Tíminn - 10.03.1978, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 10. marz 1978
•♦♦•♦♦♦♦♦♦•♦♦♦•♦•♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
♦♦♦♦ ♦♦♦♦
---
Fiðlusnillingur frá Suður-Kóreu
Stúlkan hér á myndinni heitir Myung Wha-Chung. Hún er 29 ára og
Suður-Kórea er hennar heimaland. öll systkini hennar sex heita að for-
nafni Myung-Wha sem gæti útlagzt þvi sem næst „sem björt og skinandi
stjarna”. Hún segir: —Heima i minu landi sækja foreldrar ekki nöfnin á
börnin sin i simaskrána. Þeir spyrja sérfræðing eða bara stjörnuspámann.
Hvað viðvikur fornafninu á ungfrú Chung, Kyung-Wha, virðist það hafa
hitt maglann á höfuðið, það gæti þýtt samhljómur landsins. Stórblaðið
Daily Telegraph i London sagði eftir fiðluhljómleika sem hún hélt i þar, að
nú hefði hún fest nafn lands sins á landakort hljómlistarinnar. Ungfrú
Chung meðhöndlar fiðluna sina, sem er Guarneri del Gesu, 250.000 dollara
virði, með slikum glæsibrag, að jafnvel 120 hljómleikar á ári fullnægja
ekki eftirspurn.Ungfrú Chung er dóttir veitingahússeiganda i Seoul fór að
læra á piano fjögurra ára gömul, en komst ekki upp á lagið með svona
ásláttarhljóðfæri. Einn frændi hennar gaf henni barnafiðlu og þá sagðist
hún hafa lært meira á 4 vikum en á tveimur árum áður. Og nákvæmlega 8
mánuðum siðar vann hún 3ju verðlaun á landsmóti. Þegar hún var 12 ára
fór hún i hljómleikaferð til Japan á vegum lands sins. Næstu 10 árin var
hún i Juilliardtónlistarskólanum i New York, kennari hennar á fiðlu var
fiðlumeistarinn Ivan Galamian. Hann gerði miklar kröfur og hún þrælaöi i
að æfa sig a.m.k. 9 klst. á dag. Þá vann hún ásamt með Pinchas Zukerman
frá Israel fyrstu verðlaun i hinni virðulegu Leventritt samkeppni. Þrátt
fyrir allt þetta varð hinn heimsfrægi stjórnandi André Previn i London
hálffúll, þegar Kóreustúlkan varð með stuttum fyrirvara staðgengill lista-
manns sem veiktist á siðustu stundu. Það var 13. mai 1970. Eftir að hún
hafði leikið Tschaikowski-konsert sagði Previn: — Ég vil að sjálfsögðu fá
yður aftur. Og siðan hefur allt gengið vel. Ungfrú Chung og Previn hafa
leikið saman og gefið út á plötu verk eftir Max Bruch, Peter Tschaikowski,
Jean Sibelius, Henri Vieuxtemps, Camille Saint-Saens og Serge
Prokofieff. Og sjálfsöryggi hannar hefur aukizt. Hér með eru 2 myndir,
önnur af Kyung Wha fiðluleikara, einni, en á hinni er hún meö tveimur
systkinum sinum, pianistanum MyungWhun og sellóleikaranum Myung-
Wha.
Þetta er örþrongW Kannski s?
sprunga! Og myrk
sem hel!
J betra a6 senda Y
tölvustýr6a vélfiskiö'
á undan! ,
0O0 FvjrrA*,
DREK!
SVALUR
KUBBUR
ir >
dótiö hans varö eftir
hér í bátnum!
HVELL-GEIRI