Tíminn - 10.06.1978, Qupperneq 10
10
Laugardagur 10. júnl 1978
as&iBss
Sfcpfc:
tónlist
-Dúóið
A siðari tónleikum sinum i Nor-
ræna húsinu lék Grieg-Dúóið
(frá Noregi) Sónötu iB-dúr fyrir
fiðlu og pianó, K.378, eftir
Mózart (1756-1791), Sónötu nr. 2
i e-moll eftir Ferruccio Busoni
(1866-1924), og Fantasiu i C-dúr
op. 159 eftir Franz Schubert
(1797-1828).
Ég tel það jafnan til marks
um vel spilaðan Mózart ef mér
finnst hann skemmtilegur, og
þeim félögum, Ole Böhn (fiðla)
og Einari Steen-Nöckleberg
(pianó) fórst B-dúr sónatan
prýðilega úr hendi. Picinóleikur-
inn var rétt eins og Mózart á aö
vera, tær, léttur og geislandi, og
prýðilegt jafnvægi rikti milli
hljóöfæranna. Ole Böhn spilar á
Guadagnini-fiðlu frá 1766 —
boginn bitur honum m jög vel, en
hlutinn byggöur umlitið sálma-
lag eftir Bach. Sónatan tók
u.þ.b. 30 minútur i flutningi —-
ég hefði ráðlagt Busoni að stytta
hana um svo sem 5 minútur,
sem e.t.v. segir það um leik
þeirra félaga, að þeim hafi ekki
tekizt að glæða hana nægilegu
lifi.
1 Schubert-fantasiunni hefði
þurft að opna hlemminn á
pianóinu betur, þvi fiölan vildi
bera það ofurliði. Fantasian
(óp. 159) er siðust i röð fiðludú-
etta skáldsins, og þykir bera af
allri kammermúsik hans, enda
er hún talin mjög erfiö I flutn-
ingi. Flutningur frænda vorra
var fjarri þvi að vera hnökra-
laus, en jafnframt var margt
fagurlega gert, enda fögnuðu
áheyrendur og fengu hæga kafl-
ann úr d-moll sónötu Brahms að
auki.
Þeir Böhn og Steen-Nöckle-
berg eru ungir menn meö fram-
tiðina fyrir sér, fæddir 1944' og
’45. Eins og áður sagði fannst
mér Mózart-sónatan takast bezt
hjá þeim, einkum pianistanum,
— og Mózart geta aöeins börn og
snillingar leikið (sagði spakur
maöur) — þaö er trúa min að
þessum ungu mönnum eigi enn
eftir aðfara fram þótt góðir séu.
7.6. Sigurður Steinþórsson
Grieg-Dúóið, Ole Böhn, fiöla og Einar Steen-Nöckleberg, pianó
hannhefur ekki bogatækni á við
Rostrópóvits, sem við heyrðum
i gærkvöld, sem kemur fram i
hnökróttum tóni i staccató og
pianissimó-köflum. En i heild
var þetta ánægjulegur leikur.
Hinar tvær fiðiusónötur
Busonis eru taldar meöal hans
beztu verka. Hér kennir margra
grasa, og heildarþráöur tor-
fundinn — þetta eru aðskiljan-
legar variasjónir.og allur siðari
ir Niels Gade, Hartmann,
Horneman, Kuhlau og fleiri.
Strokkvartett Kaupmanna-
hafnarleikur prýöilega, einkum
1. fiðla og knéfiölan, þótt hin
hljóðfærin (og þá einkum lág-
fiðlan) fengju „stór augnablik”
á tónleikunum, eins og síðar
greinir. Hins vegar fannst mér
kvartettinn full-þunglamalegur
i Mózart — en prýöilegur i Schu-
bert.
Aðalatriði tónleikanna var að
sjálfsögöu frumflutningur á
nýjum kvartett eftir Þorkel
Sigurbjörnsson (f. 1938), sem
saminnvar (að mérskilst) fyrir
þetta tækifæri og þennan kvart-
ett. Burðarás kvartettsins er
danska lagið „Det bor en
bager”, sem er danskast
allra laga i hugum ts-
lendinga — þar segir siðar:
„og har du penge/ saa kan du
faa”, sem er alveg hárrétt.
Strokkvartett Kaupmannahafn-
ar tókst prýðilega upp i þessu
skemmtilega verki Þorkels,
ekki sfzt knéfiðlaranum, sem
raunar vildi drekkja báðum
millihljóðfærunum með áhuga
sinum, sem liklega er fulllangt
gengið. Kvartettinn endar með
þvi að lágfiðlarinn bankar i
hljóðfæri sitt með boganum,
fiðlararnir leggja frá sér fiðl-
urnar og taka að klappa i takt
við bankiö, og áheyrendur taka
undir. Við það að verða þannig
maður augnabliksins ljómar
andlit lágfiðlarans af gleöi, þvi
lágfiðlarar fá alltof fá tækifæri i
heimi hér til aö blómstra. Þetta
voru ágætir tónleikar og enduöu
meðaukalagi, Scherzo úr D-dúr
kvartett Nielsar Gade.
7.6.Sigurður Steinþórsson.
Kaupmannahafnar
Strokkvartett
Strokkvartett Kaup-
mannahafnar heldur
tvenna tónleika á
Listahátið 1978 — hinir
fyrri voru haldnir i
Norræna húsinu sunnu-
daginn 4. júni. Á
efnisskránni voru þrir
kvartettar, eftir
Mózart, i C-dúr K 465,
Þorkel Sigurbjörnsson,
nr. 2, og Schubert, i
a-moll op. 29.
Strokkvartett Kaupmanna-
hafnar var stofnaöur árið 1957,
af fjórum félögum I hljómsveit
Konunglega leikhússins i Kaup-
mannahöfn. Ef marka má
skrána eru þrír núverandi
félaga stofnfélagar, allir nema
2. fiðla. Knéfiðlarinn er oss að
góöu kunnur, Asger Lund
Christiansen kom hér fyrr i vet-
ur og spilaði með Þorkatli
Sigurbjörnssyni i Norræna hús-
inu. tslendingar eiga sinn
strokkvartett núna, Reykjavik-
ur Ensemble, og fyrir mörgum
árum gerði kvartett Björns
Ólafssonar garöinn frægan. En
samt minnti þetta kúltiveraöa
og vel til hafða fólk mig á and-
lega og efnalega niðurlægingu
Islendinga undir Dönum — Við
Strokkvartett Kaupmannahafnar, Tutter Giskov, 1. fiðla.Mogens Durholm, 2. fiöla,
Mogens Bruun, lágfiðla, AsgerLund Christiansen, knéfiðla.
byrjuöum að syngja og spila á
lúðra seint á 19. öld, og fengum
visi að hljómsveit upp úr 1925.
Danir áttu mörg ágæt tónskáld
og hljómsveitir á 19. öld, og þessi
kvartett hefur raunar unnið
merkisstarf i sinu heimalandi i
þvi að endurvekja og leika dönsk
verkfrá árunum 1800- 1880, sem
kölluö eru Gullöld danskrar tón-
listar. Þeir hafa „dregið fram I
dagsljósið” ágæta kvartetta eft-
Finnskir arkitektar bjóða til ráðstefnu um skipulagsmál
Norræn ráðstefna um
skipulagsmál verður
haldin i Abo i Finnlandi
dagana 28.-30. ágúst i
sumar. Að ráðstefnunni
standa finnska arki-
tektafélagið og samtök
áhugamanna þar i landi
i samvinnu við tilsvar-
andi félagasamtök á
Norðurlöndum öllum.
Viðfangsef nið er „heildar-
skipulag og umhverfi” (den
översigtliga planeringen och den
fysiska miljön) ogveröur um það
fjallað bæöi i fyrirlestrum og um-
ræðuhópum, auk þess sem komið
verður upp sýningu á dæmum
um skipulag og framkvæmd þess
á Noröurlöndum og farnar
kynnisferöir um Abo-svæöiö.
í lok ráöstefnunnar gefst þátt-
takendum siðan kosturá hópferð-
um til nokkurra borga i Finn-
landi.
Frekari upplýsingar er aö fá á
skrifstofu Arkitektafélags
tslands, Grensásvegi 11, simi
86555 milli kl. 9,00-12.00 daglega.
Dagskrá ráðstefnunnar liggur
frammiá sama stað, og tilkynn-
ingar um þátttöku skulu hafa
borizt þaðan eigi siðar en 20. júni
. n.k.
Vantar þig umboð eða framleiðslu-
rettindi? Lestu þa Iðnaðarblaðið