Tíminn - 15.04.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.04.1978, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. april 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm).og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulitrúi: Jón Sigurösson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason, Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöimúla 15. Slmi 86300. Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö Ilausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Kaupgjald og vextir Það er vafalitið, að hinn mikli verðbólguvöxtur á siðari hluta ársins 1977 átti tvær meginorsakir. Annars vegar voru miklar kauphækkanir og hins vegar mikil vaxtahækkun. Sameiginlega leiddi þetta til verðhækkana, gengisskriðs og gengis- lækkunar þeirrar, sem varð i byrjun þessa árs. Ýms rök er hægt að færa fyrir þvi, að kauphækk- anir þær, sem urðu hér á siðastl. ári, hafi átt rétt á sér, einkum þó kauphækkun til handa hinum launalægstu. óneitanlega hafði orðið veruleg kjararýrnun undanfarin misseri. Á sama hátt má vissulega færa rök að þvi, að sparifjáreigendur hafi átt rétt á vaxtahækkuninni, svo grálega hafði verðbólgan leikið þá. Hagnaður bæði launþega og sparifjáreigenda verður þó vafasamur, þegar það er tekið með i reikninginn, að bæði launahækkanir og vaxta- hækkanir hafa óhjákvæmilega aukna verðbólgu i för með sér. Á þann hátt tapast oft ávinningurinn, sem launþeginn á að hafa af kauphækkuninni, og sparifjáreigandinn af vaxtahækkuninni. Stundum er þvi haldið fram, að vaxtahækkanir hafi lítil verðbólguáhrif i för með sér. Þetta er byggt á hinni svonefndu meðaltalsreglu. Þá er reiknað út að meðaltalsvaxtaútgjöld hjá einstakl- ingum og atvinnufyrirtækjum hækki ekki nema tillögulega litið við vaxtahækkun. En málið er ekki svona einfalt. Raunverulega er rétt að miða við þá, sem hafa veruleg vaxtaútgjöld. Það eru slikir einstaklingar, sem knýja á um að fá vaxtahækkun bætta með kauphækkun, og slik útflutningsfyrir- tæki, sem verða að fá vaxtahækkun bætta með gengissigi og gengisfellingu. Tökum dæmi. Eldri maður sem á stóra ibúð skuldalaust, þarf engar áhyggjur að hafa af vaxtahækkun. öðru máli gegnir um ungan mann, sem hefur um 2 milljónir króna i árslaun og skuldar fjórar milljónir vegna ibúðarkaupa. Ef vextirnir aukast um 3%, aukast vaxtaútgjöld hans um 120 þúsund krónur. Til þess að fá þessa útgjaldaaukningu bætta, þarf hann 6% kauphækkun. Þannig hafa vaxtahækkanir áhrif á, að margir launþegar telja sér nauðsynlegt að knýja fram meiri kauphækkanir en ella. Af þvi hlýzt svo aukin verðbólga. Svipað er ástatt hjá út- flutningsfyrirtækjunum. Vaxtahækkanir skipta ekki verulega máli gömul og gróin fyrirtæki, sem skulda ekki orðið meira en t.d. 20-30 milljónir króna. öðru máli gildirum fyrirtæki sem hefur ný- lokið dýrri uppbyggingu, eða er að vinna að henni, og skuldar tifalda áðurnefnda upphæð eða meira. Það er afkoma slikra útflutningsfyrirtækja, sem knýr fram gengissig og gengislækkun. Þegar kaupgjald er af framangreindum ástæðum búið að hækka og gengið að siga eða falla, verður orðið minna en ekki neitt eftir af 3% vaxtahækkuninni, sem sparifjáreigendur fengu. Mesta hagsmunamál sparifjáreigenda er tvi- mælalaust það að reynt sé að draga úr verðbólg- unni. Raunar er það hagsmunamál langflestra. Það er hins vegar hægara sagt en gert. Menn eru mjög ósammála um leiðir. Enginn vill riða á vaðið og verða fyrstur til að lækka hjá sér. Stjórn Callaghans valdi þá leið á siðasta ári að byrja á þvi að lækka vextina i trausti þess að verðbólgan fylgdi á eftir. Þetta hefur reynzt rétt ráðið. Hitt er ekki vist, aÓ hið sama gildi um ísland og Bretland i þessum efnum. En þetta er þó eitt af þvi, sem vissulega ber að athuga, þvi að lækkun verðbólg- unnar yrði sparifjáreigindum mest til hags. Þ.Þ. Vladimir Lomeiko: dag aukins pólitisks velvilja i garð frekari spennuslökunar, aukinnar efnahagslegrar samvinnu og meira gagn- kvæms trausts. Þetta eru mjög raunhæf markmið, ef um gagnkvæman vilja er að ræöa. Heimsókn Leonid Brés- njefs til Bonn sýnir, að stjórn- völd i Moskvu eru reiðubiíin til þess að stiga skrefið framá við. A Vesturlöndum er margt um það rætt, að vandamál I sambandi við nifteindavopn muni setja svip sinn á so- vézk-vestur-þýzku viðræð- urnar. Afstaöa stjórnvalda i Moskvu til þessa vandamáls er vel kunn: Þau eru fylg jandi gagnkvæmri höfnun fram- leiðslu nifteindavopna. Eng- inn i Sovétrikjunum ætlar að segja Vestur-Þjóðverjum hvernig þeir eigi að lifa. Þetta á éinnig við um það hvaða vopn þeir eigi aö hafa i landi sinu. En Rússar væru óeinlæg- ir, ef þeir vöruðu ekki Þjóð- verja við afleiðingum slikrar ákvörðunar, að taka nift- eindavopn iþjónustusina. Auk þess að kynda undir vigbún- aðarkaupphlautinu myndi hún gera marga Sovétmenn bitra og fulla grunsemda i garð Vestur-Þjóðverja. Það er óhagganleg trú min, að Rúss- ar muni aldrei skilja rök- semdir þeirra, sem sam- þykkja þetta nýja gereyðing- arvopn, og það þvi fremur sem áfram miðar i spennu- slökunarátt og sambúðin er að batna eftir margra ára kalt strið. Nifteindavopn munu ekki breyta styerkleikajafnvæginu, heldur munu þau breyta trún- aðarjafnvæginu og gera menn svartsýnni og efagjárnari. Það er ekki unnt að lita á nift- eindavopn sem einhver kjara- kaup eða ávinning. Þau eru ekkert annað en rýtingur i bak spennuslökunarstefnunnar. Sovétrikin álita, að Rússar og Vestur-Þjóðverjar geti sam- eiginlega ýtt á ný undir af- vopnun og spennuslökun. Báö- ar þjóðirnarhafa greitt friðinn dýruverði og vitabetur heldur en margir aðrir hvaö hann þýðir. Það er af þessum sök- um sem pólitiskir leiðtogar þeirra, sem báðir tóku þátt i striðinu, finna til mikillar ábyrgðar gagnvart örlögum friöarins. Þetta eykur likurn- ar á þvi, að traust og ábyrgð gagnvart friðnum og örygginu i Evrópu muni viðhaldast á æskilegu stigi. t byrjun næsta mánaðar mun Brésnjef fara i opinbera heimsókn tii Bonn. Þegar er mikið rætt I rúss- neskum fjöimiölum um þessa fyrirhuguðu heimsókn hans. Yfirleitt er farið hlý- legum orðum um Þjóðverja, jafnframt þvi, sem þeir eru hvattir til að hafna nevtrónu- sprengjunni. Eftirfarandi grein mun gott sýnishorn þess, hvernig rætt er um þessa væntanlegu Bonn-heimsókn Brésnjefs I rússnesku fjölmiðiunum um þessar mundir Tilkynningin um væntan- lega heimsókn Leonid Brés- njefs til Bonn hefur beint at- hygli almennings á ný að sam- búð Sovétrikjanna og Vestur-Þýzkalands og það þvi fremur sem margar erlendar rikisstjórnir binda miklar vonir við þessa heimsókn, engu siöur heldur en stjórni r- nar I Moskvu og Bonn. Þess er vænzt, að hún verði tvíhliöa samvinnu og spennuslökun- inni i Evrópu nýr hvati. Ég veit af eigin athugunum um margra ára skeið, að so- vézka þjóðin, bæði sérfræðing- ar ogallur almenningur, hefur mikinn áhuga á þróun sam- búðar Sovétrikjanna og Vestur-Þýzkalands. Til þessa liggja margar ástæður, en þar skiptir ekki minnstu máli dap- urleg fortið og viljinn til þess að koma í veg fyrir nýjan harmleik. Þessi sálfræðilegu atriöi gera samskipti Sovét- rikjanna og Vestur-Þýzka- lands allsérstæð. Af þessum sökum var byrjunin erfið. Jafnframt verða þau til þess að vekja vonir og löngun til sátta og samvinnu. Þessar aðstæður hafa stuðl- að að þvi að djúpstæðar breyt- ingar hafa orðið á tvihliða samskiptum rikjanna frá þvi Moskvusamningurinn var gerður árið 1970. Jafnframt veldur það meiri eftirsjá, þeg- ar árangurinn á vissum svið- um verður minni en búizt var við. Sovézka þjóðin hatar ekki Þjóðverja. Þvert á móti fagn- ar hUn góðri sambUð við Austur-Þýskaland og æskir þess aö samskiptin við Vestur-Þýzkaland batni á alla lund. Á siðustu árum hafa margir sovézkir borgarar fengið betri, fyllri og jákvæðari mynd af Vestur-Þýzkalandi. Sterk tvihliða tengsl, persónu- leg sambönd og fjölþætt reynsla af samskiptum hafa skapazt á öllum sviðum. A stjórnmálasviðinu hefur þetta lyft samstarfinu á hærra svið og stuðlað að auknu trausti og Helmut Schmidt Brésnjef frjálslegri afstöðu. Vestur-Þýzkaland er orðið mesta viðskipaland Sovétrikj- anna af vestrænum rikjum. Og það sem mikilsverðara er, hundruð þUsunda manna I löndunum báðum, m.a. sjó- menn, vestur-þýskir pipu- gerðarmenn og sovézkir gas- lagnamenn, hafa nú um margra ára skeið verið beinir þátttakendur i þessu sam- starfi. Aþennn hátt hafa uppi- staða og Ivaf samskipta þjóð- anna orðið þéttara og mann- eskjulegra. Eru Sovétrikin ánægð meö þetta allt saman? Já, þau eru það, hvað það yarðar sem áunnizt hefur. En framtiðin gerir nýjar og s tærri kröfur. Væntanleg heimsókn Leonid Brésnjefs ætti að opna nýja möguleika til þess að bæta enn sambUð Sovétrlkj- anna og Vestur-Þýzkalands. Tvihliða samvinna ætti að fá aukinn byr, þvi enn er langt I land. Það er langtfrá þvi, að allir i Vestur-Þýzkalandi hafi skil- að hvaða möguleika og hagn- að langtixna stórverkefni á samstarfssviðinu hafa að bjóða. Vissir viðskiptaaðilar kjósa enn frekar einangruð skammtimaviðskipti með greiðslu út i hönd, og sýna þannig vantraust sitt á gagn- aðilanum og á spennuslökun- inni. Til þessað um frekari fram- farir verði að ræða þarfnast sovézk-vestur-þýzk sambúð i H ver s má vænta af för Brésnjefs til Bonn? Þjóðverjar varaðir við nevtrónusprengjunni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.