Tíminn - 01.03.1978, Síða 20

Tíminn - 01.03.1978, Síða 20
L WMmrn ( bv 18-300 Miövikudagur 1. marz 1978 Auglýsingadeild Tímans. Okukennsla Greiðslukjör Gunnar Jónasson Sími Sýrð eík er sigild eign HU n TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Stjórn SH á fundi meö forsætisráðherra, samgöngumálaráðherra og sjávarútvegsráðherra i gær Stjórn SH á fnndi með ráðherrum: Skýrt frá fjárhagsörð- ugleikum frystihúsanna GV — Stjórn Sölumiöstöðvar hraöfrystihúsanna gekk á fund forsætisráöherra, sjávarútvegs- ráöherra og samgöngumálaráö- herra í gær, þar sem stjórn SH skýröi frá þeim fjárhagsörðug- leikum sem frystihúsin eiga viö að etja. — Eftir aukafund Sölu- miöstöövarinnar var stjórninni faliö að ganga á fund rikistornar- innar til að kynna viöhorfin eins og þau líta Ut í dag og næstu mán- uði, sagöi Eyjólfur ísfeld Eyjólfs- son forstjóri SH i viðtali við Tim- ann eftir fundinn i gær. — Viö skýrðum frá þeim fjár- hagsöröugleikum sem frystihúsin eiga við aö etja, en þaö er ljóst aö veröbólganfer meö fjárhagsstööu meginþorra fyrirtækjanna sagöi Eyjólfur. Eyjólfursagöi einnig að rætt heföi verið um úrlausnir á vandanum og kæmi þar margt til greina. Rætt var um þaö 500 milljónakróna hagræöingafé sem lofað var ásl. hausti, en hefur enn ekki verið Uthlutaö, og þá einnig um þær 350 milljónir, sem bætast við þessa fjárhæö og koma af gengishagnaöi. Meiningin væri aö athuga að breyta lausafjárskuld- um fyrirtækjanna i föst lán, og þá var einnig rætt um vaxtahækkun og vaxtabyröi. Eyjólfur sagði aö rikisstjórnin hlyti aö taka máliö til athugunar, en um framhald málsins eftir þennan fund vildi Eyjólfur ekki tjá sig. Verkfall ASÍ og BHSB: Þátttakan undir hverj- um og einum komin Landsbankamálið: Gæzluvarðhald rennur út í dag GV — Gæzluvarðhald fyrrver- andi forstööumanns ábyrgðar- deildar Landsbankans, Hauks Heiðars, rennur út kl. 4 i dag, en sem kunnugt er var gæzluvarð- hald framlengt 1. febrúar sl. til dagsins i dag. Rannsóknaraöil- ar hafa ekki viljað tjá sig um hvort gæzluvarðhaldinu lýkur i dag eða hvort það verði fram- lengt enn á ný. 1 einu siödegisblaðanna i gær var frá þvi skýrt að Sveinn Snorrason réttargæzlumaöur Hauks Heiðars og fulltrúi Landsbanka tslands væru nú staddir i Sviss til að sækja þar andviröi 20 milljóna isl. kr. sem Haukur á geymdar þar i landi. Við bárum þessa frétt undir Jónas Haralz bankastjóra Landsbankans, og sagðist hann ekkert geta sagt um málið á þessu stigi. Tímafrekt að tengja hitaveitu við hús á Siglufirði á ný GV— Nú er veriö að ryöja leiöina frameftir, og þaö eru aðeins nokkur hundruö metrar eftir, sagði Snorri B. Sigurðsson i við- tali viö Timann siðdegis I gær. Snorri sagöi einnig aö þaö tæki töluverðan tima aö ryöja þann spotta sem eftir er, þar sem yfir hæðótt landslag er aö fara. Þá veröur einnig eftir aö ryðja frá hitaveituhúsunum i Skútudal en þau eru undir þykku snjólagi. — Þaö fer nóttin og meira til i það, sagöi Snorri. Verkiö vinna fimm menn, tveir á snjóblásara, einn á jarðýtu og annar á jeppa, og Hreinn Júllusson sér um verk- stjórn. Byrjað var á verkinu um fimm leytiö i fyrrinótt, stuttu eftir aö snjóblásarinn kom til bæjar- ins, en hann var töluvert lengur á leiöinni en menn áttu von á, en snjóþyngsli á vegum voru mikil, 4-6 m djúpur snjór á Strákavegi. — Viö gerum ráð fyrir að viö- gerö geti hafizt um leið og ýtan hefur rutt frá húsunum, en þó að viðgerö ljúki, þá er ekki þar meö sagt aö hitaveituvatnið sé komið i bæinn á ný. Þá verður eftir aö af- tengja hús viö oliukyndingu, og tengja þau á ný viö hitaveitulagn- ir, og þaö veröur timafrekt, sagöi Snorri. Flest öll hús á Siglufirði eru með einhvern hita og hefur raf- magnsofnum veriö dreift um bæ- inn. 1 gær var flóabáturinn Drangur kominn til Siglufjarðar meö rafmagnsofna frá Akureyri. — Viö vitum ekki tl aö nein hús séu skemmd, sagði Snorri. Ný ákvæði um óheimilar fjarvistir Ráðuneytiö hefur i dag fellt úr gildi umburðarbréf nr. 7/1968 um skráningu og meðferð óheimilla fjarvista. Er þvi niður felld heim- ild starfsmanna til að velja um hvort óheimilum fjarvistum þeirra skuli mætt með fækkun á sumarleyfisdögum eöa auka- vinnu. Jafnframt skal vakin athygli á aö samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 30. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna rikisins, er starfsmanni skylt aö vinna án endurgjalds yfirvinnu allt aö tvö- földum þeim tima, er hann hefur veriö frá starfi án gildra forfalla eða hlita þvi aö dregið sé af laun- um sem þvi nemur. Fjármálaráðuneytiö GV— í dag hefst tveggja daga verkfall aliflestra launþegasam- taka innan Alþýöusambans tslands og allra stéttasamtaka innan Bandalags starfsmanna rikis og bæja að undanskyldu Starfsmannafélagi Reykjavfkur og Póstmannafélagi tsiands til aö mótmæla þeirri kjaraskeröingu, sem leiðir af efnahagsráðstöfun- um rikisstjórnarinnar. Skipulagning verkfallsins hefur veriö I höndum stjórna BSRB og ASt, en framkvæmd verkfallsins er i höndum hvers stéttafélags fyrir sig, s.s. eins og verkfalls- varzla. Afstaða stéttafélaga hefur veriö nokkuö misjöfn, sum hafa hvatt meðlimi sina til þátttöku i verkfallinu önnur eins og t.d. Starfsmannafélag Reykjavikur, Verzlunarmannafélag Reykjavikur og fleiri verzlunár- mannafélög, Sjómannafélag Reykjavlkur, öll félög innan Alþvðusambands Vestfjaröa utan verfcalýösfélagsins Baldurs hafa tilkynnt að ekki veröi af þátttöku. Að öðru leyti er hverjum og ein- um félagsmanni i sjálfsvald sett hvort aö hann taki þátt I verkfall- inu, utan verkalýösfélagsins Dagsbrúnar og Hins Islenzka prentarafélags, þar sem beinlinis hefur veriö boöað til verkfalls. Þaö veröur þvi fyrst I dag, sem þaö kemur i ljós hversu almenn þátttakan er. Starfsmenn útvarpsins tóku þá ákvöröun á fundi i gær að út- varpsáendingar veröi ekki látnar niöur falla, en starfsfólk hvatt til að mæta á útifundinn i dag. Starfsfólk sjónvarpsins haföi ekki ákveðið afstööu sina i gærkvöldi. —Þó að menn greini litilsháttar á um aðgerðir til aö mótmæla þessu, þá rikir fullur einhugur um að mótmæla siöustu aögeröum ríkisstjórnarinnar i efnahags- málum, sagði Baldur Kristjáns- son fulltrúi hjá BSRB i viötali viö blaöiö i gær. Heilbrigðisstarfshópur BSRB hefur rætt um aöstöðu starfs- manna heilbrigðisþjónustunnar til vinnustöðvunar án þess að heilsugæzlu fólks veröi stefnt i voða. Akveöið var að kynna fyrir- liggjandi hugmyndum takmörk— un starfsmannafjölda á skurö-, svæfinga-, og röngten* deildum, draga úr starfrækslu göngudeilda og endurhæfingadeilda, svo og annars staðar, þar sem tima- bundinni fækkun starfsmanna væri unnt að koma viö. Hópurinn beinir þvi til starfs- fólks aö það sjálft ákveöi síg á milli möguleikana um fram- kvæmd þessa á hverjúm stað,. „Starfsræksla ýmissa deilda, t.d. legudeilda veröi i engu skert. Þá er þvi beinlinis beint til alls starfefólks i heilsugæzlu aö þaö reyni að haga svo verkefna skipt- ingu, að sem stærstur hluti starfs- manna geti tekið þátt i útifundi launþegasamtakanna á Lækjar- torgi kl. 2 i dag, segir I frétt frá nefnd fulltrúa frá ýmsum starfs- greinum heilbrigöisþjónustunn- ar. Losun skuldahnútarins bráðabirgðalausn — segir Jón Skaftason alþm. um erfiðleika á Suðurnesj um FI — S1 föstudag mættu þing- menn Reykjaneskjördæmis, ásamt Jóni Sigurössyni hag- rannsóknarstjóra á fundi meö fulltrúa fiskvinnslu og útgeröar á Suðurnesjum Þar var til um ræðu þaö alvarlega ástand, sem fyrir hendi er á svæöinu i fisk- vinnslu og fiskveiöum. Kom fram á fundinum, að frystihús og fiskvinnslustöövar á Suöur- nesjum veröa aö loka dyrum sinum, veröi ekkert aö gert strax. Af þessu tilefni haföi Timinn samband viö Jón Skaftason alþingismann, en Suöurnesjamenn hafa nú faliö þingmönnum Reykjaneskjör- dæmis aö finna leiðir út úr vandanum. Var Jón spurður aö þvi, hver væri raunveruleg staöa þessa máls nú. Staðaner sú, sagöi Jón, aö afli hefur dregizt saman undanfar- in ár við Suö-Vesturland og erfiðleikar útgeröarmanna og eigenda fiskvinnslustöðva eru nú slikir, aö til stöðvunar mun koma á næstu dögum i frysti- húsum og fiskvinnslustöövum veröi ekkert aö gert fljótlega. —Þaö má gjarnan taka fram i þessu sambandi aö fiskveiöar og fiskvinnsla eru undirstöðuat- vinnugreinar á Suöurnesjum. — Astandiö hjá frystihúsun- um og fiskvinnustöðvunum er nú slikt, aö vanskilaskuldir Jón Skaftason þeirra til viöskiptaaöila — aöal- lega á Suöurnesjum, nema 5 — 600 milljónum króna. Þann skuldahnút veröur að leysa, ef ekki á aö koma til stöövunar. — Suöurnesjasvæðið hefur á undanförnum árum búiö viö lakari lánafyrirgreiöslur en ýmis önnur svæöi á landinu, sem er ein ástæöa þess aö nýleg skip hafa verið seld þaðan burtu og fiskiöjuverin hafa ekki fengið þá endurnýjun sem nauðsyn ber til. Jón sagöi aö lokum, að þing- menn væru nú aö athuga leiöir til þess aö leysa þann hnút, sem til væri kominn vegna áöur- nefndra vanskilaskulda. Þar yröi um bráöabirgðaúrlausn aö ræða. Frambúöarlausn beinist aðallega að þvi að athuga möguleika á aukningu á löndun sjávarafla á Suöurnesjum og út- vegun fjármagns til endur- skipulagningar vinnslustööva. Siödegis i gær fóru þingmenn Reykjaneskjörsæmis ásamt fulltrúum Suöurnesja á fund forsætisráöherra, og var sá fundur liöur i þvi að finna bráöabirgöalausn á vandanum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.