Tíminn - 10.06.1978, Page 20
Sýrð eik er
sígild eign
' A 11U
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 - SÍMl: 86822
Gagnkvæmt
trygginga fétag
QWT1NQ
MORQUNVERDUR ^ ' «
|RAUDARÁRSTlG 18 SSnnnnrin „
Sdchbi
SÍIVII
Laugardagur 10. júní 1978121. tölublað—62. árgangur
Engar fréttir af
meirihlutamynd-
un í Kópavogi
Öllum
kosning-
um frestað
Að loknum fyrsta
fundi nýkjörinnar
bæjarstjórnar i Kópa-
vogi i gær, ræddi Timinn
við Jóhann H. Jónsson,
fyrsta fulltrúa Fram-
sóknarflokksins, og
spurði hann frétta af
fundinum.
Jóhann kvað þvi skjótsvaraö,
þar sem ekki heföi komiö tii
neinnar afgreiöslu á fundi þess-
um, sem hófst kl. 17 í gær og stóö
aöeins rúma klukkustund. Af-
greiddar hefðu verið nokkrar
kjörskrárkærur og gengiö frá
kjörskrám, en öllum kosningum
frestað, forseta, bæjarstjóra,
bæjarráðs og kosningu í nefndir.
Jóhann kvaöst ekkert enn geta
sagt um meirihlutamyndun. Við-
ræöur heföu farið fram, án þess
aö skýrar línur heföu enn mynd-
azt og yrði aö sjá til hver yröi
niöurstaöa næsta fundar, sem
haldinn verður aöTiálfum mánuöi
liðnum.
Allsherjar hreingerning austanf jalls
Mjög viða hefur allsherjar
hreingerning og þrifnaðarher-
ferö farið fram i flestum
hreppum austanfjalls aö und-
anförnu.
Víöa eru þaö kvenfélögin
sem hafa forustuna. Til dæmis
i Villingaholts- og Hraungerð-
ishreppum og viðar. 1 sumum
hreppum eru þaö fegrunar-
nefndir, foreldraféiög ofl. sem
hafa forustuna. Viða eru það
lika einstakir áhugasamir ábú-
endur, sem gera hreint á sinu
landi. Einkum er mikiö rusl,
sem þarf aö fjarlægja með-
fram ökuleiðum. Þannig voru
margir flokkar sjálfboöaliða Ur
Hraungeröishreppi að hreinsa
meöfram hraöbrautinni austur
Flóann, eitt kvöldiö nú I vik-
unni og uppskeran varö marg-
ar kerrur fullar af allskyns
hroða og drasli sem angrar
vegfarendur, sem um þennan
fallega veg fara, að horfa á, ef
ekkert er að gert.
Myndin sýnir Guöjón Svein-
björnssonbónda iUppsölumog
hans fólk, viö hreingerninguna.
Hitaveitan að Svartsengi vígð í gær
Ónnur tveggja túrbina gangsett, sem annar
núverandi orkuþörf
AM — í gær kl. 16.00 var
Hitaveita Suðumesja
við Svartsengi vigð við
hátiðlega athöfn, og
voru þar meðal annarra
komnir Ingólfur Aðal-
steinsson hitaveitustjóri
og stjórn hitaveitunnar
og ennfremur Matthias
Á. Mathiesen, þingmað-
ur og ráðherra. Alls
vom 60-70 gestir að
Svartsengi.
Blaöið náöi tali af einum starfs-
manna hitaveitunnar, Þóröi
Andréssyni og spjallaöi viö hann
nokkra stund, meðan á vigslunni
stóö.
Þóröur sagöi að verið væri aö
sýna og kynna þá af tveimur
túrbinum orkuversins, sem nú
hefði veriö gangsett, en á Svarts-
engi eiga að veröa tvær túrbinur,
þegar verkinu er lokiö. Veröur
afl hvorrar eitt megavatt og ann-
ar sú túrbinan, sem nú er komin i
gang, núverandi þörf, án þess aö
hún sé keyrð af fullu afli. Er nú
dælt tvö hundruö tonnum á
klukkustund frá verinu.
Þá sagöi Þóröur að af þrem
rásum, sem Ieggja skyldi frá
Svartsengi, heföi nú þegar ein
veriö lögö til Grindavikur, Kefla-
vikur og Njarðvikur, en til stend-
ur aö leggja sem fyrst rás i Garð-
inn og til Sandgeröis.
Hitaveita kom til Grindavikur
fyrir um það bil ári og frá ára-
mótum hefur veriö smátt og
smátt lagt i hús i Keflavik og i
Njarðvik, um þaö bil 400 hús.
Heildarþörfin mun áætluð 1. 6
megavött, þegar framkvæmdun;
lýkur.
Hvað möguleika á raforku-
framleiðslu snerti, sagði Þórður
að raforku væri áætlaö aö fram-
leiöa i orkuveri II, sem enn eru
ekki hafnar framkvæmdir við.
Mun það einnig veröa byggt upp
af tveimur túrbinum, eins og
hitaveitan nú.
Kikissaksóknari:
Óskar
eftir
saka-
dóms-
rann-
sókn
Vegna meintra
skattsvika
GEK— Saksóknari rikisins hefur
óskaö eftir sakadómsrannsókn á
umboðsstarfi lögfræðings i
Reykjavik við kaup á skipum frá
Noregi. Segja má aö m'ál þetta sé
einn angi af yfirgripsmikilli rann-
sókn skattrannsóknastjóra á
skipainnflutningi siöustu ára.
Samkvæmt niðurstööum rann-
sóknar hans, virðist umræddur
lögfræöingur hafa dregiö sér um
hálfa milljón norskra króna und-
an skatti af umboðslaunum sem
hannfékkvegna kaupa á sjöskip-
um frá Noregi. Þetta jafngildir
um 23 milljónum islenzkra króna.
t samtali við Timann i gær, tók
Garðar Valdimarsson skattrann-
sóknarstjóri fram, að hér væri
eingöngu um þá hlið málsins aö
ræða sem sneri aö umboðsaðilan-
um, en það sem sneri aö kaupend-
um skipanna væri meðhöndlaö
sérstaklega. Gefin hefur verið út -
ákæra i málum kaupenda tveggja
skipanna, en þaö eru skipin Guð-
mundur RE og Grjótjötunn.
Hin skipin fimm sem umrædd-
ur iögfræöingur haföi milligöngu
meðsölu á, eru: Akraborg, Faxa-
borg, Herjólfur, Jón Finnsson og
Jón Oddur.
Nýmæli í mjólkuriðnaðinum:
Auglýsingar á mjólkur-
umbúðir
GEK — Um næstu mánaöarmót
koma á markaöinn mjólkurum-
búöir meö nýjum skreytingum,
en aö ööru leyti veröur gerð um-
búöanna óbreytt frá þvi sem nú
er.
Þaö nýmæli veröur nú tekiö
upp, að skréyting umbúðanna
veröur breytileg og veröur ýms-
um samtökum og liknarfélögum
gefinn kostur á aö nota mjólkur-
umbúöirnar til aö minna á starf-
semi si'na. Auk þess veröurlögð
áherzla á að kynna fæöuval og
trimm á umbúöunum, svo eitt-
hvaö sé nefnt.
A fyrstu umbúðunum verður
minnt á landbúnaðarsýninguna
sem haldin veröur á Selfossi dag-
ana 11.-20 ágúst i sumar.
Starfsfólk BUH:
Tilbúið að hefja
vinnu undir
nýrri verkstjórn
GV — A fundi starfsfólks Fisk-
iöjuvers Bæjarútgeröar Hafnar-
fjaröar kom fram frávisunartil-
laga við sáttatillögu bæjarstjórn-
ar Hafnarfjaröar I deilumáli þvi,
sem leitt hefur til verkfalls frá þvi
á miðvikudag i fyrri viku.
Frávisunartillagan var þess
efnis, aö fengnir yröu nýir verk-
stjórar næstu tvo mánuöi og var
hún samþykkt meö 74 atkvæðum
gegn 28. — Fólki fannst þvi mis-
boöið að boðið yröi upp á sömu til-
löguna aftur, hins vegar er það
tilbúið til aö hef ja vinnu strax, ef
ráönir verða nýir verkstjórar,
sagöi Guöriöur Eliasdóttir for-
maður Verkakvennafélagsins
Framtiðin i viötali viö Timann.
Borgarnes:
milli stjórnar og Verkalýðsfélags-
ins um kjaramál
GV — Ég hef samþykkt að taka
upp beinar viðræður i næstu viku
við verkalýðsfélagið um kjara-
mál verkafólks kaupfélagsins.
Sveitafélagiö samdi fyrr i vor viö
verkalýösfélagiö um nokkra
kauphækkun verkamanna bæjar-
ins, eða þeirra lægstlaunuðu en
ekki annarra starfsmanna bæjar-
ins, og ég geri ráö fyrir aö verka-
lýðsfélagið vilji ná hliöstæöum
samningum við okkur, sagöi
Ólafur Sverrisson kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Borgarness i
viðtali við Timann.
— Við njótum aö hafa til hlið-
sjónar þá samninga sem gerðir
voru viö Borgarneshrepp I vor er
við göngum til þessara viöræöna,
sagöi Jón Agnar Eggertsson for-
maður Verkalýösfélags Borgar-
ness. Jón sagði, aö ástæöan fyrir
þvi að óskað var eftir þessum við-
ræðum nú væri aö litið heföi
gengið I samningaviöræðum
VMSl og vinnu veitenda og aö þaö
væri yfirlýst stefna verkalýðs-
félagsins aö ná aftur þeim kjara-
samningum sem gerðir voru 22.
júni 1977, en siöar rift meö laga-
boðum. Þá sagöi Jón, aö sam-
skipti verkalýösfélagsins við
kaupfélagiðheföu alltaf verið góð
og að áöur hefðu veriö geröir sér-
samningar milli þessara aðila.