Tíminn - 10.06.1978, Side 13
Laugardagur 10. }únl 1978
13
Gröfumaður
óskast til starfa hjá Hveragerðishreppi.
Upplýsingar á skrifstofu hreppsins i sima
4150 eða hjá verkstjóra i sima 4337.
Hveragerðishreppur.
Framkvæmdastjóri
Suðurnesja verktakar h.f, óska eftir að
ráða framkvæmdastjóra sem fyrst.
Upplýsingar gefa Jón B. Kristinsson i
sima (92)2976 og (92)2193 og Einar Þor-
steinsson i sima (92)3400.
Skattstofa
Reykjavíkur
óskar eftir mönnum tii endurskoðunar
skattframtala i atvinnurekstrardeild.
Bókhaldsþekking nauðsynleg og við-
skiptafræðimenntun æskileg. Umsóknir,
sem greina aldur menntun og fyrri störf,
skal senda til skattstjóra fyrir 20. júni n.k.
SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK
Sveitastörf
15 ára stúlka óskar eftir sumarvinnu sem
allra fyrst.
Upplýsingar i sima 5-29-36.
Starfsfólk óskast
Við óskum eftir að ráða eftirtaiið starfs-
fólk, sem gæti hafið störf eigi siðar en 1.
ágúst n.k.
A. Ritara með góða vélritunar og ensku-
kunnáttu, einnig meðferð telex.
Vinnutimi er eftir hádegi.
Meðmæli æskileg.
B. Bókara með staðgóða kunnáttu i bók-
haldi og almennu reikningshaldi. Hér er
um heilsdags starf að ræða. Meðmæli
óskast.
C. Starf við kaffiveitingar. Vinnutimi er
til skiptis ákv. timi fyrir eða eftir há-
degi.
Nauðsynlegt að umsækjandi búi sem
næst Skeifunni.
Umsóknir sendist blaðinu fyrir 16. þ.m.
merkt: 00158 ES.
WlgjlIJmSÆsSSmm
ETiHUTTTTTiiTMgTTTTTHi'T'M^M
3ja herbergja íbúð
er til sölu
við sundlaug austurbæjar. Rúmgóð og sól-
rik, laus nú þegar.
Upplýsingar i sima 1-72-32.
„Gesta-
leikur”
vinsæl-
astur
„Sjón-
hending”
óvinsælust
— Junior
Chamber gera
könnun á vin-
sældum sjón-
varpsefnis í
Austur-
Húnavatnssýslu
GEK — Félagsskapurinn Junior
Chamber á Blönduósi hefur ný-
verið gengizt fyrir könnun meðal
ibúa Austur-Húnavatnssýslu.
Annars vegar voru kannaðar
vinsældir einstakra dagskrárliða
sjónvarpsins, en hins vegar spurt
um móttökuskilyrði sjónvarps-
sendinga i sýslunni.
Úrtakið í fyrri könnuninni var
valið á þann hátt, að fjórða hverj-
um ibúa, skv. ibúaskrá sýslunn-
ar, var sendur listi með nöfnum
20sjónvarpsþátta oghann beðinn
um að tjá sig um gæði þáttanna
og hve oft hann horfði á þá. Þessi
könnun fór fram i janúar s.l. og
var spurt um þá þætti sem mest
bar á í dagskrá sjónvarpsins um
það leyti, en nokkrir þeirra hafa
nú hætt göngu sinni.
Þar eð þátttaka I könnuninni
vær dræm, eða um 30%, geta
niðurstöður hennar ekki talizt
marktækar. Af þeim svörum sem
bárust má þó ráða, að fréttir- og
fréttatengdir þættir eru það efni
sjónvarpsins sem yfirleitt er horft
á, en frá þessu virðist þó vera ein
undantekning i Austur-Húna-
vatnssýslu, sem er þátturinn
Sjónhending. A hann horfa ein-
göngu 8% þeirra sem þátt tóku i
könnuninni.
Mestrar hylli naut þátturinn
Gestaleikur sem nú hefur hætt
göngu sinni, en á hann horfðu
82,3% þeirra sem svöruðu.
Um niðurstöðurnar visast að
öðru leyti til meðfylgjandi súlu-
rits sem félagar i Junior Chamb-
er hafa gert um niðurstöðurnar,
en það skal þó endurtekið að
könnunin er ekkimarktæk vegna
þess hve fáir svöruðu.
Fjórða hvert heimili nýtur ekki
s jónvarpssendinga.
Siðari hluti könnunarinnar var
framkvæmdur i marz s.l. og náði
hann til allra sveitaheimila i sýsl-
unni. Sendir voru út 170
spurningalistar, en aðeins bárust
46 svör og er könnunin þvi ekki
marktæk.
Samkvæmt svörunum náðu 13
heimili af þeim 46 sem svöruöu
ekki útsendingu sjónvarpsins'. I
stuttri athugasemd, sem félagar i
Junior Chamber hafa gert um
mðurstöðu könnunarinnar, vekja
þeir athygli á, að vitað sé um 29
j heimili til viðbótar þar sem út-
sendingar sjónvarpsins nást ekki,
ogeru það þá samtals 42 heimili i
Austur-Húnavatnssýslu, sem ekki
ná margumræddum sendingum.
Reiknast þeim Junior Chamber-
mönnum til, að það séu 24%
sveitaheimila i sýslunni.
Hestamanna-
félagið Gustur
Tekið á móti hestum i hagagöngu i Króki
næstu daga.
Hafið samband i sima 4-36-10 og 1-01-60.
Dregið var i happdrætti Gusts 24. mai.
Upp komu þessi númer: 4421 —3418 — 3667
—4463 — 3413 — 3099 — 2571 — 698.
Gustur.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ A
HVOLSVELLI
Tilboð óskast i að reisa og gera fok-
helda heilsugæslustöð á Hvolsvelli.
Verkinu skal vera lokið 1. ágúst
1979. Útboðsgögn verða afhent á
skrifstofu vorri Borgartúni 7,
Reykjavik gegn 20.000.- kr skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 4. júli 1978
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
Staða YFIRSÁLFRÆÐINGS við
Geðdeild Barnaspitala Hringsins er
laus til umsóknar.
Umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist til skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 11. júli n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deild-
arinnar i sima 84611.
KLEPPSSPÍTALINN
LÆKNARITARIóskast nú þegar á
spitalann. Stúdentspróf eða hliðstæð
menntun áskilin, ásamt góðri vélrit-
unarkunnáttu. Umsóknir berist til
læknafulltrúa spitalans, sem veitir
nánari upplýsingar i sima 38160.
RANNSÓKNASTOFA
HÁSKÓLANS.
Staða SÉRFRÆÐINGS i liffæra-
meinafræði er laus til umsóknar.
Staðan er bundin við að sérfræðing-
urinn hafi kynnt sér barnameina-
fræði sérstaklega. Umsóknir er
greini aldur, menntun og fyrri störf
sendist til skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 11. júli n.k.
Reykjavik, 11.6. 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPITALANNA
EIRÍKSGÖTU 5; SIMI 29000