Tíminn - 11.04.1978, Síða 2

Tíminn - 11.04.1978, Síða 2
T Þriðjudagur 11. april 1978 Wmrnm ísraelsher kallaður nokkra kílómetra heim á leið Tel Aviv/Reuter. Nú eru liðnar fjórar vikur frá innrás ísraels- manna i Suður-Libanon og i dag munu fyrstu hermennirnir snúa heim á leið og afhenda friðar- gæzluliði Sameinuðu þjóðanna hin nýherteknu svæði. Her- mennirnir munu færa stöðvar sinar tvo til sjö kilómetra til baka, en það er langt frá þvi að vera i samræmi við kröfur Sam- einuðu þjóðanna, sem farið hafa fram á að Israelsstjórn kalli heim allt herliðsitt i Suður-Libanon. 14. april munu hermenn tsraelshers verða kallaðir enn lengra til baka, en þrátt fyrir það verður umtalsverður hluti Suður-Liba- nons enn i höndum Israelsmanna. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur gert ráðamönnum i Israel ljóst, aðhann telji brottkvaðningu hersins alls ófullnægjandi. Begin forsætisráðherra hefur svarað þvi til, að þegar tsraelsmenn telji tryggt að gæzlulið Sameinuðu þjóðanna geti tekizt á við hugsan- lega innrás Palestinuskæruliða, verði allt israelskt herlið á brott frá Suður-Libanon. tsraelsmenn gerðu innrásina i Libanon i þeim tilgangi að brjóta á bak aftur alla starfsemi palestinskra skæruliða i Suður-Libanon. A morgun munu hermennirnir verða á brott frá einu af umdeildustu svæðunum. Þeir verða á brott frá svæði um- hverfis bæinn Marjayoun, en þar eru flestir ibúanna kristinnar trú- ar. Herinn mun þó ekki verða á brott úr bænum sjálfum. Það er á þessu svæði, sem hermenn f riðar- gæzluliðsins hafa orðið fyrir skot- árásum frá Beaufort kastala, en þaðer gamalt krossfaravirki sem Palestinumenn hafa á valdi sfnu. Erfiðlega gengur að fá stjórn- Salisbury/Reuter. Bráðabirgða- stjórnin i Ródesiu hafnaði i gær tillögum Bandarikjamanna og Breta um að teknar verði upp við- rseður um Ródesiumálið með þátttöku allra málsaðila, þar á meðal foringja þjóðernissinnaðra skæruliðasamtaka. Stjórnin lét hins vegar það boð út ganga, að vel mætti halda uppi umræðu um málið. Yfirlýsingin kom frá stjórninni eftir að fulltrúar hennar höfðu setið á fjögurra klukkustunda fundi með sendimönnum stjórna Bretlands og Bandarikjanna. völd ýmissa landa til að senda hermenn í friðargæzluliðið, og vantar þvi enn mikið á að i liðinu séu 4.000 menn. Um helmingur liðsins er kominn til S-Libanon. Stjórn Mexikó er meðal þeirra sem hætt hafa við að senda menn til vigstöðvanna. Við þetta bætist, að yfirvöld i Israel segja að það verði að reyna á styrk liðs S.Þ. Bráðabirgðastjórnin var mynduð eftir undirritun samkomulags milli lans Smith og þriggja leið- toga blökkumanna, en hún hefur hlotiö mikla gagnrýni frá ródes- iskum þjóðernissinnum erlendis Bonn/Reuter 1 gær kom kommúnistaleiðtoginn Gustav Husak til Vestur-Þýzkalands, en hann verður þar i fjóra daga i op- inberri heimsókn. Þetta er fyrsta heimsókn Husaks til lands sem aðild á að NATO. Leiðtogar i Bonn segjast fagna heimsókninni, og telja hana veita tækifæri til að koma á bættum samskiptum milli rikjanna. Margir andstæðingar stjórnar- innar iPraghafa hins vegar tekið heimsókn Husaks sem kærkomnu tækifæri til að draga fram i dags- ljósið brot á mannréttindum Tékkóslóvakiu. Um það bil 120 þúsund manns flýðu frá Tékkó- slóvakiu eftir innrás Sovétrikj- anna 1968 og fóru flestir þeirra til Vestur-Þýzkalands. 1 gær ræddi Husak við forseta Vestur-Þýzkalands, Walter Scheel, en utanríkisráðherrar rikjanna sátu á öðrum fundi, og var sagt að viðræður hefðu verið vinsamlegar.- Stjórnmálasamtök hafa orðið til þess að gagnrýna heimsóknina og segja það smekkleysu að bjóða tékkneska leiðtoganum heim tiu árum eftir innrás Sovétmanna i Tékkóslóvakiu. Samtök ungra sósialdemókrata hafa farið þess á áður en unnt verði að kalla tsra- elsher heim, og virðast st jórnvöld vantrúuð á að svo muni fara i ná- inni framtið. Innrásin i. Suður-Libanon hefur mætt mikilli gagnrýni i tsrael en einnig telja margir landsmanna að herinn sé dreginn til baka alit of fljótt, áður en honum hafi tekizt að ná settu marki. t tilkynningu stjórnarinnar sagði, aðnú skiptimestu að fylgja eftir samkomulaginu er náðist 3. marz, og þess vegna væri ekki æskilegt að hefja viðræður eins og málin stæðu. leit við Helmut Schmidt að hann biðji Husak um að láta lausaalla pólitiska fanga i Tékkóslóvakiu. Gagnrýni á Husak kom einnig frá fólki af þýzkum ættum er býr i Tékkóslóvakiu og segir það að ekki hafi verið staðið við gefin lof- orð um aðleyfa þeim, er vilja, að flytja á brott frá landinu. Mér brá, en hefði glaðzt ef trúa mætti þvi sem ég las i kosninga- ávarpi oddvitans okkar i Morgun- blaðinu, en þar segir hann fjár- hagsstöðu Hveragerðishrepps trausta. Þetta segir fjölskyldu- faðirinn, þegar við hinir i fjöl- skyldunni stöndum i þeirri trú, að varla sé til salt i grautinn. Ekki blasir heldur rikidæmið við þeim fjölmörgu gestum, er leið eiga um Hveragerði. Ég vænti þess að oddvitinn, Hafsteinn Kristinsson, muni skýra fyrir okkur fjöl- skyldumeðlimunum hvers vegna hann hafi dulið okkur hinn trausta fjárhag. Þaö er nefnilega svo, að við eigum i fórum okkar oska- lista, sem við einfaldlega höfum talið tilgangslaust að sýna. Við höfum jafnvel ekki Enn eitt strand ESE—Aðfaranótt s.l. sunnudags, strandaði Bjargey SH 230 við Keflavikurbjarg á milli Helii- sands og Rifs á Snæfellsnesi. Fljótlega eftir strandið tókst Skarðsvik SH 205 að ná Bjargeyju á flot og reyndist báturinn litið skemmdur. Þar sem strandið varð.er fjara mjög stórgrýtt og þvi mikil mildi að ekki fór verr, en menn þakka mjög hagstæðu veðri á strand- stað að björgun tókst svo giftu- samlega, en þess má geta að 8 manna áhöfn bátsins var aldrei i hættu. Starfsmenn hjá tannlækn- um stofna stéttarfélag Stéttarfélag starfsfólks tann- lækna var stofnað laugardaginn 8. april sl. Tilgangur með stofnun félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og semja um kaup og kjör við tannlækna. A fundin- um gengu i félagið á annað hundrað manns. Þessi starfshóp- ur hefur ekki verið i samtökum launafólks fram til þessa og rikti þvi mikill áhugi og einhugur á stofnfundinum. Formaður félags- ins var kjörin Erla Ingólfsdóttir. undrazt þó að margt væri látið drabbast nið- ur og um margt væri illa, háif eða ekkert hirt. Við höfum jafnvel talið eðlilegt að útborgun launa dræg- ist þó að sumir hafi reiðzt ef út- borgun launa hefur dregizt úr hófi fram. En allt þetta hefur verið af- sakað með fátæktinni, sem þú út- skýrðir svo vel sjálfur, að væri vegna þess að hér væru engir toppar i skattgreiðslunni, heldur aðeins smágreiðendur. Þetta skildu flestir hér i Hveragerði, enda alveg satt hjá þér. Hér greiða margir of litið. Ef ég vissi ekki hvilikur hóf- semdarmaður þú ert, hefði mér helzt dottið i hug það sama og stráknum, sem óvænt fékk hundraðkall hjá pabba sinum, nú er pabbi fullur, en það er eitthvað annað og verra, sem kemur þér til að segja þetta. Frá þvi skýrir þú okkur auðvitað nánar fyrir kosningar. Hér ætlaði ég að láta staðar numið, en þá rakst ég á viðtal við þig i nýjasta hefti Frjálsrar verzlunar, þar sem þú þylur úr skjóðu þinni svo magnaða þvælu um atvinnumál okkar Hvergerð- inga og fleira, aö full ástæða væri aðskrifa þar um langt mál. Vil ég aðeins nefna fáein dæmi. 1. Þú telur garðyrkju uppistööu atvinnulifsins i Hveragerði. 2. Þú segir ekkert atvinnuleysi I Hveragerði, þó skýrir þú frá i nefndri grein, að 45 Hvergerðing- ar vinni i Reykjavik og viðar. 3. Hvers vegna nefnir þú ekki stærsta atvinnufyrirtækið hér i upptalningu þinni á fyrirtækjum i Hveragerði? 4. Þú segir að hreppurinn sjái bara um þá venjulegu þjónustu sem sveitarfélög þurfa að veita. Hefur Hverageröishreppur gert það? Hvers vegna skýrir þú ekki frá staðreyndum i hitaveitumál- inu i stað þess að þegja um þaö? Svona mætti lengi telja, en ég tel ekki ástæðu til að fara lengra að sinni, þvi við Framsóknar- menn skorum á þig til almenns fundar um þessi mál og fleiri, I Hveragerði, sem allra fyrst. Hjálparmenn máttu velja úr röð- um flokksmanna þinna og mun ég gera hið sama. Nefndu okkur stað og stund. Hveragerði 10.04.78 Páll Þorgeirsson, ritari Framsóknarfélags Hvera- gerðis. Jörð í Eyjafirði Vil kaupa eða taka á leigu jörð i Eyjafirði. Þeir eigendur jarða þar, sem hafa áhuga á sölu eða leigu, sendi upplýsingar á af- greiðslu Timans, merkt, Jörð i Eyjafirði, 1281. Diselrafstöð Til sölu 50 k.w. Caterpillar rafstöð, 220-380 volt, 50 rið. Upplýsingar i sima 4-16-68 eða 4-22-60. Pípulagningaþjónusta Getum bætt við okkur verkefnum i ný- lögnum, viðgerðum og breytingum, ger- um verðtilboð ef óskað er. Vatnslagnir s/f simar 86947 og 76423 Skúli M. Gestsson.Löggiltur pipuiagningumeistari. Ef til hags menn leita iax látið strax mig heyra. Si/ungsnet ég einnig get útvegað og fieira. ÖIMUIMDUR JÓSEPSSON, Hrafnistu 3.hæð, herb. 426. Ævin týralínan ■ - -í' . Antik-eik Fura Eik FALLEG FERMINGARGJOF Svefnsófar Greiðs/uski/má/ar Sendum hvert á land sem er Sérhannað Islenzkt Haghvæmt Litað og ólitað Laugavegi 168, simi 28480 inngangur frá Brautarhoiti Opið 2-6 aiia daga Laugardaga 10-12 Ródesíustjórn: Hafna tillögum Breta og Bandaríkjamanna Stjórn Husaks gagnrýnd „Ef ég væri ríkur”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.