Tíminn - 14.06.1978, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Hver er
Alþýðubandalagsins?
Þegar leiðtogar Alþýðu-
bandalagsins eru spurðir um,
hver sé stefna þeirra í efna-
hagsmálum, vitna þeir í mikla
ritsmíð sem skiptist i marga
aðalliði og enn fleiri undirliði.
Þeir segja að þessi ritsmíð lýsi
stefnu þeirra í efnahags-
málunum og reyna svo að
komast hjá því að skýra þetta
nánara. Astæðan er sú að rit-
smíð þessi er svo óskýr og
ruglingsleg, að ekkert er á
henni að græða um raunveru-
lega efnahagsstefnu Alþýðu-
bandalagsins.
Hér eins og endranær er líka
bezt að dæma eftir verkunum.
Mesti f jármálamaður Alþýðu-
bandalagsins er óumdeilan-
lega Guðmundur Hjartarson,
Lúðvík Jósepsson tók hann
fram yfir alla aðra flokks-
bræður sínar, þegar hann valdi
í bankastjórastöðuna í Seðla-
bankanum. Lúðvík mun fyrst
og fremst leita ráða til Guð-
mundar ef Alþýðubandalagið
verður stjórnarflokkur eftir
kosningar. Guðmundur
Hjartarson mun ráða miklu
meira um efnahagsstefnu Al-
þýðubandalagsins sem
stjórnarflokks en undirfor-
ingjar á borð við Ólaf Ragnar.
En stefnu og skoðanir Guð-
mundar Hjartarsonar má bezt
ráða af því að hann hef ur verið
samþykkur öllum gengis-
lækkunum og vaxtahækkun-
um, sem ákveðnar hafa verið
á þessu kjörtímabili. Af því
geta kjósendur bezt dæmt,
hver efnahagsstefnan yrði ef
Alþýðubandalagið kæmi til
með að hafa áhrif á hana að
loknum þingkosningunum 25.
júní.
Birgit Nilsson og Elisabeth Söderström i anddyri Hótel Sögu i gær.
Tlmamynd: G.E.
Glaðværar og rómantískar sópransöngkonur
komnar á listahátið
F1 — Sænsku sóransöngkon-
urnar Birgit Nilsson og Elisa-
beth Söderström voru bros-
mildar, þegar þær gengu inn i
Hótel Sögu i gær, en hingað
eru þær komnar í tilefni Lista-
hátiðar. Birgit Nilsson kom
með mann sinn með sér og var
mjög upptekin af honum, en
Söderström dreif sig þegar I
stað á æfingu með Ashkenazy.
Tónleikar Elisabethar
Söderström verða i Háskóla-
bíóii kvöld og hefur verið bætt
við 90 sætum vegna aðsóknar.
Tónleikar Birgit Nilsson verða
I Laugardalshöll annað kvöld
og er þeirra beðið með eftir-
væntingu, þvf að hér er á ferö
bezta söngkona i heimi og
nánast sú eina, sem uppfyllt
getur kröfur Wagners.
Sjá frásögn og viðtöl bls. 5.
Guðmund J.
hrekur sjá bak
Þjóðviljalygi
11 i
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
Verkstjóramir reknir
Sjá baksíðu
2500 manns
fá verðbætur
1. júli
SSt — Samkvæmt þeim tölum
sem við höfum undir höndum og
eru ekki hárnákvæmar munu um
1674 félagar i verkalýðsfélögun-
um Dagsbrún og Framsókn fá
fullar verðbætur á laun sin frá 1.
júli og auk þess 826 félagar 1
starfsstúlknafélaginu Sókn eða
alls 2500 manns og er þaö tæpur
helmingur þeirra sem vinna á
vegum borgarinnar, en alls munu
vinna nálægt 5580 manns hjá
borginni, sögðu fulltrúar meiri-
hlutaflokkanna á blaöamanna-
fundinum i gær.
Meirihlutinn samþykkir fullar visitölubætur i áföngum:
Fullar verðbætur á lægstu
laun frá 1. júlí
óskertar verðbætur á laun allra
borgarstarfsmanna frá næstu áramótum
SSt — „Það hefur orðið að sam-
komulagi að leggja fram tillögu
til afgreiðslu á næsta borgar-
stjórnarfundi eftir athuganir,
nefndastörf og viðræður við
stærstu viðsemjendur okkar,
Dagsbrún, Framsóknog Sókn, að
greiða fullar verðbætur á laun
151.700 kr. og lægri frá 1. júli að
telja, en hærri launaflokkar fá
jafnháa krónutöluhækkun. Þá
koma næst fullar verðbætur á
laun 170.000 kr. og lægri 1. sept.
n.k. og krónutöluhækkanir upp
eftir og þá fullar verðbætur á laun
210.000 kr. 1. nóv. n.k. Frá næstu
áramótum verður öllu starfsfólki
borgarinnar greiddar óskertar
verðbætur það sem eftir er samn-
ingstimans eða fram á mitt næsta
ár, sagði Sigurjón Pétursson er
hann útskýrði meginefni tillögu
um greiðslu visitölubóta á laun
b o r g a r s t a r f s m a n n a á
blaðamannafundi i gær.
1 fréttatilkynningu, sem meiri-
hluti borgarráðs sendi frá sér i
gær um greiöslu visitölubóta, er
þessi tillaga nánar skýrð á þenn-
an hátt: Frá og með 1. júli verði
öllu starfsfólki borgarinnar og
fyrirtækja hennar sem hefur
Nánar á bls. 15
151.700 kr. i mánaðarlaun i dag-
vinnu eða lægra ,greiddar fullar
verðbætur skv. ákvæðum kjara-
samninga á öll vinnulaun.Starfs-
fólki með hærri laun skulu
greiddar verðbætur jafnháar i
krónutölu og greiðast á ofan-
greind mörk, þó þannig, að þegar
verðbætur skv. lögum nr. 3/1978
nema hærri upphæö þá skal
greiða samkvæmt þeim. — Þann
Framhald á bls. 19.
Frá blaðamannafundinum I gær, þegar fulltrúar meirihlutaflokkanna f borgarstjórn skýrðu frá tillögu
sinnium að greiða fullar visitölubætur á laun borgarstarfsmanna I áföngum. Tillaga þessi verður borin
upp á borgarstjórnarfundi á fimmtudag.
Timamynd G.E.