Tíminn - 10.05.1978, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 10, mal 1978.
n
Sigurbjörg 6 ára á Drottningu frá Kröggólfsstööum. Sigurbjörg
heldur á bikar sem Sveinn Friðriksson Hveragerði gaf
yngsta keppanda.
Firmakeppni
Hestamanna-
félagsins Ljúfs
í Hveragerði
PÞ—Sandhóli.
Firmakeppni hestamannafélags-
ins Ljúfs var haldin i Hveragerði
siðastliðinn sunnudag. 45 firmu
tóku þátt i keppninni. Keppt var i
tveim aldursflokkum. t flokki 15
ára og eldri var efst Maria
Þórarinsdóttir, Hveragerði á
Skugga 6 vetra, firma Búnaðar-
bankinn i Hveragerði. Annar var
Kristinn Antonsson á Mána 9
vetra frá Torfastöðum Biskups-
tungum, firma Heyverk hf. Þriöji
var Guðmundur Hauk«son á
Brönu 5 vetra. Eigandi Brönu er
Guðjón Sigurðsson Kirkjuferju-
hjáleigu firma Bifreiðaþjónusta
Sólmundar Sigurðssonar.
1 unglingaflokki var efst
Mónikka Pálsdóttir frá Krögg-
ólfsstööum á Faxa 8 vetra, firma
Hárgreiðslustofa Sillu og Brynju.
Annar var Anton Tómasson,
Hveragerði á Sif .8 vetra úr
Hveragerði, firma
Bifreiðaverkstæði Svavars Ólafs-
sonar. Þriðji var Sigtryggur
Kristóf ersson Hveragerði á
Frábær, firma Garðyrkjustöðin
Gufudal. Yngsti knapínn var
Sigurbjörg Skarphéðinsdóttir 6
ára úr Hveragerði. Hún keppti
fyrir firma Sveins Gislasonar
byggingameistara.
Starfsemi hestamannafélags-
ins Ljúfs hefur verið mjög öflug i
vetur, m.a. héldu fyrirmenn
hestamannafélagsins námskeið i
hestamennsku fyrir unglinga.
Formaður Ljúfs er Tómas
Antonsson Hveragerði.
Manntalið 1801
FI — A aðalfundi Ættfræðifélags-
ins, sem haldinn var fyrir
skömmu, kom fram, að setning á
fyrsta bindi af manntalinu 1801 er
um það bil hálfnuð, en félagið hef-
ur með höndum útgáfu þess.
Þetta bindi nær yfir Suðuramt frá
Lónsheiði að Hvitá i Borgarfirði,
en á þvi iandssvæði bjuggu um 17
þúsund manns árið 1801. Gert er
ráð fyrir þvi, að manntalið allt
verði þrjú bindi.
Manntal þetta er elzta alls-
herjarmanntal Islendinga, næst
manntalinu frá 1703 og hin merk-
asta heimild, ekki aðeins ætt-
fræðilega heldur engu siður hag-
fræðilega á margan hátt. Félagið
hefur áður gefið út manntal frá
1816, en það er ekki til úr nándar
nærri öllum sóknum á landinu. I
manntalið frá 1801 vantar hins
vegar ekkert.
Skýrt var frá þvi á fundinum.
að Námsflokkar Reykjavikur
hefðu staðið að tveim námskeið-
um I ættfræði á sl. vetri, en slikt
námskeið er alger nýjung hér á
landi og þótt viðar væri leitað.
Ekki voru námskeið þessi ætt-
fræöifélaginu viðkomandi að öðru
en þvi, að formaður félagsins var
þar leiðbeinandi.
Á aðalfundinum flutti Sigurgeir
Þorgrimsson erindi um ólaf
Snókdalin ættfræðing og ætta-
bækur hans.
Stjórn félagsins var endurkos-
in. Hana skipa: Ólafur Þ.
Kristjánsson formaður, Bjarni
Vilhjálmsson, Jakobina Péturs-
dóttir, Jóhann Gunnar Ólafsson
og Pétur Haraldsson.
Félagsmenn i Ættfræðifélaginu
geta allir orðið sem áhuga hafa á
ættfræði og vilja hlynna að henni
og útgáfu heimildarrita um þau
efni.
Myndlistarmenn vilja
samstarf við
pólska starfsbræður
SJ — Stjórn Félags islenzkra
myndlistarmanna hefur rætt um
að koma á samstarfi við mynd-
listarmenn i Póllandi, gagn-
kvæmum sýningum og öðrum
samskiptum. Formaður FIM,
Hjörleifur Sigurðsson ræddi þessi
mál við sendiherra Póllands hér
sem kom þeim á framfæri I
heimalandi sinu. Pólskur mynd-
listarmaður Outreba lagöi siðan
fram samstarfstillögur á fundi
með stjórn FIM I vetur. Þessar
tillögur hafa hins vegar enn ekki
verið ræddar að gagni hjá félag-
inu, að þvi er segir i 10. félags-
bréfi FIM, sem blaðinu hefur ný-
lega borizt.
Kristín Eyfells
sýnir í Flórida
SJ — I aprilmánuði sýndi Kristin
H. Eyfells myndhöggvari 17 lista-
verk i nýjasta sýningarsalnum
iOrlando, Flórida, Church Strœt
Station Gallery. Kristin hefur
haldið nokkrar einkasýningar i
Flórida og á Islandi og tekið þátt i
samsýningum á Norðurlöndum
Tvær höggmynda Kristinar
Eyfells
Kristin við eitt verka sinna.
og f Bandarikjunum.
Undanfarin árhefur hún dvalizt
i Bandarikjunum, en þar hlaut
hún einnig myndlistarmenntun
sina og lauk jafnframt sálfræði-
prófi 1962.
Listaverkin, sem Kristin Hall-
dórsdóttir Eyfells sýndi i aprii,
eru úr málmi og asbestsementi.
Eiginmaður Kristinar, Jóhann
Eyfells, er prófessor við Florida
Technological University i
Orlando.
Sendandt
heirnilisfa.
SVe‘tarf?L^
Quelle
stæista póstverslun Evrópu
er einnig á íslandi
'UELLEvor- og sumar-
býdur yfir 40.000
------- nœrri því 1000
stórum, litprentudum síðum.
Þar af 450 síðum með
nýjustu fatatýskunni á alla
fjölskylduna. I þessum
glœsilega lista gefur auk
þess að líta fjölbreytt úrval
rafmagnstækja og bús-
áhalda, útivistar- og viðlegu-
búnaðar, fallegs borðlíns
og sæhgurlíns, dýrmœtra
skartgripa og úra,gjafavara
í úrvali...
Með öðrum orðum allt, sem
hugurinn girnist og léttir
lífið, án þess að það kosti
ferð í kaupstaðinn.
Þér getið nú pantað hjá
QUELLE umboðinu á
Islandi. á íslensku og greitt
með íslenskum krónum.
Hjá umboðinu getið þér
fengið eitt glœsilegasta inn-
kaupatilboð í Evrópu,
■nýja QUELLE verðlistann.
Umboðið mun, með
ánægju, veita aðstoð og
svara fyrirspurnum
varðandi pöntun, afgreiðslu
eða greiðslu á sendingu
yðar frá QUELLE í síma
92-3576 milli klukkan 13-17
alla virka daga.
QUELLE umboðið á
Islandi.
Hlein hf.
Pósthólf 39,
230 Njarðvík.
.