Fréttablaðið - 15.08.2006, Side 42
15. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
menning@frettabladid.is
!
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í ágúst og september
Laugardagur 19. ágúst kl. 20 uppselt
Sunnudagur 20. ágúst kl. 15 örfá sæti laus
Sunnudagru 20. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 25. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 26. ágúst kl. 15 uppselt
Laugardagur 26. ágúst kl. 20 uppselt
Laugardagur 2. sept kl. 20
Sunnudagur 3. sept kl. 15
Sunnudagur 3. sept kl. 20
KVÖLDVERÐARTILBOÐ
Tvíréttaður matur og
leikhúsmiði 4300 - 4800
Pantið miða tímanlega í síma
437 1600 Staðfesta þarf miða
með greiðslu viku fyrir
sýningardag.
> Ekki missa af...
fyrstu einkasýningu Hel-
enu Hansdóttur, „Éta“, í
Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Þar má sjá vídeógjörning,
innsetningu og ljósmyndir,
alla daga milli klukkan tíu
og átján.
Fullkomnu brúðkaupi
Leikfélags Akureyrar sem
sýnt er í Austurbæ. Allra
síðustu sýningar eru á þessu
sívinsæla leikriti nú í ágúst.
yfirlitssýningu um Louisu
Matthíasdóttur sem stend-
ur yfir í Listasafni Akureyr-
ar. Sýningin stendur fram til
20. ágúst svo ekki er mikill
tími til stefnu.
Tónar fortíðarinnar fá að
hljóma í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í kvöld. Barokk-
hópurinn Teneritas flytur
þá verk eftir sautjándu- og
átjándu aldar tónskáld en
hópinn skipa þau Hanna
Loftsdóttir á gömbu, Ólöf
Sigursveinsdóttir sem leikur
á barokkselló og Fredrik
Bock lútuleikari.
Flutt verða verk eftir tón-
skáldin Alexis Magito, Fran-
çois Couperin, Marin Marais,
Gaspar Sanz og Johann
Sebald Triemer. „Þetta er allt barokktónlist og eru
tónskáldin frá fjórum löndum, einn ítalskur, annar
þýskur, tvö frönsk tónskáld og einn spænskur,“ segir
Hanna Loftsdóttir gömbuleikari og bætir við að
efnisskráin hafi því yfir sér nokkuð alþjóðlegan brag.
Löndin hafa sín sérkenni og eru frönsk tónskáld á
efnisskránni til að endurspegla
vinsældir gömbunnar þar í
landi á barokktímanum, á
meðan barokksellóið var vin-
sælla á Ítalíu sem einnig hefur
sinn fulltrúa á tónleikunum í
kvöld. „Spænska verkið er svo
einleiksverk fyrir barokkgítar
enda var gítarinn mjög vinsæll
á Spáni,“ segir Hanna.
Gamba og barrokkselló
eru hljóðfæri sem sem njóta
sívaxandi athygli hér á landi
en Hanna segir að fyrir um tíu
árum hafði gamba varla sést
á Íslandi. „Lútuleikarinn mun líklega bæði leika á
barokkgítar og erkilútu sem eru einnig hljóðfæri
sem sjást ekki svo mikið,“ bætir Hanna við.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar og er aðgangseyrir 1.500
krónur.
Alþjóðlegir barokktónleikar
LEIKIÐ Á BAROKKSELLÓ OG GÖMBU Barokk-
hópinn Teneritas skipa þær Ólöf Sigursveins-
dóttir, Hanna Loftsdóttir og Fredrik Bock
lútuleikari.
Kl. 20
Tékkneski tónlistarhópurinn
Musica ad Gaudium, ásamt
óbóleikaranum Eydísi Franz-
dóttur, heldur tónleika í Reyk-
holtskirkju í Borgarfirði.
Íslenskur áhugaljósmyndari
nýtur gríðarlegra vinsælda
á internetsamfélaginu
Flickr.com og vinnur að
samningi við bílaframleið-
andann Toyota.
Rebekka Guðleifsdóttir er að mestu
leyti sjálflærður ljósmyndari og
búin að klára eitt ár í myndlistar-
deild Listaháskóla Íslands. Hún
tekur myndir af sínu nánasta
umhverfi, fjölskyldu sinni og
íslenskri náttúru, sem hún deilir
svo með Flickr-netsamfélaginu.
Myndir hennar hafa vakið mikla
athygli á netinu, og lengra, því
erlendir fjölmiðlar ásamt stórfyrir-
tækinu Toyota eru áhugasamir um
þennan unga íslenska ljósmyndara.
„Þetta hefur allt komið til í gegn
um Flickr því ég hef ekkert sér-
staklega verið að reyna að koma
mér á framfæri,“ segir Rebekka.
Fyrir ári síðan birtust eftir hana
myndir í bandarískri bók og þá var
hún mjög hissa að einhverjir skyldu
hafa áhuga á að nota myndir eftir
hana. Erlendir fjölmiðlar fóru að
sýna Rebekku áhuga fyrir nokkru
og birtist meðal annars umfjöllun
um hana í þýska blaðinu Der Spiegel
og minnst á hana í Sunday Times.
„Ég vissi ekkert af þessu tvennu
fyrirfram, en eftir það hafði sam-
band við mig blaðamaður frá The
Wall Street Journal og svo bara núna
um helgina hringdi The Observer og
tók ítarlegt viðtal við mig.“
Flickr-samfélagið er að sögn
Rebekku ekki óskylt MySpace-
netsamfélaginu, en þar koma saman
fjórar milljónir ljósmyndara og
deila myndum og hugmyndum.
„Flickr virkar líka svipað og
MySpace að því leyti að þú bætir
fólki við á kontakt-lista byggir upp
hóp af fólki sem fylgist með þér. Þú
fylgist með þeim líka og finnur
aðra kontakta í gegn um þá. Fólk er
að setja inn ljósmyndir og umræð-
an er um ljósmyndun, þar sem allt
frá áhugafólki til atvinnuljósmynd-
ara taka þátt,“ segir Rebekka.
Erlendu fjölmiðlarnir hafa ekki
sparað stóru orðin um Rebekku og
kallaði The Wall Street Journal
hana meðal „Web’s Top Photograp-
her“ og setti hana á topp tuttugu
lista yfir þá sem vert væri að líta
eftir á netinu. Flickr-síða Rebekku
sýnir líka glöggt hversu mikilla
vinsælda hún nýtur því tugir manna
hafa lýst skoðunum sínum á hverri
einustu mynd sem hún hefur sett á
síðuna. Á nýlegum opinberum lista
segist Rebekka líka hafa séð að
hennar síða væri vinsælasta Flickr-
síða allra tíma. „Þetta kom mér svo-
lítið á óvart enda áttaði ég mig ekki
á því hvað þetta væri orðið stórt.
Þetta er svo rosalegur fjöldi fólks
og mikið af myndum þarna inni.
Maður er bara svo mikill Íslend-
ingur, jarðbundinn og hógvær, að
manni finnst þetta eiginlega bara
fyndið,“ segir hún.
Í viðtali The Guardian við
Rebekku kemur fram að hún sé
búin að landa samningi við bíla-
framleiðandann Toyota. „Ég get
ekki rætt nein smáatriði um þetta
enda er allt bara í vinnslu,“ segir
Rebekka um samninginn. Hún við-
urkennir þó að eitthvað sé í start-
holunum og segir að von sé á frek-
ari fréttum innan skamms.
Aðspurð um hvað annað sé á döf-
inni hjá henni segist hún vera að
vinna að sölu á myndunum sínum á
netinu. „Það hefur verið mikil eftir-
spurn eftir að kaupa myndirnar
mínar erlendis frá svo ég fór að
íhuga verslun á netinu. Töluverð
vinna fylgir að setja það upp svo
það gerist bara þegar ég hef tíma
til þess og ég fæ einhvern með mér
í vinnuna,“ segir Rebekka.
Áhugasamir geta litið á myndir
Rebekku á síðunni www.flickr.
com/photos/rebba.
annat@frettabladid.is
Besti ljósmyndari netsins
REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR Vinsældir ljósmyndarans Rebekku Guðleifsdóttur eiga rætur sínar að rekja til netsamfélagsins Flickr.com þar
sem síða Rebekku er sú vinsælasta allra tíma. MYNDIR/REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR
LETTING GO... Rebekka tekur helst myndir úr sínu nánasta umhverfi og er eldri sonur henn-
ar myndefnið á þessari mynd.
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Næstu sýningar:
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU
17. ágúst - kl.20:00 - Uppselt
18. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
24. ágúst - kl.20:00 - Örfá sæti
25. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
31. ágúst - kl.20:00 - laus sæti
01. sept - kl.20:00 - laus sæti
Sýningartími er kl 21:00
Leikrit byggt á óborganlegri sögu
tímaritins Íslensk fyndni verður
frumsýnt á sviðslistahátíðinni Art-
Fart í kvöld kl. 22. Verkið heitir
„Íslensk fyndni lol djók“ en þar
segir af dæmalausri upprisu
Gunnars Sigurðssonar frá Sela-
læk og leitinni að hini sönnu
íslensku fyndni.
Árni Kristjánsson, höfundur og
leikstjóri verksins, heillaðist af
skrifum Gunnars, útgefanda tíma-
ritsins sem þekktast er fyrir að
vera næsta ófyndið, en þessi
húmoríski bóndi og lögmaður lagði
sitthvað á sig við að staðfesta þá
trú Íslendinga að þeir gætu verið
alveg jafn sniðugir og aðrir. „Hann
hangir endalaust í því að gefa út
þessi rit,“ segir Árni og útskýrir
að á árunum 1933-62 hafi Gunnar
staðið í hálfgerðri krossferð með
útgáfu sinni sem þó var misheppn-
uð því fáir skildu grínið enda varð
höfundurinn að ritskoða brandar-
ana og mátti ekki láta uppi nöfn
þeirra sem skensið snerist um.
Við sögu leikritins koma þjóð-
þekktir aðilar eins og utanríkis-
ráðherra og sjálfur almáttugur
guð enda er íslenskt grín graf-
alvarlegt mál. - khh
Ekkert skens
ÍSLENSK FYNDNI ER GRAFALVARLEGT MÁL
Leikhópinn B8 skipa Elísabet Eyþórsdóttir,
Árni Kristjánsson, Erlingur Einarsson og
Benedikt Karl Gröndal. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR