Tíminn - 10.06.1978, Síða 15
Laugardagur 10. júnl 1978
Uimvsm
15
■peé9^
0Í>eí
ð-
Vaknið af
byrnirósar-
svefninum.
★ Islenzk knattspyrna i
miklum öldudal
★ Meðalmennskan ræður
rikjum og stjörnuleikmenn
sjást vart lengur
★ Efnileg lið, öskur þjálfara
og skrif dagblaða
Baráttan um islands-
meistaratitilinn I knatt-
spyrnu er nú nýhafin og hafa
leikir 1. deildarliba okkar
vakið knattspyrnuunnendur
til alvarlegrar umhugsunar,
þvi aö það hefur ekki farið
fram hjá neinum, aö meðal-
mennskan virðist ráða þar
rikjum — flestir leikirnir,
sem hafa verið leiknir, hafa
veriö afspyrnuléiegir og
leiðinlegir á að horfa.
Það er leitt til þess að vita
að knattspyrnan sé svo léleg
hér á landi, sem raun ber
vitni, þvi að aldrei hefur ver-
ið varið eins miklum pening-
um Iknattspyrnuna og aldrei
hafa knattspyrnumenn okk-
ar lagt eins hart að sér við
æfingar — fórnað mörgum
fritímum sinum á knatt-
spyrnuvellinum.
Hér á landi eru starfandi
nokkrir erlendir þjálfarar,
sem eru með árslaun frá 5—9
milljónir, og hafa sumir
þeirra verið hér i nokkur ár,
án þess að ná nokkrum
árangri. George Kirby,
þjálfari Skagamanna, er þó
undantekning, þvi að hann
hefur náð frábærum árangri
með Akranes-liðið, sem er,
ásamt Val, okkar bezta
félagslið— sýnir léttleikandi
og skemmtilega knatt-
spyrnu.
Þegar ég var á vellinum nú
fyrir stuttu, þar sem Vik-
ingur og Breiðablik áttust
við,en þau félög eru með
dýraerlenda þjálfara, vakn-
aði sú spurning, hvað þjálf-
ararnir láti leikmenn sina
gera á æfingum. Spurningin
var afar eðlileg, þvi að bæöi
liðin léku mjög slaka knatt-
spyrnu — leikmenn liðanna
gerðu iitið annaö en hlaupa
og sparka knettinum eitt-
hvaö upp i loftið.
Vikingur og Breiöablik eru
ekki einu liðin, sem eru
brennimerkt þessu marki—
þau eru það flest, liðin i 1.
deild. Menn hafa verið að
reyna að finna skýringar á
þessu — og hafa margar
skýringar skotið upp kollin-
um, eins og að leikmenn æfi
allt of mikið, eða þetta 4—5
sinnum i viku, og séu þvi
hættir að hafa gaman af þvi
sem þeir eru að fást við —
knattspyrnan sé orðin eins
og hver önnur erfið vinna.
Þaö er margt til I þessu, en
þó er ekki hægt aö loka
augunum fyrir þvi, að
islenzk knattspyrna hefur
sjaldan verið eins léleg og
nú. Sennileg skýring á þvi er,
að þau lið sem leika 11. deild,
hafa ekki nægilega marga
snjalla knattspyrnumenn i
herbúöum sinum — leik-
menn sem hafa yfir
Imyndunarafli aö ráöa og
leikmenn sem geta gert hluti
á eigin spýtur. Það eru aö-
eins Valur og Akranes, sem
geta boöiö upp á liö, sem eru
skipuð úrvalsleikmönnum i
nær hverri stöðu — sem hafa
yfir knatttækni og
imyndunarafli að ráöa.
Hjá öörum liðum er mjög
litið um samspil og þar af
leiðandi verður sóknarleikur
þeirra ekki nægilega beittur
og ógnandi — leikmenn liö-
anna sýna enga hugsun lang-
timunum saman, heldur
hlaupa og ráfa um völlinn.
ki
Óskipulag og handahóf ráða
ferðinni og meöalmennskan
einkennir leiki liðanna.
Stjörnuleikmenn
sjást ekki lengur
Það er liðin tið, aö áhorf-
endur komi á völlinn til að
sjá einstaka leikmenn sýna
listir sinar með liðum sinum
— leikmenn eins og
Hermann Gunnarsson, Val.,
Orn Steinsen, KR, Rikarö
Jónsson, Akranesi, Helga
Númason, Fram, Elmar
Geirsson — þegar hann var
upp á sitt bezta meö Fram,
Steingrlm Björnsson, Akur-
eyri og Þórðlf Beck, svo ein-
hverjir séu nefndir. Þetta
voru allt leikmenn, sem
gaman var aö horfa á — leik-
menn sem höfðu yfir
imyndunarafli að ráða og
þorðu að nota það.
Að visu eru nokkrir leik-
menn nú, sem eru skemmti-
legir — leikmenn eins og
Pétur Pétursson, Akranesi,
Pétur Ormslev, Fram, og
Atli Eðvaldsson, Val — allt
leikmenn, sem hafa yfir
mikilli knattmeðferð að ráða
og þora að beita henni i leik.
„Efnileg lið”
Svo að við snúum okkur
aftur aö leik Vikings og
Breiðabliks, en bæði þessi lið
hafa dýra þjálfara i herbúð-
um sinum, þá er ekki að
sjá, að þessi lið hafi tekið
nokkrum framförum undan-
farin ár. Þessi liðeri búin aö
vera geysilega efnileg lengi
vel—Já, i allt aö 4. ár og eru
þvi búin að vera „efnileg”
nokkuö lengi. Ahangendur
liðanna hafa beðiö óþreyju-
fullir lengi eftir að rættistúr
liðunum, en sennilega verður
einhver bið á þvi að þau nái
að verða góð og heilsteypt
lið, sem geta sýnt marga
góða leiki i röö. Bæði þessi lið
hafa ágæta knattspyrnu-
menn i herbúöum sinum, en
einhverra hluta vegna
sýna þeir ekki getu sina.
öskur þjálfara
Meö þvi hvimleiðasta sem
maður hlustar á, á knatt-
spyrnuleik, eru öskur þjálf-
ara á leikmenn sina — öskur,
eins og: — Hlauptu þangað,
gerðu þetta, gerðu hitt,
reyndu að hreyfa þig o.s.frv.
Tony Knapp, varö frægur
fyrir þetta á meðan hann
stjórnaði KR-liðinu, en arf-
taki hans er nú Bill Haydock,
þjálfari Vikings, sem er
öskrandi i tima og ótima út á
völlinn.
Svona öskur eiga ekki að
eiga sér staö, meðan á leik
stendur — þjálfarar eiga að
leggja leikmönnum sinum
linurnar fyrir leik og ræða
siðan við þá i leikhléi , ef
eitthvað hefur farið úrskeiö-
is. úti á vellinum á fyrirliö-
inn að stjórna.
Þaö ætti aö vera óþarfi að
benda dómurum á þetta —
það er I þeirra verkahring,
að sjá um, að þjálfarar séu
ekki að stjórna leikmönnum
sinum af bekknum.
Þessi framkoma þjálfara
sýnir glöggt, að leikmenn
eru ekki sjálfstæðir inni á
vellinum — það veröur oft
allt vitlaust, ef þeir gera ekki
hluti, sem þjálfarar eru aö
skipa þeim að gera — frá
varamannabekknum. Já,
þaö er ekki von að leikmenn
geti nýtt imyndunarafl sitt
og leikið knattspyrnu eftir
sinu eigin höfði. Þeir eiga
alltaf á hættu að vera
skammaöir af þjálfurum — I
miðjum leik.
Fréttamenn
Vendum okkar kvæði i
kross og litum aðeins á
blaöaskrif um leiki i 1. deild.
Það er ekki hægt aö komast
hjá þvi að sjá, að dagblöð
hampa einstökum liðum,
þrátt fyrir aö þau sýna litla
sem enga knattspyrnu. Þaö
eru skrifaðar heljarinnar
greinar um leiki sem eru lé-
legir — og til að hafa þær
sem lengstar, eru gjarnan
rifjuð upp hin og þessi tæki-
færi, sem leikmenn liða
Framhald á bls. 19.
Akranes
mætir
Fram
5 leikir i 1. deild
um helgina
tslandsmeistararnir Akranes
frá Framara I heimsókn I dag upp
á Akranes, þar sem þeir leiða
saman hesta sina I 1. delldar-
keppninni I knattspyrnu. Það má
búast við spennandi leik, eins og
alltaf þcgar þessi lið mætast uppi
á Skipaskaga. Pétur Pétursson —
markakóngurinn 1977 frá Akra-
nesi mun ekki leika með Skaga-
mönnum, þar sem hann var sett-
ur i leikbann nú i vikunni fyrir
agabrot. Leikurinn hefst kl. 3.
Tveir aðrir leikir verða leiknir i
1. deildarkeppninni f dag. Akur-
eyrarliðið KA leikur sinn fyrsta
leik á heimavelli á keppnistima-
bilinu og mætir liðiö Vikingum kl.
14.30. Þá leika Þróttarar gegn
Vestmannaeyingum á Laugar-
dalsvellinum kl. 17.
Tveir leikir verða leiknir á
morgun — Breiðablik leikur gegn
Keflavik kl. 8 i Kópavogi og Vals-
menn mæta FH-ingum á Laugar-
dalsvellinum kl. 20.00
Staðan er nú þessi i 1. deildar-
keppninni i knattspyrnu:
Akranes ...4310 14-3 7
Valur ...3 3 0 0 10-3 6
Fram ...4 3 0 1 7-4 6
Vestm .ey ...3 2 0 1 6-4 4
Vikingur ...4 2 0 2 7-8 4
Þróttur ...4121 5-6 4
Keflavlk ...4 0 2 2 5-7 2
KA ...4022 2-4 2
FH ...4 0 2 2 3-12 2
Breiöablik ...40 1 3 3-11 1
Markahæstu menn:
Matthias Hallgrimsson Akranesi5
Arnór Guðjohnsen Vfkingi...4
Albert Guðmundsson Val.....3
„Dunlop”
keppnin
í Leiru
Allir beztu
kylfingar
landsins taka
þátt í mótinu,
sem hefst i dag
Hið árlega opna „DUNLOP”-
mót I golfi, sem gefur stig til
landsliðs, fer fram á Hólmsvellin-
um i Leiru um helgina og hefst
mótið i dag kl. 9. AÍIir sterkustu
kylfingar landsliðsins taka þátt I
þessu móti og má búast við geysi-
lega spennandi keppni, eins og I
þeim mótum sem hafa farið fram
I sumar. Verölaun i keppnina eru
gefin af „DUNLOP"' umboðinu
— Austurbakka h.f. og verða
veitt fjöldi verðlauna fyrir ýmis
afrek.
Argentina'78
Lokaslagurinn I riölakeppni
HM-keppninnar I Argentlnu verö-
ur háður nú um helgina og verða
þá leiknir 8 leikir, sem eru:
Laugardagur:
1. RIÐILL:
Frakkland — Ungverjaland
Argentina — Italla
2. RIÐILL:
V-Þýzkaland — Túnis
Pólland — Mexikó
Sunnudagur:
3. RIÐILL:
Austurriki — Brasilia
Svlþjóð — Spánn
4. RIÐILL:
Holland — Skotland
Perú — Iran
f
(