Tíminn - 10.03.1978, Qupperneq 11

Tíminn - 10.03.1978, Qupperneq 11
Föstudagur 10, marz 1978 n Vill helzt af öllu verða bóndi. . . Guðbjörg Guðmundsdóttir er nemandi i búfræðideild Bænda- skólans á Hvanneyri. Þar sem hún er úr Reykjavik var forvitnilegt að vita hvernig áhugi hennar á búfræðinámi varð til. Hún sagðist hafa verið i sveit á hverju sumri frá barns- aldri og þess utan alltaf þegar tækifæri hefðu gefizt til, þvi hún kynni hvergi betur við sig en i sveit, við sveitastörf. bvf hefði hún fengið áhuga á bændaskól- anum og væri mjög ánægð með veru sina þar. Námið er skemmtilegt og fjörugt félagslif i skólanum, sagöi Guðbjörg. Nemendahópurinn er að vísu svolitið sundurleitur i byrjun en fljótlega er orðið heimilislegt á staðnum. Hún var spurð, hvort munur væri á afstöðu nemenda úr dreifbýli og þéttbýli, til skólans. Taldi hún að þeir, sem kæmu úr þéttbýli, ættu oft erfiðara i byrj- un með, að aðlagast reglum skólans, t.d. um útiveru og háttatima. Væri það eðlilegt, þvi margir væru vanir að ráða fritíma sínum að mestu sjálfir áöur en i skólann kemur og væri þvi mikil breyting að þurfa allt i einu að hlíta reglum sem gilda i heimavistum. I sambandi við tómstundir er breytingin einnig mikil fyrir þá t.d., er vanir væru að eyöa sinum tómstundum að miklu leyti utan heimilis. t heimavistarskóla er litið hægt að fara. Fólk verður að finna sér áhugamál innan skólans. Þarna standa þeir betur að vigi er áður hefðu tekið þátt í félagslífi, t.d. skátastarfi. Skapast því mikið félagslíf i skólanum og margt er hægt að hafa fyrir stafni, I ffistundun- um. Það er spilað, teflt og sung- ið. Lika er margskonar klúbba- starfsemi. Einnig má nefna að margir eru með góð hljómflutn- ingstæki með sér, og lána þau gjarnan til að hafa „Diskótek”. Sjónvarp er auðvitað I skólan- um, en ekki er mjög mikið horft á það. Um framtiðarfyrirætlanir sfnar i námi og starfi sagði Guðbjörg að flest væri óráðið ennþá. Hún taldi óliklegt að hún færi i framhaldsnám i búvísindadeild. En bændaskól- inn væri góður undirbúningur fyrir garðyrkjuskóla eða eitt- hvað styttra framhaldsnám erlendis. Helzt af öllu vildi hún gerast bóndi, en taldi mjög ólíklegt að af þvi gæti orðið vegna þess hve gifurlega kostnaðarsamt það er að hefja búskap í sveit. Liklega yrði þetta þvi aðeins draumur. Guðbjörg Guðmundsdóttir 1 heimsókn i Bændaskólann að Hvanneyri_ nýlega vakti það athygli bláðamanns, að einn kennari skólans er nefndur tóm- stundakennari. Þótti áhugavert að fræðast meira um þann þátt skólastarfsins. Trausti Eyjólfsson hefur verið tómstundakennari frá hausti 1972. Hafði þá vaknað áhugi kennara skólans á þvi að hafa einn ákveðinn kennara til að sjá um félagsstarfið i skólanum. Var Trausti ráðinn f eitt ár. Þótti þetta gefast svo vel að áfram var haldið á sömu braut. Starf tómstundakennara felst i þvi að aðstoða nemendur i margs konar félagsstarfi, vekja áhuga þeirra á ýmsum félags- störfum, kenna fundarsköp og ræðumennsku og félagsmál landbúnaðarins. Margt er gert i tómstundum á Hvanneyri. Þar er málfundafél- ag, taflfélag, bridgefélag og hestamannafélag, en nemendur mega koma með hesta sfna með sér ef þeir vilja. Þá má nefna leiklistarklúbb, ferðaklúbb um skoðunarferðir og fjallgöngur, og bændaskólinn, hafa haldiö uppi félagslegum samskiptum í mörg ár og er það orðin hefð. Siðan, veturinn 1973 héfur Hvanneýrarskólinn staðið fyrir svonefndri „Marzhátið”. Er þaö skemmtun sem nemendur hafa veg og vanda af. Boðið hefur verið ibúum tveggja til þriggja nærliggjandi hreppa, ásamt námsmeyjum frá Varmalandi, sem einnig hafa lagt dagskránni lið. Andakílshreppur hefur lán- að félagsheimilið Brún endur- gjaldslaust fyrir þessa hátíð. Mikil vinna hefur legið á bak við þetta, en ánægjan hefur lika verið mikil þegar allt heppnaát vel, eins og verið hefur. Trausti sagði það mjög ánægjulegt að vinna með nemendum og áleit þá einnig hafa bæði gagn og gaman af fél- agslegu starfi, er á reyndi. Oft vantaði aðeins einhvern til að hvetja til dáða, og það er starf tómstundakennarans. Hann á ekki að sjá fólki fyrir skemmt- unum, Heldur benda á leiðir og aðstoða við hugmyndir og fram- kvæmdirNþeirra. HEI Myndin er tekin á leiksýningu, er nemendur á Hvanneyri stóðu fyrir á „Marz hátiö” s.l. vetur. ljósmyndaklúbb og kvikmynda- klúbb. Ekki má heldur gleyma söngnum, mikið er sungið. Framhaldsskólarnir f Borg- arfirði, þ.e. Samvinnuskólinn, húsmæðraskólinn á Varmalandi Trausti Eyjólfsson, tómstundakennari. Grani — hestamannafélag nemenda á Hvanneyri. Fjörugt félags- líf á Hvanneyri Opinberar byggingar í Reykjavík merktar Úr hinum nýju salarkynnum f Sigtúni. Ný hæð opnuð í Sigtúni JB — Þeir sem lögðu leið sina i Sigtún um helgina munu hafa komizt að raun um að búið er að stækka húsnæðið þar, þ.e. að inn- rétta hæöina fyrir ofan með tilliti til skemmtanahalds. Von er á enn frekari stækkun þarna i næstu framtið, þvi að þetta húsnæði sem nú var opnað var aðeins fyrri áfangi af tveim. Nýi salurinn rúmar 355 manns en neðri hæðin 953. Er hann hólfaður meðskilrúmum og handriöum og hefur verið komið fyrir dansgólfi, börum, salernum og grilli. Upp- gengt er af neðri hæðinni á tveim stöðum. Grillið er nýjung i þessu tilfelli og veröur það opið fram eftir kvöldi. Onnur nýbreytní samfara þessari stækkunersú, að sögn Sigmars, að hann ætlar að reyna að hafa opið á kvöldin fyrri part vikunnar. Sigmar Petursson er Reykvik- ingum vel kunnur úrskemmtana- hússbransanum, en hann hefur rekið skemmtistaði i borginni i áraraðir. „Eftir sjö ár mun ég eiga tuttugu ára afmæli sem veit- ingamaður, og ætli það séu þá ekki um nitján ár frá þvi ég hefði átt að leggja upp laupana i brans- anum”,sagðihannkimileitur. En þrátt fyrir þessa umsögn hans bendir ekkert til þess að hann ætli sér að hætta á næstunni, þvi að þessi viðbót hans nú, er bara byrjuniná miklu verki. Aö þvi er Sigmar sagði, þá langar hann til aö sjá hverja hæðina risa upp af annarri þar sem Sigtún er og stefnir hugurinn það hátt, að einhvertima i framtiðinni verði þarna veitingahús upp á 7-8 hæð- ir. Sagðist Sigmar hafa byggt grunn hússins með þetta fyrir augum, en hann léti sér sjáltum þó sjálfsagt nægja 1-2 hæðir til viðbótar,hitt eftirléti hann afkom- endum. A fundi borgarstjórnar Reykjavikur 16. febrúar sl. flutti Kristján Benediktsson eftirfarandi tillögu sem samþykkt Var einróma: „Borgarstjórn samþykkir að láta hanna sérstakt skilti, er notað verði til að merkja opin- berar byggingar i borginni, svo sem skóla, sundstaði, dag- vistunarstofnanir o.fl. A skiltinu verði tilgreint m.a. heiti stofnunar og hvers konar starfsemi þar fer fram. Skiltum þessum verði komiö fyrir, þar sem aðalaðkoma aö viðkomandi byggingu er.” Kristján sagði m.a., er hann mælti fyrir tillögunni, að með henni væri stefnt að þvi að gera borgina aðgengilegri og mennilegri bæði fyrir ibúa hennar og gesti, sem að garði bæri. Þær stofnanir, sem eink- um væri um aö ræða, væru skólar, dagvistarheimili, heilsugæzlusiofnanir, sund- staðir o.fl. Taldi Kristján að taka þyrfti fram á merkiskilti, hvers kon- ar stofnun um væri aö ræða og hvaða starfsemi þar færi fram. Einnig mætti geta um, hvenær byggingin var reist og hver hannaði hana. Þá þyrfti sums staðar að geta um opnun artima, t.d. við sundstaöi. Kristján taldi að þessar merk- ingar ættu ekki aðeins að ná til stofnana og bygginga i eigu borgarinnr sjálfrar heldur einnig, þótt eignaraðild og rekstur væri i höndum ann- Kristján Benediktsson arra svo sem rikis eöa ein- stakra félagssamtaka. Markús örn Antonsson tók til máls af hálfu meirihlutans og tjáði sig mjög samþykkan tillögunni og þeim atriðum, sem fram hefðu komið i ræðu Kristjáns. Þess má geta að þegar er hafinn undirbúningur að þvi að framkvæma tillöguna. M$rkús örn Antonsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.