Tíminn - 10.06.1978, Side 8
8
Laugardagur 10. júni 1978
Framkvæmdanefnd Krabbameinsfélags tslands, talift frá vinstri: Hjörtur Hjartarson, forstjóri,
gjaldkeri. Óiafur Bjarnason, prófessor, formaöur. jónas Hallgrimsson, yfirlæknir, ritari.
Frá aðalfundi Krabbameinsfélags íslands:
Leitin að brjóst-
krabbameini verði hert
Aðalfundur Krabba-
meinsfélags Islands var
haldinn 5. maí s.l. að Suð-
urgötu 22 Reykjavík. Auk
stjórnar mættu 15 fulltrú-
ar frá 10 krabbameinsfé-
lögum.
Prófessor ólafur
Bjarnason, formaður fé-
lagsins, flutti skýrslu fé-
lagsstjórnar.
Aðalstarfsemi félags-
ins hefur undanfarin ár,
fyrst og fremst, verið
bundin við þrjú megin
verkefni, þ.e.a.s. krabba-
meinsleit, frumurann-
sóknir og krabbameins-
skráningu — svo og
fræðslustarf semi, en
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur hefur ann-
azt fræðslu þá senV
krabbameinsfélögin reka
i skólum landsins varð-
andi skaðsemi tóbaks-
reykinga.
Krabbameinsleit
Við hópskoðanir árið 1977
voru greindar 22 konur með
krabbamein i brjósti, 2 konur
með legbolskrabbamein og 2
konur með krabbamein i eggja-
kerfi. Þrettán konur voru
greindar með staðbundið
krabbamein i leghálsi en aðeins
þrjár konur með ifarandi
krabbamein. Leghálskrabba-
meinið er greinilega á undan-
haldi hér á landi og til saman-
burðar má geta þess að 1975 og
1976 voru greindar 12 konur
annaö árið og 13 konur hitt áriö
með þennan sjúkdóm. Þegar
tiðni þessa sjúkdóms var hæst
hér á landi, 1968, voru greindar
34 konur með leghálskrabba-
mein. Dánartalan hefur einnig
lækkað i 5 á ári árin 1975—-1976
úr 13 á ári árin 1965—1969. Engin
þeirra þriggja kvenna sem
greindar voru á árinu 1977 höfðu
mætt til hópskoðana áður.
Það er mjög mikilvægt aö ná
til þeirra kvenna sem aldrei
hafa mætt og hafa ýmsir aðilar
lagt félaginu liö við þaö, m.a.
Sorooptimista-klúbburinn i
Keflavik aðstoðaöi við skoöun á
Suðurnesjum og sýndu lofsverð-
an áhuga i þvi efni.
Þar sem tiðni brjóstkrabba-
meins fer greinilega mjög vax-
andi.er til athugunar hjá félag-
inu aö auka mjög leit aö þeim
sjúkdómi, svo greina megi hann
á byrjunarstigi i sem flestum
tilfellum.
Frumurannsóknir
Milli 12 og 13 þús. frumusýni
voru rannsökuð á árinu. Flest
voru sýnin frá leghálsi kvenna
en sýnum frá öðrum liffæra-
kerfum sem rannsökuð eru fer
ört fjölgandi.
A árinu 1977 var i fyrsta skipti
þjálfað hér á landi fólk til að
starfa að frumurannsóknum.
Gunnlaugur Geirsson yfirlæknir
hafði með höndum þjálfun
tveggja stúlkna.
Kiwanisklúbburinn Hekla gaf
félaginu kennslusmásjá.
An hennar hefði þessi þjálfun
stúlknanna verið óframkvæm-
anleg. Nemendur frá Verzlun-
arskóla tslands útskrifaðir 1957
gáfu myndarlega gjöf til kaupa
á bókum i frumufræði sem einn-
ig voru ómissandi við kennsl-
una. Sú gjöf var gefin til minn-
ingar um tvo bekkjarbræður
sem látizt höfðu úr illkynja
sjúkdómi.
Fram til þessa hefur allt fólk
sem þjálfað hefur verið i frumu-
rannsóknum verið sent til út-
landa.
Krabbameinsskrá
Það er athyglisvert að bráða-
birgðatölur fyrir áriö 1977 sýna
að þetta er fyrsta áriö sem
magakrabbamein er ekki al-
gengasta krabbameinið á Is-
landi. Nú er brjóstkrabbamein-
ið orðið langalgengasta krabba-
meinið hér á landi hjá konum og
er fjöldi magakrabbameina hjá
körlum og konum samanlagt
lægra en krabbamein i brjóstum
kvenna. Blööruhálskirtils-
krabbamein er algengast hjá
körlum.
Við rannsóknastörf hefur
Krabbameinsskráin verið i ná-
inni samvinnu við allmarga aö-
ila, innlenda sem erlenda, svo
sem leitarstöð félagsins, Erföa-
fræöinefnd Háskóla Islands, Al-
þjóöa krabbameinsrannsókna-
stofnunina i Lyon I Frakklandi
og Heilbrigðismálastofnun
Bandarikjastjórnar og notið
verulegra visindastyrkja frá
þessum siðasttöldu erlendu
stofnunum. Þau verkefni sem
þessi samvinna hefur einkum
beinzt að er athugun á faralds-
fræði bróstakrabbameins.
Einnig hefur verið mikil sam-
vinna við Rannsóknastofu Há-
skólans i meinafræði. Auk þess
hafa verið i gangi um nokkurt
skeiö samvinnuverkefni við
krabbameinsskrárnar á Norö-
urlöndum.
útgáfumál.
Krabbameinsfélag Islands
hefur f aldarfjórðung gefið út
timaritið „Fréttabréf um heil-
brigðismál”. 1 byrjun siðasta
árs voru geröar allmiklar útlits-
breytingar á blaðinu og hefur
þvi verið mjög vel tekið i hinum
nýja búningi. A einu ári hefur
áskrifendum fjölgaö um 800 og
eru þeir nú 4.300. Formaður
félagsins er jafnframt ritstjóri
blaðsins en með honum starfar
12 manna ritnefnd. Útgáfustjóri
er Jónas Ragnarsson.
Nordisk Cancerunion
Hinn árlegi fundur krabba-
meinsfélaga á Norðurlöndum
„Nordisk Cancerunion” verður
haldinn i Reykjavik 20. júni nk.
Hinn 21. júni verður haldiö i
fyrsta skipti hér á landi visinda-
manna ráðstefna i tengslum við
slikan fund og verður aðalefni
hennar erfðir og krabbamein. A
ráöstefnunni verða um 20 fyrir-
lesarar bæði Islenzkir og er-
lendir. Flestir fyrirlesaranna
verða frá Norðurlöndum, en auk
þess er boðið tveimur visinda-
mönnum frá Bandarikjunum,
þeim J.N.P. Davies, prófessor i
meinafræði við Lækna-skólann I
Albany i N.Y. og David Ander-
son frá M.D. Anderson krabba-
meinsrannsóknastöði nni i
Houston i Texas. Einnig mun
sitja ráðstefnuna Dr. Day frá
Alþjóðakrabbameinsrannsókn-
arstofnuninni i Lyon, sem hefur
haft náið samstarf við
Krabbameinsskrána um
margra ára skeið.
Gjafir.
Félaginu hafa verið færðar
margar góðar gjafir á árinu svo
sem kennslusmásjá frá
Kiwanisklúbbnum Heklu og
peningagjöf frá fyrrverandi
nemendum Verzlunarskólans til
kaupa á bókum i frumufræði.
Báðar þessar gjafir gerðu félag-
inu það kleift að þjáifa fólk I
frumurannsóknum hér á landi i
fyrsta sinn. Nesco h.f. gaf 255
þús. kr. og minningargjöf barst
frá Valgerði Þóröardóttur aö
fjárhæð 200 þús. kr. og ótal
margar smærri gjafir sem of
langt yrði upp að telja. Enn hef-
ur félaginu borizt nokkuð sér-
stæö og kærkomin gjöf en það er
bókagjöf frá Hafsteini Guð-
mundssyni útgefanda. Hann
færöi félaginu safn bóka um ætt-
fræði milli 70 og 80 bindi.
Félagið er að sjálfsögðu mjög
þakklátt fyrir allar þessar góðu
gjafir.
Erindi.
A aðalfundinum flutti Þór-
arinn Sveinsson læknir erindi
um aöstööu til krabbameins-
lækninga hér á landi og ræddi
um hugsanlegar úrbætur i þvi
efni, en Þórarinn er sérmennt-
aður i krabbameinslækningum
og kom heim á sl. ári.
Stjórnarkjör.
Helgi Eliasson fv. fræðslu-
málastjóri var annar þeirra
stjórnarmanna sem áttu að
ganga úr stjórninni. Helgi hefur
setið i stjórn félagsins um ára-
raðir allt frá 1964 en hann gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Fundarmenn hylltu hann sér-
staklega fyrir óeigingjarnt starf
i þágu félagsins. Dr. Gunnlaug-
ur Snædal yfirlæknir var kosinn
i staö Helga.
Stjórn Krabbameinsfélags
Islands er nú þannig skipuð.
Olafur Bjarnason prðfessor,
formaöur.
Hjörtur Hjartarson forstjóri,
gjaldkeri.
Jónas Hallgrimsson yfirlæknir,
ritari.
Meðst jórnendur:
Erlendur Einarsson forstjóri
Dr. med. Friðrik Einarsson.
Dr. Gunnlaugur Snædal yfir-
læknir
Matthias Jðhannesson ritstjóri
Ólafur Orn Arnarson læknir
Vigdis Magnúsdóttir hjúkrunar-
forstjori
Framkvæmdastjóri er Halldóra
Thoroddsen.
SNAPER
Dýraspitalinn
Nú má heita öruggt aö
samningar takist viö Brynjólf
Sandholt dýralækni um að
hann taki að sér starf yfir-
læknis við Dýraspitalann,
sagöi Guömundur ólafsson
einn stjórnarmanna spitalans,
undirrituðum. Þá mun i undir-
búningi að byggja hesthús viö
spitalann, svo hægt veröi að
leggja sjúka eða meidda hesta
þar inn til meðferöar. Guö-
mundur sagðist vona að hesta-
menn legöust á eitt um söfnun
og útvegun peninga — þvi þar
kreppir skórinn helzt — svo
takist að koma byggingunni
upp fyrir næsta vetur.
Fákur
Nú hafa veriö valdir þeir
gæöingar, sem eiga að keppa
fyrir Fák á landsmóti i sumar.
Gæðingarnir þurftu að fara
tvisvar i gegn um hreinsunar-
eld dómnefndarinnar og gilti
meðaltal einkunna úr báðum
umferðum. Þessir voru
valdir:
A-flokkur
1. Ljúfur, Haröar G. Alberts-
sonar. Einkunn: 8.70
2. Garpur, Harðar G. Alberts-
sonar Einkunn: 8.60
3. Hjörvar Sigurbjörns
Bárðarsonar. Einkunn: 8.52
4. Feykir Friðriks Jörgensen
og Halldórs Eirikssonar.
Einkunn: 8.52
5. Skuggi Lenu M. Rist. Eink-
unn: 8.42
Til vara:
Fáfnir, Þorvaldar Þorvalds-
sonar. Einkunn: 8.16,
Kóngur, Hjalta Pálssonar.
Einkunn: 8.15
B-flokkur
1. Brjánn, Haröar G. Alberts-
sonar. Einkunn: 8.98
2. Muggur, Sigurbjörns
Bárðarsonar. Einkunn: 8.65
3. Stormur Harðar G. Alberts-
sonar. Einkunn: 8.59.
4. Galumur, Sigurbjargar
Sigurbjörnsdóttur. Einkunn:
8.54
5. Goði# Jóhannesar Eliasson-
ar. Einkunn 8.47
Til vara:
Gullfeti Haildórs Sigurðsson-
ar. Einkunn: 8.29
Blikfaxi, Sigriðar Gisladóttur.
Einkunn: 8.27
Nös frá Urriðavatni
Frétzt hefur aö Jón Ólafsson
frá Urriðavatni sé farinn til
starfa i Noregi. Fengizt hefur
staðfest aö Nös verði þó skráð
til keppni á landsmótinu. Hins
vegar reyndist útilokað að fá
uppgefiö hver mundi þjálfa
hana og hleypa henni þar.
Vafalaust munu margir af
okkar ágætu knöpum vera fús-
ir til að taka hlutverkiö að sér
og sjálfsagt biða flestir áhuga-
menn um kappreiöar spenntir
eftir að frétta hver verður
fyrir valinu. Heimildarmaður
upplýsti einnig að þetta yrði
siðasta keppni Nasar, þvi
þaðan af yrði hlutverk hennar
að ala og uppfóstra nýja
hla upagikki.
Hesturinn okkar
m er komið 1. tbl. 19. árg.
1978 af Hestinum okkar. Að
þessu sinni fjallar blaðið nær
eingönguum hrossarækt. Viöa
er leitað fanga um efnið t.d. er
birtur kafli um hrossarækt úr
Búfjárfræði Gunnars Bjarna-
sonar, ráðunautarnir Þor-
valdur Arnason, Þorkell
Bjarnason og Gunnar Bjarna-
son segja sitt álit og einnig
tveir leikmenn, þeir Sigurður
Haraldsson og Ragnar
Tómasson. Friöþjófur Þor-
kelsson skrifar um stærð og
vöxt hrossa og Stefán Aðal-
steinsson um vindótta litinn.
Þá er þar einnig framhald
greinarinnar Höfn ræöur hesti,
eftir Ólaf Stephensen. Rit-
stjórnargreinin fjallar að
nokkru um dómstiga kynbóta-
hrossa og þar segir m.a.: „I
dómstiga kynbótahrossa eru
augljósir gallar sem verður að
lagfæra,” og setur ritstjóri
fram hugmyndir til úrbóta.
Landsmótið
Undirbúningsnefnd lands-
mótsins sendi formönnum
hestamannafélaganna tilmæli
i vetur þess efnis aö aðeins
yrðu sendir gæðingar til
keppni á landsmótinu sem
slöguðu hátt I einkunnina 8,0
og þó enga með lægri einkunn
en 7,60. Þetta ásamt þrengd-
um reglum um fjölda gæðinga
frá hverju félagi, fækkar
verulega gæðingumsem koma
til dóma álandsmótinu ogum
leið má vænta mun betri
sýningar.
Skilyrði til þátttöku i kapp-
reiöum mótsins er aö hestur-
inn hafi náö eftirtöldum
árangri:
Skeið 250m 26,0 sek.
Stökk 250m . 21,0sek.
Brokkl500m 3:35,0 mín.
Stökk 350m 28,5 sek.
Stökk 800m 68,0 sek.
Háskólinn”
Nú eiga ýmsir snjallir reið-
menn annrikt viö þjálfun
sýningarhrossa fyrir lands-
mótið. Eftirsóttastur mun
Reynir Aðalsteinsson á Sig-
mundarstöðum vera og segj-
ast sumir hesteigendur hafa
sent hesta sina i háskóla til
hans. Undirritaður hefur frétt
af gæöingum frá fjórum félög-
um, sem nú njóta handleiðslu
hans, þeim Náttfara frá Horrt-
firðingi, Óðni frá Létti, Feyki
frá Fák og Penna, Reynis
sjálfs, sem er efstur á blaði
þeirra gæðinga sem keppa á
landsmóti fyrir Faxa. Reynir
mun einnig vera með nokkur
kynbótahross i þjálfun en þeg-
ar þetta er skrifað er ekki
vitað hve mörg þeirra fara til
dóma á landsmóti.
Kynbótahross
Þorkell Bjarnason hrossa-
ræktarráðunautur og Albert
Jóhannsson i Skógum ferðast
nú um landið þvert og endi-
langt og velja kynbótahross til
sýninga á landsmótinu.
Heldur eruþeirdapriryfirhve
fá hross þeir finna sem stand-
ast kröfur þeirra, t.d. fundu
aðeins fimm hross náö fyrir
augum þeirra þegar þeir
skoðuðu i Reykjavik hross af
suðvesturhorninu. Ekki er þó
allt svart i þessum efnum og
sagöist Albert ekki eiga von á
að nokkur alhliða gæöingur,
sem til gæðingadóma kemur á
landsmóti muni jafnast á við
Náttfara 776 frá Ytra-Dals-
gerði — þann sem mesta
hrifningu vakti á landsmóti
1974 — aö reiðhestskostum.
Þeirfélagar eru alls ekki von-
daufirum að ná saman góöum
hópi fallegra hrossa, þvi þeir
eiga eftir aö ferðast um ágæt
hrossahéruð. S.V.
" .Wf - -
'J ' yf..
- *- '‘■-'íavA
< JJp.
v *
Sigurbjörn Bárðarson á Brjáni