Tíminn - 10.03.1978, Side 3
Fimmtudagur 9. marz 1978
3
Jón Oskar fær bók-
menntaverðlaun Gunn-
ars Gunnarssonar
FI — Nýlega voru Jóni Öskari rit-
höfundi veitt bókmenntaverðlaun
Gunnars Gunnarssonar að upp-
hæð þrjú hundruð þúsund krónur.
t tilkynningu úthlutunarnefndar
segir að Jón Óskar hljóti þessa
viðurkenningu fyrir ritstörf sin
yfirleitt. Nefndina skipa Tómas
Guðmundsson,Kristján Karlsson
og Ragnar Jónsson.
Gunnars Gunnarssonar verð-
launin hafa verið veitt einu sinni
áður og hlaut þau þá Hannes
Pétursson.
Jón Óskar rithöfundur
Skrúfudagurinn
- kynningardagur Vélskólans
A laugardag verður hinn árlegi
kynningar- og nemendamótsdag-
ur Vélskólans, skrúfudagurinn.
Er það i sautjánda sinn, sem
gengizt er fyrir slikri kynningu.
Þá gefst væntanlegum nemend-
um — svo og forráðamönnum
hinna yngri nemenda og öðrum,
sem áhuga hafa á, kostur á þvi að
kynnast nokkrum þáttum skóla-
starfsins. Nemendur verða viö
störf i öllum verklegum deildum:
i vélasölum, raftækjasal, smiða-
stofum, rafeindatæknistofu og f 1.,
og munu þeir veita allar upp-
lýsingar um hin margvislegustu
tæki og skýra gang þeirra.
Vélskólanemendur búa sig und-
ir hagnýt störf i þágu fram-
leiðsluatvinnuveganna og má þvi
búast við að marga fýsi að kynn-
ast með hvaða hætti þessi undir-
búningur fer fram, en mjög ör
þróun hefur verið i kennsluhátt-
um skólans siðari ár. Kynning
vélskólanema hefst kl. 13.30 og
stendur til 17.
Viljum fá að
velja og hafna
— en ekki láta bilanir sjá
um það fyrir okkur
JB — ,,Við fórum af stað með
þetta.ég og Birna Lárusdóttir,
vegna þessað ástand i sjónvarps-
málum hefur verið fyrir neðan
allar hellur hjá okkur i allan vet-
ur. Skilyrði eru mjög slæm og
bilarnir tiðar. Við sjáum eigin-
lega aldrei neitt,það er snjókoma
á skerminum og stundum detta
heilu sendingarnarútog erum viö
náttúrulega óánægð með þetta.
Jú, það hafa farið menn frá
sjónvarpinu vestur og þótzt gera
við endurvarpsstöðina , en það
hefur allt farið á sama veg aftur.
Við fáum auðvitað ekkert endur-
sýnt af þvi sem við missum af en
vildum kannski sjá. Sl. laugardag
sáum við t.d. ekki iþróttaþáttinn
og kom sending ekki inn á fyrr en
eftir kvöldmat og eins var með
sunnudaginn. Við viljum ekki
borga fyrir slika þjónustu. Við
viljum lika hafa rétt til að velja
og hafna sjálf hvað við sjáum en
ekki láta bilanir sjá um þaö fyrir
okkur.”
Svo sagðist Erlu Jóhannesdótt-
ur Efri-Brunná i Saurbæ í Dala-
sýslu frá er Timinn hafði sam-
band við hana vegna bréfs sem
ibúar héraðsins hafa samið og
sent frá sér. En i bréfinu segir:
Vegna slæmra skilyrða og tiðra
bilana neitum við undirrituð að
greiða afnotagjöld af sjónvörpum
okkar nema fullnaðarviðgerð fari
fram á endurvarþsstöðinni á
Reykhólum i A-Barðastrandar-
sýslu. Er bréfið undirritað af 27
ibúum hreppsins en það eru jafn-
framt allir sjónvarpseigendur í
Saurbæjarhreppi.
rsnrrmTifTrM TsTI
\t*\\ r nm\ Kll«l
Gunnar Snorrason formaður Kaupmannasamtaka tslands beinir fyrirspurnum til forsætisráðherra
Tfmamynd G.E.
Gunnar Snorrason
endurkjör-
inn formaöur
— á aðalfundi Kaupmanna
samtakanna í gær
ESE — 28. aðalfundur Kaup-
mannasamtaka tslands, var
haldinn á Hótel Sögu i gær. Fyr-
ir fundinum lágu venjuleg aöal-
fundarstörf, auk þess sem Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra,
ávarpaði fundinn og svaraöi
fyrirspurnum.
Fundurinn hófst kl. 10 i gær-
morgun með fundarsetningu, en
að henni lokinni hélt formaður
Kaupmannasamtakanna,
Gunnar Snorrason, ræðu og
bauð fundargesti velkomna. Að
lokinni ræðu Gunnars voru lagö-
ar fram skýrslur og reikningar,
auk þess sem greinargerðir
fluttu Þorvaldur Guðmundsson,
formaður bankaráðs Verzlunar-
banka tslands og Leifur Asleifs-
son, fulltrúi Kaupmannasam-
takanna i stjórn Lifeyrissjöðs
verzlunarmanna.
Eftirtaldar ályktanir voru
samþykktar fyrir hádegis-
verðarhlé i gær:
1. Akvörðun stjórnvalda um aö
lækka verzlunarálagningu i
smásölu er harðlega mótmælt,
og bent er á þá stórfelldu eigna-
upptöku á vörubirgðum verzl-
ana i landinu, sem sifelldar
gengislækkanir hafa i för með
sér.
2. Aðalfundurinn beinir þeim til-
mælum til rikisstjórnarinnar að
verzlunin fái nú þegar endur-
greiddan þann mikla kostnað,
sem hún leggur að mörkum
vegna innheimtu söluskatts.
3. Aðalfundur Kt beinir þeim til-
mælum til Alþingis og rfkis-
stjórnar, að Verzlunarbanki ts-
lands fái nú þegar rétt til sölu á
erlendum gjaldeyri.
4. Fundurinn vekur athygli á þvi
misræmi sem rikir i lánamálum
atvinnuveganna i landinu og
beinir þeim tilmælum til stjórn-
valda að þegar verði sett lög-
gjöf, sem tryggi framgang til-
lagna f é la g a sa m ta k a
verzlunarinnar um lánasjóð
verzlunarinnar og meö löggjöf-
inni verði sjóðnum tryggður
öruggur tekjustofn til frambúð-
ar.
5. Fundurinn beinir þvi enn-
fremur til Alþingis og rikis-
stjórnar, að frumvarp til laga
um verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti
verði afgreitt sem lög á yfir-
standandi þingi.
Að loknu hádegisverðarhléi,
tók Gunnar Snorrason til máls
og bauð forsætisráðherra vel-
kominn til fundarins. Gunnar
sagðist fagna þvi, að forsætis-
ráðherra hefði séð sér fært aö
vera viðstaddur fundinn, þvi að
það væri margt sem félaga i
Kaupmannasamtökunum lang-
aði til að fá svör við. Gunnar
beindi siðan spurningum til for-
sætisráðherra, en gaf honum
þvi næst orðið. Geir Hallgrims-
son flutti ávarp, en að þvi loknu
svaraði hann spurningum
fundarmanna.
Að loknum umræðum var
gengið til kosninga formanns og
varaformanns og voru þeir
Gunnar Snorrason formaður og
Þorvaldur Guömundsson vara-
formaður, endurkjörnir til eins
árs.
Frá aðalfundi Kaupmannasamtaka tslands I gær — Geir Hallgrims-
son forsætisráöherra, svarar fyrirspurnum fundarmanna og Gunn-
ar Snorrason nýendurkjörinn formaður Kaupmannasamtakanna
hlýðir á. TimamyndG.E.
Góður árangur hjá Prjóna-
stofunni Iðunni á alþjóð-
legri sölusýningu
JB —Vikuna 19,- 23. febrúar sl.
var haldin i London prjónavöru-
sýning, International Knitwear
Fair. Fimm islenzk fyrirtæki
tóku þátt i sýningunni, Alafoss
h.f. Les-Prjón h.f., Prjónastofan
Úr söiubás Iðunnar á International Knitwear Fair sýningunni I Lon-
don.
Iðunn h.f., Iðnaðardeild Sam-
bandsins og Röskva. Auk þess
tók umboðsmaður Prjónastofú
Borgarness þátt i sýningunni.
Útflutningsmiðstöðin sá um
skipulagningu vegna sýningar-
innar fyrir flest fyrirtækin.
t fréttatilkynningu frá Út-
flutningsmiðstöð Iönaöarins
segir, að öll nefnd fyrirtæki hafi
eingöngu sýnt ullarvörur nema
Prjónastofan Iðunn sem sýndi
acryl peysur, en einnig peysur
úr svokallaðri „superwash” ull.
„Um helmings söluaukning
varð á ullarvörunni frá sýning-
unni á siðasta ári. Langbeztum
árangri á sýningunni náði þó
Prjónastofan Iðunn með acryl
peysur sinar. Þessi árangur er
ekki einungis eftirtektarverður
fyrir hina góðusölu heldur hefur
prjónastofan Iðunn sýnt fram á
það með góðri hönnun og vand-
aðri vöru, að hægt erað selja til
útflutnings fatnað úr erlendu
hráefni. Þetta er mjög athyglis-
vert, þvi að senn hlýtur að koma
að þvi að islenzka ullin verði
fullnýtt, ef um áframhaldandi
söluaukningu á ullarfatnaði
verður að ræða,” segir i frétta-
tilkynningunni.
öskjuhliða rskóli
Happdrætti
til stuðnings
Öskj uhlíðar skóla
Nú stendur yfir sala á happ-
drættismiðum frá Foreldra- og
kennarafélagi öskjuhliðarskóla.
öskjuhliðarskóli er hæfingar-
skóli fyrir þroskaheft börn. Skól-
inn tók til starfa i þeirri mynd
sem hann er nú haustið 1975. Enn-
þá er aðeins lokið fyrsta áfanga
byggingarinnar og þrengsli mikil
og margt sem vantar.
Foreldrafélagið vill með fjár-
söfnun sinni stuðla að framgangi
■og uppbyggingu skólans. Einnig
mun foreldrafélagiðgangast fyrir
sumardvöl fyrir nemendur skól-
ans.
Happdrættismiðarnir eru til
sölu i Bókabúð Glæsibæjar. Einn-
ig sjá nemendur skólans og að-
standendur þeirra um að selja
miðana.