Tíminn - 11.04.1978, Side 18
18
Þriöjudagur 11. april 1978
ÍÞRÓTTIR
Stórskemmti-
legur pressu-
leikur í körfu
— Landsliöið sigraöi pressuna 106:102
Pétur t; uðmundsson, sem
leikur með University of
Washington er mikill styrkur
fyrir landsliðið og gæti orðið að
enn meira liöi ef hann beitti sér
meira. Landsliðið byggði spilið
mikiö upp a Pétri, sem er risi að
vexti, 2,17 m. Leikmenn lands-
liðsins eru þó ekki nógu djarfir að
senda háa bolta inn á hann ennþá,
en það ætti að lærast á þeim hálfa
mánuði, sem er til stefnu fram að
Polar Cup Bandarikjamennirnir,
sem léku hér á landi i vetur, léku
með pressuliðinu og var oft
gaman að sjá sendingar þeirra
sin á milli og á aðra leikmenn
pressuliðsins.
Allir skoruðu þeir mikið af stig-
um og hirtu mikið af fráköstum.
Leikurinn var eins og áður segir,
jafn allan timann, og mátti sjá
tölur á töflunni eins og 50-51,
80-82, 95-94, 100-100. Og þegar 1
mín. var eftir, var staðan 102-102.
Landsliðið skoraði siðan 4 siðustu
stigin ileiknum ogsigraði 106-102.
Hjá landsliðinu áttu nokkrir
leikmenn góðan leik og tryggðu
liklega sæti sitt i landsliðinu sem
leikur á Polar Cup. Þeir voru:
Pétur Guðmundsson, sem skoraði
25stig, JónSigurðsson, sem skor-
aði 15 stig, Simon
Ólafsson, sem skoraöi 17
stig, og Kristján ÁgUstsson sem
skoraði 17 stig. Einnig áttu þeir
Gunnar Þorvarðarson og Torfi
Magnússon ágætan leik. Af leik-
mönnum „pressunnar’’ áttu
Bandarikjamennirnir breztan
leik og varoft gamanað sjá Mark
Christiansen berjast við Pétur
undir körfunni.
Dirk Dunbar var
stigahæsti maður pressuliðsins
með 22 stig, þar af 20 stig i siðari
hálfleik, Rick Hockenos með 19
stig og Mark Christiansen með 17
stig. Aðrir leikmenn, sem stóðu
sig vel með pressunni voru Einar
Bollason og Jónas Jóhannesson.
SJÓ
SEX VERÐ-
LAUNASÆTI
Á NM í JIJDÓ
Finnar sigruðu í
öllum flokkum
Islenzka jUdolandsliðiö stóð sig
vel á Noröurlandameistaramót-
inu, sem fram fór i Helsinki um
helgina, þóað þeim tækist ekki að
verja Noröurlandameistaratitl-
ana, sem þeir unnu á siðasta
móti. Gisli Þorsteinsson tapaöi
Norðurlandameistaratitli sinum,
en hlaut samt tvenn verðlaun,
varð annar i 95 kg flokki og þriðji i
opna flokknum. Bjarni Friðriks-
son hlaut einnig tvenn verðlaun,
varð annar, og hlaut þvi silfur, i
opna flokknum og þriðji i 95 kg
flokki. Mjög góður árangur i hans
fyrstu keppnisferð erlendis. Hall-
dór Guöbjörnsson tapaði titli sin-
um eins og Gísli, en hlaut silfur i
71 kg flokknum. Jónas Jónasson
varð sá fjórði af Islendingunum
til að hljóta verðlaun, hlaut brons
■' ^
Blikam-
ir kaf-
sigldu
Haukana
Tveir leikir fóru fram i Litlu
bikarkeppninni um helgina.
Skagamenn fengu Keflvikinga
i heimsókn og lauk leiknum
með markalausu jafntefli. 1
Kópavogi sigruðu Blikarnir lið
Hauka með 6-1 i hálfleik var
staðan 1-1
Staðan i keppninni er nú
þessi:
Akranes
Breiöabl
Haukar
ÍBK
FH
i 86 kg flokknum. Finnar unnu
flokkakeppnina eins og búizt
hafði verið við, Svíar lentu I öðru
sæti, Norðmenn i þriðja, Danir i
fjórða og Islendingar ráku lest-
ina, enda ekki meö fullskipaö liö.
Islendingar hlutu næst flest verð-
laun ásamt Svium á mótinu.
Gisli Þorsteinsson fékk eitt
silfur og eitt brons á NM i júdó.
SJÓ.
Pressun - Fatasaumur
Óskum strax eftir starfsfólki við pressun
og fatasaum.
Model Magasin
Tunguhálsi 9, Arbæjarhverfi, simi 8-50-20.
Bændur
Ég er 12 ára röskur strákitr sem óskar eft-
ir að komast i sveit i sumar.
Hef verið 2 ár i sveit.
Upplýsingar i sima (92)2624.
Laus staða
Staða lögreglumanns á Raufarhöfn er laus
til umsóknar frá og með 16. maí n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknarfrestur er til 1. mai 1978.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu
Bæjarfógeti Húsavikur.
3 2 1 0 5:1 5
2 2 0 0 7:1 4
3 1 0 2 4:9 2
2 0 1 1 0:1 1
2 0 0 2 2:6 0
—RP.
Bændur
Drengur á 14. ári óskar eftir vinnu i sveit i
sumar.
Simi 1-11-10, Akureyri.
Starfsmenn í Heimilishjálp
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
óskar að ráða starfsfólk til heimilishjálp-
ar 1. sinni til 3svar i viku við þrif, 4 tima á
dag.
Nánari upplýsingar veittar i Tjarnargötu
11, simi 18800.
Ejfl Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
| f Vonarstræti 4 sími 25500
Skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk til skrif-
stofustarfa við innheimtu o.fl. strax.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra sem
gefur nánari upplýsingar.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Laus staða
Staða skólameistara við Menntaskóiann á
Egilsstöðum er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum
um námsferil og störf skulu hafa borizt
menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6,
Reykjavik fyrir 5. mai n.k.
Menntamálaráðuneytinu
4. april 1978
Borgarnes
íbúðarhúsið nr. 6 við Berugötu i Borgar-
nesi er til sölu.
Tilboð sendist undirrituðum sem veitir
nánari upplýsingar fyrir lok þessa mánað-
ar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Guðmundur Arason,
Þórunnargötu 3, Borgarnesi, simi
(93)7221, (vinnusimi (93)7221)