld i Sviþjóð álita að Kröcher og félagar hans hafi talið frú Leijon bera ábyrgð á þvi að einn árasarmannanna á vestur-þýzka sendiráðið i Stokk- hólmi var framseldur þýzkum yfirvöldum, en hann léztskömmu siðai; af sáum þeim sem hann hafði hlotið i árásinni. Thatcher sökuð um kyn- þáttahatur London/ Reuter Leiðtogi stjórnarandstööunnar i Bretlandi, Margret Thatcher,var i gær sökuð um kynþáttahatur, en atvikið átti sér stað viö harðar deilur um þeldökka innflytjend- ur i neðri deild brezka þingsins. Thatcher erhlynnt þvi að hömlur veröi settar á fjölda þeldökkra innflytjenda, og við umræður þar sem hún reyndi að vinna stefnu sinni fylgi, reiddust allmargir stjórnarsinnar mjög og kölluðu foringja ihaldsflokksins bæði kyn þáttahatara og hentistefnumann. Utan þingsins hafa leiðtogar 1,9 milljóna Asiumanna, og Vestur-Indiabúa sýnt mikla and- stöðu við stefnu Thatcher og telja hana aöhyllast dilkadrátt eftir kynþáttum Thatcher gerði fyrirspurn á þinginu um tölur um innflytjend- ur á síöastliðnu ári, og fékk þau svör hjá Callaghan forsætisráð- herra að innflytjendur hefðu verið 25% færri 1977 en árið á undan. Frúin hefur visað gagn- rýninni á sig á bug og sagt hana algjörlega fráleita. Deilurnar hófust er Thatcher lýsti þvi yfir i sjónvarpsviötali, að óhæfilegt væri að 45 þúsund til 50 þúsund manns flyttust til Bretlands ár- lega til að setjast þar að. Challag- han hefur lýst þvi yfir að áfram verði haldið að leyfa fólki frá Samveldislöndunum, er hafa brezk vegabréf að setjast að i landinu. Margaret Thatcher menn, iitum ólikum augum.” Stjórnmálaskýrendur telja þó að engra verulegra stöðubreytinga sé að vænta fyrr en eftir fund þeirra Sadats og Carters i Was- hington um helgina. Þó má segja að nokkur skriður sé kominn á málin frá þvi er var fyrir tveim vikum er Sadat kailaði utanríkis- ráðherra sinn heim, öllum að óvörum. Egyptar söku&u Isralesmenn um óbilgirni hvað varðar grund- vallaratriði fyrirhugaðra friðar- samninga, en meginágreinings- málin eru krafa ísraelsmanna um áframhaldandi búsetu á her- teknu svæðunum, og sjálfsstjórn Palestinuaraba. Við komuna til Kairó i gær til viðræða við hermálaráðherra Egypta, Gamasy, minntist varn- armálaráðherra Israels, Ezer Weizman á „grýtta götu friðar- ins”. Hann vildi annars fátt segja við fréttamenn. Kamel utanriki sráðherra Egyptalands sat tvær klukku- Gamasy og Weizman stundir á fundi með Ahterton i gær, og búizt er við að þeir ræðist við öðru sinni i 'dag. „Við vonum að öll fyrirhöfn Bandarikjamanna verði til þess að varanlegur friður komist á”, sagði Atherton. Egyptarhafa lýst þvi yfir að þeir muni ekki snúa aftur til samningaborðsins i Jerú- salem nema samkomulag náist um yfirlýsingu varðandi höfuð- markmið friðarumleitananna, og Ahterton sagði að næsta skref i friðarviðræðunum yrði að berja saman yfirlýsingu um stefnu i meginmálum. Viðræður hafnar í Kairó Egyptar ihuga tillögur ísraelsmanna Takeo Fukuda Fukuda æskir fundar við Carter um sig dollarans Ofviðri veldur mann- tjóni og gifurlegum örðugleikum Tokyo/Reuter Japanski forsætis- raðherrann Takeo Fukuda sagði á japanska þinginu i gær, að hann myndi fara þess á leit viö Jimmy Carter Bandarikjaforseta, að hann hæfi aðgeröir til aö stöðva sig dollarans. Fukuda hyggst færa þetta i tal við Carter ef fund- um leiðtoganna bersaman siðar á þessu ári. Japanska yenið hefur hækkað um 20% miðað við dollar- ann á siðastliönu ári. Fukuda hefur farið fram á fund með Carter og hyggst hann með þvi móti styrkja samvinnu þjóð- anna. Sambandið milli Banda- rikjamanna og Japana hefur verið nokkuð þvingað vegna gif- urlegs hagnaðar Japana i við- skiptum milli landanna. Fyrr i þessum mánuði samþykktu stjórnir Bandarikjanna og Jap- ans ýmsar aðgerðir, er draga eiga úr viðskiptahagnaði Japana. Enn hefur ekkert verið tilkynnt um það hvenær fyrirhugaður fundur leiðtoganna fer fram. Edinborg/Reuter. Mesta stór- hrfð, er gengið hefur yfir Skotland i 30 ár, geisaði i gær á iðnaðar- svæðunum kringum Glasgow og Edinborg. Olli snjókoman þvi að loka varð flugvöllum og miklar tafir urðu á umferð á vegum og járnbrautum. Héruðin sem verst urðu úti eru i Norður-Skotlandi, en þar hafa þorp einangrazt og bflar setið fastir á vegum. Hingað til hafa þó einungis fimm látið lif- ið af völdum ofviðrisins. Reynt hefur verið að nota þyrl- ur við hjálparstarfið, en erfitt hefur verið að nota þær vegna veðurofsans. Mikilvirk snjó- moksturstæki hafa verið flutt til þessara svæða, meðal annars snjóplógar frá Sviss. Rafmagnsveitur i Norður-Skot- landi gáfu i gær þær upplýsingar að 85.000 manns væru nú án raf- magns. Inneignirnar í Danmörku: Reikningseigendur hafa ekki talið fram vaxtatekjur SKJ — Að sögn Garöars Valdi- marssonar skattrannsóknar- stjóra er enn unnið að öflun upp- lýsinga hjá þeim einstaklingum er eiga inneignir I dönskum bönkum, samkvæmt upplýsing- um er bárust frá dönskum skattayfirvöldum fyrir jól. Er Garðar var inntur eftir þvi hvort fyrirhugaö væri að visa málum reikningseigenda til saksóknara, kvaö hann málið e.in ekki komið á sliki stig, en ljóst væri að enn væri ekki vitaö um neinn reikningseiganda er talið hefði fram vaxtatekjur af' inneignum sinum i Danmörku. Augljóst viröist þvi að all- margir eigendur innistæöa i Danmörku hafi brotið 36. gr. skattalaganna, sem kveður á um að framtalsskyldum aðilum beriað gefa upplýsingar um arö af bankainnistæðu 1 beinu fram haldi af þvi virðist ekki fráleitt að ætla að 50. grein skattalag- anna verði beitt og saksóknari fái mál gjaldenda til meðferðar, en rlkisskattstjóri og skattrann- sóknarstjóri hlutast siðan til um frekari meðferð málsins. Svíþjóð: Leiðtogi Frjálslynda- flokksins dregnr sig út úr stjórnmálum Stokkhólmur/Reuter Leiðtogi Frjálslynda flokksins sænska Per Ahlmark tilkynnti i gær aö hann segði af sér sem leiðtogi flokks- ins, aðstoðar forsætisráðherra og atvinnumálaráðherra af persónu- legum ástæðum. Ahlmark er 38 ára, fyrrverandi blaðamaður, og yngsti flokksforingi i Sviþjóö. Ahlmark sagði á blaðamanna- fundi, að „hörmulegur atburöur í einkalifi si'nu, er gerzt heföi fyrir ári siðan hefði gjörsamlega breytt lifsskoðunum sinum.” Talið er að dauði náins vinar Ahlmark sé atburðurinn sem hann á við. Nýr foringi Frjáls- lynda flokksins verður kjörinn á sérstakri ráðstefnu í marz næst- komandi. Ahlmark mun sitja á þingi fram að næstu kosningum i september 1979.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.