Tíminn - 11.04.1978, Page 7

Tíminn - 11.04.1978, Page 7
Þriðjudagur 11. april 1978 7 Útgefandi Franisóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Heigason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar biaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á mánuði. m . u f Blaðaprent h.f. Hver er afstaða Lúð- víks og Benedikts? Sennilega hefur engin hótun af hálfu islenzkra stéttarsamtaka vakið meiri undrun en sú yfirlýsing stjórnar Verkamannasambands íslands að hún muni leita til erlendra verkamannasamtaka og fá þau til að setja löndunarbann á islenzk skip sem ætla að selja afla sinn erlendis, meðan á út- flutningsbanninu stendur. Stjórn Verkamannasam- bands íslands fylgir þannig i fótspor þeirra er- lendra ofbeldismanna sem hugðist með löndunar- banni geta kúgað íslendinga til að falla frá ákvörðunum sinum um útfærslu fiskveiðilögsög- unnar. Sjómannafélag Reykjavikur hefur mótmælt þessu með eftirfarandi ályktun: „Stjórn félagsins felur starfsmönnum sinum að koma á framfæri við þá sem ekki virðast til þekkja, að siglingar togara á erlenda markaði hafa tiðkazt frá þvi að togaraútgerð hófst hér á landi. Hafa þær til þessa þvi aðeins stöðvazt, þegar erlendir of- beldismenn hafa ætlað að kúga islenzka þjóð. Slikar siglingar eru nú sem fyrr nauðsynlegar fyrir útgerð skipa og skipshafnir til uppbótar á það þjónustu- starf sem margir þeirra vinna.” Það eru áreiðanlega ekki reykviskir sjómenn ein- ir sem eru undrandi og reiðir yfir þvi furðulega til- tæki stjórnar Verkamannasambandsins að ætla hér að beita sömu ofbeldisbrögðum og gripið var til af erlendum andstæðingum okkar i landhelgisdeil- unni. Sú tilraun var fordæmd af íslendingum á sin- um tima. Slik tilraun mun ekki siður fordæmd nú þótt islenzkir menn eigi frumkvæði að henni. Það er alkunnugt. að forkólfar Alþýðubandalags- ins og Alþýðuflokksins hafa átt frumkvæðið að út- flutningsbanninu. Þar hafa þeir Lúðvik Jósepsson og Benedikt Gröndal staðið hlið við hlið. Sú afstaða þeirra hefur þá mannlegu skýringu, að þeir treysta ekki á málstað sinn i kosningabáráttunni og telja sig þvi þurfa að gripa til örþrifaráða. Þess vegna standa þeir að útflutningsbanninu. En standa þeir lika að löndunarbannstilrauninni? Þjóðinni ber að fá vitneskju um það hvort þeir Lúðvik og Benedikt eru samþykkir þvi að leitað sé erlendrar aðstoðar til að setja löndunarbann á islenzkar vörur erlendis. Kjósendur eiga heimtingu á skýrum svörum um það, hver sé afstaða formanns Alþýðubandalagsins og formanns Alþýðuflokksins til þessa löndunar- bannsmáls. Láti þeir ekkert frá sér heyra verður þögn talin sama og samþykki. Landgrunnslögin 1948 Það var vel ráðið af Hans G. Andersen að minnast þess i ræðu á Hafréttarráðstefnunni. að hinn 5. þ.m. voru liðin 30 ár frá setningu landgrunnslaganna. „Það var á grundvelli landgrunnslaganna frá 1948”, sagði Hans G. Andersen, „sem fiskveiðimörk íslands voru færð út fyrst i fjórar milur, siðan tólf milur, fimmtiu milur og loks tvö hundruð milur. Vissulega voru lögin frá 1948 undanfari efnahags- lögsöguhugtaksins, sem nú hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu.” Landgrunnslögin frá 1948 hafa ekki aðeins reynzt þýðingarmikil fyrir ísland heldur þróun hafréttar- málanna yfirleitt. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Afríkuferðin varð Carter lærdómsrík Mikilvægt fyrir hann að kynnast þriðja heiminum SENNILEGA er það megin- árangurinn af sjö daga ferða- lagi Carters forseta til Suður- Ameriku og Afriku. að hann og ráðunautar hans hafa öðlazt aukna þekkingu a málefnum og viðhorfum i þessum hluta heims. Ef til vill hefur Carter eitthvað tekizt að draga úr þeirri tortryggni, sem rikjandi er viða i þróunarlöndunum i garð Bandarikjanna, en þó ekki mikið. Megintilgangur fararinnar var vafalitið sá að koma á bættri sambúð miíli Bandarikjanna og þriðja heimsins, en ferðalag forset- ans hefur ekki orðið nema stuttur áfangi i þá átt. Við ger- um okkur engar tálmyndir um það, sagði Brezinski, aðal- ráðunautur Carters, i ferða- lokin, að þetta muni heppnast á stuttum tima og fyrirhafnar- laust. Jafnframt lagði hann áherzlu á, að Bandarikin teldu sig þess ekki umkomin að gefa Afriku ráð um það, hvernig hún ætti að leysa mál sin. Carter endurtók það marg- sinnis, að Afrikumenn yrðu að leysa vandamál sin sjálfir og finna þá lausn, sem hentaði þeim bezt. Við getum aðeins verið til aðstoðar innan þeirra marka, sagði hann. Þetta var fyrsta heimsókn Bandarikjaforseta til Afriku- rikja sunnan Sahara. Banda- rikjaforseti hefur aldrei áður heimsótt blökkumannarikin i Afriku. Hér var þvi um sögu- lega ferð að ræða. Eðlilegt var, að Nigeria yrði fyrsta riki hinnar svörtu Afriku, sem Bandarikjaforseti heimsækti. Það er langfjölmennasta riki Afriku og auk þess eitt mesta oliuframleiðsluriki heims. Carter dvaldi þar i þrjá daga, en alls tók ferðalag hans ekki nema sjö daga. Þeir tóku hon- um lika vel, en ekki meira. A heimleiðinni kom hann við i Liberiu, en dvaldi þar aðeins i fáar klukkustundir. Liberia hefur sérstöðu meðal svartra rikja i Afriku. Það er byggt af blökkumönnum, sem voru fluttir ánauðugir til Banda- rikjanna, en veitt frelsi og leyft að hverfa heim aftur. Þar eiga Bandarikin miklar eignir og bandarisk áhrif eru sterk. Carter taldi því ekki þörf á langri viðkomu þar. CARTER hefur áreiðanlega fundið það vel i Nigeriu, hve mikilvæg kynþáttamálin i sunnanverðri Afriku eru i aug- um Afrikumanna. Þau eru þeim miklu mikilvægari og viðkvæmari en Evrópumenn Carter og Obasanjo eftir að hafa kirkjunni i Lagos og Bandarikjamenn gera sér ljóst. Carter flutti lika ræðu i * Nigeriu, þar sem hann reyndi að gera sem ljósasta grein fyrir afstoðu Bandarikjanna til þessara mála. 1 fyrsta lagi vildu Bandarikin stuðla að meirihlutastjórn blökku- manna i Rodesiu á þeim grundvelli, að skæruliðasam- tökin fengju einnig hlutdeild i henni. Þess vegna væru þau andvig samkomulagi Smiths við blökkumannaleiðtogana þrjá. 1 öðru lagi vildu þau stuðla að þvi, að Namibia fengi fullt sjálfstæði og yrði ekki leppriki Suður-Afriku. 1 þriðja lagi vildu þau vinna að þvi, að blökkumenn fengju meirihlutavöld i Suöur-Afriku á friðsamlegan hátt. I fjórða lagi vildu þau veita hinum fá- tæku Afrikuþjóðum efnahags- lega aðstoð. t fimmta lagi vildu þau svo stuðla að þvi, að Afrika yrði ekki nýtt átaka- svæði stórvelda. Ollu þessu var tekið vel af Olusegun Obasanjo, leiðtoga Nigeriu, og samstarfsmönn- um hans. Þó þótti þeim, að Bandarikin mættu beita meiri þrýstingi til að greiða fyrir valdatöku blökkumanna i suðurhluta Afriku. Þá vildu þeir ekki eiga aðild að neinni yfirlýsingu, sem beindist aö hlýtt á guösþjónustu i baptista- þvi að fordæma ihlutun Rússa og Kúbumanna i deilu Eþiópiu og Sómaliu. Nigeriumenn telja sér þessa ihlutun ekki óhagstæða, meðan hún beinist að þvi að viðhalda óbreyttum landamærum og bæla niður uppreisn ættflokka. Þeir vildu ekki heldur, að heimsókn Carters fengi þann blæ, að . Nigeria stæði eitthvað nær Bandarikjunum en Sovétrikj- unum. Obasanjo er enn ekki traustur i sessi og telur það ekki vænlegt til fylgis aö vera talin i fylgd með Bandarikjun- Carter og Tolbert, forseti Liberiu. CARTER FORSETI reyndi það einnig i Suður-Ameriku, að þar vilja rikin teljast óháð og ekki vera dregin i dilk með einu stórveldi fremur en öör- um. I Suður-Ameriku heim- sótti hann Venezuela og Brasiliu. Milli Carters og Andres Peres, forseta Venezu- ela, er góður kunningsskapur, þvi að Peres er búinn að heim- sækja Carter tvivegis. Peres lét það þó koma opinberlega fram i sambandi við heimsókn Carters, að hann teldi iðn- aöarþjóðirnar eiga mikla sök á fátækt þróunarlandanna með þvi að greiða þeim of lágt hráefnaverð. I Brasiliu, sem Carter taldi sjálfsagt að heim- sækja sem stærsta riki Suður- Ameriku, fékk hann kuldalega móttöku og var þaö óspart gefið til kynna.að hann hefði sjálfur óskaö eftir að koma þangað. Orsök þessarar kuldalegu móttöku var sú, að Carter hafði deilt á Brasiliu- stjórn fyrir brot á mann- réttindum. Hann lét þetta þó ekki á sig fá, heldur óskaöi eft- ir að mega ræða við forustu- menn mannréttindabarátt- unnar i Brasiliu. Það fékk hann, en af hálfu mann- réttindamanna er nú dregið i efa að þaö hafi veriö þeim til ávinnings, þvi að nú geti stjórnin bent á. að hún hafi leyft þessum andstæðingum sinum að ræða við sjálfan for- seta Bandarikjanna og flytja fram kærumál sin. Þetta sé merki um allt annað en ófrelsi. Liklegt þykir, að stjórnin muni hampa þessu i forsetakosningunum. sem eru framundan. Heimsókn Cart- ers kann þvi aö bera annan ávöxt en hann ætlaðist til. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.