Tíminn - 12.05.1978, Qupperneq 19

Tíminn - 12.05.1978, Qupperneq 19
Föstudagur 12. maí 1978. 19 oooooooo Sverrir varð fyrstur til að skora — mark í íslandsmótinu í knattspyrnu, þegar KR-ingar unnu sigur (2:0) yfir Fylki í 2. deild í gærkvöldi á Melavellinum KR-ingurinn Sverrir Herbertsson varð fyrstur til að skora mark i islands- mótinu í knattspyrnu/ sem hófst í gærkvöldi á Mela- vellinum með leik KR-inga og Fylkis i 2. deild. Sverrir skoraði markið af stuttu færi á 55. mín leiksins, sem KR-ingar höfðu yfirburði í. Vesturbæjarliðiö lék undan strekkingsvindi i fyrrihálfleik og sóttu þeir nær látlaust að marki Arbæjarliðsins — Fylkis, en leik- mönnum KR-liðsins tókst þó ekki að skora mark. Ottó Guðmunds- son fékk gullið tækifæri til að skora fyrir KR-inga, þegar hann tók vitaspyrnu á 23. minútu — en honum brást bogalistin og skot hans hafnaði i stöng. KR-ingar héldu áfram næst stöðugri sókn að marki Fylkis i siðari hálfleik og skoraði Sverrir fyrra mark KR-inga á 55 min. — hans 5. mark á keppnistimabil- inu. 7 min. siðar bætti stefán Orn Sigurðsson öðru marki við og var það mjög glæsilegt. Krosssending kom fyrir Mark Fylkis, þar sem Stefán örn var vel staðsettur — hann stökk upp og skallaði knött- inn örugglega i netamöskva Ar- bæjarliðsins. Lif og fjör... að Hliðarenda á afmælisdaginn. Bergur (t.h.) fylgist með ungum drengjum á æfingu. Fé- lagsheimili Vals og gamla iþróttahúsið i baksýn. (Tímamyndir: Róbert) — næsta suiiiar”, sagði Bergur Guðnason, formaður Vals á 67. afmælisdegi félagsins Marka- „Heimaleikir Vals að Hlíðarenda — á Portman Road Bikarmeistarar Ipswich iéku ágóðaleik fyrir Mick Lambert á Portman Road, þar sem 16.847 áhorfendur sáu þá vinna sigur (6:5) yfir úrvalsliði úr ensku knattspyrnunni. Eins og tölurnar sýna, var ieikurinn mjög opinn og skemmtilegur. Lambert skoraði 2 mörk fyrir Ipswich — úr vitaspyrnum, en Paul Mariner, David Geddis og og George Burley (2) skoruöu hin mörk liðsins. Fyrir úrvalsliðiö skoruðu Brian Hamilton, (Mill- wall), David Johnson (Liverpool) — báðir fyrrverandi leikmenn Ipswich, Walker, (Millwall), (2) og West Ham-leikmaðurinn Trevor Brooking. PETER DANIEL Úlfamir kaupa Daniel SOS — Reykjavík — Við stefnum að því að geta notað nýja grasvöllinn sem heimavöll næsta sumar, sagði Bergur Guðnason formaður Knattspyrnufélagsins Vals, þegar við ræddum litillega við hann á hinu glæsilega svæði Valsmanna að Hlíðarenda í gær, en Valur átti þá 67 ára afmæli. Bergur sagði að nú þegar væri byrjað að vinna við gerð áhorfendastæða, sem tækju 4-5 þús. áhorfendur — og einnig væri byrjað að hanna girðingu kringum nýja grasvöllinn. — Nýi völlurinn er á mjög góð- um stað og hönnun og uppbygging á honum hefur verið frábær. — Við stefnum að þvi aö vigja hann á Valsdaginn i sumar, en næsta sumar munum viö nota hann að nokkru leyti sem heimavöll, sagði Bergur. Bergur sagði að nú þegar væri búið að leggja 25 milljónir i nýja grasvöllinn, en i sumar yröu lagð- ar fram 15-20 milljónir til viðbót- ar. Þá sagði Bergur að nú væru teikningar tilbúnar að nýju iþróttahúsi á Valssvæðinu. — Það iþróttahús mun leysa mörg vandamál, þar sem gamla húsið ernú þegar orðið alltof litiö, sagði Bergur. — Valsmenn eiga svæðið aö Hiiðarenda? — Já þetta er eignarland, sem kostaði 30 þús. árið 1939, og þótti það óðsmanns æði, þegar Vals- menn festu kaup á svæðinu, sagði Bergur að lokum. Það var að sjálfsögðu lif og fjör á Valssvæöinu, þegar blaðamenn Timans heimsóttu Hliðarenda i gær — ungir og upprennandi BERGUR GUÐNASON... formaður Vals, sýnir fréttamönnum Timans nýja grasvöliinn að Hliðarenda. drengir voru að æfa knattspyrnu. Það leyndi sér ekki áhuginn hjá þeim — og án efa voru þarna margir drengir, sem eiga eftir að láta að sér kveða i framtiöinni. Þegar mest er um að vera við æf- ingar á Valssvæðinu, eru þar um 300 drengir við æfingar á þremur völlum. Það er óhætt að segja að tiöin sé björt hjá Valsmönnum. Valur mun aö öllum likindum verða fyrsta knattspyrnulið landsins, sem leikur heimaleiki sina á heimavelli — Hliðarendavellin- um. Það þarf ekki að efa, að það mun auka aðsóknina aö heima- leikjum Vals og stemningin verö- ur meiri á heimavelli. Jóhannes á ferð og flugi — hefur farið til Akureyrar um hverja helgi til að þjálfa KA-liðið JÓHANNES ... sést hér stjórna æfingu KA-liðsins á Akureyri. Sammy Chung, fram- kvæmdastjóri tJlfanna, snar- aði pcningabuddunni áboröið i gærkvöldi og festi kaup á hin- um unga og efnilega bakverði Hull — Peter Daniel, sem hef- ur leikiö 7 landsleiki meö enska landsliöinu skipuöu lcikmönnum undir 21 árs aldri. Ulfarnir borguöu Hull, sem féll niður i 3. deild, 150 þús. pund fyrir Daniel og eru það mjög góð kaup. — Róðurinn verður erfiður hjá okkur til að byrja með — við leikum fjóra fyrstu leikina á úti- völlum, sagði Jóhannes Atlason, þjálfari KA-liðs- ins — nýliðanna frá Akur- eyri í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu. KA-liðið verður á ferð og flugi til að byrja með — liðið leikur gegn Breiðabliki, FH, Akranes og Fram á útivöllum, áður en það fær Vlking i heimsókn til Akur- eyrar 10, júnl. — Það hefur verið nokkuð erfitt að undirbúa KA-liðið fyrir slag- inn, þar sem ég er enn við störf hér i Reykjavik, sagöi Jóhannes, sem hefur farið norður á Akur- eyri um hverja helgi aö undan- förnu, til að stjórna æfingum KA- liösins. Jóhannes situr þó ekki auðum höndum i Reykjavik, þvi hann heldur uppi reglulegum æfingum fyrir þrjá leikmenn KA-liðsins, sem hafa dvalizt i Reykjavik i vetur. Það eru þeir Armann Sverrisson, sem stundar nám við háskólann, Óskar Ingimundarson — hann mun halda til Akureyrar um helgina, og Þorbergur Atla- son, markvörður. Jóhannes sagði aö strákarnir i KA-liðinu væru ákveðnir að standa sig vel i sumar — þeir leika sinn fyrsta leik gegn Breiöa- bliki á Kópavogsvellinum á morgun. — Elmar Geirsson, sem er ekki enn búinn að ná sér full- komlega eftir meiðslin, sem hann hlaut i V-Þýzkalandi. mun ekki leika fyrsta leikinn, en annars teflum viö fram okkar sterkustu mönnum, sagði Jóhannes. -SOS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.