Tíminn - 01.03.1978, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 1. marz 1978
13
ísafjörður:
Fólks
bifreið
lenti í
snjó-
blásara
ESE —t gærdag lenti snjóblásara
og fólksbifreið saman á Selja-
landsvegi á Isafirði. Snjóblásar-
inn var að störfum á veginum, og
fólksbifreiðinni, sem var af Mer-
cedes Benz gerð var ekið til móts
við hann úr gagnstæðri átt. Svo
illa vildi til að Benz bifreiðin lenti
framan á snjóblásaranum og i
þeim tækjum sem venjulega eru
notuð til þess að blása snjónum
burtu. Miklar skemmdir urðu á
fólksbifreiðinni en snjóblásarinn
hreinlega hakkaði i sig framhluta
hennar en slys urðu engin á
mönnum.
Árnað heilla
18.11. 77. voru gefin saman i
hjónaband i Þjóðkirkjunni i
Hafnarfirði Kristin Garðarsdótt-
ir, og Steingrimur Steingrimsson
heimili Sléttuhrauni 25, Hafnarf.
(Ljósmst. Gunnars Ingimars.
Suðurveri)
12.11. 77. voru gefin saman i
hjónaband i Dómkirkjunni af sr.
Hjalta Guðmundssyni Sigrún
Kristinsdóttir og Páll Aðalsteins-
son heimili Hraunbæ 180, R
(Ljósm.st. Gunnars Ingimars.
Suðurveri)
& V
Arsfundur æskulýðsfélaga í Reykjavik
Arsfundur æskulýösfélaga j Reykjavlk var haldinn slðastliöinn laugardag i félagsmiöstööinni Fella-
helli, en Æskulýösráð Reykjavikur gengst fyrirfundi þessum. A fundinum voru fluttar framsöguræöur
um aöalefni fundarins: Staöa og starf frjálsra æskulýösféiaga í Reykjavik og fjölluöu umræöuhópar
nánar um þetta efni. Daviö Oddsson formaöur æskulýðsráös setti fundinn.
Trésmiðir segja upp samningum
í mót mælaskyni
JB— Eftirfarandi samþykkt var
gerð á félagsfundi i Trésmiða-
félagi Reykjavikur og var hún
samþykkt með öllum atkvæöunv.
„Félagsfundur i Trésmiða-
félagi Reykjavikur, haldinn að
Hótel Loftleiðum 25. febrúar,
mótmælir harðlega þeirri sam-
eiginlegu árás atvinnurekenda og
rikisvalds á löglega gerða samn-
inga verkalýðsfélaganna, sem
felst i þeirri lagasetningu um
efnahagsráöstafanir, sem
samþykktar voru á Alþingi hinn
16þ.m. Fundurinn samþykkir að
segja upp öllum kaupgjalds-
ákvæðum i kjarasamningum
félagsins þannig að þau falli úr
gildi hann 1. april n.k.
Fundurinn lýsir fullum stuðn-
ingi við samþykkt formannaráð-
stefnu ASI og hvetur alla félags-
menn Trésmiðafélags Rvikur til
virkrar þátttöku i mótmælaað-
gerðunum 1. og 2. marz er sam-
starfsnefnd launþegasamtakanna
hefur ákveðið og boðaö og öðrum
þeim aðgerðum, sem siðar verða
ákveðnar.”
Utifundur á Lækjartorgi
Samráðsnefnd launþegasam-
takanna hefur ákveðið að halda
útifund i Reykjavik fyrri verk-
fallsdaginn, 1. marz, og ef að lik-
um lætur verður hann haldinn á
Lækjartorgi.
Þau samtök sem standa að fund
inum eru Alþýðusamband Is-
lands, Bandalag starfsmanna
rikis og bæja, Farmanna- og
fiskimann'asambandið, 4auna-
málaráð Bandalag háskóla-
manna og Iðnnemasamband Is-
lands.
Iðnnemasambandið:
Hvetur iðnnema til samstöðu með að-
gerðum og kröfum launþegasamtakanna
A fundi stjórnar Iðnnemasam-
bands Islands og stjórna
aðildarfélaga þess viös vegar að
af landinu sem haldinn var á
laugardag var samþykkt efnis-
mikið ávarp til iönnema og
annarra launþega vegna kjara-
skerðingarlaga rikisstjórnarinn-
ar. Segir þar m.a. um stööu iðn-
nema:
„Meö aðgerðum rikisstjórnar-
innar er einnig vegið að kjara-
samningum iðnnema en þeir ná
til hátt á þriðja þúsund launþega
og visitöluskeröingin er mun
m'eiri hjá iðnnemum en hjá öðru
launafólki. Þó að lögin kveöi á um
að visitalan skuli ekki skerðast
eins mikið hjá þeim er allra
lægstu launin hafa, verða iön-
nemar að hlita þvi fái lögin að
standa að fá aðeins hluta af
skertri visitölu til sveina þar sem
laun iðnnema eru ákveðið hlutfall
af launum þeirra.
Avarpi þessu lýkur með eftir-
farandi áskorun til allra
iðnnema: „Iðnnemasamband Is-
lands hvetur alla iðnnema hvort
sem þeir stunda vinnu sina á
vinnustað eða i skóla til sam-
stöðu með aðgerðum og kröfum
launþegasamtakanna og til að
leggja niður vinnu 1. og 2. marz
n.k. eða vinna ekki að fram-
leiðslustörfum, eins og þeim er
bannað skv. iðnfræðslulögum
mæti þeir á vinnustaö. Einnig
hvetur sambandið iðnnema til að
fjölmenna á útifund launþega-
samtakanna sem haldinn verður i
Reykjavik 1. marz. Ennfremur
skorar sambandið á iðnnema að
taka virkan þátt i þeim aðgerðum
sem ákveðnar verða i framhaldi
af þessum byrjunaraðgerðum.”
(Fréttfrá Iönnemasambandinu)
•rtW
I HUSI IÐNAÐARINS VID
INGÓLFSSTR/ETI
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Prjónafatnað úr nýja Gefjunarullargarninu Superwash má þvo i
þvottavél (á ullarstillingu), vinda og þurrka eins og annan þvott án
þess að flíkurnar hlaupi eða litir renni saman.
Gamið er beitt sérstakri nýrri erlendri meðferð. Þunn efnahimna
leggst utan um hvert ullarhár, og veldur því að garnið hleypur ekki eða
þófnar í þvotti. Aðrir eiginleikar ullarinnar breytast ekki heldur.
Gefjunarullin Superwash er mölvarin, hún upplitast ekki og litirnir
þola þvott án þess að Iáta á sjá.
Reynið þessa nýju framleiðslu og kynnist nýjum eiginleikum Gefjunar-
ullarinnar Superwash.
Ullarverksmiöjan Gefjun, Akureyri.
SkeUtu þvíbara
íþvottavéfína!
argus