Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 1
Laugardagur 5. ágúst 1978 168. tölublað — 62. árgangur íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 ólafur Jóhannesson flytur ræöu slna á miðstjórnarfundinum. Ólafur Jóhannesson á midstjórnarfundinum í gær: Fjölmenni var á miðstjðrnarfun dinuin I gær og góðar umræöur. Fremst á myndinni sitja nokkrir full- trúar Framsóknarkvenna I Reykjavik. Látum málefni ráða sem jafnan trrslit alþingiskosninganna, staða Framsóknarflokksins og viðhorf til stjórnarmyndunar voru helstu umræðuefnin á mið- stjórnarfundi Framsóknarmanna sem haldinn var i Reykjavik i gær. Fyrir fundinum lá að taka afstöðu til þess hvort Framsóknarmenn skyldu eiga þátt i stjórnarmyndunarviðræð- um i þvi skyni að taka þátt i rikis- stjórn eða ekki, en umræðurnar snerust einnig mikið um ástæður þess ósigurs sem flokkurinn beið i alþingiskosningunum og um það eflingar- og sóknarstarf sem fram undan er. Fundurinn hófst með framsögu ólafs Jóhannessonar, formanns, og fjallaði hann I ræðu sinni um úrslit kosninganna og framvindu mála siðan. Miklar umræður á fjölmennum fundi um úrslit kosninganna, stöðu Framsóknar- flokksins og viðhorf til viðræðna um stjórnarmyndun „Þessi fundur er haldinn nú”, sagði Ólafur Jóhannesson, „til þess að menn geti fjallað um mál- in og tekið afstöðu til þeirra áður en nokkrar bindandi ákvarðanir hafa verið teknar á nokkru stigi viðræðna við aðra flokka”. Lagði hann áherslu á að fundurinn ætti að marka forystu flokksins braut i þeim viðræðum sem fram undan kunna að vera. Ólafur Jóhannesson gerði stutta grein fyrir þeim viðræðum sem þegar hafa átt sér stað. Taldi hann að „könnunarviðræður” Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags hefðu greinilega verið alveg marklausar: „Menn hafa þarna ef til vill brosað hver til annars, meira hef- ur það ekki veriö”. Ólafur taldi ósennilegt að allra flokka stjórn gæti orðið raunsær valkostur. Hann sagðist vel skilja það sjónarmið margra flokks- manna að flokkurinn ætti að vera utan stjórnar eftir úrslit kosning- anna. Framhald á 19. siðu. Allt var á fullri ferð niöur á Umferðarmiöstöð i gær eins og reyndar alls staðar, þvi þá var að ganga i garð mesta umferðarhelgi ársins, versl- unarmannahelgin. Timamynd: Róbert. Hver er réttur hinna dauðu? Rætt við fólk vegna blaðaskrifav um mál Guðbjarts heitins Pálssonar og spurt um réttmæti þessara skrifa Sjá bls. 10 Ættum að nota leðju í stað vatns Kröfluvandamálið er tækni- og stjórnunarlegt MÓL —S.l. sunnudag sagði Tim- inn frá athugunum, sem virtur erlendur jarðhitasérfræðingur hefur gert á Kröflusvæðinu og möguleikum á orkuvinnslu þar. Kom fram i fréttinni, að hið svo- nefnda Kröfluvandamál væri ekki jarðfræðilegt eftir allt saman heldurfrekar tækni-og stjórnunar- legt. Timinn ræddi i gær við full- trúa Kröflunefndar og Orkustofn- unar um niðurstöður rannsóknar hins erlenda sérfræðings. „Sumt af þessu vissum við auð- vitað”, sagði Einar Tjörvi Elias- son, yfirverkfræðingur og fram- kvæmdastjóri Kröflunefndar. „Bolton, en svo heitir sérfræðing- urinn, benti á ýmis vandamál i sambandi við stjórnun og sam- ræmingu stjórnunarinnar. Þá benti hann á nokkur tæknileg vandamál, sérstaklega hvað varðar borun, fóðringu, útfellingu og gas. Hann lagði aðallega til, að við færum að bora með leðju, en hingað til höfum við borað með vatni”. „Hins vegar leist honum mjög vel á Kröflusvæðið og telur það gott til gufuöflunar og þá sérstak- lega i suðurhliðum Kröflu. Hon- um fannst mikið koma til gufu- veitunnar og sjálfrar aflstöðvar- innar og kvað fráganginn vera tæknilega mjög fullkominn.” „Núna á næstunni munu hefjast á ný borunarframkvæmdir við Kröflu, og er stefnt að þvi að reyna að nota leðju við þær fram- kvæmdir, en timinn er hins vegar orðinn æði naumur. Við verðum að reyna tvær til þrjár holur til að geta sannað, að þetta sé hag- kvæmari leið”, sagði-Einar Tjörvi. „Niðurstöður hans koma okkur ekki á óvart”, sagði dr. Valgarð- ur Stefánsson, verkefnastjóri jarðhitarannsókna við Kröflu, „Samkvæmt athugunum hans er vandamálið stjórnunarlegt frek- ar en tæknilegt eða jarðfræðilegt. Það eru of margir aöilar sem með stjórnunina hafa að gera og eng- inn einn aðili hefur séö um sam- ræmingu milli verkþátta”. „Það er enginn einn aðili, sem hefur verið með fjármálin. Sumir hafa fengið of mikið og aðrir hafa fengið of litið, og þeir sem hafa fengið of litið hafa þurft að draga Framhald á 19. siðu. Lagadeild H.í. „Út í hött” Nokkrar umræður hafa spunnist upp á siðkastið, vegna ummæla i Tímanum varðandi próf i laga- deild. í blaðinu i dag er fjallað um þetta mál og talað við nokkra, sem það er viðkomandi. Sjá bls. 5.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.