Tíminn - 11.04.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.04.1978, Blaðsíða 6
6 Wmrnm Þórarinn Þórarinsson: Allt bankakerfið verði endurskoðað Þriöjudagur 11. april 1978 alþingi — þ.á.m. Seðlabankinn, stofnlánasjóðir, sparisjóðir, hlutafjárbankar o.fl. Frumvarp Lúðviks Jósepssonar um við- skiptabanka rikisins var til framhalds fyrstu um- ræðu á fundi neðri deild- ar Alþingis i gær. Til máls tóku Þórarinn Þór- arinsson (F), Jón Skaftason (F) og Frið- jónÞórðarson (S). Sagði Þórarinn Þórarinsson að skoðun sin væri ó- breytt frá þvi að frum- varp Lúðviks var lagt fram sem stjórnarfrum- varp árið 1974, og hann teldi að stuðla ætti að fækkun lánastofnana, m.a. með sameiningu rikisviðskiptabanka. Sér þætti vel koma til greina að fækka þeim i einn eða tvo i stað þriggja sem nú er. Minni ástæöa væri nú en áöur aö hafa rikisviöskiptabankana fleiri en einn, þar sem til væru komnir hlutafjárbankar, og vel kæmi jafnvel til greina aö fækka þeim samtimis, t.d. meö samein- ingu Iönaöar- og Verzlunarbanka og Samvinnubankans og Alþýöu- bankans. Þá sagði Þórarinn aö mál Seölabankans þörfnuðust oröiö endurskoðunar. Seölabankinn hefði þróazt nokkuð ööruvisi en ætlazt var til i fyrstu. Athyglis- verð staðreynd væri þaö aö starfsmenn þessa eina banka væru nú orðnir jafnmargir eöa fleiri en starfsmenn stjórnarráös- Þórarinn Þórarinsson ins alls. Þá væri fjármálastjórnin i landinu nú ekki betri en þegar litill hluti stjórnarráösins fór meö öll núverandi völd Seölabankans. Sér þætti þvi, sagöi Þórarinn, aö sameining tveggja banka eins og frumvarp Lúöviks geröi ráö fyrir væri aðeins til lausnar litils hluta vandans. Timi væri til kom- inn að endurskoða alla löggjöf um bankastarfsemi og stofnlána- sjóöa i landinu og nauösynlegt aö gera slikt undanbragöalaust. Þá benti Þórarinn á aö i hvor- ugu frumvarpinu, rikisstjórnar- innar né Lúöviks um viöskipta- bankana, væri nægilega tryggt eftirlit Alþingis eða endurskoðun hjá bönkunum. Minnti Þórarinn á mjög svo athyglisvert frumvarp Halldórs Asgrimssonar (F) um Rikisendurskoðun, þar sem gert væriráð fyrir að hún heyröi undir Alþingi og sæi m.a. um endur- skoðun hjá rikisviðskiptabönkun- um. 1 ööru lagi benti Þórarinn á til- lögu tveggja þingmanna, Péturs Sigurðssonar (S) og Eyjólfs K. Jónssonar (S), um aö allt banka- kerfið. sparisjóðir og skyldir hlut- ir veröi teknir til athugunar i sparnaðarskyni. Taldi Þórarinn að vafasamt væri hvort timabært væri aö afgreiöa frumvörp fyrir þingi nú um þessi efni, en vinna fremur aö ýtarlegri endurskoöun á málunum í heild. Þá benti Þórarinn á að vel kæmi til athugunar að taka Bandarikin okkur til fyrirmyndar Viö uinræöur um frumvarp Lúöviks um viöskiptabanka I eigu rlkisins tók Jón Skaftason (F) til máls og kvaöst m.a. vera sam- mála Þórarni um nauösyn á end- urskoöun á bankakerfinu. Hann benti ennfremur á, aö i banka- málaherratiö Ólafs Jóhannesson- ar s.I. fjögur ár hefði einmitt mik- iö verk veriö unniö I þessum efn- um, og afraksturinn væri stjórn- arfrumvarp um rikisviöskipta- bankana og i undirbúningi heild- arlöggjöf um hlutafjárbanka og fyrirhugaö aö gera frumvarp um sparisjóöi. Þaö væri skoöun æ fleiri manna, sagöi Jón, að hverfa eigi af þeirri braut aö bankarnir séu sérstaklega bundnir ákveðnum atvinnugreinum eöa hagsmuna- hóDum eins og nú er. Væri slikur rekstur vafasamur og kvaðst Jón taka undir nauösyn þess aö vinna að sameiningu banka i rikiseign og hlutafélaga. Aöalkosturinn væri kannski ekki sparnaður. heldur sterkari bankar. Gerði Jón Skaftason siöan at- hugasemdir viö upplýsingar Lúð- viks Jósepssonar áöur um starfs- i þvi efni aö t.d. Seölabankastjór- ar veröi ekki kjörnir til nema 4-6 ára I stað lffstlöar eins og nú er. Viö endurskoöun á bankakerfinu veröi aö taka þessi mál til athug- unar sem önnur er varða Seðla- bankann og stofnlánasjóði rikis- ins. Ennfremur væri ástæöa til aö athuga hvort ekki mætti koma á meiri sparnaði á þessum væng Jón Skaftason mannahald banka sem veriö hefðu nokkuö ýktar. Benti Jón m.a. á að engin fjölgun heföi átt sér staö hjá Seðlabankanum und- anfarið i starfsmannatölu. Sagði Jón siöan, aö fjöldi útibúa væri aö verða mikið vandamál og mættifækka þeim nokkuö án þess að skeröa þjónustu við lands- byggðina. Astæöan fyrir miklum útibúafjölda væri einmitt of margir aðalbankar og óeölileg bankakerfisins. Benti Þórarinn t.d. á hversu svipaöar upplýsing- ar kæmu oft fram i skýrslum Seðlabankans, Þjóðhagsstofnun- ar og jafnvel Framkvæmdastofn- unar. Athuga þyrfti hvort hér væri ekki um að ræða sömu verk- efni hjá mismunandi ríkisstofn- unum og þyrfti þvi lagfæringar við. samkeppni þeirra á milli. Nefndi Jón nokkrar tölur um þróun þess- ara mála, og kom þar fram, að árið 1973 hefðu útibúin veriö 105 og þar af 17 i Reykjavik, en á ár- inu 1977 hefðu útibúin verið oröin 113 og þar af 20 i Reykjavík. Benti Jón á að bezta leiðin til aö fækka útibúunum án þess að minnka þjónustu væri að sameina viðskiptabanka. Þó væru, sagöi Jón,til fleiri leiðir en frumvörp á Alþingi nú gerðu ráö fyrir. Ekki þyrfti endilega að fara þá leiö aö slá saman Ctvegsbanka og Bún- aðarbanka. Vel mætti hugsa sér að stokka upp alla rikisbankana, þannig að eftir stæöu tveir. Mark- mið slikrar sameiningar hlyti að vera sparnaður, betri þjónusta og aukið rekstraröryggi. Geröi Jón siðan nokkuð frekari grein fyrir þessum markmiöum, en það veröur ekki rakið nánar hér. Varaþing menn Tveir váramenn tóku sæti á þingi I gær. Þeir eru Ólafur Þ. Þórðarson, sem tekur sæti Stein- grims Hermannssonar, sem er erlendis i opinberum erindum. Þá tekur Bragi Sigurjónsson sæti á Alþingi I fjarveru Eggerts G. Þorsteinssonar. ólafur Þ. Þóröarson Kaupstaðarréttindi Selfosskauptúns: Selfoss og Árnessýsla verði áfram eitt lögsagnarumdæmi — ástæða til að athuga slíkt, sagði Gunnlaugur Finnsson Krumvarp til laga um kaup- staöarréttindi Selfosskauptúns var til annarrar umræöu i neöri deild Alþingis i gær. Mælt var fyrir nef ndaráliti, en félags- málanefnd varð ekki sammála um nefndarniöurstööu. Mæltu sex nefndarmenn meö samþykkt frumvarpsins óbreytts, en Gunnlaugur Finns- son, (F) formaður nefndarinn- ar, skilaöi séráliti, þar sem hann lagöi til aö frumvarpinu yröi visað til rikisstjórnarinnar, ,,enda stefni hún aö þvi að leggja fyrir næsta Alþingi frum- varptil laga, þarsem gertverði ráð fyrir samræmdri réttar- stiiðu allra sveitarfélaga i land- inu”. Ólafur G. Einarsson (S) mælti fyrir nefndaráliti meirihluta, og kom fram i ræðu hans, að stjórn Samtaka s veitarfélaga á Suður- landi hefði ekki tekið beina af- stöðu til frumvarpsins er minnti á þá grundvallarstefnu, að öll sveitarfélög hefðu sem mest sjálfræöi i eigin málum. Þá hefði sýslunefnd Arnessýslu lagzt gegn samþykkt frum- Gunnlaugur Kmusson varpsins og sent nefndinni til- lögu aö frumvarpi þess efnis að Selfoss öðlaðist kaupstaðar- réttindi, en yrði ekki sér lög- sagnarumdæmi. Þá sagöi Ólaf- ur að meirihluti nefndarinnar gæti ekki falliztá þessaleið, þar sem hún heföi i för með sér að við bættist þriðja tegund sveit- arstjórnar, en tvær væru fyrir. Ennfremur sagði Ólafur, að frumvarp það, sem lægi fyrir þinginu, væri mjög samhljóöa fjölmörgum slikum frumvörp- um, sem áður hefðu verið af- greidd um kaupstaðarréttindi, og teldi nefndin ekki eðlilegt að Alþingi tæki nú skyndilega upp á þvi að hafna slikri umleitan. Gunnlaugur Finnsson (F) mælti siðan fyrir eigin áliti. Sagði hann að sjónarmið sitt og meirihluta nefndarinnar væri á margan hátt svipað, en hann teldi þó eðlilegt aö nú yrði staldrað við með tilliti til þró- unar kaupstaðarmála undan- farin ár og sérstöðu þessa máls. Ekki sagðist Gunnlaugur treysta sér til að svo komnu máli að gera hugmyndir sýslu- nefndar um kaupstaðarréttindi Selfoss jafnframt þvi að Selfoss og Arnessýsla veröi áfram eitt lögsagnarumdæmi, að sinni til- lögu. Samkvæmt upplýsingum, er nefndinni bárust, orkaði tvi- mælis hvort frumvarp þetta stæðist að óbreyttum lögum. Þó virtist ekki, sagði Gunnlaugur, hægt að fullyrða að frumvarps- tillagan gengi i berhögg við gildandi lög. Siðan sagði Gunnlaugur: „1 annan stað skal á það bent, að verði Selfosshreppur gerður að kaupstað, heyra fjárreiður hans beint undir félagsmálaráðu- neytið, en eigi að siður ætti kaupstaðurinn aðild að sýslu- sjóði Arnessýslu og sýslunefnd. Vakna þá spurningar um fjár- málatengslin og lögsögu sýslu- nefndar, þar með talins fulltrúa kaupstaðarins, yfir fjárreiðum hreppanna i sýslunni. Hins veg- ar tel ég hugmyndina þess eðlis, að það beri að athuga hana vel og aðhæfa sveitarstjórnarlögum með breytingu á þeim. Hvað frv. snertir eins og það liggur fyrir, tel ég ekki tfma- bært að gera það að lögum. Það skal þó viðurkennt, að miðað við þá þróun, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, þar sem fjöldi hreppa hefur hlotið kaupstaðarréttindi, má lita svo á að fjölmennasti hreppur landsins eigi á þvi nokkurn rétt Frh. á 10. siðu Jón Skaftason: Hugsanlegt að stokka upp ríkisbankana þrjá Bragi Sigurjónsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.